Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 C 3
ORGANICS
OPIÐ GOLFMÓT
Styrktarmót vegna þátttöku sveitar Keilis í Evrópukeppni
félagsliða í golfi verður haldið sunnudaginn 8. október nk.
Glæsileg’verðlaun veitt fyrir 12. og 3. sæti með og án forgjafar.
Aukaverðlaun næst holu á 16. flöt.
Hólmagolfið verður á sínum stað með sér verðlaun.
Ræst verður út frá kl. 9.00.
Skráning rástíma í síma 565-3360.
Bakhjarl að mótinu er Ásgeir Sigurðsson hf., umboðsmaður
ORGANICS á Islandi.
Fjölbreytt
félagsmálanámskeið
Umbótanefnd ÍSÍ í kvennaíþróttum býður konum,
sem eru í íþróttum eða íþróttastarfi, að taka þátt í
fjölbreyttu og ódýru félagsmálanámskeiði.
Námskeiðið verður haldið í íþróttamiðstöðinni,
Laugardal, hefst mánudaginn 9. októberkl. 20.00
og stendur yfir í fjögur kvöld.
Leiðbeinendur verða Ingibjörg Hinriksdóttir, blaða-
maður, og íþróttakonurnar Arnþrúður Karlsdóttir,
fjölmiðlafræðingur, og Unnur Stefánsdóttir, stjórnar-
maður í framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Þátttaka tilkynnist til Eddu Jónsdóttur
á skrifstofu ÍSI i síma 5813377.
ÞJÁLFARAMENNTUN KSÍ
A-STIG
Fræðslunefnd KSÍ heldur A-stigs þjálfara-
námskeið helgina 20.-22. október nk.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Námskeiðsþættir eru:
Knattspyrnutækni, leikfræði, kennslufræði, líffæra- og
lífeðlisfræði, þjálffræði, sálarfræði, næringarfræði og
íþróttameiðsi.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari
upplýsingar í síma 581-4444.
Góð þjálfun - betri knattspyrna
FRÆÐSLUNEFND KSÍ
ÍSLARID - Tyrkland
11. október kl. 20:00
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort
fá afhenta aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli,
mánudaginn 9. októberkl. 11:00 - 18:00.
ATH! MIÐAR VERÐA EKKI AFHENTIR FYRIR
____________UTAN ÞENNAN TÍMA.________________
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort, geta hringt
á skrifstofu KSI mánudaginn 9. október milli
kl. 11:00 - 18:00 og látið taka frá fyrir sig miða sem síðan
verða afhentir samkvæmt nánara samkomulagi.
Forsala er hafin
hjá Eymundsson, íslenskum getraunum og í Spörtu
Síðast var uppselt í stúku. Tryggðu þér miða í tíma.
ísland - Tyrkland á Laugardalsvelii 11. október
KÖRFUKNATTLEIKUR
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÚRSLIT
Vandalaust
hjá UMFT
Tindastólsmenn áttu ekki í telj-
andi erfiðleikum að innbyrða
þriðja sigur sinn í jafnmörgum leikj-
um þegar þeir tóku
Björn á móti Breiðabliki,
Björnsson lokatölur 94:75. Þeir
skrifar frá tóku strax forystuna
Sauöárkróki j ie;knum gegn
Breiðabliki í gærkvöldi, en Blikar
börðust vel og voru ekki langt und-
an framan af. Fram undir miðjan
hálfleikinn þá skildu átta til níu
stig liðin að. En upp úr því tóku
heimamenn af skarið og náðu tutt-
ugu stiga forystu sem þeir héldu
til hálfleiks, en þá stóðu leikar
57:37. Á þessum kafla munaði
mest um stórleik Torrey Johns en
hann gerði 27 stig í fyrri hálfleik,
einnig var þriggja stiga skothittni
Ómars Sigmarssonar góð. Hann
gerði fjórar þriggja stiga körfur.
Blikar hófu síðari hálfleikinn með
mikillu baráttu og á fyrstu fimm
mínútunum minnkuðu þeir muninn
í ellefu stig og gerðu á þeim kafla
ellefu stig á móti tveimur heima-
manna. En þá tók Páll Kolbeinson,
þjálfari Tindastóls, leikhlé og las
sínum mönnum pistilinn. Strax að
því loknu tóku þeir öll völd og náðu
á ný góðri forystu sem þeir héldu
til leiksloka.
