Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 C 3 URSLIT Haukar-UMFT 80:69 íþróttahúsið við Strandgötu, úrvalsdeildin í körfuknattleik, 5. umferð, fimmtudaginn 12. október 1995. Gangur leiksins: 0:2, 4:2, 10:4, 17:10, 17:16, 30:23, 35:24, 35:30, 40:34, 40:37, 45:43, 52:43, 54:50, 69:53, 76:58, 79:62, 79:66, 80:69. Stig Hauka: Jón Amar Ingvarsson 22, Pétur Ingvarsson 20, Jason Williford 17, ívar Ásgrimsson 10, Sigfús Gizurarson 10, Þór Haraldsson 1. Fráköst: 10 í sókn - 27 í vörn. Stig Tindastóls: Torrey John 25, Lárus Dagur Pálsson 19, Hinrik Gunnarsson 10, Pétur Guðmundsson 9, Arnar Kárason 6. Fráköst: 5 í sókn - 19 i vöm. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Rögn- valdur Hreiðarsson. Ekki þeirra besti dagur. yillur: Haukar 18 - Tindastóll 22. Áhorfendur: 330. Keflav. - Breiðabl. 116:91 íþróttahúsið í Keflavík: Gangur leiksins: 0:4, 2:4, 5:13, 32:22, 42:32, 52, 42, 61:47, 71:56, 90:62, 100:66, 110:81, 116:91. Stig Keflvíkinga: Lenear Bums 31, Guðjón Skúlason 24, Falur Harðarson 16, Davíð Grissom 13, Sigurður Ingimundarson 9, Guðjón Gylfason 8, Elentínus Margeirsson 7, Albert Oskarsson 6, Gunnar Einarsson 2. Fráköst: 12 i sókn - 25 í vöm. Stig Breiðabliks: Michael Thoele 32, Birg- ir Mikaelsson 20, Halldór Kristmannsson 15, Atli Sigurþórsson 13, Einar Hannesson 5, Hjörtur Amarsson 4, Daði Sigurþórsson 2. Fráköst: 11 í sókn - 16 í vöm. Dómarar: Einar Einarsson og Eggert Aðal- steinsson sem dæmdu vel. Villur: Keflavík 18 - Breiðablik 13. Áhorfendur: Um 250. ÍR - Njarðvík 79:101 íþróttahúsið Seljaskóla: Gangur leiksins: 0:2, 5:8, 7:14, 11:22, 15:28, 24:28, 28:42, 35:44, 37:48,41:60, 50:72, 64:90, 70:96 79:101. Stig IRHohn Rhodes 25, Herbert Arnarson 17, Máms-Arnarson 8, Jón Örn Guðmunds- son 8, Eggert Garðarsson 6, Broddi Sigurðs- son 6, Guðni Einarsson 4, Eirikur Önundar- son 4, Gísli J. Hallsson 1. Fráköst: 20 i sókn - 24 i vöm. Stig UMFN: Rondey Robinson 20, Jóhann- es Kristbjömsson 20, Teitur Örlygsson 19, Rúnar Ámason 17, Páll Kristinsson 12, Friðrik Ragnarsson 6, Sverrir Sverrisson 5, Jón Júlíus Ámason 2. Fráköst: 14 í sókn - 28 í vörn Dómarar: Kristinn Óskarsson og Georg Andersen. Dæmdu vel, en brottrekstur Kristins Einarssonar UMFN orkaði tvímæl- is. Villur: ÍR 19 - UMFN 19 Áhorfendur: 140 greiddu aðgangseyri. UMFG-Valur 114:48 íþróttahúsið í Grindavík: Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 8:11, 25:15, 50:19, 65:23, 79:31, 92:31, 94:39, 104:39, 114:48. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 32, Hjörtur Harðarson 20, Marel Guðlaugsson 18, Helgi Jónas Guðfinnsson 13, Herman Meyers 9, Unndór Sigurðsson 9, Páll Axel Vilbergsson 7, Ingi Karl Ingólfsson 6. Fráköst: 13 í sókn - 32 í vörn. Stig Vals: Ragnar Þór Jónsson 12, Bjarki Guðmundsson 9, Bergur Emilsson 7, Guð- mundur Guðjónsson 6, Bjarki Gústafsson 6, ívar Webster 4, Andrés Úlfur Dúason 2, Hlynur Þór Bjömsson 2. Fráköst: 4 í sókn - 20 i vöm. Ðómarar: Leifur Garðarsson og Þorgeir Jón Júlíusson dæmdu vel. yillur: UMFG 11 - Valur 18. Áhorfendur: 120. ÍA - Þór 72:58 íþróttahúsið á Akranesi: Gangur leiksins: 3:0, 11:4, 15:14, 21:21, 33:27. 