Morgunblaðið - 11.10.1995, Page 1
B L A Ð A L LRA LANDSMA N N A
C
1995
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTOBER
BLAD
Morgunblaðið/Ásdís
Lewisvill breytta
dagskrá í Atlanta
ALÞJÓÐA frjálsiþróttasambandið greindi frá því í
gær að það hefði fengið bréf frá Joe Douglas, fram-
kvæmdastjóra Carls Lewis, þar sem hann óskaði
eftir að 200 metra hlaup, 400 metra hlaup og lang-
stökk sköruðust ekki á Ólympíuieikunum í Atlanta
næsta sumar svo Lewis gæti tekið þátt í öllum grein-
unum. Lewis sigraði einmitt í þeim á Ólympíuleikun- j
um í Los Angeles 1984 og var jafnframt í sigur-
sveit Bandaríkjamanna í 4x400 m boðhlaupi en hann
hefur alls átta sinnum fagnað sigri á Ólympíuleikum.
Michael Johnson, sem sigraði í 200 m og 400 m
hlaupi á heimsmeistaramótinu í Gautaborg á liðnu
sumri, hefur lengi unnið að því að fá dagskránni í
Atlanta breytt svo hann geti keppt í báðum greinun-
um og hefur verið tekið vel í óskir hans. Douglas
gat þess í bréfi sínu og óskaði jafnframt eftir að
nauðsynlegar breytingar yrðu gerðar til að Lewis
gæti verið með í öllum þremur fyrrnefndum grein-
um.
Enginn gróði
og formaðurinn
sagði af sér
SÆNSKA frjálsíþróttasambandið hafði áætlað að
hagnaður af Heimsmeistarakeppninni í fijálsíþrótt-
um í Gautaborg í sumar yrði um 140 miHjónir króna
en útlit er fyrir að sambandið fari slétt út úr móts-
haldinu og jafnvel að tap verði á keppninni. Bernt
Groon tók á sig áfallið og sagði af sér sem formað-
ur sambandsins í gær. Groon sagðist vera ábyrgur
fyrir hvernig fór. Gert hefði verið ráð fyrir góðum
hagnaði en vonbrigðin væru mikil.
Bengt Westerberg, sem tók við forystunni til að
byija með, sagði að vegna þessa yrði að skera nið-
ur kostnað á öllum sviðum á næsta ári og nefndi
um70milljónirkrónaíþvísamb? li.
Unglingur féll
aftur á lyfjaprófi
14 ÁRA fijálsíþróttastúlka frá Suður-Afríku, sem
var dæmd í fjögurra ára keppnisbann eftir að hafa
fallið á lyfjaprófi fyrr á árinu, féll aftur á lyfja-
prófi fyrir skömmu og fannst sama efnið í bæði
skiptin. Talið er að efnið sem fannst í apríl hafi enn
verið til staðar þegar stúlkan var kölluð í lyfjapróf
í lok september og verður málið rannsakað betur.
Þróttur flytji í
Laugardalinn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu íþrótta- og
tómstundaráðs um að formlegar viðræður verði
teknar upp við Knattspyrnufélagið Þrótt um flutn-
ing á starfsemi félagsins í Laugardal.
Þátttakendur í viðræðunum fyrir hönd borgarinn-
ar verða fulltrúar íþrótta- og tómstundaráðs og
skipulagsnefndar.
Næst að
hefna?
SEINNI leikur íslands og Tyrk-
lands í Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu fer fram á Laugardals-
velli í kvöld og hefst klukkan 20.
Tyrkir unnu 5:0 í Istanbúl fyrir
ári og eru íslensku strákarnir
staðráðnir í að hefna ófaranna
en Tyrkir leggja allt kapp á sig-
ur sem tryggir þeim sæti í úr-
slitakeppninni í Englandi. Arnar
Gunnlaugsson og Hlynur Stef-
ánsson voru „frískir“ á æfing-
unni í gær en ljóst er að mikið
mun mæða á Arnari í fremstu
víglínu í kvöld.
■ Leikurinn / C2
MANNVIRKI
50 metra innisundlaug
byggð í Grafarvogi
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að tillögu íþrótta- og tóm-
stundaráðs að nú þegar verði sett af stað vinna við undirbún-
ing, forsögn og kostnaðaráætlun að 50 metra yf irbyggðri sund-
laug sem rísa muni við íþróttamiðstöðina f Grafarvogi. Þar
var fyrirhugað að byggja 25 metra yfirbyggða sundtaug fyrir
skólasund, sundfélög og almenning.
JV
Isamþykkt íþrótta- og tóm- fimm milljóna króna framlagi til
stundaráðs um málið kemur undirbúnings að byggingu 50
fram að við afgreiðslu íjárhags- metra yfirbyggðrar sundlaugar.
áætlunar Reykjavíkurborgar fyrir Ljóst sé að ef umrædd sundlaug
árið 1995 hafi verið gert ráð fyrir eigi að verða tilbúin fyrir Smá-
þjóðaleikana í Reykjavík 1997
verði undirbúningsvinna að hefjast
sem fyrst.
Tveir staðir þóttu koma til
greina fyrir umrædda sundlaug,
Laugardalur og Grafarvogur. I
samþykkt ÍTR segir ennfremur:
„Með 50 nietra yfirbyggðri
sundlaug við íþróttamiðstöðina í
Grafarvogi skapast möguleikar á
nýtingu íþróttamannvirkis fyrir
sundkennslu skóla í Grafarvogi og
Borgarholtshverfum, æfíngar og
keppnir sundmanna og aðstöðu
fyrir almenning. Þá er ljóst að
rekstur slíks mannvirkis á þessum
stað verður mjög hagkvæmur
vegna þeirra mannvirkja sem fyrir
eru á staðnum og möguleika á
samrekstri með þeim. Þessi val-
kostur mun einnig leiða til þess
að mun fyrr en áætlað hefur verið
rís veglegt sundlaugarmannvirki S
Grafarvogi.“
KNATTSPYRNA: TYRKIR HRISTU UR SER KULDAHROLUNN / C3