Morgunblaðið - 17.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 17.10.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA HANDKNATTLEIKUR: ÞORBJÖRN VELUR LANDSLIÐIÐ SEM MÆTIR RÚSSUM / B3 Þrjú dauðaslys í hnefa leikum og íshokkí ÞRÍR íþróttamenn létu lífið í keppni um helgina, tveir i hnefaleikum í Skotlandi og á Filipseyjum og einn i æfinga- leik í íshokkí i Svíþjóð. Skoski hnefaleikamaðurinn James Murrey, sem var 25 ára, lést á sunnudag í kjölfar áverka sem hann hlaut í 12. lotu í keppni sl. föstudag. Hann komst aldrei til með vitundar en rann- sókn leiddi í ljós að blætt hafði inn á heilann. Breska læknafé- lagið brást þegar við og fór enn einu sinni fram á að hnefaleikar yrðu bannaðir. 19 ára piltur, Restituto Esp- ineli, lést á sjúkrahúsi í Manila á sunnudagskvöld, þremur dög- um eftir að hann hafði tapað á stigum í hnefaleikakeppni. Hann féll niður í búningsklefa eftir keppnina og fram kom að blætt hafði inn á heila. Svíinn Bengt Akerblom, sem var 28 ára, lést einnig í fyrra- dag. Brotið var á samherja hans sem kastaðist við það upp í loft og rakst annar skauti hans i háls Akerbloms með fyrrnefndum afleiðingum en Akerblom missti mikið blóð og lést á spítala skömmu síðar. íshokkisamband Sviþjóðar sagði að skylda ætti leikmenn að vera með sérstakar hálshlíf- ar en sumir leikmenn hafa ver- ið því mótfallnir og bera því við að slíkar hlífar erti húðina. Islendingar og Rússar leika fyrri leik þjóðanna í Evrópukeppn- inni í handknattleik í Kapla- krika miðvikudaginn 1. nóvember. Rússar leggja greinilega mikið upp úr leiknum því þeir koma hingað til lands með alla sína sterkustu handknattleiksmenn og ná í menn sem leika á Spáni, í Frakklandi og Þýskalandi, að sögn Þorbjörns Jenssonar, landsliðsþjálfara Is- lands. I rússneska landsliðshópn- um eru 11 af þeim 16 sem léku á heimsmeistaramótinu hér á landi í mai og allir þeir bestu eru með. Markverðirnir Lavrov og Su- kossian verða báðir með og aðrir leikmenn sem voru á HM eru línu- maðurinn Torgovanov, horna- mennirnir Voronin, Koulechov og Filippov, sem er reyndar leikstjórn- andi Stjörnunnar. Stórskyttan Kudinov kemur einnig og sömu sögu er að segja af Pogorelov, Atavin, Grebnev og Kulintchenko. Aðrir leikmenn verða Demidov, Gaino Koksharov, Igor Lavrov og Kiselov. Rússar koma með sitl sterkasta lið 1995 Aðalsteinn þjálfari Víkings PÉTUR Pétursson, fyrrum lands- liðsmaður í knattspyrnu, gaf ekki kost á sér áfram sem þjálfari 2. deildarliðs Víkings og mun Aðal- stein Aðalsteinsson taka við starfl hans. Pétur sagði í viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að það ætti eftir að koma í Ijós hvað hann gerir — hvort hann haldi áfram þjálfun, eða snúi sér ein- göngu að fyrirtæki sínu. Aðalsteinn, sem lék með Vík- ingsliðinu í sumar, mun skrifa undir tveggja ára samning í vik- unni. Hann hyggst hætta sjálfur að spila og mun einbeita sér alfar- ið að þjálfun. EM 23 ára í frjálsum FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND Evrópu, AEA, tilkynnti um helg- ina að ákveðið hefði verið að koma á fót sérstakri Evrópu- keppni fyrir 23 ára og yngri í stað Evrópubikarkeppni í sama aldursflokki. Fyrsta keppnin á að fara fram 1997 og verður mótsstaður ákveðinn í apríl nk., en síðan er áformað að Evrópu- keppnin verði annaðh vert ár. Ársþing sambandsins fór fram um helgina og var Carl-Olaf Homen endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára. ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER HANDKNATTLEIKUR BLAÐ Orebro bauð Arnóri nýjan samning til tveggja ára ÖREBRO hefur boðið Arnóri Guðjohnsen nýjan samning til tveggja ára með endurskoðunar- ákvæði eftir eitt ár. Hann er tilbúinn að vera áfram hjá félaginu að vissum kröfum uppfylltum og er Orebro að skoða óskir hans en Amór vill að geng- ið verði frá hlutunum í þessum mánuði, því önnur tilboð frá sænskum félögum og öðrum séu á borð- inu. Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson KA og Afturelding áfram LIÐ KA og Aftureldingar komust áfram í Evrópukeppninni í handknattleik um helgina, eftir örugga sigra á heimavelli. Víkingur og kvennalið Stjömunnar eru hins vegar úr leik. Á myndinni er KA-maðurinn Leó Orn Þorleifsson í baráttu við andstæðingana úr Víkingi frá Stafangri í KA-heimilinu á sunnudag. ■ Evrópuleikirnir / B5 Arnór átti stórleik með Örebro sem vann Trelleborg 2:0 í sænsku deildinni um helg- ina. Hann gerði fyrra markið og lagði upp hitt þremur min- útum síðar í seinni hálfleik. Arnar, sem átti stórglæsilega hjólhestaspyrnu frá vítateigs- línu — rétt yfir, fékk mjög góða dóma bæði í sjónvarpi og blöðum. Örebro er i sjötta sæti með 34 stig en Arnór sagði við Morgunblaðið að möguleikar á Evrópusæti væru miklir því þrír leikir væru eftir og þar af tveir á heimavelli. Arnór lék sem miðheiji og sagðist hann kunna miklu bet- ur við sig í þeirri stöðu en á vinstri kantinum. „Ég hef að- eins verið miðheiji i tveimur leikjum en það er allt annað líf. Sem slíkur er ég meira í boltaum og þetta var einn af betri leikjum mínum.“ Rúnar Kristinsson átti góð- an leik með Örgryte, sem vann Norrköping 2:0 — var valinn maður leiksins bæði í Göte- borgs Posten og Svenska Dag- bladet. Steingrímur hætti keppni í Skotlandi STEINGRÍMUR Ingason hætti keppni eftir að gírkassi í Nissan bíl hans bilaði, undir lok fyrri keppnisdags, í ralli í Skotlandi á föstudag. Hann var þá í tólfta sæti af 149 keppendum. Þessi sami gír- kassi bilaði í bfl Steingríms í alþjóðarallinu hér á landi fyrr í haust. Þrátt fyrir áfallið í Skotlandi ætlar Steingrimur að taka þátt í rallkeppni í Englandi um næstu helgi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.