41:32, 49:36, 60:40, 64:48, 72:58. Stig ÍA: Milton Bell 20, Haraldur Leifsson 10, Brynjar Sigurðsson 10, Jón Þór Þórðar- son 9, Bjarni Magnússon 8, Brynjar Karl Sigurðsson 6, Elvar Þórólfsson 5, Dagur Þórisson 2, Guðmundur Siguijónsson 2. Fráköst: 12 i sókn - 26 í vörn. Stig Þórs: Fred Williams 17, Kristinn Frið- riksson 14, Kristján Guðlaiigsson 10, Birgir Öm Birgisson 7, Konráð Óskarsson 4, Ein- ar Valbergsson 3, Björn Sveinsson 2, Haf- steinn Lúðvíksson 1. Fráköst: 12 i sókn - 18 í vöm. Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján Möller. Villur: ÍA 17 - Þór 14. Áhorfendur: 240. KR-Skallagrímur 93:92 íþróttahúsið Seltjamamesi: Gangur leiksins: 3:3, 7:8, 20:8, 37:22, 44:28, 44:39, 59:55, 69:62, 77:71, 77:77, 81:79, 81:81, 82:88, 84:89, 93:91, 93:92. Stig KR: Hermann Hauksson 33, Ósvaldur Knúdsen 17, Ingvar Ormarrson 17, Jonat- han Bow 12, Óskar Kristjánsson 8, Arnar Sigurðsson 4, Lárus Árnason 2. Fráköst: 16 í sókn - 23 í vöm. Stig Skallagrims: Alexander Ermolinski 25, Tómas Holton 24, Bragi Magnússon 14, Grétar Guðlaugsson 9, Sigmar Egilsson 7, Gunnar Þorsteinsson 7, Hlynur Leifsson 6. Fráköst: 11 í sókn - 19 í vörn Dómarar: Helgi Bragason og Björgvin Rúnarsson réðu varla við erfiðan leik. Villur: KR 31 - Skallagrímur 23. Áhorfendur: Um 180. A-RIÐILL Fj. leikja U T Stig Stig TINDASTÓLL 5 4 1 418: 391 8 HAUKAR 5 3 2 402: 349 6 KEFLAVIK 5 3 2 469: 435 6 UMFN 5 3 2 441: 409 6 ÍR 5 2 3 382: 426 4 BREIÐABLIK 5 0 5 373: 475 0 B-RIÐILL Fj. leikja U T Stig Stig UMFG 5 4 1 486: 380 8 KR 5 4 1 479: 436 8 SKALLAGR. 5 3 2 413: 396 6 ÞÓR 5 2 3 441: 400 4 ÍA 5 2 3 407: 430 4 VALUR 5 0 5 305: 489 0 UMFA-Haukar 23:24 íþróttahúsið að Varmá: íslandsmótið í 1. deild karla - 3. umferð. Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:5, 7:9, 9:12, 11:15, 13:16, 13:17, 15:19, 16:21, 20:21, 20:24, 23:24. Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 5/2, Páll Þórólfsson, 5, Gunnar Andrésson 4, Ingi- mundur Helgason 3, Róbert Sighvatsson 3, Þorkell Guðbrandson 2, Viktor B. Vikt- orsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 9/1 (þaraf 1 til mótherja), Sebastían Alexand- ersson 1. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 8/4, Aron Kristjánsson 5, Björgvin Þór Þorgeirsson 3, Þorkell Magnússon 3, Gunnar Gunnars- son 2, Petr Baumruck 2, Sveinberg Gísla- son 1. Varin skot: Bjami Frostason 16/1 (þaraf 6 til mótheija). Utan vallar: 8 minútur. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson, ágætir. Áhorfendur: í kringum 200. 1. DEILD KARLA Fj. leikja u J T Mörk Stig KA 3 3 0 0 97: 81 6 STJARNAN 3 3 0 0 75: 63 6 HAUKAR 3 2 1 0 64: 62 5 FH 3 2 0 1 87: 73 4 ÍR 3 2 0 1 58: 60 4 VALUR 3 1 1 1 63: 63 3 VÍKINGUR 3 1 0 2 69: 69 2 ÍBV 3 1 0 2 69: 70 2 GRÓTTA 3 1 0 2 64: 65 2 SELFOSS 3 1 0 2 67: 69 2 UMFA 3 0 0 3 67: 81 0 KR 3 0 0 3 64: 88 0 Vináttuleikir Buenos Aires, Argentínu: Argentína - Kolombía.... 