Morgunblaðið - 18.10.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
237. TBL. 83. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Salilin dreg-
ur sig í hlé
Stokkhólmi. Reuter.
MONA Sahlin, aðstoðarforsætis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði í gær-
kvöldi að hún hygðist ekki gefa
kost á sér til að taka við af Ing-
var Carlsson, forsætisráðherra og
leiðtoga sænskra jafnaðarmanna,
þegar hann lætur af embætti á
næsta ári. Hún útilokaði hins veg-
ar ekki að hún myndi gefa kost á
sér síðar.
Sahlin kvaðst hafa tekið þessa
ákvörðun til að lægja öldurnar,
sem hafa risið vegna misnotkunar
opinbers greiðslukorts, og leyfa
flokksmönnum að velta málinu
fyrir sér.
„Nú er ég eins og hver annar
flokksfélagi,“ sagði Sahlin í sam-
tali við sænska sjónvarpið. „Ef
flokkurinn leitar til mín á ný eftir
nokkrar vikur eða mánuði veit ég
ekki hveiju ég mun svara.“
■ Sahlin höfðar/17
Reuter
Sópað á geimsýningu
RÚSSNESK geimsýning er nú
haldin i Shah Alam í Malasíu. A
sýningunni eru sextán geimflaug-
ar í fullri stærð, auk líkana af fjar-
stýrðum ökutækjum, lendingar-
ferjum og gervihnöttum. Þetta er
fyrsta sýningin af þessu tagi, sem
haldin hefur verið utan Rússlands.
A myndinni sést vinnukona sópa
við rússneskan geimjeppa.
Alsírskir öfgamenn grunaðir um hryðjuverk í París
Juppé
fordæmir
„villi-
mennsku“
París. Reuter.
ALAIN Juppé, forsætisráð-
herra Frakklands, lýsti því yfir
í gær að Frakkar myndu ekki
„gefast upp fyrir viíli-
mennsku“. Tuttugu og átta
særðust er sprengja sprakk í
neðanjarðarlest í miðborg Par-
ísar í gærmorgun og er talið
víst að samtök heittrúarmanna
frá Alsír beri ábyrgð á tilræð-
inu.
Til stendur að Jacques
Chirac Frakklandsforseti eigi
fund með Liamine Zeroual
hershöfðingja, forseta Alsír, í
höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í New York eftir viku.
I yfirlýsingu Juppés sagði
að ekki yrði hætt við fund
Chiracs og Zerouals. „Frakkar
munu halda áfram viðræðum
sínum við Alsír. Engin hermd-
arverk, sama hversu lúaleg og
tillitslaus þau kunna að vera,
munu þagga niður rödd okk-
ar,“ sagði forsætisráðherrann.
Á myndinni sjást slökkviliðs-
menn og sjúkraliðar flylja eitt
fórnarlamba sprengjutilræðis-
ins á braut.
Reuter
■ Særðir farþegar/17
Warren Christopher ber vitni fyrir bandarískri þingnefnd
Enginn friður án þátt-
töku Bandaríkjahers
Moskvu, Sarajevo, Washington. Reuter.
Kozyrev varar við að hunsa Rússa
Evrópudómstóllinn
Ólöglegt
að hygla
konum
Lúxemborg. Reuter.
EVRÓPUDÓMSTÓLLINN kvað
upp þann úrskurð í gær, að regl-
ur, sem ætlað væri að jafna stöðu
kynjanna, brytu gegn jafnréttis-
lögum í Evrópusambandsríkjum.
