Morgunblaðið - 08.10.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 08.10.1995, Síða 1
SJOTTA KYNSLOÐ HONDA CIVIC—BENZ FÆR TOPPEINKUNN íÁREKSTRARPRÓFUN — SUZUKIX-90 TIL BANDARÍKJANNA - ÍSLENSKAR VINDSKEIÐAR SMÍÐAÐAR íBANDARÍKJUNUM - Sölumenn bifreiðaumboðanna annast útvegun lánsins á 15 mínútum GUtiiirht DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA 1995 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER BLAÐ Ördiska- spilarar í stað kass- ettutækja MARGIR telja að svonefndir ör- diskaspilarar með með stafrænni endurupptöku verði næsta bylting í bílahljómtækjum. Hefðbundnir geislaspilarar eru í mörgum bílum og orðnir meðfærilegri en áður en ördiskaspilararnir eru lausnarorðið þar sem allt ræðst af sem bestri nýtingu í rými. Ford er þegar farið að bjóða ördiskaspilara með staf- rænni endurupptöku sem valbúnað í Mustang. Sony Electronics hefur framleitt ördiskaspilara í bíla fyrir Ford frá því í nóvember 1993 en um svipað leyti kynnti fýrirtækið ördiskaspil- arann í Japan í gegnum Toyota. Ördiskurinn er svipaður og venju- legur geisladiskur hvað varðar geymslu hljómgagna en frábrugð- inn að því leyti að hann er mun minni og hægt er að taka upp á hann og geyma á honum stafrænar upptökur. Sony, Sanyo Fisher Corp. og Kenwood Electronics framleiða ördiskaspilara fyrir bílavörumark- aðinn en aðrir stórir hljómtækja- framleiðendur hafa hikað við að fara inn á þennan markað. Hljómgæði i ördiskum eru ögn lakari en í venjulegum geisladiskum en mun betra en á snældum. Búnað- urinn er mun minni og gæti hæg- lega leyst bæði venjulega geislaspil- ara og kassettutæki af hólmi í bíl- um. Órdiskaspilari með fjögurra diska hólfi kemst fyrir í mælaborði bíls en diskageymslan í venjulegum geislaspilara hefur yfirleitt hafnað í farangursrýminu vegna pláss- leysis. ■ Morgunblaðið/Árni Sæberg ÖRDISKASPILARAR eru nú fáanlegir í Ford Mustang og sumir trúa því að þeir verði næsta bylting í bílahljóm- tækjum. MERCEDES-Benz SL 280 er með nýjum hliðarlínum og stuðurum. ÁLTOPPUR staðalbúnaður með SL-línunni en glertoppur er valkostur. m Mercedes-Benz með ál- eða glerþaki MERCEDES-Benz hefur nýlega kynnt endurbætta SL-línu, sem eru sportbílar. Bílarnir eru með nýjum stuðurum og hliðarlínum og nýr valbúnaður er glertopp- ur í stað áltopps. Meðal tækninýjunga í bílnum má nefna fimm þrepa sjálf- skiptingu, xenon- framlugtir og hraða- stilli sem takmarkar hraðann við 30 km á klst í þéttum íbúðar- hverfum. Allar út- færslur SL eru búnar tölvubúnaði sem nem- ur og leiðréttir skrið hjóla og auk þess er spólvörn og hemlalæsivörn staðalbúnaður. Þá hafa verið gerðar endurbætur á V8 og V12 vélunum sem skila 10% minni eldsneytiseyðslu. Staðalbúnaður í nýju bílun- um verður líknarbelgir í hliðum auk hefðbundinna líknarbelgja í stýri og við hanskahólf og sjálfvirkt loftræstikerfi. 4 litaðar rúður í þaki SL-línan kom fyrst á markað 1989 og hefur unnið til margra verðlauna fyrir útlitshönnun. Nú kemur bíllinn lítillega breyttur með nýjum fram- og afturstuðurum, nýju grilli og hvítri hlíf yfir stefnuljósum. Þá hafa verið gerðar breyting£ir að innan, m.a. á stýri og sætum. Þá verður hægt að velja á milli glertopps með skyggni eða áltopps í V8 og V12 bílana sem hingað til hefur ein- vörðungu verið í boði í SL. Glertoppurinn er settur saman úr fjórum lituðum rúð- um sem hleypir í gegnum sig aðeins um 15% af Ijósi. V8 og V12 vélarnar í SL og S línunum er endurbættar með tilliti til minni útblástursmeng- unar og eyðslu. SL 500 eyðir t.a.m. aðeins 11,1 lítra í blönd- uðum akstri og tekist hefur að draga úr eyðslu SL 600 um 10%. Mercedes-Benz býður nú við- skiptavinum sínum að sérpanta ýmsar útfærslur af innrétting- um og lit á yfirbygginguna á SLbíIa. ■ Hraðastillir sem tak- markar hraðann við 30 km á klst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.