25.000. Rio de Janeiro, Brasilíu: Brasilía - Uruguay...... Ronaldo (17. og 36.). ..0:0 ..2:0 - kjarni málsins! IÞROTTIR KORFUKIMATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Mosfellingar í miklum vanda „LEIKUR okkar verður að breytast til batnaðar á næst- unni. Frammistaða okkar hing- að til hefur valdið mér miklum vonbrigðum og framundan er barátta fyrir lífi okkar í deild- inni,“ sagði Einar Þorvarðar- son, þjálfari UMFA, eftir að iið hans hafði tapað þriðja leik sfn- um í röð á íslandsmótinu, í þetta sinn 23:24, gegn Haukum á heimavelli sfnum. hraði var Ivar Benediktsson skrifar Fyrstu fimmtán mínútur leiksins voru í járnum og talverður leik beggja liða, oft meiri en þau réðu við. En upp úr miðj- um hálfleik hristu Haukar af sér slenið og náðu tveggja marka forystu sem þeir bættu síðan við fram að hléi. Þeir áttu ekki í teljandi erfiðleikum með að verjast hægum og bitlitlum sóknarleik Mosfellinga og áhugalítill varnar- leikur heimamanna varð enn frek- ara vatn á myllu gestanna úr Hafn- arfirði. Þeir sigldu því lygnan sjó inn í leikhléið með þriggja marka forskot, 16:13. Einar Þorvarðarson, þjálfari UMFA, breytti yfir í sex núll vörn í upphafi síðari hálfleiks og fyrst til að byrja með reyndist hún ekk- ert betur en fimm einn vörnin í fyrri hálfleik. Haukar léku af yfir- vegun og juku smátt og smátt for- skot sitt og þegar tíu mínútur voru liðnar af leikhlutanum höfðu þeir náð fimm marka forskoti, 21:16. Upp úr því fór varnarleikur UMFA að batna til mikilla muna og Berg- sveinn Bergsveinsson markvörður hrökk í gang eftir ákaflega dapran dag. Það sem eftir var leiks skor- uðu Haukar aðeins þrjú mörk. „Við vorum miklir klaufar á þessum kafla að hleypa þeim inn í leikinn og varð okkur nærri því dýrkeypt,“ sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka. Leikmenn UMFA skoruðu fjögur FELAGSLIF Iþróttaskóli í Kaplakrika íþróttaskóli barnanna í Kaplakrika hefur göngu sína á ný á morgun, laugardag. Tímarnir eru tvískiptir, fyrir 3-4 ára kl. 0930 og fyrir 5-6 ára kl. 10.30. Skráning í Kaplakrika eða fyrir fyrsta tíma. Tuðrudeildin Tuðrudeildin, fyrirtækja- og smáhópamót í knattspymu, verður á vegum Leiknis og ÍFA í nóvember. Upplýsingar og skráning hjá Leikni, (557-8045/557-8050) og ÍFA (581-3377). Sundþjálfaranámskeið Fræðslunefnd Sundsambandsins gengst fyrir námskeiði fyrir sundþjálfara og aðra áhugamenn um helgina í ráðstefnusal ÍSÍ. Aðalþemað verður þjálfun aldursflokka- sundfólks á aldrinum eins árs til sautján ára og er Dr. Öijan Madsen aðalfyrirlesari en auk hans flytur Mika Kekkáláinen fyrir- lestur um skipulag sundmála í Finnlandi og uppbyggingu afreksfólks. Námskeiðið hefst í kvöld kl. 19 og á laugardaginn verð- ur pallborðsumræða um stöðu íslensks ald- ursflokkasunds þar sem verða fyrir svörum auk áðurnefndra manna þeir Martin Ra- demacher, Klaus Júrgen Ohk og Hafþór B. Guðmundsson. Námskeiðið er öilum opið en tilkynna þarf þátttöku i síma 588-8210 milli klukkan 9 og 14 í dag. Þátttökugjald er 4.000 krónur. Einliðaleiksmót TBR Einliðaleiksmót TBR í badminton verður haldið í húsum TBR um helgina. Keppt er í einliðaleik í einum flokki. Þeir sem tapa fyrsta leik fara í aukaflokk, þar sem keppt er í riðlum. Þátttökutilkynningar skulu ber- ast til TBR í siðasta lagi kl. 12.00 í dag. Ikvöld Körfuknattleikur 1. deild kvenna: Akranesi: ÍA - Tindastóll..20.00 1. deild karla: Sandgerði: Reynir - ÍS.....20.00 mörk gegn engu og skyndilega var munurinn orðinn eitt mark og leik- urinn orðin spennandi. Bergsveinn