Hjá Tindastóli voru Torrey John
og Omar Sigmarsson bestir og Pét-
ur Guðmundsson átti einnig góðan
leik. Birgir Mikaelsson langbestur
hjá gestunum.
Þrek Vals
þraut
Valsmenn náðu að halda út í 10
mínútur gegn Borgnesingum
að Hlíðarenda í gærkvöldi, höfðu
mHHi þá forskot en gest-
Stefán irnir sigu örugglega
Stefánsson fram úr í tæplega
skrifar gp stiga sigur,
49:78.
Leikmenn byijuðu af miklu kappi
og fór ívar Webster, sem varð fer-
tugur í síðasta mánuði, á kostum
fyrir Val í upphafi, hirti fráköst og
barðist af miklum móð. Ragnar Þór
Jónsson hitti líka vel fyrir Val, sem
hafði 14:10 forskot um miðjan fyrri
hálfleik. En þolinmóðir Borgnesing-
ar vissu að þeirra tími kæmi og
eftir fjórtán stiga syrpu snerist tafl-
ið við. Staðan í leikhléi var 28:38
og bara spurning um hvað sigurinn
yrði stór í lokin.
Valsdrengirnir eru fæstir tilbúnir
í úrvalsdeildarslaginn en verða að
spjara sig. Þar gildir að klára heilan
leik því góðir sprettir duga skammt.
Ragi^ar Þór og Bergur Már Emils-
son gerðu 41 af 49 stigum liðsins
og ívar fjögur en tók flest fráköst,
14. Þeir voru bestu menn liðsins.
Skallagrímsmenn höfðu mikla
breidd og gátu skipt góðum leik-
mönnum inn af bekknum þegar leið
á leikinn. Alexander Ermolinski var
sterkur undir körfunni og ungu
drengirnir Sigmar Egilsson og
Grétar Guðlaugsson áttu góða
spretti. „Við vorum ekki að gera
neina sérstaka hluti og eigum mun
meira inni,“ sagði Grétar.
Spáin
Að venju var spáð fyrir um
úrslitin í 1. deild kvenna í
körfuknattleiknum og fer sú
spá hér á eftir:
Breiðablik ...139 stig
Keflavík
KR
Grindavík ...109 stig
ÍR 94 stig
Njarðvík 69 stig
Valur 58 stig
Tindastóll 47 stig
ÍS
ÍA 27 stig
Morgunblaðið/Ásdís
JONATHAN BOW og félagar hans báru sigurorð af Þórsurum á Seltjarn-
arnesi í gærkvöldi. Hér stígur hann „dans“ undir körfunni ásamt Birni
Sveinssyni Þórsara og svo virðist sem Bow hafi betur. Lárus Árnason
fylgist meö úr fjarlægð.
Breiðabliki spáð sigri í 1. deild kvenna
Þægilegtað
byija á toppnum
Fyrsta deild kvenna í körfuknattleik
hefst í kvöld með einum leik, en þá
mætast ÍS og Tindastól í íþróttahúsi
Kennarháskólans. íslandsmeisturunum
úr Breiðabliki er spáð sigri í mótinu og
sagði Sigurður Hjörleifsson þjálfari liðsins
að það væri þægilegt að byrja á toppnum.
„Við erum með örlítið breytt lið frá því
í fyrra. Penny Peppas er farin, skipti um
umhverfi, og við höfum fengið aðra er-
lenda stúlku í staðinn. Olga Færseth er
farin til Bandaríkjanna og líklega verður
Erla Hendriksdóttir ekki með, en hún er
svo fjölhæf stelpan að hún er í öllum
íþróttum og fæturnir þola það ekki. Við
höfum fengið tvær stúlkur úr Tindastóli
og ég tel að við séum með sterkara lið en
í fyrra,“ sagði Sigurður um Breiðablikslið-
ið, sem ætti þá að hafa alla burði til að
veija titilinn sem þær unnu til í fyrra.
