Morgunblaðið - 14.10.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.10.1995, Qupperneq 1
GOLF / HEIMSMEISTARAKEPPNIN I HOLUKEPPNI HANDKNATTLEIKUR: EVRÓPUKEPPNIN ER ORÐIN FJÁRHAGSLEGUR BAGGI / D2 Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA: Vinn með KSÍ að vexti og viðgangi knattspyrnunnar við Persaflóa ERNIE Els, sem á titil að veija í heimsmeistarakeppninni í holu- keppni, hefur sjaldan leikið betur en í gær þegar hann sigraði Bandaríkjamanninn Lee Janzen í átta manna úrslitum. Els tryggði sér sigur þegar þijár holur voru eftir og mætir Bern- hard Langer í undanúrslitum í dag en Langer hafði betur gegn Nick Price á síðustu holu. Costantino Rocca sló Ben Crenshaw úr keppni þegar tvær holur voru eftir og mætir Astral- anum Steve Elkington í undan- úrslitum en Elkington sigraði Colin Montgomerie á síðustu holu. A myndinni horfir Els á eftir boltanum en svipurinn á Janzen til hægri gefur vonbrigði til kynna. MAGNÚS Scheving þolfimi- kappi hefur verið á faraldsfæti allt þetta ár, en hann var kjör- inn íþróttamaður ársins 1994. Hann hefur kennt á mann- mörgum ráðstefnum víða um heim og vinnur nú að heims- . reisu með fremstu þolfimi- keppendum og kennurum á al- þjóðlegum vettvangi. Eg hef unnið að þessu ásamt Árna Geir Pálssyni, en ég hef kynnst fiestum af bestu kennurum og keppnisfólki heims, Gunnlaugur bæði þegar ég hef Rögnvaldsson keppt og á þeim ráð- skrifar stefnum, sem ég hef kennt á. Við ætlum að fara í sex vikna ferð með hópinn og kenna þolfimi um allan heim,“ sagði Magnús Scheving. Hann hefur víða vakið athygli og í Englandi er Tee Dobinsson, umboðsmaður hans, að vinna að því að hann verði látinn sýna hjá bresku konungsíjölskyld- unni innan skamms. Þessa dagana hugar Magnús að þátttöku í stórmóti í þolfimi, sem verður hérlendis í nóvember. Hug- myndin er að fá Evrópu- og heims- meistara kvenna í mótið, sem gefa mun rétt tii þátttöku í fyrsta heims- meistaramóti alþjóðafimleikasam- bandsins í París um miðjan desem- ber. „Ég er rnjög spenntur fyrir heims- reisunni, er m.a. búinn acT fá Japan- ann Kenjiro, sem ég keppti við í tvígang á heimsmeistaramótinu, til að koma með. Þá mun Evrópu- og heimsmeistarinn Carmen Valderas frá Spáni koma, einnig Nýsjálend- ingurinn Marcus Irving sem varð heimsmeistari og þykir einn besti kennari heims og Dona Richardson frá Bandaríkjunum. Hún var nýlega valin besti þolfimikennari heima- lands síns af fagfólki. Við verðum væntanlega tíu saman og förum til 27 borga á sex vikum,“ sagði Magn- ús. Hann þekkir það vel að flakka um heiminn, á þessu ári hefur hann verið á Ítalíu, í Þýskalandi, Eng- landi, Finnlandi, á Spáni, Ítalíu, í Búlgaríu og Noregi. I Berlín fylgd- ust 20.000 manns með æfingapró- grammi hans á heimssýningu fim- leikafólks. „Mér finnst ekki margir vita margt um ísland, þótt Björk hafí aukið hróður landsins á sinn hátt. Það er enn litið á okkur sem hálfgerða molbúa og mætti bæta markaðssetningu ferðamála á er- lendum vettvangi. Það er líka alltof dýrt að fljúga héðan ef fólk vill ferð- ast frá landinu, ég hef kynnst því á mínum ferðalögum." Magnús hefur ekki keppt í þolfimi síðan á Evrópumeistaramótinu, en sigui-vegari haustmótsins hérlendis kemst á heimsmeistaramótið í París. Þá verður keppt eftir nýjum reglum alþjóða fimleikasambandsins. „Þetta verður eins og að byija nýja íþrótt með þessum reglum. En það er spennandi mál að viðurkennt sam- band innan alþjóða íþróttasam- bandsins skuli hlúa að íþróttinni. Ég hef ekki haft tíma til að keppa á minni mótum, sem eru haldin víða, enda nóg líkamlegt álag í því sem ég hef verið að vinna undanfarna mánuði. Ég vona samt að ég hafi engu gleymt og nýju æfingarnar falli að stíl mínum að einhveiju leyti,“ sagði Magnús. 1995 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER BLAÐ GUÐJÓN Þórðarson, nýráðinn þjálfari íslands- meistara í A, til næstu fjögurra ára, fór á fund Eggerts Magnússonar, formanns KSÍ, í gær vegna ummæla sinna í garð KSÍ á dögunum og sagði við Morgunblaðið að fundi loknum að farið hefði verið yfir málin og borðið hreinsað. „Öll misklíð er úr sögunni og það er enginn kali á milli okkar,“ sagði Guðjón. „Eggert sljórn- ar KSÍ áfram af krafti og festu og ég held mínu striki en þar sem leiðir liggja saman munum við hér eftir sem hingað til vinnasaman að vexti og viðgangi knattspyrnunnar á íslandi í þeim til- gangi að efla hana og styrkja." Skagamönnum boðið á mót KNATTSPYRNUFÉLAG ÍA hefur tekið boði um að íslandsmeistararnir taki þátt í fjögurra liða móti í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum í byijun desember. Þegar íslandsmeist- aratitillinn var í höfn var ÍA boðið að taka þátt í umræddu móti félaginu að kostnaðarlausu og var jákvætt svar sent á umbeðnum degi í Ilðandi viku. Að sögn Gunnars Sigurðssonar, formanns Knattspyrnufélags ÍA, hafa Skagamenn alltaf öðru hveiju fengið ámóta boð síðan þeir fóru í þriggja vikna boðsferð til Indónesíu 1978. Víða væri vel fylgst með árangri liðsins og þessi boð staðfestu það, en stundum hefði ekkert orðið af ferðum þegar á hefði reynt. Því hefðu menn van- ið sig á að taka slíkum boðum með fyrirvara, en standi umrætt boð verður farið. MetþátttakaíHM IGÆR höfðu 169 knattspyrnusambönd tilkynnt þátttöku í næstu heimsmeistarakeppni í knatt- spyrnu en úrslitakeppnin verður í Frakklandi 1998 og verður dregið í riðla í Paris 12. desem- ber. 144 þjóðir voru með í HM1994 en 193 þjóð- ir eru innan Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA og hafa aldrei fleiri verið skráðar i HM. 50 landslið frá Evrópu eru skráð til keppni i HM; 36 frá Afríku, 35 frá Afríku, 28 frá Mið- og Norður-Ameríku, 10 fró Suður-Ameríku og 10 frá Eyjaálfu. Enn geta lið bæst við, m.a. er möguleiki á 13 til viðbótar frá Afríku. € Ernie Els aldan eikið betur Keuter ÞOLFIMI Magnús skipuleggur heims- reisu þekktra þolfimikappa b

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.