Morgunblaðið - 11.10.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þriggja ára áætlun um rekstur og fjármál Akureyrarbæjar
Tæpum 1,5 milljörðum
kr. varið til fjárfestinga
AÆTLUN um rekstur, fjármál og
framkvæmdir á vegum Akureyrar-
bæjar til næstu þriggja ára var
samþykkt á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær. Fulltrúar minni-
hlutaflokkanna sátu hjá við af-
greiðsluna.
Samkvæmt áætluninni er gert
ráð fyrir að veija samtals 468 millj-
ónum króna í gjaldfærða fjárfest-
ingu á vegum Akureyrarbæjar á
árunum 1996-1998 og og tæpum
milljarði eða um 980 milljónum
króna í eignfærða fjárfestingu á
vegum bæjarins næstu þrjú ár.
I markmiðum áætlunarinnar er
gert ráð fyrir að hlutfall rekstrar-
gjalda af skatttekjum verði að há-
marki 75% á tímabilinum en það
endurspeglar þann vilja bæjar-
stjórnar að gæta aðhalds í rekstri
til að auka framkvæmdagetu bæj-
arsjóðs og treysta fjárhag hans.
Með hagræðingu og sparnaði í
rekstri er ætlunin að skapa svigrúm
til nýmæla í rekstri.
Fyrirhugað er að ná þessum
markmiðum með því að fara með
skipulegum hætti yfir öll rekstrar-
útgjöld, endurskoða nefndarkerfi
bæjarins, skipuleggja öll innkaup
og skoða sérstaklega hagkvæmni
þess að bjóða út einstaka þætti í
rekstri bæjarins hvað varðar inn-
kaup á rekstrarvörum, þjónustu og
efni.
Jafnframt þessu áætlar bæjar-
stjórn að skoða hágkvæmni þess
að selja eignir með það fyrir augum
að lækka skuldir bæjarins, en eitt
af markmiðunum er að lækka
skuldir á umræddu tímabili.
Fram kemur í áætlun um rekstur
og flármál bæjarsjóðs að útsvars-
tekjur Akureyrarbæjar lækka um
100 milljónir króna á tímabilinu
vegna þeirrar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar að afnema tvísköttun
á ljfeyrissjóðsiðgjöld launþega.
í áætluninni er gert ráð fyrir að
íbúum bæjarins fjölgi um 1% á ári
að jafnaði á tímabilinu.
Morgunblaðið/Kristján
VINNSLA grásleppuhrogna skapar mikla vinnu hjá Strýtu á
haustin og reyndar alveg fram undir jól. Hér standa þeir bræð-
ur við færibandið, Helgi Helgason verkstjóri og Aðalsteinn
Helgason framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Göngugatan til um-
ræðu í bæjarstjórn
„GÖNGUGATAN er hiuti af mann-
lífinu á Akureyri og því bið ég menn
að fara varlega í allar stórbreyting-
ar,“ sagði Gísli Bragi Hjartarson,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokks, á fundi
bæjarstjórnar í gær, þar sem m.a.
var rætt um hugmyndir um að leyfa
að nýju umferð um göngugötuhluta
Hafnarstrætis. Akureyringar eru
ekki á eitt sáttir um hvort leyfa
eigi akstur um göngugötuna. Versl-
unareigendur hafa óskað eftir að
svo verði en starfsfólk Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri hefur alfar-
ið mótmælt slíkum hugmyndum.
Sigríður Stefánsdóttir, lýsti yfir
andstöðu Alþýðubandalagsins, við
áð hleypa umferð um göngugötuna
en vonaði að skipulagsnefnd, sem
falið hefur verið að leggja fram til-
lögur um málið, myndi m.a. skoða
möguleika á að auðvelda aðgengi
að götunni m.a. með ijölgun
skammtímabílastæða við hana. Jak-
ob Björnsson, bæjarstjóri, vonaðist
til að niðurstaða skipulagsnefndar
um göngugötumálið, myndi liggja
fyrir bráðlega.
Rækju pakkað í neytendaumbúðir í pökkunarstöð Strýtu
Öll framleiðsla full-
umiin hiá fyrirtækinu
STRÝTA hf. hefur tekið í notkun
nýja pökkunarstöð í húsakynnum
sinum og framvegis verður allri
rækju sem unnin er hjá fyrirtækinu
pakkað í neytendaumbúðir og hún
send fullunnin á Bretlandsmarkað.
Einnig er stefnt að því í framtíðinni
að pakka fiski í neytendaumbúðir
hjá Strýtu og þá fyrst og fremst af
frystitogurum Samheija hf. Þannig
verður öll framleiðsla fyrirtækisins
send fullunnin í burtu, rækja, síld
og kavíar.
Starfsfólki Strýtu hefur fjölgað
um 20-30 að undanförnu, bæði vegna
tilkomu pökkunarlínunnar og eins
vegna annarrar vinnslu fyrirtækisins
og þar starfa nú um 100 manns.
Aðalsteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri Strýtu, segir að með tilkomu
nýju pökkunarlínunnar aukist verð-
mæti rækjunnar til muna og eins
dragi úr sveiflum í rekstrinum. Iðn-
aðarrækja, sem fyrirtækið hefur ver-
ið að vinna, sveifiast mun meira í
verði en fullunnin rækja.
Samheiji hf., Strýta hf., Söltun-
arfélag Dalvíkur hf. og Royal Gre-
enland A/S gerðu mér sér samkomu-
lag í janúar sl. um samstarf á sviðj
markaðsmála og vöruþróunar. I
framhaldi af því var keypt pökkunar-
lína til Strýtu og hefur verið unnið
að uppsetningu hennar síðustu mán-
uði. Undanfarnar vikur hefur svo
línan verið reynslukeyrð en um þess-
ar mundir er framleiðsla í neytenda-
pakkningar að fara í fullan gang.
