Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 1
UM TENGINGU OG DRÁTT ÖKUTÆKJA - 200ÞÚSUND GÍRKASSAR ÍBOUTHÉON — FORD TRANSITKOMINN AFTUR TIL ÍSLANDS - DAEWOO BÝÐUR VEL ÍBRETLANDI Tigra kemur í lok október BÍLHEIMAR hf., umboðsaðili Opel flytur inn fyrsta bílinn af Tigra gerð í endaðan október. Tigra er lítill sportbíll sem var frumsýndur á bílasýningunni í Frank- furt 1993. Hann verður líklega á verði frá 1.650.000 kr., þ.e. bíllinn með 1,4 lítra, 90 hestafla véliinni. Tigra fæst einnig með 1,6 lítra, 101 hestafla vél. Bílheimar taka inn Tigra með 1,4 lítra vélinni sem er að öðru leyti mjög vel búinn, m.a. með ABS-hemlalæsivörn og líknarbelg í stýri. Þá verður í fyrsta sinn boðin til sölu Opel Frontera jeppa í nýju húsnæði Bílheima á Sævar- höfða. Grunngerð, fernra dyra bílsins verður á 3-3,1 milljón kr. Hann er búinn 2,4 lítra bensín- vél, 136 hestöfl. ■ OPEL Tigra. EITTHVAÐ í þessa veru mun nýr Jaguar X400 líta út. Jaguarsmíðar minni bíl BÍLAFRAMLEIÐENDUR sem hafa byggt sitt orðspor og ímynd á fram- leiðslu stórra eðalbíla þar sem ekkert er til sparað í tækni og hráefni eru einn af öðrum að snúa við blaðinu og gerast alþýðlegri. Eins og kunn- ugt er hyggst Mercedes-Benz setja á markað byltingarkenndan smábíl, svokallaða A-línu, árið 1997 og er auk þess í samstarfi við svissneska úraframleiðandann Swatch um fram- leiðslu á örbílnum Swatchmobile. Nú berast fregnir af því að Jaguar háfi hafíð undirbúning á hönnun á bíl í milliflokki, X400, sem kemur fyrst á markað árið 2001 sem 2002 árgerð. Þetta yrði minnsti bíll sem Jaguar hefur smíðað. Áður hefur verið sagt frá áformum Jaguar um smíði á jeppa, X500, í Bandaríkjunum sem kemur á markað síðla árs 2000. Jaguar er í samstarfi við Lincoln/Mercury og Ford í Evrópu um hönnun á X400 sem verður lítill afturhjóladrifínn bíll. Kunnugir segja að tilgangurinn með smíði X400 sé afar einfaldur. Jaguar þarfnist sölubíls sem er einu númeri minni en X200, sem verður smíðaður í Castle Bromwich í Eng- landi og keppir á sama markaði og 5-lína BMW. Ford í Evrópu vantar bíl sem gæti leyst Scorpio af hólmi og Lincoln/Mercury væri akkur í því að fá alveg nýjan bíl til að keppa við Acura, Infiniti og Lexus í Bandaríkj- unum. Líklegt þykir að bíllinn verði búinn V6 og V8 vélum. Áætlanir gera ráð fyrir 100 þúsund bíla sölu á ári. ■ Jepplingur frá Honda HONDA hefur sett á mark- að í Japan CR-V, nýjan smájeppa, (jeppling), sem ætlað er að keppa við við Toyota RAV4. Þetta er fyrsti jeppinn sem Honda smíðar upp á eigin spýtur. Honda ráðgerir að selja 3 þúsund CR-V á mánuði. BílUnn er með nýrri gerð fjórhjóladrifsbúnaðar og nýrri tveggja lítra, neyslu- grannri vél. BIIiNJN OG VIS [ANAR ÞER Með Bílaláni VÍS getur þú keypt nýjan eða notaðan bíl á staðgreiðsluverði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.