Morgunblaðið - 08.10.1995, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
T !//£> /i&VOM 'attað Geka }>etta
Ifa&P FASTEl<5NA<5JÖLPibI UOZÚ
Grettir
J?M PAVfí) 7-6
Tommi og Jenni
1
Ljóska
ncrmannOLj ur_
?rtá(/r/i/Adir)(/y/irVo dr^/r) f
/ Ætti5þi& ab uero-t
( ^tnktnnisóunirigunum.^
( JtK., lea xtta <að i
/■ þtim aoJ,
v hLuta. til f
■3aL.l(iann1 geictr ennfiá
komiit / sokkanA
" ar/5 , „_____
^IT HAPPENEP VESTERDAH'.. \
THE WHOIE WORLDSUODEHLY
TURNED UP5IDED0WN!
WRETHE ONLYONE
vWWO 15 RI6HT-5IDE UP!
r/TV,
THANK YOU^
U/í / FOR UlORRf'INé
ABOUT THE
. RE5T OF U5
cr$>
Það gerðist í gær ... heim-
urinn fór allur á hvolf! Mað-
ur er sá eini sem snýr upp!
Þakka þér fyrir
að hafa áhyggjur
af okkur hinum.
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reylgavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Tímabært að byggja
frjálsíþróttavöll í
Hafnarfirði
Frá Agústi Asgeirssyni:
UNNENDUM íþrótta mun flestum
ljóst, að fijálsíþróttamenn úr FH eru
bæði íslands- og bikarmeistarar fé-
lagsliða í fijálsíþróttum á þessu ári.
Stendur það upp úr þegar árangur
Hafnfírðinga í flokkaíþróttum á ár-
inu er metinn. Einnig unnu FH-ingar
bikarkeppni 16 ára og yngri á dögun-
um.
Þessi árangur er ágæt viðbót við
allmerka fijálsíþróttasögu Hafnfirð-
inga, sem nær a.m.k aftur til þess
er Hallsteinn Hinriksson varð ís-
landsmeistari í stangarstökki 1935
og ’36 og 100 metra hlaupi 1936.
FH-ingar urðu einnig bikarmeist-
arar í fijálsum árin 1988, 1991,
1992 og 1994. Ennfremur urðu þeir
íslandsmeistarar félagsliða í fyrra,
sem á þessu ári, með því að verða
stigahæst félaga á Meistaramóti Is-
lands.
Þá hafa hafnfirskir fijálsíþrótta-
menn hlotið langflest verðlaun á ald-
ursflokkameistaramótum yngri
keppenda og unglinga á þessu ári
og því er ekki út í hött að segja að
Hafnarfjörður sé mesti fijálsíþrótta-
bær landsins.
Þessi árangur er ekki bara athygl-
isverður heldur miklu fremur ótrú-
legur í ljósi þess, að hér í bæ er
enginn fijálsíþróttavöllur. Allavega
er ekki hægt að nota það orð yfir
malarbrautirnar í Kaplakrika. Hefur
Fijálsíþróttasambandið (FRÍ) meir
að segja gefið út dánarvottorð fyrir
þann völl og hefur ekki heimilað
fijálsíþróttamót þar.
Má því ekki lengur dragast að
hafinn verði undirbúningur þess að
koma upp fijálsíþróttavelli hér í bæ
sem stenst lágmarkskröfur, þ.e. með
stökk- og hlaupabrautum úr gervi-
efni.
Ágæt aðstaða til iðkunar margra
íþróttagreina hefur verið byggð upp
hér í bæ á undanförnum árum, en
fijálsíþróttamenn hafa þó alveg orðið
útundan. í ljósi árangurs þeirra er
bragarbót í aðstöðumálum þeirra þó
löngu tímabær. Ekki síst ef Hafnfirð-
ingar vilja auðga íþróttasögu sína
enn frekar, því ég hef ekki trú á því
að þeir ötulu einstaklingar, sem hald-
ið hafa uppi fijálsíþróttastarfinu í
bænum, nenni endalaust að basla við
óbreyttar aðstæður. Má segja að
þeir og keppnismennirnir hafi sýnt
bænum ótrúlega þolinmæði og enn
meiri hollustu með því að vera ekki
löngu famir í önnur félög.
