Morgunblaðið - 11.10.1995, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSII\IS MIÐVIKUDAGUR 11. OKTOBER 1995
Tourde France
HVAÐ er Tour de France
(borið fram: Túr du Frans)?
Það er nafnið á frægustu hjól-
reiðakeppni í heimi sem fram
fer á hveiju sumri í Frakk-
landi. Tour de France þýðir
ferð um Frakkland! Þar etja
kappi flestir frægustu og
bestu hjólreiðakappar heims.
Keppnin tekur um 26 daga,
og er skipt í margar leiðir.
Samtals eru hjólaðir um 3.500
kílómetrar (skammstafað
km). Sá sem vinnur hveija
leið er klæddur í gula peysu
á næstu leið. En að lokum
vinnur sá sem fær bestu heild-
arútkomu. Oft munar ekki
nema nokkrum sekúndum á
keppendum, svo hart er bar-
ist. Fáninn á peysu þessa
kumpánlega hjólreiðamanns
segir okkur að hann sé frá
Spáni. Við óskum honum til
hamingju með sigurinn!
Valgerður Halldórsdóttir,
Brekkulandi 4a, 270 Mosfells-
bær, er höfundur myndarinn-
ar og kunnum við henni bestu
þakkir fyrir.
Reikningur
KRILLA krullhærða heldur
á tveimur strimlum með
tölum. A hægra blaðinu er
ákveðið kerfi þannig að töl-
urnar vaxa á vissan hátt
niður blaðið. Finnið út hvert
kerfíð er og fyllið út neðsta
og auða feminginn. Sama
máli gildir um vinstri strim- -v
ilinn, nema að þar er annað
kerfí í gangi. Hvert er það?
Lausnir eru með svarið á
öðmm stað í blaðinu ykkar
- Myndasögum Moggans.
í\
R Hpyv/v/iA
K i
'O-A KoNhhi fyjp $
Litla konan með
hattinn
■ ■ ■ ■ ■
Tvö
Ijóð
NEMÖNDIN, blað 5.
bekkjar veturínn
1994-1995 í Varma-
landsskóla gaf út blað
síðasta vetur eins og
kemur fram á öðrum
stað í blaðinu. Við höf-
um bara skírnamöfn
krakkanna - það verð-
ur bara að hafa það!
Ásthildur heitir ein
.stelpan í bekknum og
meðal efnis eftir hana
em þessi tvö skemmti-
legu og góðu ljóð:
Gosflaska
Ég er
gos-
flaska
ogþaðsemer
inniíméreroyög
gott á bragöið.
Utlu krakkamir
slefa ofan í mig.
Þaðerógeðsiegt.
Ömmuljóð
Lítill drengur lófa strýkur,
létt um vota móðurkinn.
Augun spyija spjörunum úr,
ótta og grun í fyrsta sinn.
Hvar er amma? Hvar er amma?
Amma er dain.
EINU sinni var lítil stúlka.
Hún átti heima í fallegri
blokk og mamma hennar var
afar góð við Helenu litlu. Svo
fóru þær í svolítinn göngutúr
og þar sáu þær afar glæsileg
blóm sem glömpuðu í sól-
skininu. Það voru lúpínumar,
þær tíndu í fullan blómavasa.
Hanna Sigrún Sumarliða-
dóttir, 7 ára, Svalbarði 14,
220 Hafnarfjörður, er höf-
undur sögunnar um Helenu
litlu með hatt og líka mynd-
arinnar sem skreytir sög-
una.
Innilegar þakkir, Hanna
Sigrún.
Unuhús
u m
0 M.
ú*i V .
FIMM ára stúlka að nafni Una Kristín Guðmundsdóttir, Fitjasmára 8, 200 Kópavogur, er
höfundur þessarar fínu myndar. Myndasögurnar þakka þér fyrir, Una Kristín.