Morgunblaðið - 18.10.1995, Side 8
SÉRBLAÐ UM SiÁVARÚTVEG
MIÐVIKUDAGUR18. OKTÓBER 1995
MILUÓNASTIPOKINN
PÖKKUNARGENGIÐ lyá Granda með mil^ óuasta pokann. Grandi hefurá skömmum tíma tvöfaldað vinnslu
á lausfrystum karfaflökum í plastpoka, sem seldir eru í þýzka stórmarkaði, meðal annars Aldi.
Grandi tvöfaldar vinnslu á
lausfrystum karfaflökum
Þorskkvóti
í Eystrasalti
aukinn um 65%
• ÞORSKV ÓTINN í Eystrasalti
fyrir næsta ár hefur verið aukinn
um 65% frá því, sem leyfilegt var
að veiða á þessu ári. Kvóti á sfld
og öðrum tegundum er að mestu
óbreyttur. Upphaflega var
ákveðið að takmarka veiðar á
þorski í Eystrasalti í ár við
100.000 tonn, en það mark var
nú í haust hækkað upp í 120.000
tonn. Á næsta ári verður kvótinn
svo 165.000 tonn. í fyrra var
þorskvótinn á þessum slóðum
aðeins 60.000 tonn og hefur hann
því aukizt mikið á skömmum
tíma. Evrópusambandið hefur
stærstan hluta kvótans í Eystra-
salti, 73.000 tonn, enda eru Sví-
þjóð og Finnland gengin til liðs
við sambandið, en auk þess eiga
þjóðveijar og Danir hlut af ESB-
kvótanum. Pólverjar fá á næsta
ári 25.320 tonn af þorski. Lettar
rúm 8.000 og Rússar 6.000, en
aðrar þjóðir frá minna. Nú verð-
ur leyft að veiða alls 450.000 laxa
í Eystrasalti og 120.000 í Finnska
flóa. Það er ESB, sem fær flesta
laxa í sinn hlut, eða nærri
440.000 alls. Lettar koma næstir
með tæplega 60.000 og loks Pól-
verjar með 27.000 laxa.
Heimild: Worldfish Report.
PÖKKUN Granda hf. á lausfrystum
karfaflökum í plastpoka fyrir þýzka
stórmarkaði hefur tvöfaldazt frá
því hún hófst árið 1993. í lok síð-
ustu viku var pakkað í milljónasta
pokann í ár og fara flökin mest í
verzlanir Aldi-keðjunnar, en ennig
aðrar búðir. Þá hefur útflutningur á ferskum karfaflökum til Þýzkalands
aukizt töluvert, en þau eru send utan með flugi. Útflutningur á óunnum
karfa hefur að sama skapi dregizt saman.
Veruleg aukning er
einnig á útflutningi
ferskra karfaflaka
Svavar Svavarsson, framleiðslu-
stjóri Granda, segir að með lækkun
tolla á flökunum í kjölfar EES-samn-
ingsins, hafi möguleikar á útflutningi
á ferskum karfaflökum aukizt veru-
lega, en tollar á þeim verða komnir
niður í 7% um áramót. Hann segir
að aukingin í fersku flökunum sé
ekki eins mikil og í þeim lausfrystu
í pokunum, en öll þessi flök eru unn-
in úr afla ísfískskipa Granda.
Fersku flökln á 1.100 krónur
kílóið
Verð á lausfrystu flökunum út úr
búð í Þýzkalandi er 10 til 11 mörk á
hvert kíló, 450 til 500 krónur, en
verð á ferskum flökum er allmiklu
hærra eða allt að 24 mörkum á kíló,
sem svarar til um 1.100 króna. Svav-
ar segir að pokavinnslan svokallaða
hafi aukizt meira en fersku flökin,
enda skili hún svipuðu verði heim og
fersku flökin. Mjög dýrt sé að flytja
flökin með flugi og leiðin inn á mark-
aðinn fyrir fersk flök virðist ekki eins
greið og fyrir þau frystu.