varði frá Baumruck og Mosfellingar fengu tækifæri til að jafna en í stað fengu þeir dæmt á sig sóknarbrot. Haukar gáfu ekki frekari grið að sinni. Þeir gerðu þrjú mörk í röð og þrátt fyrir að Mosfellingar reyndu ýmislegt á lokakaflanum dugði það ekki til. „Ég er mjög ánægður með ieik okkar hingað til. Við höfum fengið þijú stig úr tveimur erfiðum útb leikjum og ætlum okkur að vera áfram með í baráttunni," sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka, glaðbeittur. Mosfellingar eiga hins vegar í miklum vanda og eru í neðsta sæti ásamt KR að loknum þremur um- ferðum og ljóst að veruleg breyting verður að vera á öllum þáttum í leik liðsins til þess að þeir bæti stöðu KNATTSPYRNA Roy Hodgson vill þjálfa Sviss og Inter ROY Hodgson staðfesti í gær að hann hefði mikinn áhuga á að taka girnilegu tilboði frá Internazionale um að þjálfa ítalska liðið en gat þess jafnframt að hann vildi líka halda áfram sem landsliðsþjálfari Sviss. Samningur hans við Sviss- lendinga rennur út eftir úrslita- keppni Evrópumótsins í Englandi í júní næstkomandi en fyrir þremur vikum óskaði hann eftir að losna nú vegna tilboðs Inter. Knattspyrnu- samband Sviss sagðist tilbúið að ræða málið eftir leik Sviss og Ung- verjalands sem Sviss vann 3:0 í fyrrakvöld og hittir Hodgson tals- menn sambandsins í dag. Hodgson er þjóðhetja í Sviss eftir sigurinn gegn Ungverjum. Hann gengur undir nafninu „King Roy“ í svissneskum fjölmiðlum sem segja hann eitt stærsta nafnið í sviss- neskri íþróttasögu. „Takk fyrir Roy“ kom á markatöfluna á Hardturm- leikvanginum eftir leikinn gegn Ungveijum. Hodgson, sem er 48 ára og frá Suður-London, hefur þjálfað í 20 ár, í Svíþjóð, Englandi og Sviss. Hann gerðist þjálfari hjá Svisslend- ingum 1992 og kom liðinu í úrslita- keppni HM í Bandaríkjunum 1994 og var það í fyrsta sinn sem Sviss komst í HM síðan 1966. Nú hefur hann svo gott sem komið liðinu í úrslitakeppni EM í fyrsta sinn. Sagt er að Inter hafi boðið honum 900 þúsund dollara eða um 57 milljónir í árslaun. „Ég get ekki hafnað til- boði frá félagi eins og Inter,“ sagði Hodgson í gær og bætti við að slíkt tilboð bærist ekki á hveijum degi. Hann sagði að það væri líka gott að hætta með Sviss á toppnum en vildi samt halda báðum liðunum ef kostur væri. „Ef sá möguleiki er fyrir hendi verð ég skýjum ofar,“ sagði hann en áréttaði að málið skýrðist í dag. Fyrsta tap Tindastóls morgunDiáoio/Arni sæDerg ÓMAR Sigmarsson sækir hér að körfu Haukamanna en tll varnar er Haukamaðurinn Pétur Ingvarsson. Haukar sigruðu og var þetta fyrsta tap Tindastóls í úrvalsdeildlnni í haust. Haukar stöðvuðu sigurgöngu Tindastóls ÞAR kom að því að Tindastóll frá Sauðárkróki tapaði leik í úrvals- deildinni íkörfuknattleik, en liðið hafði sigrað í fyrstu fjórum leikj- um sínum. í gær heimsóttu þeir Hauka í Hafnarfirði og riðu ekki feitum hesti frá þeirri viðureign, Hafnfirðingar sigruðu 80:69. V brá ráð Skú/i Unnar Sveinsson skrifar irn Tindastóls var ekki uppá marga fiska í upphafi leiks og Páll Kolbeinsson þjálfari á það að taka tíma snemma leiks til að leggja á ráðin og það hafði góð áhrif. Vörnin var þétt og og smátt og smátt komust gestirnir meira inn í leikinn