Morgunblaðið - 17.10.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR: ÞORBJÖRN VELUR LANDSLIÐIÐ SEM MÆTIR RÚSSUM / B3
Þrjú dauðaslys í hnefa
leikum og íshokkí
ÞRÍR íþróttamenn létu lífið í
keppni um helgina, tveir i
hnefaleikum í Skotlandi og á
Filipseyjum og einn i æfinga-
leik í íshokkí i Svíþjóð.
Skoski hnefaleikamaðurinn
James Murrey, sem var 25 ára,
lést á sunnudag í kjölfar áverka
sem hann hlaut í 12. lotu í
keppni sl. föstudag. Hann komst
aldrei til með vitundar en rann-
sókn leiddi í ljós að blætt hafði
inn á heilann. Breska læknafé-
lagið brást þegar við og fór enn
einu sinni fram á að hnefaleikar
yrðu bannaðir.
19 ára piltur, Restituto Esp-
ineli, lést á sjúkrahúsi í Manila
á sunnudagskvöld, þremur dög-
um eftir að hann hafði tapað á
stigum í hnefaleikakeppni.
Hann féll niður í búningsklefa
eftir keppnina og fram kom að
blætt hafði inn á heila.
Svíinn Bengt Akerblom, sem
var 28 ára, lést einnig í fyrra-
dag. Brotið var á samherja
hans sem kastaðist við það upp
í loft og rakst annar skauti
hans i háls Akerbloms með
fyrrnefndum afleiðingum en
Akerblom missti mikið blóð og
lést á spítala skömmu síðar.
íshokkisamband Sviþjóðar
sagði að skylda ætti leikmenn
að vera með sérstakar hálshlíf-
ar en sumir leikmenn hafa ver-
ið því mótfallnir og bera því
við að slíkar hlífar erti húðina.
Islendingar og Rússar leika fyrri
leik þjóðanna í Evrópukeppn-
inni í handknattleik í Kapla-
krika miðvikudaginn 1. nóvember.
Rússar leggja greinilega mikið upp
úr leiknum því þeir koma hingað
til lands með alla sína sterkustu
handknattleiksmenn og ná í menn
sem leika á Spáni, í Frakklandi og
Þýskalandi, að sögn Þorbjörns
Jenssonar, landsliðsþjálfara Is-
lands. I rússneska landsliðshópn-
um eru 11 af þeim 16 sem léku á
heimsmeistaramótinu hér á landi í
mai og allir þeir bestu eru með.
Markverðirnir Lavrov og Su-
kossian verða báðir með og aðrir
leikmenn sem voru á HM eru línu-
maðurinn Torgovanov, horna-
mennirnir Voronin, Koulechov og
Filippov, sem er reyndar leikstjórn-
andi Stjörnunnar. Stórskyttan
Kudinov kemur einnig og sömu
sögu er að segja af Pogorelov,
Atavin, Grebnev og Kulintchenko.
Aðrir leikmenn verða Demidov,
Gaino Koksharov, Igor Lavrov og
Kiselov.
Rússar koma með
sitl sterkasta lið
1995
Aðalsteinn
þjálfari
Víkings
PÉTUR Pétursson, fyrrum lands-
liðsmaður í knattspyrnu, gaf ekki
kost á sér áfram sem þjálfari 2.
deildarliðs Víkings og mun Aðal-
stein Aðalsteinsson taka við starfl
hans. Pétur sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að það
ætti eftir að koma í Ijós hvað
hann gerir — hvort hann haldi
áfram þjálfun, eða snúi sér ein-
göngu að fyrirtæki sínu.
Aðalsteinn, sem lék með Vík-
ingsliðinu í sumar, mun skrifa
undir tveggja ára samning í vik-
unni. Hann hyggst hætta sjálfur
að spila og mun einbeita sér alfar-
ið að þjálfun.
EM 23 ára í
frjálsum
FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND
Evrópu, AEA, tilkynnti um helg-
ina að ákveðið hefði verið að
koma á fót sérstakri Evrópu-
keppni fyrir 23 ára og yngri í
stað Evrópubikarkeppni í sama
aldursflokki. Fyrsta keppnin á
að fara fram 1997 og verður
mótsstaður ákveðinn í apríl nk.,
en síðan er áformað að Evrópu-
keppnin verði annaðh vert ár.
Ársþing sambandsins fór fram
um helgina og var Carl-Olaf
Homen endurkjörinn formaður
til næstu tveggja ára.
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER
HANDKNATTLEIKUR
BLAÐ
Orebro bauð
Arnóri nýjan
samning til
tveggja ára
ÖREBRO hefur boðið Arnóri Guðjohnsen nýjan
samning til tveggja ára með endurskoðunar-
ákvæði eftir eitt ár. Hann er tilbúinn að vera áfram
hjá félaginu að vissum kröfum uppfylltum og er
Orebro að skoða óskir hans en Amór vill að geng-
ið verði frá hlutunum í þessum mánuði, því önnur
tilboð frá sænskum félögum og öðrum séu á borð-
inu.
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
KA og Afturelding áfram
LIÐ KA og Aftureldingar komust áfram í Evrópukeppninni í handknattleik um helgina, eftir örugga sigra á
heimavelli. Víkingur og kvennalið Stjömunnar eru hins vegar úr leik. Á myndinni er KA-maðurinn Leó Orn
Þorleifsson í baráttu við andstæðingana úr Víkingi frá Stafangri í KA-heimilinu á sunnudag.
■ Evrópuleikirnir / B5
Arnór átti stórleik með
Örebro sem vann Trelleborg
2:0 í sænsku deildinni um helg-
ina. Hann gerði fyrra markið
og lagði upp hitt þremur min-
útum síðar í seinni hálfleik.
Arnar, sem átti stórglæsilega
hjólhestaspyrnu frá vítateigs-
línu — rétt yfir, fékk mjög
góða dóma bæði í sjónvarpi
og blöðum. Örebro er i sjötta
sæti með 34 stig en Arnór
sagði við Morgunblaðið að
möguleikar á Evrópusæti
væru miklir því þrír leikir
væru eftir og þar af tveir á
heimavelli.
Arnór lék sem miðheiji og
sagðist hann kunna miklu bet-
ur við sig í þeirri stöðu en á
vinstri kantinum. „Ég hef að-
eins verið miðheiji i tveimur
leikjum en það er allt annað
líf. Sem slíkur er ég meira í
boltaum og þetta var einn af
betri leikjum mínum.“
Rúnar Kristinsson átti góð-
an leik með Örgryte, sem vann
Norrköping 2:0 — var valinn
maður leiksins bæði í Göte-
borgs Posten og Svenska Dag-
bladet.
Steingrímur
hætti keppni
í Skotlandi
STEINGRÍMUR Ingason
hætti keppni eftir að gírkassi
í Nissan bíl hans bilaði, undir
lok fyrri keppnisdags, í ralli
í Skotlandi á föstudag. Hann
var þá í tólfta sæti af 149
keppendum. Þessi sami gír-
kassi bilaði í bfl Steingríms í
alþjóðarallinu hér á landi fyrr
í haust. Þrátt fyrir áfallið í
Skotlandi ætlar Steingrimur
að taka þátt í rallkeppni í
Englandi um næstu helgi.