Hann segir ennfremur að eftir-
spurn eftir lausfrystum flökum í pok-
um sé mikil og framleiðslan vaxandi.
Framleiðslukostnaður sé minni en við
hefðbundna pakkavinnslu, meðal
annars séu umbúðir ódýrari. Þá sé
förgunarkostnaður á umbúðum mun
minni fyrir plastpokana en öskjurnar.
„Af þessu er ákveðinn virðisauki hér
heima, en aukningin í þessari vinnslu
skýrist að nokkru leyti einnig af því
að markaðurinn fyrir heilan, ferskan
karfa í Þýzkalandi hefur slaknað,“
segir Svavar.
Viðey elna „siglingaskipið"
í samræmi við þessa þróun hefur
verulega dregið úr siglingum skipa
Granda með ferskan karfa til Þýzka-
lands. Þijú skipa fyrirtækisins stund-
uðu þessar siglingar þegar mest var,
Akurey, Engey og Viðey. Akurey var
nýlega í sínum síðasta túr og verður
skipið nú sett á söluskrá. Engey hef-
ur verið breytt í frystiskip í Póllandi
og er hún væntanleg heim'um næstu
mánaðamót. Það er því bara Viðey
sem enn mun sigla með ferskan karfa,
þegar það er talið hagkvæmt.
FOLK
Frakkií
saltfiskinum
• TVEIR starfsmanna SÍF
eru kynntir með eftirfarandi
hætti í frétta-
bréfi SÍF,
Saltaranum,
sem er ný-
komið út:
Róland
Ríkharður
Assier er bor-
inn og barn-
fæddur í
Frakklandi, í úthverfí París-
ar, en ævintýraþráin leiddi
hann til íslands. Hann kom
hingað fyrst í sumarleyfi 1978
en ákvað að flytjast til íslands
1981. „Ég byrjaði á því að
vinna í saltfiski og skreið en
dreif mig síðan í Háskólann
til þess að læra íslensku," seg-
ir Róland á lýtalausri íslensku.
Hann lét ekki staðar numið í
íslenskunáminu og árið 1985
lauk hann BA-prófi í íslensk-
um fræðum. En hvað er ís-
lenskufræðingur að gera í
sölumennsku? „Ég held að
sölumennska sé mönnum í blóð
borin. Ég kynntist sölu-
mennsku fyrst hjá Entek, fyr-
irtæki sem framleiddi vökvun-
arkerfí til útflutnings, árið
1985. Mér féll starfíð vel og
hef því haldið áfram á sömu
braut,“ segir Róland. Hann
vann í nokkur ár við sölu á
ýmsum sjávarafurðum en árið
1991 fórhann úttil Nord
Morue. Hann var þar sölu- og
markaðsstjóri fyrir Frakkland.
Starf hans fólst m.a. í því að
þróa sölukerfi fyrir stórmark-
aði. Roland kom heim til ís-
lands um síðustu áramót og
tók við starfi sölustjóra á skrif-
Gunnhildur
Ólafsdóttir
stofu SÍF fýrir Portúgal,
Þýskaland og fleiri lönd.
Einnig hefur hann sölu á fiski
í neytendaumbúðum með
höndum. „Áhugamál fyrir ut-
an starfíð er útivera, vetrar-
íþróttir, fjallamennska og
ferðalög."
Frá Eyjum í
Saltkaup
• GUNNHILDUR Ólafs-
dóttir er 42 ára Vestmanna-
eyingur sem
hóf störf hjá
Saltkaupum
hf. við Keilu-
granda í
byijun sept-
ember sl. en í
júlí og ágúst
vann hún í
afleysingum í
birgðastöð SÍF við Keilu-
granda. Gunnhildur hefur búið
alla tíð í Vestmannaeyjum,
að undanskildu einu ári eftir
eldgosið í Eyjum, en nú ákvað
hún að hleypa heimdraganum.