Bikarmeistararnir frá Keflavík verða
ekki með erlendan leikmann, frekar en í
fyrra, og nokkrar breytingar hafa orðið
á liðinu en kjarninn er svipaður. Leik-
reynsla Keflvíkinga er mikil, sérstaklega
hjá lykilmanneskjunum, og hún á örugg-
lega eftir að koma þeim langt í vetur
eins og undanfarin ár.
KR, Grindavík og Njarðvík eru með
erlenda leikmenn innan sinna raða þann-
ig að fjórar erlendar stúlkur leika í deild-
inni í vetur og bíða margir spenntir að
sjá hvað það gerir fyrir kvennaboltann í
vetur, en því verður ekki neitað að Penny
Peppas setti mikin svip á leik Breiðabliks
í fyrra, og raunar á alla deildarkeppnina.
Samkvæmt spánni ætti baráttan á toppn-
um að verða nokkuð spennandi því mun-
urinn á Breiðabliki, Keflavík og KR er
ekki mikill.
KR-ingar stöðvuðu
sigurgöngu Þórsara
KR-INGAR sigruðu Þórsara í nokkuð fjörugum leik á Seltjarnar-
nesi í gærkvöldi, með 103 stigum gegn 89. Það var einkum góð-
ur leikur í fyrri hálfleik sem tryggði KR-ingum sigurinn. „Ég er
mjög sáttur við leikinn, sérstaklega fyrri hálfleikinn. Við misstum
þetta þó aldrei frá okkur í síðari hálfleik og sigurinn var aldrei
í hættu. Við erum að leika vel og ég skora á Vesturbæinga að
mæta á leikina og styðja við bakið á okkur, ég lofa góðri skemmt-
un,“ sagði Lárus Árnason fyrirliði KR eftir leikinn.
KR-ingar byijuðu leikinn betur
og náðu nokkru forskoti strax
í byijun. Það hvarf þó fljótlega og
leikurinn jafnaðist
Stefán út. Um miðjan fyrri
Eiríksson hálfleik var Banda-
skrifar ríkjamaðurinn í liði
Þórs, Fred Williams,
kominn með þijár villur, og ákvað
Jón Guðmundsson þjálfari Þórs að
taka enga áhættu og setti hann á
bekkinn það sem eftir lifði af fyrri
hálfleik. KR-ingar nýttu sér það
vel, juku forskotið jafnt og þétt,
náðu á tímabili rúmlega 20 stiga
forskoti og leiddu með 18 stigum í
hálfleik, 60:42.
Þórsarar mættu ákveðnir til leiks
í síðari hálfleik og náðu að saxa á
forskot KR-inga jafnt og þétt. Þeg-
ar síðari hálfleikur var tæplega
hálfnaður var munurinn kominn
niður í sjö stig, 72:65, og Þórsarar
virtust vera að snúa leiknum sér í
hag. En þá kom rothöggið, Konráð
Óskarsson fór út af með sína
fimmtu villu, klaufalega sóknar-
villu, og við það hrundi leikur Þórs-
ara. KR-ingar gengu á lagið og
gerðu tíu stig í röð og sigldu skút-
unni í höfn í kjölfarið.
Það má segja að villuvandræði
Þórsara hafi leikið stórt hlutverk
í þessum leik. Það verður þó ekk-
ert af KR-ingum tekið að þeir léku
lengst af vel, sérstaklega varnar-
leikinn í fyrri hálfleik en klaufa-
skapur var oft á tíðum það sem
einkenndi sóknarleik þeirra. Lárus
Árnason átti mjög góðan leik,
mataði félaga sína á stoðsending-
um og var duglegur í vörninni. Bow
var traustur, stigahæstur með 34
stig, og Ósvaldur lék vel í fyrri
hálfleik og Hermann var mikilvæg-
ur í þeim síðari. Williams var stiga-
hæstur Þórsara með 26, aðeins 4
af þeim í fyrri hálfleik, en Kristinn
Friðriksson gerði 25. Upp úr stend-
ur þó að breiddin í liði Þórs virtist
mun minni en hjá KR; sex leik-
menn skoruðu fyrir Þór meðan all-
ir leikmenn KR, tíu stykki, komust
á blað.
Keflvíkingar lögðu
meistara UMFN
að var fyrst og fremst góður
varnarleikur sem skóp þenn-
an sigur og eins vorum við
oft að leika mjög vel, þannig að
ég get varla verið
annað en ánægð-
ur,“ sagði Jón Kr.
