Morgunblaðið - 08.10.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1995 3
DAGUR
XÐNAÐARINS
sunnudaginn 8. október.
íslensk iðníyrirtæki eru
með opið hús um allt land
sunnudaginn 8. október
kl. 13-17 á fyrsta Degi iðnaðarins.
Komið með f jölskylduna
og kynnist nýrri tækni,
framleiðsluaðferðum,
og nýjum afurðum.
...
sem sterkasta vopnið
VELKOMIN
(D)
DAGUR
IÐNAÐARINS
sunnudaginn
8. október
REYKJAVÍK
BWl Vallá hf. • Bíldshöfða 7 og Breiðhöfða 3
Framleiðsla á steypuvörum fyrir hús og garða
Kynnt ný steypuhlutaverksmiðja og nýjar vörur:
Þakskífur og steinflísar. Smiðir sýna uppsetningu
ogfrágang á þakskífum á sýningarhúsi.
Verðlaunagetraun, heildarverðmœti vinninga
150.000 kr. Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt,
heldurfyrirlestra kl. 14.00 og 16.00 um endur-
skipulagningu gamalla garða. Steypuframleiðsla
kynnt. Kynningar og veitingar í Fomalundi o.mfl.
Brúnás-innréttingar •Ármúla 17
Innréttingasmíði og sala
Kynnt verður ný lína í baðinnréttingum, auk þess
sem veitt verður ráðgjöfum innréttingar. Brúnás-
innréttingar eru smíðaðar hjá Miðási á Egils-
stöðum, en þar er einnig opið hús í tilefhi dagsins.
Hampiðjan hf. • Bíldshöfða 9
Veiðarfæragerð og röraframleiðsla
/Hampiðjunni gefstfólki kosturá að sjá hvemig
veiðarfœri verða til, allt frá því að þrœðir eru
mótaðir úr plastkornum. Myndbönd af trollum
neðansjávar verða í gangi og hönnun trolla á
tölvu verður sýnd. Utandyra verður áhrifamikil
sýning á sterkasta tógi í heimi. Girðir, nýi
rafgirðingarstaurinn úrplasti, verður þar einnig
og ungir sem aldnir geta sippað af krafti.
Harpa hf. • Stórhöfða 44
Málningarverksmiðja
Áfylling og pökkun verður í gangi og starfsmenn
veita upplýsingar um framleiðsluna og notkun
hennar. Til skemmtunar fyrir gesti verðafélagar
úr Spaugstofunni, þeir Pálmi Gestsson, Örn
Ámason og Sigurður Sigurjónsson, og koma þeir
fram kl. 14.00, 15.00 og 16.00.
Leðuriðjan hf. • Hverfisgötu 52
Leðurvöruframleiðsla
Leðuriðjan framleiðir hin kunnu Atson seðla-
veski, Dagskinnur, leðurmöppur ogfleiri smá-
vörur úr leðri. Full starfsemi verður í gangi og
fá gestir að kynnast því hvernig statfseminni
er háttað.
Marel hf. •Höfðabakka 9
Vigtar- og tölvusjónarbúnaður
Gestirfá að kynnast hvernig framleiðslan fer
fram og hvernig búnaðurinn er notaður hjá þessu
fyrirtœki sem hefur um árabil verið leiðandi í
hönnun og smiði vigtarbúnaðar ogframleiðslu-
eftirlitsketfa. Ein merkasta nýjungin íframleiðslu
Marels eru tölvusjónartœki.
Max hf. • Skeifunni 15
Utivistar- og vinnufatnaður
Max kynnir nýjustu gerðir útivistarfatnaðar, úr
öndunar- og flísefnum. Einnig nýjar tegundir
vinnu- og kuldagalla. Þá verður kynnt flísefni
sem er unnið úr notuðum plastflöskum, hönnun-
arvinna í ttílvum og sjálftýsandi neyðarmerk-
ingar. Gestirfá að skoða framleiðslusal
fyrirtœkisins og tölvustýrða (saumsvél.
Plastprent hf. •Fosshálsi 17-25
Plastframleiðsla og -prentun
Gestum er boðið að ganga í gegnum verksmiðjuna
til að sjá hvernig umbúðaframleiðslan ferfram
og verður m.a. kynnt litmyndapréntun ttteð Ijós-
myndagœðum á plast og endurvinnsla plasts.
