Morgunblaðið - 11.10.1995, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B/C/D
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
231. TBL. 83. ARG. MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
Bosníu-Serbar draga
samþykki vopnahlés
«* nít
* m- - 1
1 i
..
Reuter
RAFMAGNSLJÖS loguðu á ný í Sarajevo í gærkvöldi og svo virtist sem vopnahlé væri í nánd í Bosníu.
Sarajevu. Reuter, The Daily Telegraph.
RAFMAGN og gas komst á í
Sarajevo í gær í fyrsta sinn í sjö
mánuði og kváðust stjómvöld í Bos-
níu reiðubúin til að gera vopnahié
við Serba. Samningamenn Samein-
uðu þjóðanna, Bosníu-Serba og
stjómar Bosníu ræddust fyrsta sinni
við á flugvellinum í Sarajevo til að
komast að því hvort öll skilyrði fyrir
því að vopnahlé gæti hafist hefðu
verið uppfyllt. Stjórn Bosníu þrýsti
á um að lýst yrði yfir vopnahléi eina
mínútu yfir miðnætti í nótt, en samn-
ingamenn Bosníu-Serba kváðust ekki
hafa umboð til að samþykkja það.
Þeir kváðust myndu gefa SÞ svar
sitt klukkan 18:00 í dag. Her Bosníu-
Serba viðurkenndi í gær að hafa
misst mikilvægan bæ í vesturhluta
Bosníu, Mrkonjic Grad, og sagði að
hann hefði fallið í hendur króatíska
stjómarhernum.
Nicholas Burns, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
að umræður deiluaðila myndu hefjast
í Bandaríkjunum 31. október. Ken
Bacon, talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins, sagði að friðar-
gæsluáætlun, sem búist er við að
Atlantshafsbandalagið samþykki í
dag, geri ráð fyrir því að nokkur
þúsund hermenn verði sendir til Bos-
níu „innan nokkurra daga“ frá því
að friðarsamkomulag næst.
Gas berst til Sarajevo frá Rúss-
landi og á mánudag varð að fresta
vopnahlénu vegna þess að ekki hafði
verið opnað fyrir gasstraum til borg-
arinnar. Serba var einnig farið að
lengja eftir vopnahléi eftir harða
bardaga í norður- og vesturhluta
Bosníu og loftárás Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á mánudag.
Her Bosníu-Serba hörfar
„Her okkar hörfaði frá Mrkonjic
Grad í morgun eftir stanslausar
sprengjuárásir og var draugabær þar
Blackpool. Reuter.
SÚ ÁKVÖRÐUN Alans Howarths,
fyrrverandi ráðherra, að segja skilið
við breska Ihaldsflokkinn og ganga
til liðs við Verkamannaflokkinn setti
mark sitt á landsþing íhaldsmanna
sem hófst í Blackpool í gær. Ræðu-
menn á þinginu reyndu að snúa vörn
í sókn með loforðum um skattalækk-
anir og árásum á Evrópusambandjð
(ESB).
Fulltrúar á landsþinginu stóðu upp
og klöppuðu Michael Portillo varnar-
málaráðherra lof í lófa eftir að hann
hét því að breska stjórnin gæfi sig
aldrei „evrópsku sambandsríki" á
vald. „Við látum ekki Evrópusam-
bandið ráða stefnu okkar í varnar-
málum,“ sagði Portillo. „Stefnaþessa
lands í utanríkis- og vamarmálum
verður ekki ákveðin með meirihluta
til fastaher Króata fór inn í hann,“
sagði heimildarmaður innan hers
Bosníu-Serba í samtali við Reuter-
fréttastofuna. Vegur, sem tengir Bi-
hac við Sarajevo, liggur um bæinn
og er talinn hafa hernaðarlegt gildi.
í króatíska útvarpinu sagði að
hermenn Bosníu-Króata hefðu her-
tekið bæinn. Starfsmenn SÞ segja
að sést hafi til króatískra hermanna
á leið yfír landamæri Bosníu nærri
Bihac, en hvergi nærri jafnmarga
og Bosníu-Serbar halda fram.
atkvæða í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins."
Norman Lamont, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, sagði í gær að enginn
vafi léki á því að íhaldsflokkurinn
væri að snúast á sveif með íhalds-
þingmönnum sem hafa lagst gegn
áformum um frekari samruna ESB-
ríkjanna.
Brian Mawhinney, formaður
íhaldsflokksins, sagði í ræðu sinni
að flokksmenn mættu búast við
skattalækkunum fyrir næstu kosn-
ingar. Verkamannaflokkurinn er
með 30% forskot á íhaldsflokkinn,
samkvæmt skoðanakönnunum, og
margir breskir íhaldsmenn telja að
eina von flokksins um sigur í næstu
þingkosningum felist í skattalækk-
unum á næstu tveimur árum.
Rafmagn komst á hér og þar t
Sarajevo í gær og þegar skyggja tók
kviknuðu ljós víða í borginni fyrsta
sinni í sjö mánuði eftir að starfsmenn
SÞ höfðu gert við rafmagnslínur, sem
liggja um svæði á valdi Bosníu-
Serba.