en urðu engu að síður að sætta sig við að komast aðeins einu sinni yfir, 0:2, í upphafi leiksins. Fyrri hálfleikur var þokkalega leik- inn hjá báðum liðum, Haukarnir voru alltaf skrefinu á undan og siguvilji þeirra var meiri. Einnig var áberandi hversu illa margir leikmanna Tinda- stóls hittu. Haukarnir voru hins vegar mun frískari og allar aðgerðir þeirra virkuðu, þó svo þeir næðu ekki að hrista gestina af sér. Sóknir þeirra rúlluðu betur og í vörninni stigu menn út, en gestirnir gerðu allt of lítið af því að þessu sinni. Sami munur hélst framan af síðari hálfleik og lítið var skorað, staðan 45:43 eftir sex mínútna leik. Þá kom kaflinn sem Hafnfirðingar voru að bíða eftir. Allt gekk upp hjá þeim á sama tíma og ekkert gekk upp hjá gestunum og á skömmum tíma gerðu Haukar út um leikinn, náðu mest 18 stiga for- ystu, sem var of mikil fyrir hið ósigr- aða lið Tindastóls. Stákarnir gáfust þó ekki upp og börðust til lokaflauts- ins, en allt kom fyrir ekki. Tindastóll hafði tapað sínum fyrsta leik í vetur. „Ég átti nú von á að það yrði erfitt hér,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari Tindastóls, sem sagðist hafa spáð Haukum öðru sæti í mótinu, á eftir Keflvíkingum. „Við lékum ágætlega í fyrri hálfleik og fyrstu mínúturunar í þeim síðari en svo kom kafli þar sem við hittum ekkert. Þetta var einn slak- asti leikur okkar í vetur, en ég get ekki annað en verið stoltur af strákun- um að gefast ekki upp þrátt fyrir von- Iitla stöðu. Við reyndum alveg fram á síðustu sekúndu," sagði Páll sem tók leikhlé þegar staðan var 80:69 og fimm Framlengt í baráttu- leik á Nesinu STEMMNINGIN í íþróttahús- inu á Seltjarnarnesi var raf- mögnuð í gærkvöldi þegar KR- ingar tóku á móti Skallagrími frá Borgarnesi í stórskemmti- legum og spennandi baráttu- leik. Jafnt var eftir venjulegan leiktfma og þurfti að fram- lengja en þar tókst vesturbæ- ingum að knýja fram 93:92 sig- ur með nfu stigum Ingvars Ormarssonar. H leimamenn byijuðu betur og náðu fljótlega forskoti með miklum látum og frábærri vörn en náðu samt aldrei að hrista af sér Borg- nesingana. í síðari hálfleik varð barátt- an enn meiri enda Stefán Stefánsson skrífar hlóðust villurnar upp. Gestirnir náðu að saxa forskotið niður í fjög- ur stig með mikilli baráttu og jöfn- uðu fyrst þegar þijár mínútur voru eftir og aftur úr vítaskotum þegar 30 sekúndur voru eftir en KR-ingar náðu ekki að nýta sér þær svo að framlengja þurfti leikinn. Þá misstu Borgnesingar Ermolinski útaf með 5 villur en náðu samt 6 stiga for- skoti með liprum leik. Þá tók Ingv- ar til sinna ráða, byijaði með tveim- ur þriggja stiga körfum og 4 stigum að auki svo að KR var komið yfir 93:91. Grétar Guðlaugsson fékk svo vítaskot en hitti bara úr öðru skot- inu og á villtum lokasekúndum náðu vesturbæingarnir að haida fengnum hlut. KR-ingar voru næstum búnir að kasta frá sér sigrinum en sýndu mikinn styrk með því að snúa leikn- sekúndur eftir af leiknum. Haukar léku vel, stálu boltanum trekk í trekk af gestunum og varð það meðal annars Tindastóli að falli. Haukar hafa heil- steypt lið og eiga eftir að ná langt í vetur. Bræðurnir Jón Arnar og Pétur voru sterkir svo og Williford sem þó