Gíslason þjálfari og
ieikmaður Keflavík-
ur eftir að lið hans hafði sigrað
nágranna sina og íslandsmeistar-
ana frá Njarðyík 98:84, í Keflavík
í gærkvöldi. í hálfleik var staðan
49:41 fyrir Keflavík. Þetta er ann-
ar tapleikur Njarðvíkinga í röð og
ljóst er að hjá þeim verður á bratt-
ann að sækja á næstunni.
Keflvíkingar tóku frumkvæðið
þegar í byijun og héldu því allt til
leiksloka. Munurinn á liðunum að
þessu sinni var einfaldlega sá að
Keflvíkingar léku mun betur bæði
í vörn og sókn á meðan Njarðvík-
ingar gerðu sig seka um ótímabær
skot og annað í þeim dúr. Smá
spenna skapaðist þó um miðjan
síðari hálfleik þegar Lenar Burns
fékk sína fjórðu villu og var rekinn
útaf. Njarðvíkingum tókst þá að
minnka muninn í 5 stig en í kjölfar-
ið mistókust einar 7 sóknir hjá
þeim í röð og Keflvíkingar gerðu
út um leikinn.
„Mér fannst þetta góður leikur
hjá tveimur góðum liðum, en Kefl-
víkingar voru sterkari að þessu
sinni. Það var erfitt að vera undir
allan leikinn og það kostaði of
mikinn kraft að ná þeim. Við gerð-
um okkur seka um of mikla fljót-
færni í sókninni þar sem menn
léku oft af meira kappi en forsjá,“
sagði Hrannar Hólm þjálfari
Njarðvíkinga. Bestu menn Keflvík-
inga voru þeir Guðjón Skúlason,
Lenear Burns, Davíð Grissom, Fal-
ur Harðarson, Albert Óskarsson
og Jón Kr. Gíslason. Teitur Örlygs-
son var aðalmaðurinn í Njarðvík-
urliðinu en hann og Rondey Robin-
son voru þeir einu sem eitthvað
höfðu í Keflvíkinga að gera að
þessu sinni.
Björn
Blöndal
skrifar frá
Keflavik
ÍR í kennslu
hjá Haukum
Hafi áhorfendur komið i íþrótta-
húsið á Strandgötu í gær-
kvöldi á leik Hauka og ÍR til að sjá
jafnan leik urðu þeir
fyrir vonbrigðum.
Hafi þeir mætt _ á
staðinn til að sjá ÍR
liðið leika við hvern
sinn fingur fóru þeir vonsviknir
heim. Hafi þeir hinir sömu viljað sjá
Hauka leika við hvern sinn fingur
gátu þeir glaðst allan tímann og
ekki síst að leikslokum þegar örugg-
ur 87:59 sigur Hafnfirðinga var í
höfn.
Leikmenn Hauka tóku leikinn
strax í sínar hendur og léku mjög
ákveðna vörn og hraðan og
skemmtilegan sóknarleik. ÍR-ingar
lentu strax utan veltu í leiknum og
komust aldrei í taktinn. Mikil
stemmning var í Haukaliðinu og það
hélt sínu striki allt til leiksloka þrátt
fyrir að Reynir Kristjánsson þjálfari
hafi gefið öllum leikmönnum sínum
tækifæri til að spreyta sig þá virk-
aði það fremur á hinn verri veg
fyrir Breiðhyltinga fremur en hitt.
Eftir ellefu mínútna leik höfðu
Haukar náð tuttugu stiga forskoti,
27:7 og þrátt fyrir að ÍR sýndu
örlítið lífsmark rétt upp úr þvi sótti
fljótlega í sama farið og í leikhléi
munaði átján stigum, 48:30.
„Haukarnir spiluðu miklu betur
en við alveg frá upphafi og það virt-
ist sem þeir hefðu miklu meiri sigur-
löngun en við. Við höfum ekkert til
afsaka okkur á, en þetta tap undir-
strikar það að við verðum að fara
að rífa okkur upp,“ sagði Jón Örn
Guðmundsson, leikmaður ÍR.