„Þetta voru mikil viðbrigði
fýrir mig að skipta bæði um
starf og búsetu. Ég bjóst við
því að fá einhverja bakþanka
en mér líst mjög vel á mig hér
og ég hlakka til að takast á
við nýtt starf,“ segir hún.
Gunnhildur gegnir starfi bók-
ara hjá Saltkaupum og hefur
hún langa starfsreynslu á því
sviði. Hún vann áður við bók-
hald hjáendurskoðunarskrif-
stofunni Hagskil í Vest-
mannaeyjum og þar áður hjá
útibúi N. Mancher í Eyjum.
Gunnhildur segist hafa mikinn
áhuga á útiveru- og hún hefur
leikið golf í mörg ár. Hún ferð-
ast talsvert um öræfi og
óbyggðir landsins. Hún var
nýkomin úr ferð til Kerlinga-
fjalla, þegar rætt var við hana,
og þar steig hún í fyrsta sinn
á skíði.
Magnús nýr formaður
útvegsmanna á Norðurlandi
• MAGNÚS_Magnússon, út-
gerðarstjóri Útgerðarfélags
Akureyringa, hefur verið
kjörinn formaður Útvegs-
mannafélags Norðurlands.
Magnús leysir þar af hólmi
Sverri Leósson, Akureyri,
sem hefur verið formaður um
árabil. Auk Sverris gengu úr
stjórn félagsins þeir Valdimar
Kjartansson, Hauganesi, og
Sveinn Ingólfsson, Skaga-
strönd. Auk Magnúsar komu
nú inn í stjórnina þeir Gísli
Svan Einarsson, Sauðár-
króki og Oddgeir Isaksson,
Grenivlk. Fyrir í stjórninni
voru þeir Kristján Ásgeirs-
son, Húsavík og Svavar
Magnússon, Ólafsfirði. í
varastjórn
sitja þeir
Hermann
Guðmunds-
son, Ár-
skógssandi,
Valdimar
Bragason,
Dalvík og
Jónas Jó-
hannsson, Þórshöfn. Útvegs-
mannafélag Norðurlands er
stærsta útvegsmannafélag
landsins, með flesta meðlimi
og flest brúttótonn á bak við
sig og telur um 25% af Lands-
sambandi íslenzkra útvegs-
manna. Félagssvæðið nær frá
Hvammstanga í vestur og
austuráÞórshöfn.
Magnús
Magnússon
All á japanska vísu
KABAYAKI nefnist sá háttur sem hafður er á í Japan
þegar áll er matreiddur. Þar hefur skapast löng hefð
nNTWnMimM| fyrir matreiðslu fisktegunda, sem eru
fcáá'JililH'IUJii lítið nýttar hérlendis. Állinn er ein
þessara fisktegunda, en hann vei’ist i mjög litlum mæli
hér við land. álaeldi er einnig á frumstigi, enda hefur
ekki fengizt leyfi til innflutnings á glerál til eldis. Guð-
mundur Þóroddsson f Álafélaginu, sem stefnir að nokkru
álaeldi, fann til eftirfarandi uppskrift að forrétt fyrir
lesendur Versins. Rétturinn er fyrir fjóra og í hann þarf:
250 gr ferskan ál
í sósuna þarf:
200 ml soya-sósu
200 ml sætt sake (mirin)
1/2 dl sykur
Byijað er á því að fletja álinn og taka úr honum hrygg-
inn. Hann er svo skorinn í 15 cm langa bita og bambus-
teinar þræddir í gegnum þversum með 3-4 cm iniilibili
til að halda löguninni. Álnum er stungið í sjóðandi vatn
og svo er hann gufusoðinn í eina mínútu. Eftir það er
álnum díft í tare-sósu og skellt á grill, um hálfa minútu
hvora hlið. Þetta er endurtekið þrisvar til fjórum sinn-
um. Þá er állinn tilbúinn. Sósan er löguð þannig að soya-
sósa, sake og sykur er soðið saman.