Morgunblaðið - 08.10.1995, Side 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
229. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
NAUTAAT Á MÝRUM
Hæstiréttur Belgíu vill ákæra framkvæmdastjóra NATO
Háværar kröfur um
afsögn Willy Claes
Brussel, Williamsburg. Reuter.
Islamskir
tölvuleikir
ÍRANIR hafa ákveðið að snúa vörn
gegn innrás amerískra tölvuleikja í
sókn. Nú er að hefjast framleiðsla á
íslömskum tölvuleik sem „leggur
áherslu á íslömsk gildi og trú“. Unnið
er að þróun leiksins í tölvurannsókna-
veri í íslömskum fræðum í íran, að
sögn íranska sjónvarpsins. Þar sagði
einnig að fjöldaframleiðsla á honum
myndi hefjast innan skamms, en eng-
ar nánari upplýsingar voru gefnar.
Nú þegar hefur rannsóknaverið gefið
út Kóraninn og rit Ayatollah Kho-
meinis á geisladiski fyrir tölvur.
Vekjaraklukk-
ur handa öllum
BÖRN í breskum skóla hafa fengið
að gjöf vekjaraklukku svo að þau
geti mætt á réttum tíma í skólann.
„Þau sem koma of seint í skólann
segjast yfirleitt hafa sofið yfir sig.
Nú geta þau ekki lengur borið því
við,“ sagði Sheelagh Clement-Jones,
skólastjóri í Newcastle. Mörg barn-
anna eiga heima í hverfum þar sem
fátækt og atvinnuleysi er mikið. Segir
Clement-Jones að mörg barnanna
þurfi sjálf að koma sér á fætur, þar
sem foreldrarnir sofi fram á miðjan
dag. Var því ákveðið að færa öllum
230 nemendunum í ellefu ára bekk
vekjaraklukkur til að bæta úr þessu.
Styrktu fyrirtæki á svæðinu vekjara-
klukkukaupin.
Eldur í far-
þegarými
BRESKUR námsmaður sem kveikti
óvart í dagblaði sessunautar síns hef-
ur verið sektaður um 25.000 kr.
Óhappið varð er Richard Draycott,
21 árs, dró kveilgara sinn .upp og
skemmti sér við að kveikja á honum
í sífellu. Svo óheppilega vildi til að
neisti fór í dagblað sessunautar Dray-
cotts og varð af mikið bál. Þar sem
þeir voru um borð í flugvél, olli atvik-
ið miklu írafári, enda fylltist farþega-
rýmið af reyk. Töldu flugstjórarnir
um tíma að kviknað væri í einum
hreyflinum og einn farþegi fékk
astmakast. Var vélin kyrrsett í nokkr-
ar klukkustundir vegna atviksins og
Draycott færður til yfirheyrslu þar
sem hann játaði að hafa stefnt öryggi
allra sem um borð voru í hættu.
MIKIL óvissa ríkir um framtíð Belgans Willy
Claes í embætti framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, eftir að hæstiréttur Belgíu
ákvað á föstudag að kreijast þess að hann
yrði ákærður vegna spillingarmála. Claes er
sakaður um spillingu og skjalafals í tengslum
við kaup belgíska hersins á ítölskum Agusta-
þyrlum árið 1988. Hann var þá efnahags-
málaráðherra Belgíu.
Belgísk dagblöð spáðu því í gær, laugar-
dag, að Claes myndi segja af sér embætti.
„Ef honum stendur ekki á sama um ímynd
NATO ... lætur hann sjálfviljugur af emb-
ætti,“ sagði De Gazet van Antwerpen. Og í
grein í Het Laatste Nieuws sagði: „Claes
verður að segja af sér. Getur einhver komið
honum í skilning um það?“
Hæstiréttur Belgíu mun í næstu viku fara
þess á leit við belgíska þingið að Claes verði
sviptur þeirri þinghelgi, sem hann nýtur enn
vegna þess tímabils er hann var ráðherra.
Þingnefnd verður afhent niðurstaða hæsta-
réttar á mánudag og mun hún líklega taka
ákvörðun um framhald málsins á þriðjudag.
Samkvæmt belgískum réttarhefðum getur
einungis þingið tekið ákvarðanir um máls-
höfðun á hendur stjómmálamönnum.
Fýrrum varnarmálaráðherra Belgíu, Guy
Coeme, verður væntanlega einnig sóttur til
saka á svipuðum forsendum.
Claes segist saklaus
Sjálfur vísar Claes öllum ásökunum á bug
og segist vera saklaus. „Ég hef ekki gert
neitt af mér,“ sagði Claes á blaðamanna-
fundi í Bandaríkjunum og bætti við að hvorki
hann né lögmaður hans hefðu fengið neinar
upplýsingar um ákvörðun hæstarétts. Hann
sagðist bera fyllsta traust til réttarkerfisins
og væri reiðubúinn að eiga samstarf við rann-
sóknarnefnd þingsins vegna málsins.
Aðspurður um framtíð sína sem fram-
kvæmdastjóri NATO sagðist hann telja að
hann væri rétti maðurinn til að veita banda-
laginu áfram forystu. Hann sæi enga ástæðu
til afsagnar.
Fréttaskýrendur sögðu þetta enn einu
sinni sanna hversu viðkvæmt væri að Claes
gegndi embætti framkvæmdastjóra á meðan
verið væri að rannsaka mál hans.
Fjórir belgískir ráðherrar hafa sagt af sér
embætti frá því í byrjun síðasta árs vegna
málsins. ítalski þyrluframleiðandinn neitar
að hafa greitt mútur vegna þyrlusölunnar.
Simpson-málið
DAGUR
IÐNAÐARINS
>000
%
1,A|
# *■
\
\
^FERÐ B