lét lítið að sér kveða í síðari hálfleik en þá lék Torrey John reyndar ágæta vörn gegn honum. Williford gerði þó 17 stigogtókjafnmörgfráköst. Tinda- stóll hlýtur að hafa leikið betur í fyrri leikjum mótsins, það voru aðeins Tor- rey John og Lárus Dagur sem léku af eðlilegri getu. Oruggt hjá Skaga mönnum Skagamenn sigruðu Þór frá Akureyri örugglega 72:58 í leik sem ekki verður minnst fyrir árang- ursríkan sóknarleik. Gunnlaugur Leikmenn liðanna Jónsson áttu í mestu vand- skrifar frá ræðum að senda Akranesi knöttinn á samheija og skref var jafn algengur dómur og leikbrot. Heimamenn mættu ákveðnir til leiks og höfðu yfirhöndina allan leikinn. Þórsarar náðu aðeins að halda í þá gulklæddu í byijun en staðan í leikhléi var 41:32. Níu leik- menn ÍA gerðu stigin í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik breyttu gestirnir í svæðisvörn og gekk hún vel til að byrja með en sóknarleikur þeirra var afleitur. Að gera 8 stig fyrstu tíu mínútur hálfleiksins getur ekki talist eðlilegt hjá Þór. Þetta nýttu Skagamenn sér og unnu auðveldan sigur og þurftu í raun ekki mikið fyrir honum að hafa. Milton Bell var atkvæðamestur heimamanna, en hann á þó talsvert inni því skotnýting hans var ekki góð. Þórsliðið var and- og áhuga- laust og enginn leikmaður sem skaraði framúr. Kristinn Priðriks- son var ekki svipur hjá sjón frá því sem var í fyrra, lét mestu orkuna fara í að tuða í dómurunum. Meistarataktar Njarðvíkinga IR tapaði fyrsta leik sínum á heima- velli gegn Njarðvíkingum, en liðið hafði ekki tapað í deildarkeppninni síðan í janúar 1993, gegn Hörður Létti. Njarðvíkingar töp- Magnússon uðu aðeins einum leik í skrifar íyvra. í deildarkeppninni, einmitt gegn IR. íslandsmeistararnir stóðu heldur bet- ur undir nafni og kafsigldu ÍR-inga 79:101. Þeir náðu forskoti strax í byij- un, keyrðu upp hraðann og heimamenn sátu hreinlega eftir. Varnarleikur meistaranna var frábær með Teit Örlygsson fremstan í flokki en hann pakkaði Herberti Arnarsyni saman. „Við lékum lengst af ágætlega, virkuðum ,í betra formi og ég er mjög ánægður með breiddina hjá okkur,.“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari UMFN. Leikur ÍR virkaði ráðleysislegur enda kannski ekki skrýtið eins og gestirnir spiluðu í þessum leik. John Rhodes var sá eini sem spilaði vel. Það er erfitt að taka einn út hjá Njarðvík, Teitur, Rond- ey, Jóhannes, Páll og Rúnar léku vel og að ósekju hefði Friðrik Ragnarsson mátt fá að spreyta sig meira, en það er kannski helsti höfuðverkur þjálfarans að deila mínútunum á mannskapinn. Sannfærandi hjá Keflvíkingum Keflvíkingar unnu sann- kfærandi sigur á Blikum Kópavogi í Keflavík i kvöldi, 116:91. Heimamenn umtalsverða Bjöm Blöndal skrífar frá Keflavík ur gær- höfðu yfir- burði í leiknum að undanskildum fyrstu mínútunum og eftir það var að- eins spurning um hversu mikill munurinn yrði. I hálf- leik var staðan 61:47. Leikurinn var ekki í háum gæða- flokki og líkast því sem leikmenn vildu hespa honum af sem fyrst. Lítil áhersla var lögð á varnarleik- inn sem sést best á því að Keflvík- ingar náðu 100 stiga múrnum rétt uppúr miðjum síðari hálfleik. „Þetta fór í sjálfu sér ekkert öðruvísi en um við í