Að auki verða sýndir plastkjólar, ýmsir notkunar-
möguleikar á plasti til skreytinga, þekktar vörur
í umbúðumfrá Plastprenti og síðast en ekki síst
verður í gangi getraun og verða nöfii vinningshafa
kynnt kl. 16.00 og kl. 17.00 á FM 95,7.
Prentsmiðjan Oddi hf. • Höfðabakka 3-7
Prentsmiðja og upplýsingamiðlun
1 þessari stœrstu prentsmiðju landsins er að finna
nýjustu tœkni við hönnun og útgáfu prentgripa.
Þar á meðal fullkomnustu 5-lita prentvélina.
Framleiðsluferill bókagerðar verður sýndurfrá
upphafi til enda. Gestir verða leystir út með
veglegum veggspjöldum og bömum gefin skyggni.
§jóklæðagerðin hf. 66°N. • Faxafeni 12
Utivistar- og vinnufatnaður
Kynntur verður Six Tex og Eðal-flís útivistar-
fatnaður ásamt öðrum framleiðsluvörum fyrir-
tœkisins í verslunarhúsnœði þess að Faxafeni 12.
Þar verður haldin tískusýning kl. 15.00 og geta
gestirfengið nöfn sín bróderuð ífatnað í sérstök-
um bróderingavélum.
Sól hf. • Þverholti 19-21
Matvælaframleiðsla
Þeirsem heimsœkja Sól á Degi iðnaðarins kotnast
vafalítið ekki yfir að smakka á nema hluta afþeim
vörutegundum sem fyrirtœkið framleiðir. Þœr eru
rútnlega 50 og pakkað í 100 mismunandi um-
búðaútfœrslur.
GRUNDARTANGI
íslenska járnblendifélagið hf.
• Grundartanga • Kísiljárnframleiðsla
Gestum er boðið að skoða verksmiðjuna og kynn-
ast framleiðsluferlinu. Einnig verður kynnt ný
takni sem staifsmenn verksmiðjunnar hafa þró-
að, tœki til óbeinnar mœlingar á orkunýtingu og
rafskautavog. Kaffiveitingar.
ÍSAFJÖRÐUR
Póls-rafeindavörur hf. •Sindragötu 10
Fyrirtœkið framleiðir rafeindavörurfyrir mat-
vælaiðnað, sjávarútveg og fleiri. Gestirfá að
skoða innviði tœkjanna, kynnast leyndardómum
rafeindatœkninnar og prófa það sem kynnt verður.
Stuðlaberg hf. »v/Suðurbraut
Framleiðsla á pústkerfum og hjólbörum
Stuðlaberg er umsvifamikill framleiðandi á púst-
keifum undir algengustu tegundir bíla hér á landi.
Einnig framleiðir fyrirtœkið lijólbörur. Gestirfá
að ganga um verksmiðjuna og kvnnast tœkjum og
aðferðum við framleiðsluna.
ÁKUREYRI
Folda hf. • Gleráreyrum
Ullarvöruframleiðsla
Folda er stœrsta fyrirtœkið t ullariðnaði á
íslandi. Ný tískulína „Folda Natura", verður
kynnt með tískusýningum kl. 14.00, 15.00 og 1
16.00. Auk þess verða kynntar nýjarframleiðslu-
vélar og nýtt framleiðsluferli.
Gúmmívinnsian hf. • Réttarhvammi 1
Gúmmivöruframleiðsla- og þjónusta
Böm ogfullorðnir eru velkomnir í Gúmmí-
vinnsluna á Degi iðnaðarins að sjá livernig við
meðhöndlum nýja og notaða hjólbarða. Gestir
getafengið að sjá dekkjaverkstœði og spyrja
starfsmenn um tœkin þar, sjá hventig hjólbarðar
eru sólaðir og hvernig gúmmívörur verða til úr
ajfallsgúmmíi. Gúmmívinnslugott er í boði
ásamt gosi og kaffi.
Kaffibrennsla Akureyrar hf.