Akashi kvaddur heim
í gær var tilkynnt að Yasushi
Akashi, sérlegur sendiboði SÞ í
gömlu Júgóslavíu, hefði verið kvadd-
ur á braut og við af honum tæki
Reuter
Dansandi lögga
NIKORN Phasuk, lögregluþjónn
í Bangkok, sýnir listir sínar á
götuhorni í borginni, ökumönn-
um eflaust til ómældrar ánægju.
Lögregluþjónum í Bangkok hef-
ur verið fyrirskipað að stíga dans
er þeir sljórna umferð í borginni
til að bæta ímynd lögreglunnar.
Kofi Annan, stjórnarerindreki frá
Ghana, sem hefur haft friðargæslu-
mál stofnunarinnar undir höndum.
Akashi hefur legið undir ámæli fyrir
að beita sér ekki og láta hjá líða að
fylgja eftir samþykktum SÞ. í yfir-
lýsingu frá Boutros Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóra SÞ, sagði að
þessi ákvörðun hefði verið tekin „að
vandlega athuguðu máli með tilliti
til vandasamra tíma, sem framundan
eru í aðgerðum SÞ á svæðinu". Stjórn
Bosníu fagnaði þessari ákvörðun SÞ.
Aukin
spenna í
Tsjetsjníju
Moskvu. Reuter.
TVEIR rússneskir hermenn biðu
bana og þrír særðust í sprengjutil-
ræði í Grosní í Tsjetsjníju í gær,
nokkrum dögum eftir að yfirmaður
rússneska hersins í landinu særðist
alvarlega í sams konar tilræði.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
kvaðst í gær hafa áhyggjur af vax-
andi spennu í Tsjetsjníju en lýsti þó
ekki yfir neyðarástandi eins og her-
inn og ríkisstjómin óska eftir.
Sprengjutilræðið í gær varð aðeins
fjórum dögum eftir tilræðið við Ana-
tólíj Romanov hershöfðingja.
Fyrst titil-
inn og nú
peningana
New York. Reuter.
GARRY Kasparov tryggði sér í gær-
kvöldi bróðurhluta verðlaunafjárins,
sem í húfi var í einvígi hans við
Wisnawathan Anand, áskoranda
hans, eftir að hafa nælt sér í heims-
meistaratitil Alþjóðasambands at-
vinnuskákmanna (PCA) á mánudag.
Þeir sömdu um jafntefli eftir aðeins
tólf leiki og sagði Anand að það
væri til lítils að reyna að knýja fram
sigur með svörtu mönnunum. Kasp-
arov kvaðst hamingjusamur og sagði
að þetta hefði „verið erfitt einvígi".
Kasparov fékk 10,5 vinninga gegn
7,5 vinningum Anands. Hann vann
fjórar skákir, en Anand hafði aðeins
einu sinni betur. Kasparov hefði hald-
ið titlinum þótt hvor hefði fengið 10
vinninga í 20 skáka einvígi. Þá hefði
verðlaunaféð hins vegar skipst jafnt.
Eftir jafnteflið í gær er ljóst að Kasp-
arov fær eina milljón dollara (um 65
millljónir kr.) að launum og Anand
hálfa (um 32 milljónir kr.).
■ Kasparov /13
Kensington-steinn-
inn ekki blekking
BANDARÍSKUR vísindamaður
heldur því fram að umdeild stein-
tafla, sem fannst í Kensington í
Minnesota árið 1898 og talin er
vera frá árinu 1362, sé ekta og
beri því vitni að víkingar hafi
búið í Ameríku og flakkað um
meginlandið.
Fram til þessa hafa sérfræðing-
ar haldið því fram að Norður-
landabúar í Minnesota hafi falsað
steininn á síðustu öld og þar sé
að finna orðalag, sem ekki var
notað á fjórtándu öld.
Robert Hall, prófessor í málvís-
indum við Comell-háskóla í New
York-ríki, hefur hins vegar rann-
sakað bæði áletranirnar á steinin-
um og hvernig fund hans bar að
og komist að þeirri niðurstöðu að
efahyggjumennirnir séu á villigöt-
um. „Eg get sagt með vissu að
hann er ekta,“ sagði Hall um
Kensington-steininn í samtali við
danska blaðið Berlingske Tidende.
„Það er útilokað að hann hafi
verið falsaður. Það getur enginn
hafa haft þessa þekkingu.
Þetta skiptir miklu máli fyrir
Ameríku. Nú getum við sagt að
hópar Norðurlandabúa hafi flakk-
að um meginlandið. Við getum
ekki lengur lokað augunum fyrir
þeirri staðreynd að vitneskja um
Ameríku var útbreidd löngu fyrir
daga Kólumbusar.“
Hall kvaðst telja að víkingarnir
hefðu komið frá Grænlandi, farið
inn í Hudson-flóann, siglt niður
Nelson-fljót, yfir Winnipeg-vatn
og áfram niður Rauða fljót þar
sem nú eru miðvesturríki Banda-
ríkjanna.
Á töflunni er greint frá árás
indíána á byggð víkinga á þessum
slóðum.
Flokksþing breskra íhaldsmanna
Boða lægri skatta
og gagnrýna ESB