Aðalsteinn segir að samstarfið við
Royal Greenland gangi vel en afurð-
ir fyrirtækisins eru seldar í gegnum
sölukerfí þess.
Unnið á tvískiptum
vöktum
í rækjuvinnslunni er unnið á tví-
skiptum vöktum, frá kl. 6 að morgni
til kl. 22 að kvöldi og einnig á iaug-
ardögum. Einnig er unnið frá morgni
til kvölds í kavíar og síld en þó ekki
á vöktum. Vinnsla grásleppuhrogna
skapar jafnan mikla vinnu á haustin
hjá Strýtu. Fyrirtækið keypti alls
2.500 tunnur af hrognum og verður
unnið við lagningu kavíars fram und-
ir jól.
Hjá Strýtu er kavíar unninn mest
í 50-100 gr. glös og seldur til Frakk-
lands, Ítalíu og Spánar. „Okkur hef-
ur tekist að selja öli okkar hrogn og
við erum að fá ágætis verð,“ segir
Aðalsteinn.
Hráefnisöflun gengur vel
„Hráefnisöflunin gengur vei. Við
kaupum kryddsaltaða sild frá Nes-
kaupstað og Vopnafirði. Fersku
rækjuna fáum við af bátum víða úr
Eyjafirði og af frystitogurum Sam-
heija og einnig Blæng NK og Há-
koni ÞH. Hluti aflans fer til vinnslu
hjá Söltunarfélagi Dalvíkur en Strýta
og Söltunarfélagið eru rekin eins og
systurfélög. Á Dalvík gengur vel og
þar er einnig nóg að gera,“ segir
Aðalsteinn.
Framleiðslá Söltunarfélagsins og
Strýtu kemur til með að aukast til
muna á þessu ári og taldi Aðalsteinn
að velta fyrirtækjanna yrði í kringum
2,2 milljarðar króna í ár.
Morgunblaðið/Kristján
Kveikt
w
á perunni
DAGARNIR styttast óðum og þá
grípum við til rafljósanna. Þessi
starfsmaður Rafveitu Akureyrar
var að skipta um perur í ljósa-
staurum í Hafnarstræti sem von-
ándi loga í allan vetur.
Nánast
kvenmanns-
laust í
Grímsey
NÁNAST kvenmannslaust
verður í Grímsey næstu daga,
en alls 18 konur eru á leið til
útlanda á morgun, fimmtudag.
Konurnar eru í Kvenfélaginu
Baug, en á 30 ára afmæli fé-
lagsins fyrir 8 árum ákváðu
þær að stofna sjóð sem nota
skyldi til ferðalaga kvenfélags-
kvenna. Fyrst létu hinar Gríms-
eysku húsmæður sér nægja að
skella sér til Akureyrar, þá
héldu þær tvívegis til höfuð-
borgarinnar Reykjavíkur, en
nú er stefnan tekin á írland. Á
morgun, fimmtudag leggja þær
upp frá Akureyrarflugvelli í
beinu flugi til Dyflinar þar sem
þær dvelja fram á sunnudag.
Þannig verður meirihluti
kvenna í Grímsey á faraldsfæti
næstu daga, en nokkrar eru
eftir heima og sjá þær um að
gæta barna ferðalanganna.
Neðra tjald-
svæðið undir
fjölskyldu-
garð
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Akureyrarbæjar hefur mælt
með því að Sundlaug Akur-
eyrarbæjar verið úthlutað
neðra tjaldsvæði Tjaldstæða
Akureyrar, þe. svæðinu milli
sundlaugargirðingar að sunnan
og að Iþróttahöll undir starf-
semi sína.
Sigurður Guðmundsson for-
stöðumaður Sundlaugar Akur-
eyrar óskaði eftir því að
íþrótta- og tómstundaráð hlut-
aðist til um neðra tjaldsvæðið
og byggingar sem því tilheyrar
verði til afnota fyrir starfsemi
ijölskyldugarðsins næsta sum-
ar.
Gert er ráð fyrir að ráðist
verði í framkvæmdir á sund-
laugarlóðinni næsta sumar, en
þær þrengja verulega að garð-
inum.
Ráðið hefur einnig lagt til
að gerður verði tengigangur
milli Sundlaugar Akureyrar og
íþróttahússins við Laugagötu.
Lán til kaupa
á 30 íbúðum
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
að tillögu húsnæðisnefndar
bæjarins samþykkt að sækja
um framkvæmdalán til bygg-
ingar eða kaupa á 30 félagsleg-
um íbúðum á næsta ári.
Að stærstum hluta verður
um að ræða félagslegar eignar-
íbúðir eða 20 talsins og 10 fé-
lagslegar kaupleiguíbúðir.
Búist er við að sótt verði um
lán til byggingar að kaupa á
svipuðum fjölda félagslegra
íbúða á árunum 1997 og 1998.
íbúðarlóðir
við Hafnar-
stræti
FRESTUR til að gera athuga-
semdir við breytingar á land-
notkun á svonefndu Höefners-
svæði milli Hafnarsstrætis og
Dorttningarbrautar rennur út
eftir hálfan mánuð, 25. októ-
ber. 1
Breytingarnar miðað að því
að hluta lóðanna á svæðinu,
þrjár talsins, verður heimilt að
nýta undir íbúðarhús. Þessar
lóðir eru næsta Hafnarstræt-
inu, sitt hvoru megin við
Blómaskálann.