• Tryggvabraut 16
Kaffibrennsla- og pökkun
Þeir sem heimsœkja Kaffibrennslima á Degi iðn-
aðarins getafrœðst um liinar ýmsu tegundir kaffi-
bauna, hventig þcer eru brenndar og malaðar og
hvernig þeim er blandað til aðfá mismunandi
kajfitegundir.
Víking hf. •Furuvöllum 18
Ölgerð
Á Degi iðnaðarins gefst gestum Víking kostur
á aðfrœðast um livemig hægt er að greina mun
á milli bjórtegunda. Helstu tegundir Víking í
sterkum og léttum bjór verða kynntar.
NORÐURLAND
Félag hárgreiðslu- og hárskerameistara á
Norðurlandi
Stofur ífélagi hárgreiðslu- og hárskerameistara
á Norðurlandi verða opnar. Ollum er velkomið
að líta inn ogfá persónulega ráðgjöf um hár-
snyrtingu og notkun hársnyrtivara, auk þess að
fá upplýsingar um iðngreinina.
Nœstu daga á eftir, þ.e.frá mánudegi til miðviku-
dags, verða stofurnar með sértilboð á vöru og
þjónustu fyrir viðskiptavini sína.
EGILSSTAÐIR
Miðás hf. • Miðási 9
Innréttingasmíði og sala
Verkstœðið verður opið og verður gestum
kynntur tœkjakostur og framleiðsluferli Brúnás-
innréttinga. Skoða má sýnishom afframleiðslunni
í sýningarsal.
EYRARBAKKI
Alpan hf. • Búðarstíg 22
Framleiðsla á pottum og pönnum
Gestirfá að sjá hvernig nýrri tækni, rafbrynjun,
er beitt við framleiðsluna. Einnig hvernig fram-
leiðslan er markaðssett í Þýskalandi.
Ný hönnunarlína verður sýnd, meðal annars
dýpri pottar en áður. Kjörís, nágranni Alpan úr
Hveragerði, kynnir framleiðslu sína. í byggða-
safhinu Htísinu verður sérsýning um eldsmíði og
gönguferð á vegum Sjóminjasajhsins.
REYKJANES
íslensk sjóefni hf. • Reykjanesi
Saltframleiðsla
Heitur jarðsjór á Reykjanesi er notaður tilfram-
leiðslu saltsins. Gufan sem skilin erfrá jarð-
sjónum, er notuð til að einta vökvann, svo eftir
verður salt. Framleiðslan er ekki í gangi sem
stendur, en gestir geta skoðað verksmiðjuna
og framleiðsluferlið. Stutt er að liverasvæðinu
og hinu fagra umhverfi við Reykjanesvita.
ALLT LANDIÐ
Landssamband bakarameistara
Fjölmörg bakarí í Landssambandi bakarameist-
ara verða með sértilboð og sýningar á handverki
bakara á Degi iðnaðarins. Bakarameistarar
bjóða viðskiptavinum að bragða á ilmandi
sýnishornum.
Miðbæjarbakarí • Háaleitisbraut 58-60,
Reykjavík
Bakaríið Austurveri • Háaleitisbraut 68
og Rangárseli 6, Reykjavík
Bernhöftsbakarí • Bergstaðastræti 13, ,
Reykjavík
Bak^rameistarinn • Stigahlíð 45, Reykjavik
G. Olafsson & Sandholt • Laugavegi 36 og
Grafarvogi, Reykjavfk
Breiöholtsbakarí • Vöivufelli 13, Reykjavík
Björnsbakarí • Austurströnd 14, Seltjarnarnesi,
Hringbraut 35 og Fálkagötu 18, Reykjavík
Geirabakarí hf. • Borgarbraut 57, Borgarnesi
Brauðgerð Kr. Jónssonar • Hrísalundi 3,
Akureyri
Bakaríið Neskaupstað • Hafnarbraut 2,
Neskaupstað
Hverabakarí • Heiðmörk 35, Hveragerði
Bæjarbakarí • Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði
Mosfellsbakarí • Urðarholti 2, Mosfellsbæ
Iðntæknistofnun
Vikuna 9.-13. október mun Iðntœknistofnun
sýna afrakstur þróunarverkefna í iðnaði í
Kringlunni, í beinuframhaldi af Degi
iðnaðarins.
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
GSP / HVÍTA HÚSIÐ / SÍA