Seinni hálfleikurinn var spegil-
mynd þess fyrri. Haukar réðu lögum
og lofum á vellinum og einbeiting
og lánleysi ÍR var algjört. Þeim
gekk illa að skora úr þeim erfiðu
færum sem þeir fengu gegn sterkri
Hauka vörn og varnarleikur þeirra
var yfir höfuð iosaralegur.
„Sterk vörn okkar frá upphafi til
enda skóp sigurinn og það var afrek
að ná að halda þeim undir sextíu
stigum.
Þetta var fyrsti heimaleikurinn
okkar á tímabilinu og við vorum
staðráðnir í því að koma ákveðnir
í hann til að skemmta áhorfendum
okkar og okkur sjálfum og það
tókst,“ sagði Reynir Kristjánsson,
þjálfari Hauka, brosmildur að leiks-
lokum og hafði efni á því.
ívar
Benediktsson
skrifar
Létt hjá
Grindavík
Það var snemma ljóst hvert
stefndi í leik Grindvíkinga og
Akurnesinga í leik þeirra í gær-
^■■■■■1 kvöldi. Heimamenn
Frímann léku einfaldlega á
Ólafsson öðrum hraða en
skrifar frá gestirnir og það dró
Grmdavík - sundur með liðun.
um upp úr miðjum fyrri hálfleik.
Grindvíkingar léku meira saman sem
liðsheild meðan einstaklingsfram-
takið réð ríkjum hjá Akurnesingum.
Leikurinn var jafn framan af en
í stöðunni 17:16 fyrir heimamenn
skildu leiðir og Grindvíkingar
breyttu stöðunni í 31:18. Unndór
Sigurðsson kom heitur inn á og bytj-
aði á að raða niður þremur þriggja
stiga körfum. Helgi Jónas og Marel
voru einnig dijúgir. í byijun seinni
hálfleiks byijuðu heimamenn miklu
betur og Ákurnesingar sáu ekki til
sólar eftir það.
Herman Meyers átti mjög góðan
ieik með Grindavíkurliðinu og réðu
Akurnesingar illa við hann. Hann
reif einnig niður 15 fráköst í vörn-
inni. Guðmundur, Helgi Jónas,
Unndór og Marel áttu einnig góðan
leik en það sem kannski réð úrslitum
í ieiknum var hve menn lögðu sig
fram í vörninni. Milton Bell og Brynj-
ar Karl áttu skárstan leik gestanna
og Bjarni Magnússon átti ágæta
spretti en ljóst að þeir eiga langt í
land ætli þeir sér að standa uppí
hárinu á hinum liðunum.
KR-Þór 103:89
íþróttahúsið Seltjarnarnesi, íslandsmótið í
körfuknattleik - úrvalsdeild, 3. umferð -
fimmtudagur 5. október 1995.
Gangur leiksins: 2:0, 12:6, 23:21, 30:27,
43:34, 57:35, 60:42, 62:42, 64:49, 70:54,
72:65, 76:67, 86:77, 92:81, 98:86, 103:89.
Stig KR: Jonathan Bow 34, Hermann
Hauksson 25, Ósvaldur Knudsen 15, Lárus
Ámason 7, Óskar Kristjánsson 7, Atli Ein-
arsson 4, Amar Sigurðsson 4, FÍnnur 'Vil-
hjálmsson 3, Baldur Ólafsson 2, Lárus Val-
garðsson 2.
Fráköst: 15 í sókn - 28 í vöm.
Stig Þórs: Fred 'Williams 26, Kristinn Frið-
riksson 25, Konráð Óskarsson 16, Kristján
Guðlaugsson 14, Björn Sveinsson 5, Einar
Valbergsson 3.
Fráköst: 13 í sókn - 24 í vöm.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Eggert
Þór Aðalsteinsson, dæmdu í öllum aðalatrið-
um vel.
Villur: KR 22 - Þór 26.
Áhorfendur: Um 150.
UMFT - Breiðablik 94:75
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 2:0, 5:2, 17:11, 32:19,
46:27, 57:37, 59:48, 72:52, 81:60, 89:69,
94:76.
Stig Tindastóls: Torrey John 38, Ómar
Sigmarsson 20, Hinrik Gunnarsson 9, Lárus
Dagur Pálsson 6, Pétur Guðnason 6, Baldur
Einarsson 6, Arnar Kárason 6, Atli Bjöm
Þorbjömsson 3.
