Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER BLAÐ KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Árni Sæberg Haukar stödvuðu Tindastól TINDASTÓLL tapaðl sínum fyrsta leik í úrvalsdelldinnl í gærkvöldi er llðið heimsótti Hauka í Hafnarfjörðlnn. Hér sækir Torrey John að Jónl Arnarl Ingvarssynl og bróðir hans, Pétur er ekki langt undan. ■ Úrvalsdeildin / C3 Fram og Víkingur deila um greiðslu fyrir Helga Sigurðsson KSÍ segir að Vík- ingur eigi rétt á 25% gjaldsins FRAM og Víkingur túlka félagaskipti Helga Sig- urðssonar úr Fram í Stuttgart á mismunandi hátt og er deilt um greiðslu sem samið var um að þýska félagið greiddi. Framarar telja að þeir eigi rétt á öllu gjaldinu þar sem Helgi hafi leik- ið með þeim 1993 og 1994, farið síðan á leigu- samning til Stuttgart en gert samning við félag- ið í júlí sem leið. Víkingar segja að þeir eigi rétt á 25% gjaldsins þar sem Helgi hafi skrifað und- ir félagaskipti úr Fram í Stuttgart 7. október 1994 en leikið með Víkingi 1992. Þar sem félögin komust ekki að samkomulagi leituðu þau til KSÍ fyrir skömmu og tók samn- inga- og félagaskiptanefnd undir rök Vfkings. Stjórn KSÍ staðfesti síðan það álit og var haft til hliðsjónar að Helgi var ekki skráður í Fram 1995 en hafði formleg félagaskipti úr Fram í Stuttgart fyrir ári. Því eigi að miða við árin 1992 til 1994. Að sögn SnorraJFinnlaugssonar, fram- kvæmdastjóra KSÍ, er ekkert til um leigusamn- ing í regliun KSÍ heldur gert ráð fyrir að féiaga- skipti og sala fári saman. Snorri sagði að sam- kvæmt reglunum væru síðustu þrjú keppnisár höfðtil hliðsjónar varðandi skiptingu gjalds fyr- ir leikmaim. Félag viðkomandi leikmanns fyrsta árið fengi 25% gjaldsins, sama hlutfall rynni til félags leikmannsins annað árið en félag sem viðkomandi leikmaður hefði leikið með síðasta árið fengi 50%. Félagaskipti Helga hefðu ekki verið með neinum skilyrðum og því hefði nefnd- in miðað við fyrrnefnda dagsetningu. Framarar eru ekki sáttir við þessa niðurstöðu og hafa óskað eftir fundi með samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ. Daley Thompson í knattspyrnuna DALEY Thompson, fyrrum ólympíu- og heims- meistari í tugþraut, hefur gert samning við enska knattspyrnufélagið Stamford, sem er utan deilda, um að leika með liðinu. „Ég elska að sigra,“ sagði Thompson, sem er 37 ára og vill helst leika í framlínunni. „Mér er sama hver skorar, svo fram- arlega sem ég er í sigurliðinu." Thompson var í fótbolta sem strákur en hætti 17 ára til að geta einbeitt sér að fijálsíþróttun- um. „Ef hann væri ekki góður knattspyrnumaður vildum við ekki fá hann,“ sagði Steve Evans, yfir- þjálfari Stamford. KNATTSPYRNA Landsleikurinn vakti mikla athygli íTyrklandi ^ Fegurðardrottning íslands í sviðsljósinu HRAFNHILDUR Haf- steinsdóttir, fegurðar- drottning íslands, hefur verið mjög í sviðsljósinu í Tyrklandi undanfarna daga vegna landsleiks ís- lendinga og Tyrkja í knattspyrnu, en Hrafn- hildur dvelst nú í Tyrk- landi þar sem keppni um titilinn Ungfrú Evrópa fer fram 23. október næst- komandi. Hrafnhildur, sem er unnusta Arnars Gunnlaugssonar landsliðs- manns, var t.d. í viðtali á íþrótta- rás tyrkneska sjónvarpsins, og í einu dagblaðanna prýddi mynd af henni baksíðuna í gærmorgun. Hrafnhildur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Tyrkir hefðu haft gífurlegan áhuga á landsleiknum og þeir hafi verið vel með á nótunum um nöfn íslensku leik- mannanna ogjafnframt vitað að hún er kærasta Arnars. „1 viðtalinu á íþróttarás sjónvarpsins var mikið fjallað um íslenska liðið og ég látin spá fyrir um úrslitin. Ég hafði því mið- ur rangt fyrir mér, en ég spáði því að við myndum vinna leikinn 2:1. Ég horfði síðan á útsendingu frá leiknum á stórum sjónvarpsslqá í anddyri hótelsins sem ég bý á, og var þar fjöldi manns að fylgjast með leiknum. Fólkið lifði sig mjög inn í leikinn, hrópaði og stökk á fætur, enda eru Tyrkirnir ákaflega blóðheit- ir,“ sagði Hrafnhildur. Hrafnhildur SKIÐI Ástahætt ÁSTAS. Halldórsdóttirfrá ísafirði, sem hefur verið besta skíðakona landsins undanfarin ár, hefur ákveð- ið að leggja skíðin á hilluna. Hún er margfaldur íslands- meistari og á siðasta styrk- leikalista Alþjóða Skíða- sambandsins er hún í 70. sæti í svigi þar sem um 5.000 keppendur eru skráð- ir. Asta, sem hefur verið í há- skóla í Östersund í Svíþjóð síðustu þijú ár jafnframt því að æfa skíðaíþróttina, hefur unnið alls 20 íslandsmeistaratitla síð- an 1987 og er mesta afrekskona íslands í skíðaíþróttinni frá upp- hafi. Það er mikill sjónarsviptir Morgunblaðið/Valur Jónatansson ÁSTA S. Halldórsdóttir. að henni fyrir skíðaíþróttina á íslandi því miklar vonir voru bundnar við hana í vetur. Ásta er nú flutt til Jönköping í Svíþjóð þar sem hún hóf ný- lega háskólanám í stoðtækja- smíði. Skíðasambandið segir í fréttatilkynningu, sem það sendi frá sér í gær, að sökum anna hennar í háskólanámi í Svíþjóð gefi hún ekki kost á sér í skíða- landsliðið. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er ástæðan fyrir brotthvarfi hennar úr landslið- inu allt önnur því hún hefur ekki verið ánægð með störf Skíðasambandsins undanfarin ár. Ásta neitaði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gærkvöldi. HAIMDKIMATTLEIKUR: AFTURELDING HEFUR EKKIENN FENGIÐ STIG / C2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.