Einhveijum þykir það kannski
dirfska að ég skuli leggja til að farið
verði í framkvæmdir upp á einhveija
milljónatugi miðað við þær kröggur
sem bæjarsjóður mun vera í. Á móti
má benda á, að það er ótvíræður
hagur hafnfírskra fjölskyldna að al-
mennilegur völlur komi í bæinn því
bara aksturskostnaður foreldra við
að senda börnin og unglingana mörg-
um sinnum í viku til æfínga í Laug-
ardalnum í Reykjavík eða Mosfellsbæ
skiptir verulegum upphæðum og
íþyngir heimilisbókhaldinu.
FH-ingar vonast að sjálfsögðu til
að nýr fijálsíþróttavöllur Hafnfirð-
inga verði á félagssvæði þeirra í
Kaplakrika. Með tilkomu nýs fijáls-
íþróttavallar með lágmarksaðstöðu
og tækjum, gæti hvaða mót sem
væri farið fram hér í Hafnarfirði,
þess vegna íslandsmeistaramótið og
alþjóðleg mót. Hægt væri og að end-
urvekja gömul mót, s.s. meistaramót
Hafnarfjarðar, sem fram fór fyrst
1944 og bæjarkeppnir. Mundi það
glæða bæjarbraginn. Síðasta utan-
hússmótið sem haldið var í Hafnar-
firði fór fram fyrir átta árum, eða
1987. Það er orðið of langt síðan.
ÁGÚST ÁSGEIRSSON,
Hjallabraut 37, Hafnarfirði.
Þess skal getið
sem gott er
Frá Karli Ormssyni:
UNDANFARIN ár hef ég skrifað
nokkuð í Morgunblaðið um sjávar-
afurðir og fullvinnslu _ sjávarfangs í
neytendapakkningar. Ég hef oft sagt
svona í lokin að við ættum að full-
vinna sem allra mest af sjávarfangi,
við hefðum yfír að ráða einum
ómengaðasta fiski í veröldinni úr
hreinasta sjónum sem til er. Mér
finnst því við hæfi að minnast á það
þegar fiskvinnslufyrirtæki koma
með góða vöru í neytendapakkning-
um og á hóflegu verði á markaðinn.
Því varð það mér mikið gleðiefni að
sjá að sum sjávarútvegsfyrirtæki eru
að fullvinna sjávarafurðir í neyt-
endapakkningar. Ég rakst á frystar
ýsurúllur í verslunum Hagkaups með
4-5 tegundum af fyllingum, rækj-
um, osti, sveppum o.fl. frá Víði hf.
í Garði. Þetta er að mínu áliti alveg
toppvara úr glænýrri ýsu. Þessi af-
bragðs vara er í handhægum falleg-
um umbúðum með góðum upplýsing-
um. Fallegt merki er á umbúðunum
sem sýnir ísland og skýrt tekið fram
að þetta sé úr hreinum sjó. Vara
þessi er að mínu áliti til fýrirmynd-
ar. Ég hvet fólk eindregið til að prófa
þessa vöru. Við verðum að taka vel
á móti hágæðavöru, sem unnin er
af íslenskum fyrirtækjum og úr úr-
vals hráefni. Vara þessi hefur langt
geymsluþol svo það er mjög hand-
hægt að kaupa nokkra pakka og
eiga í frysti. Það er alveg óþarfa
hlédrægni að skrifa á umbúðirnar
„Tillaga að framleiðslu". Þetta er
fyrsta flokks framleiðsla sem ætti
að verðlauna fyrirtæki fyrir.
Svona í lokin get ég minnst á það
að þegar fyrirtæki koma með svona
góða vöru á markaðinn er alltof lítið
gert af því að kynna vöruna. Þeir
sem smakka svona vöru kaupa hana
aftur.
KARL ORMSSON,
Gautlandi 5, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, tivort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.