Málið höfðaði landslagsarki-
tekt í Bremen í Þýskalandi, Eck-
hard Kalanke, er samstarfskona
hans var tekin fram yfir hann í
yfirmannsstöðu þótt hann hefði
lengri starfsaldur og hefði gegnt
stöðunni í forföllum. í úrskurðin-
um sagði meðal annars:
„Lög í einstökum ríkjum, sem
tryggja konum algeran og skil-
yrðislausan forgang við stöðuveit-
ingar og stöðuhækkun, gera
meira en að jafna rétt karla og
kvenna og bijóta því gegn gild-
andi lögum í ESB.“
Á þetta til dæmis við um lög
í Bremen en þau skylda borgar-
stofnanir til að hygla konum við
stöðuveitingar að því tilskildu, að
þær hafi sambærilega menntun
og umsækjendur úr hópi karla
og konur séu færri en karlar á
viðkomandi sviði.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, mætti í
gær fyrir hernefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings og sagði að ekki
yrði hægt að knýja fram friðarsam-
komulag í Bosníu án þátttöku
bandarískra hermanna. Fulltrúar
fímmveldanna í tengslahópnum svo-
kallaða kváðust í gær ætla að hraða
friðarumleitunum í Bosníu, en bættu
við að margar hindranir væru í vegi
og væri óvíst hvaða hlutverki Rúss-
ar myndu gegna í því að tryggja
að friðarsamkomulag verði haldið.
Tengslahópurinn hélt viðræður í
Moskvu í gær og að þeim loknum
héldu Richard Holbrooke, samn-
ingamaður Bandaríkjamanna, Igor
Ivanov, fulltrúi Rússa, og Carl Bildt,
erindreki Evrópusambandsins, til
Serbíu til viðræðna við Slobodan
Milosevic, forseta landsins. Andrei
Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss-
lands, setti viðræðurnar í Moskvu
með þeim orðum að menn skyldu
varast að hunsa vilja Rússa.
Ágreiningur um
hlutverk Rússa
Bandaríkjamenn, Bretar, Frakk-
ar, Rússar og Þjóðveijar eru í
tengslahópnum og þeim tókst ekki
að leysa úr ágreiningi um það hvert
hlutverk Rússa ætti að vera í alþjóð-
legu friðargæsluliði, sem verið er
að mynda undir forystu Atlantshafs-
bandalagsins (NATO).
Rússar hafa útilokað þátttöku
rússnesks herliðs undir stjórn
NATO, en Bandaríkjamenn hafa
hafnað tillögu Rússa um að Rússar
og NATO stjórni friðargæsluliðinu
til skiptis.
Strobe Talbott, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, ræddi
þessi mál við Kozyrev á sérstökum
fundi í gær.
Efasemdir á Bandaríkjaþingi
Bill Clinton Bandaríkjaforseta er
mikið í mun að fá Bandaríkjaþing
á sitt band til að geta beitt banda-
ríska hemum í Bosníu og í gær
sendi hann Cristopher, Wiiliam
Perry varnarmálaráðherra og John
Shalikashvili, yfirmann bandaríska
herráðsins, til að sannfæra hernefnd
öldungadeildarinnar.
Miklar efasemdir eru meðal þing-
manna um það hvort senda beri
bandaríska hermenn til Bosníu.
Nefndarmenn kváðust efast um eðli
þessarar aðgerðar og varanleika
friðarsamkomulags. Þeir skoruðu
einnig á forsetann að leita samþykk-
is þingsins við því að senda 20 þús-
und hermenn til Bosníu.
Christopher sagði að þessi aðgerð
yrði ekki áhættulaus, en bandarísk-
ir hermenn yrðu ekki sendir á vett-
vang nema um væri að ræða „frið
til að gæta“. Bandaríkjamenn yrðu
heldur ekki nema um eitt ár í Bos-
níu.
„Það verður ekki friðarsamkomu-
lag í Bosníu nema NATO, og Banda-
ríkjamenn sérstaklega, taki frum-
kvæðið að framkvæmd þess,“ sagði
Christopher.
Vopnahléð í Bosníu hefur nú stað-
ið síðan á fimmtudag og fregnir
herma að átökum sé að linna í norð-
vesturhluta landsins, góðar horfur
séu á fangaskiptum og aðgangur
verði leyfður að einangruðum svæð-
um.