Fráköst: 18 í sókn - 21 í vörn.
Stig Breiðabliks: Michael Thoele 19, Birg-
ir Mikaelsson 17, Einar Hannesson 9, Hjört-
ur Arnarson 8, Agnar Ólsen 8, Daði Sigur-
þórsson 7, Atli Sigurþórsson 4, Erlingur
Erlingsson 4.
Fráköst: 4 í sókn - 18 í vörn.
Dómarar: Leifur Garðarson opg Einar
Skarphéðinsson, dæmdu þokkalega.
Villur: Tindastóll 18 - Breiðablik 13.
Áhorfendur: Um 500 og voru vel með á
nótunum.
Valur-Skallagr. 49:78
Hlíðarendi:
Gangur leiksins: 5:2, 5:8, 14:10, 15:24,
25:28, 28:38, 31:41, 34:60, 45:64, 47:71,
49:78.
Stig Vals: Ragnar Þór Jónsson 25, Bergur
Már Emilsson 16, ívar Webster 4, Bjarki
Guðmundsson 2, Bjarki Gústafsson 2.
Fráköst: 4 í sókn - 28 í vöm.
Stig Skallagríms: Alexander Emiolinski
18, Grétar Guðlaugsson 12, Ari Gunnarsson
11, Sveinbjöm Sigurðsson 11, Tómas Hol-
ton 9, Sigmar Egilsson 7, Gunnar Þorsteins-
son 5, Hlynur L. Leifsson 3, Bragi Magnús-
son 2.
Fráköst: 10 í sókn - 33 í vöm.
Ðómarar: Þorgeir Jón Júlíusson og Georg
Þorsteinsson komust vel frá leiknum.
ViIIur: Valur 19 - Skallagrímur 12.
Áhorfendur: Um 140, að meirihluta komn-
ir frá Borgarnesi.
UMFG-ÍA 103:82
Iþróttahúsið í Grindavík:
Gangur leiksins: 4:0, 4:4, 15:8, 17:16,
31:18, 37:26, 53:36, 60:40, 69:42, 80:51,
85:60, 95:63, 99:79, 103:82.
Stig UMFG: Herman Meyers 35, Guðmund-
ur Bragason 19, Marel Guðlaugsson 18,
Unndór Sigurðsson 14, Helgi Jónas Guð-
finnsson 13, Páll Axel Vilbergsson 2, Árni
Stefán Björnsson 2.
Fráköst: 17 í sókn, 22 í vörn.
Stig ÍA: Milton Bell 20, Brynjar Karl Sig-
urðsson 19, Bjarni Magnússon 13, Brynjar
Sigurðsson 9, Guðmundur Siguijónsson 6,
Jón Þór Þórðarson 5, Haraldur Leifsson 4,
Dagur Þórisson 4, Sigurður Elvar Þórólfs-
son 2.
Fráköst: 19 í sókn, 25 í vörn.
Dómarar: Kristján Möller og Rögnvaldur
Hreiðarsson. Dæmdu vel.
yillur: UMFG 19 - ÍA 18.
Áhorfendur: Um 200.
Keflavík - Njarðvík 98:85
íþróttahúsið í Keflavík:
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 15:6, 23:15,
30:26, 30:31, 49:41, 57:43, 71:59, 76:71,
87:80, 95:80, 98:84.
Stig Keflvíkinga: Guðjón Skúlason 26,
Davíð Grissom 18, Falur Harðarson 15,
Lenear Bums 15, Jón Kr. GSslason 10, Al-
bert Óskarsson 9, Sigurður Ingimudnarson
5.
Fráköst: 1Ó' í sókn - 20 í vörn.
Stig Njarðvíkinga: Teitur Örlygsson 38,
Rondey Robinson 13, Jóhannes Kristbjöms-
son 9, Gunnar Örlygsson 8, Friðrik Ragn-
arsson 7, Kristinn Einarsson 7, Jón Júlíus
Ámason 2.
Fráköst: 8 f sókn - 20 í vörn.
Dómarar: Helgi Bragson og Einar Einars-
son.
Villur: Keflavík 22 - Njarðvík 20.
Áhorfendur: Um 500.
