Morgunblaðið - 10.10.1995, Page 1
'i
KNATTSPYRNA
Bibercicfer
aftur til ÍA
MIHAJLO Bibercic skrifaði undir félagaskipti
úr KR í í A um helgina og leikur þvi með Skaga-
mönnum næsta tímabil. Bibercic fagnaði ís-
lands- og bikarmeistaratitlinum með í A1993
og íslandsmeistaratitlinum 1994 og varð jafn-
framt markakóngur deildarinnar i fyrra en
hlaut bronsskóinn í ár með KR. Hann fór til
Belgrad í fyrradag og stefnir að því að spila
þar með liði i 2. deild í vetur.
HANDKNATTLEIKUR: VALUR OG FRAM í 2. UMFERÐ EVRÓPUKEPPNINNAR / B4, B5
Magnús Ver
sterkastur
MAGNÚS Ver Magnússon sigraði í keppninni
„Sterkasti maður heims“ sem fram fór á Ba-
hama-eyjum um helgina. Þetta er í þriðja sinn
sem hann hlýtnr þennan eftirsótta titil. Suður-
Afríkumaðurinn Geret Badenhorst varð annar,
sex stigum á eftir Magnúsi. Torfí Ólafsson tók
einnig þátt I keppninni, en hætti eftir fyrstu
grein vegna meiðsla.
Geir og samherjar
ætla áfram
JUt>
1995
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER
BLAÐ
Pétur áfram
meðKA
PÉTUR Ormslev hefur verið endurráðinn þjálf-
ari KA á Akureyri. „Við vorum mjög ánægðir
með störf Péturs í sumar og því Iögðum við
áherslu á að fá hann aftur. Við gerðum við
hann eins árs samning núna,“ sagði Árni Jó-
hannsson, formaður knattspyrnudeildar KA.
Hann sagði að Pétur kæmi norður í apríl. Þeir
leikmenn KA sem eru í skólum í Reykjavík fá
að æfa með Fram í vetur.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðlaug og Olafur leikmenn ársins
GUÐLAUG Jónsdóttir úr KR og Ólafur Þórðarson úr ÍA voru útnefnd bestu leikmenn ársins í kvenna- og karla-
flokki. Þetta var tllkynnt í Ipkahófi knattspyrnumanna á Hótel íslandi á laugardagskvöld. Ingibjörg Ólafsdótt-
Ir, ÍA, og Tryggvl Guðmundsson, ÍBV, voru kjörin efnilegust.
■Nánar/ B3
GEIR Sveinsson gerði eitt mark fyrir Montpelli-
er í 25:24 sigri gegn Dukla Prag í Evrópu-
keppni meistaraliða i handknattleik um helgina.
Seinni leikurinn verður í Prag á sunnudag og
sagði Geir við Morgunblaðið að þó forystan
væri aðeins eitt mark kæmi ekki annað til greina
en að sigra í seinni leiknum og komast þannig
áfram í aðra umferð.
„Við fórum illa að ráði okkar undir Iokin,"
sagði Geir. „Við vorum með boltann í stöðunni
23:20 en klúðruðum þessu, skoruðum meðal
annars ekki úr vítakasti, ogþeir náðu að minnka
muninn. Við spiluðum frekar illa en þó útlitið
sé ekki bjart ætlum við áfram og draumurinn
er að mæta Valsmöimum."
Lúkas Koslic þjálfar KR
LÚKAS Luka Kostic, sem hefur þjálfað Grindvíkinga og kom þeim
í 1. deild ífyrrasumar, tilkynnti stjórn knattspyrnudeildar UMFG
í gærdag að hann hefði ákveðið að ganga að tilboði KR-inga um
að þjálfa liðið á næsta keppnistímabili. Tilkynnt verður á blaða-
mannafundi í dag um þriggja ára samning sem KR gerir við hann.
Ásamt því að hann hætti er Ijóst að þrír leikmenn hverfa á braut
frá Grindavík, Þorsteinn Guðjónsson, sem fer líklega til KR, Þor-
steinn Jónsson, sem fer annaðhvort til KR eða Leifturs, og Tóm-
as Ingi Tómasson, sem á í viðræðum við KR þessa dagana.
Lúkas Kostic sagði eftirfarandi
við blaðamann Morgunblaðs-
ins í gærkvöldi: „Eg er bæði dapur
■■■■■ og ánægður með
Frímann þessa ákvörðun
mína. Dapur yfir því
að fara héðan frá
Grindavík þar sem
mér hefur liðið vel og þar sem ég
hef unnið með fólki sem maður
kynnist ekki á hveijum degi en um
leið ánægður að fara til KR sem
Ótafsson
skrífar frá
Gríndavík
er stór klúbbur og það er mikil
ögrun að taka við liðinu. Ég vonast
til að geta gert góða hluti með liðið
þannig að ég lít björtum augum á
framtíðina," sagði Kostic.
„Ég setti sem skilyrði fyrir því
að ég yrði áfram í Grindavík að lið-
ið héldi öllum leikmönnum sínum
en þegar ljóst var að Þorsteinn
Guðjónsson færi til KR og Þorsteinn
Jónsson annaðhvort norður til Leift-
urs á Ólafsfirði eða til KR sem ég
vonast eftir, tók ég ákvörðun. Ég
vil ekki byrja upp á nýtt og alltaf
með nýjan mannskap í liðinu. Ég
vona að Grindavíkurliðinu gangi vel
í framtíðinni og ég fer frá Grinda-
vík með söknuð í hjarta mínu,“
sagði Luka eða Kóli eins og hann
er kallaður.
Reiðarslag fyrir okkur
„Það er mikið reiðarslag fyrir
okkur í Grindavík að missa Kóla
[Lúkas Luka Kostic] frá okkur sem
þjálfara og enn meira að hann skuli
taka með sér þijá leikmenn. Við
höfðum gert okkur góðar vonir um
að hann yrði áfram hjá okkur til
að taka þátt í því uppbyggingar-
starfi sem hófst þegar hann kom
til okkar fyrir tveimur árum. Við
erum að sjálfsögðu sárir yfir því
að missa hann og okkar bíður þrot-
laus vinna við að halda
uppbyggingunni áfram
en ég verð að játa að
það er ekki bjart í
augnablikinu," sagði
Jónas Þórhallsson,
stjórnarmaður í knatt-
spyrnudeild UMFG, eft-
ir fund sem stjórnin átti
með Lúkasi í gærdag.
„Við töldum okkur
hafa gengið þannig frá
málum að áframhald
yrði á þjálfun hans
hérna enda er hann frá-
bær þjálfari og að margra mati sá
albesti hér á landi í dag. Frá okkur
fylgja bestu óskir um velgengni hjá
KR honum til handa en við verðum
að bretta upp ermarnar hér í
Grindavík."
Jónas bætti því við að það gerði
uppbyggingastarf erf-
itt fyrir hér á íslandi
að þjálfarar ráði sig í
svo stuttan tíma sem
raun ber vitni, þetta
eitt til tvö ár á hverjum
stað og það sé erfitt
að byggja upp framtíð-
ina á því. „Menn verða
að vita að hveiju þeir
ganga í uppbygginga-
starfi, annars ganga
hlutirnir ekki upp.“
Lúkas KR-lngar ánægðir
„Það verður gengið frá þessu á
morgun [í dag] og við erum mjög
ánægðir," sagði Björgólfur Guð-
mundsson, formaður knattspyrnu-
deildar KR, við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Lúkas er mjög góður
kostur fyrir okkur.“