framlengingunni. Baráttan var gríðarleg og vömin yfirleitt mjög sterk þó að það hafi kostað 33 villur, en uppskeran var samt góð. Hermann Hauksson var best- ur, hélt Alexander Ermolinski frá körfunni, nýtti meira en helming af skotum sínu og tók flest frá- köst, 8 í sókn og 3 í vörn. Góðir sprettir Ósvaldar Knúdsen í upp- hafi leiks og Ingvars á lokamínút- unum skiptu sköpum. Þó að Borgnesingar væru undir nær allan Ieikinn gáfust þeir aldrei úpp og fá prik fyrir seigluna. Alex- ander Ermolinski þurfti að taka á honum stóra sínum á Nesinu í gær en tókst vel upp þrátt fyrir mikla og harða mótspyrnu mótheija sinna. Hann og Tómas Holton báru uppi leik Borgnesinga en Grétar Guðlaugsson vár líka góður. Grindvfldngar rúlluðu yfir Val Valsmenn gerðu aðeins 19 stig ífyrri hálfleik Frímann Ólafsson skrífar frá Gríndavik Það er óhætt að segja að Grind- víkingar hafi hreinlega rúllað yfir Valsmenn í leik liðanna í úr- valsdeildinni í gærkvöldi. Valur var yfir 11:8 þegar 3 mínútur voru liðnar af leiknum en þá tóku Grindvíkingar góðan kipp og fengu aðeins á sig 8 stig það sem eftir var af hálfleiknum. Undirritaður man varla eftir leik í úrvalsdeild- inni þar sem annað liðið hafði að- eins gert 19 stig í hálfleik eins og Valur gerði í gær. Seinni hálfleikur var aðeins formsatriði slíkir voru yfirburðir heimamanna. Liðið fær þó verðuga mótheija í næstu umferðum þar sem leikið verður milli riðla og ætti að verða góð prófraun á styrk liðsins. „Við settum okkur mark í þessum leik að reyna ekki að fá á okkur mörg stig. Valur er með ungt lið og þó við séum með svipað lið er leikreynsla okkar meiri. Það er oft erfitt að halda einbeitingu í svona leik og ég er ánægður með að það náðist í þessum leik,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Grind- víkinga, í leikslok. „Þetta var hálfdapurt hjá okkur og ekki ánægjulegur leikur. Við vorum góðir í 3-4 mínútur en þá hættu menn að spila og nánast horfðu á leikinn. Það var engin samvinna f sókninni og lítil hreyf- ing eins og sést á því að skora 6 stig á 15 mínútum,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari Valsmanna, eftir leikinn. ég átti von á, Keflvíkingar eru með léttleikandi lið sem erfitt er heim að sækja og eins höfðum við lítið í þá að gera undir körfunni," sagði Birgir Guðbjörnsson, þjálfari Blika, eftir leikinn. Breiðabliksliðið hefur nú tapað öllum sínum leikjum í deildinni og ljóst er að þar verða einhvetjar breytingar að eiga sér stað ef snúa á við taflinu. Lenear Burns, Davíð Grissom, Falur Harðarson og Guðjón Skúla- son voru bestu menn Keflvíkinga og athygli vakti að Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður sá ekki ástæðu til að taka þátt í leiknum en gaf yngri og óreyndari leikmönn- um tækifæri. Hjá Blikum bar mest á þeim Michael Thoele, Birgi Mika- elssyni og Halldóri Kristmannssyni. ÍÞROTTASKÓLI BARNANNA HEFST LAUGARDAGINN 14. OKTÓBER SKRÁNING í KR-HEIMILINU FÖSTUDAGINN 13. OKT. MILLI KL. 17 OG 19 EINNIG Á LAUGARD. MILLI KL 10 OG 12 ÞRIGGJA OG FJÖGURA ÁRA VERÐA Á LAUGARD. KL 10 - 11 FIMM OG SEXÁRA VERÐA Á LAUGARD. KL. 11 -12 VERÐ KR. 4000 FRAM AÐ JÓLUM 10 SKIPTI. E

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.