Haukar-ÍR 87:59
Strandgata:
Gangur leiksins: 2:0, 0:2, 14:4, 27:7,
33:18, 42:25, 48:30, 56:36, 71:47, 79:53,
87:59.
Stig Hauka: Jason Williford 17, Sigfús
Gizurarson 16, ívar Ásgrímsson 15, Pétur
Ingvarsson 12, Bergur Eðvarsson 10, Björg-
vin Jónsson 6, Þór Haraidsson 6, Jón Ámar
Ingvarsson 5.
Fráköst: 13 í sókn - 28 í vöm.
Stig ÍR: Herbert Arnarson 15, John Rho-
des 11, Jón Örn Guðmundsson 10, Máms
Arnarson 9, Eirikur Önundarson 6, Guðni
Einarsson 4, Broddi Sigurðsson 2, Eggert
Garðarson 2.
Fráköst: 10 í sókn - 16 í vörn.
Dómarar: Jón Bender og Bergur Stein-
grímsson, ágætir.
Villur: Haukar 21 - ÍR 15.
Áhorfendur: 220 greiddu aðgangseyri.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T StÍQ Stig
TINDASTÓLL 3 3 0 264: 234 6
HAUKAR 3 2 1 254: 211 4
KEFLAVÍK 3 2 1 276: 258 4
UMFN 3 1 2 271: 262 2
IR 3 1 2 226: 261 2
BREIÐABUK 3 0 3 217: 282 O
B-RIÐILL
Fj. leikja u T Stig Stig
ÞÓR 3 2 1 298: 227 4
UMFG 3 2 1 271: 247 4
KR 3 2 1 286: 268 4
SKALLAGR. 3 2 1 223: 223 4
ÍA 3 1 2 255: 274 2
VALUR 3 0 3 181: 275 0
í kvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna:
KA-hús: ÍBA-ÍBV......20.30
2. deild karla:
Höllin: Ármann - BÍ.....20
Strandgata: ÍH - Reynir.20
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Kennaraskóli: ÍS - UMFT ...20
1. deild kvenna:
ísafjörður: KFÍ-ÍH......20
Boccia
íslandsmótið í boccia hófst á
Húsavík í gær og verður fram
haidið í dag og lýkur á morg-
un. í dag verður keppt í 1.
til 4. deild auk rennuflokks
og á morgun hefjast úrslitin
í deildarkeppninni klukkan
13.
LEIÐRETTING
ÞAU mistök urðu í gær hjá okkur
að stöðurnar í handboltanum voru
ekki réttar. í 1. deild karla vantaði
leik ÍBV og ÍR og hjá konunum
voru úrslit leiks Fylkis og Fram
röng, Fram var sagt hafa sigrað
13:14, en vann 13:23. Í stöðuna í
2. deild karla vantaði lið ÍH, en
Hafnfirðingar hafa ekki leikið í
deildinni ennþá þannig að staðan
breytist ekkert. Hér á eftir birtum
við stöðuna í 1. deild karla og 1.
deiid kvenna á ný.
1.DEILD KARLA
Fj. leikja U J T Mörk Stig
KA 3 3 0 0 97: 81 6
STJARNAN 3 3 0 0 75: 63 6
FH 3 2 0 1 87: 73 4
ÍR 3 2 0 1 58: 60 4
HAUKAR 2 1 1 0 40: 39 3
VALUR 3 1 1 1 63: 63 3
VÍKINGUR 3 1 0 2 69: 69 2
ÍBV 3 1 0 2 69: 70 2
GRÓTTA 3 1 0 2 64: 65 2
SELFOSS 3 1 0 2 67: 69 2
UMFA 2 O 0 2 44: 57 0
KR 3 0 0 3 64: 88 0
1. DEILD KVENNA
Fj. leikja u J r Mörk Stig
HAUKAR 2 2 0 0 63: 33 4
FRAM 2 2 0 0 46: 30 4
FH 2 2 0 0 46: 41 4
KR 2 1 0 1 56: 44 2
STJARNAN 1 1 0 0 21: 16 2
FYLKIR 2 1 0 1 36: 43 2
VALUR 2 O 0 2 41: 46 O
ÍBV 1 0 0 1 17: 23 0
VÍKINGUR 2 0 0 2 36: 44 0
ÍBA 2 0 0 2 28: 70 0