Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 1
TÖLVUR
Útrýmir alnetið
pésunum? /8
FYRIRTÆKI
Nói-Síríus í
hátíðarskapi /4
KRINCLAN
Vill vera áfram í
farabroddi /8
Húsbréf
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði
í gær, þriðja daginn í röð, og hef-
ur ávöxtunarkrafan nú lækkað um
rúmlega 15 punkta á 3 vikum. Hjá
VIB iækkaði ávöxtunarkrafan úr
5,88% niður í 5,86% og hjá Kaup-
þingi og Skandía lækkaði ávöxtun-
arkrafan um 1 punkt, niður í
5,86%.
Banki
Islandsbanki stendur fyrir ráð-
stefnu á föstudag undir yfirskrift-
inni „Iceland Finance Forum -
Business opportunities". Tilgang-
ur hennar er að vekja athygli er-
lendra bankamanna á fjárfesting-
armöguleikum á íslandi og efla
um leið tengsl bankans við við-
skiptabanka sína erlendis.
Ford
HAGNAÐUR Ford-bifreiðafyrir-
tækisins minnkaði á þriðja árs-
fjórðungi um 68% vegna mikils
kostnaðar af framleiðslu nýrra
gerða og skorts á bílahlutum. Sala
i heiminum jókst í 31.4 milljarða
dollara úr 30.6 milljörðum. Sala
innanlands minnkaði um 12% í
869.000 bíla úr 992.000. Nettótekj-
ur innanlands minnkuðu um 66%
í 187 milljónir dollara úr 553 millj-
ónum.
SÖLUGENGI DOLLARS
Nokkrar kennitölur lífeyrissjóðanna 1994 A Hrein Höfuðstóll Kostnaður 1 ái m raunávöxtun 31.12.94 í % af Lífeyrissjóður n WW W 1994 1993 millj.kr. iðgjöldum'
Lífeyrissjóðurinn Hlíf 9,30 8,23 1.226 10,18
L. Flugvirkjafélags íslands 7,76 5,22 1.137 8,92
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 7,74 6,80 8.913 3,66
Lífeyrissjóður verkstjóra 7,63 8,10 3.085 3,70
Alm. lífeyrissj. iðnaðarmanna 7,51 8,49 1.188 5,66
Lífeyrissjóður matreiðslumanna 7,38 7,96 972 4,28
Lífeyrissjóður sjómanna 7,37 6,54 19.856 2,50
L. Dagsbrúnar og Framsóknar 7,37 8,12 10.746 4,98
Lifeyrissjóður Sóknar 7,34 7,79 4.409 3,73
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 7,31 7,21 12.034 5,29
Lífeyrissjóður Suðurnesja 7,30 7,09 5.016 4,80
Eftirl.sj. Fél. isl. atvinnuflugm. 7,30 6,47 3.547 5,00
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 7,29 6,49 5.892 4,79
Lífeyrissjóður Norðurlands 7,27 6,68 8.347 3,61
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 7,19 7,01 3.214 5,63
Lífeyrissjóður lækna 7,18 7,43 4.674 3,19
Lífeyrissjóður K.E.A. 7,17 7,40 1.736 1,57
Lífeyrissj. bókagerðarmanna 7,14 6,59 2.519 5,88
Lífeyrissjóður Vesturlands 7,09 6,65 3.311 8,06
Lífeyrissj. rafiðnaðarmanna 6,99 6,81 5.046 4,04
Lífeyrissjóður verslunarmanna 6,87 6,66 34.906 2,17
Lífeyrissjóður Austurlands 6,83 5,80 6.165 7,16
Lifeyrissjóður blaðamanna 6,81 7,22 763 4,10
L. verkalýðsfélaga á Suðurlandi 6,74 5,70 2.344 5,64
Lífeyrissj. Verkfræðifélag ísl. 6,58 4,59 3.730 5,65
Lífeyrissj. Vestmannaeyinga 6,51 6,85 4.760 5,48
Eftirl.sj. slökkviliðsm. á Keflav.v. 6,51 7,21 768 1,41
Lífeyrissj. Arkitektafélags ísl. 6,40 6,10 208 11,39
Eftirl.sj. starfsm. Olíuv. Isl. 6,26 8,63 484 0,00
Lífeyrissj. framreiðslumanna 6,20 6,22 291 8,54
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur 6,00 7,23 '1.092 5,56
L. Hlífar og Framtíðarinnar 5,97 6,55 3.090 6,68
Lífeyrissj. verkaf. í Grindavík 5,83 5,71 525 6,88
Lífeyrissjóður. bænda 5,75 6,58 6.845 6,36
Lífeyrissjóður múrara 5,75 7,25 1.018 11,77
L. F. starfsfólks í veitingah. 5,72 6,16 1.052 10,09
L. byggingariðn.m. í Hafnarfirði 5,60 5,30 395 10,44
L. Mjólkursamsölunnar 5,41 7,19 687 4,18
L. verkalýðsfélaga á Norðurl.v. 5,20 6,93 1.625 5,91
Lífeyrissjóður Rangæinga 5,19 5,42 878 9,82
Samvinnulífeyrissjóðurinn 5,17 5,24 8.235 5,43
L. Félags garðyrkjumanna 3,71 5,85 208 15,15
l skýrslu bankaeftirlits Seðlabanka íslands um lífeyrissjóðina er r eiknuð
út raunávöxtun á eignum þeirra að teknu tilliti til kostnaðar eða svonefnd
hrein raunávöxtun. Hér að ofan hefur nokkrum almennum sjóðum verið
raðað upp m.t.t. raunávöxtunar Ekki voru teknir með í þennan saman-
burð sjóðir sem njóta ábyr gðar ríkis eða sveitarfélaga og sér eignasjóðir.
Viðskiptaráðherra stefnir að stofnun
hlutafélaga um ríkisbanka árið 1997
Nýtt hlutafé
selt á almenn-
um markaði
FINNUR Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra, telur að opna eigi ríkisvið-
skiptabankana fyrir nýjum eigend-
um með sölu á nýju hlutafé eftir að
þeim hefur verið breytt í hlutafélög.
Þetta kom fram á morgunverð-
arfundi nemenda í Samvinnuháskó-
lanum, á Grand Hótel í gær.
Stefnt er að því að flytja á vor-
þinginu frumvarp um að breyta
bæði Landsbanka og Búnaðarbanka
í hlutafélög. Kvaðst viðskiptaráð-
herra gera ráð fyrir því að hlutafé-
lögin tækju til starfa í ársbyijun
1997. „Ríkisviðskiptabankarnir
þurfa miklu frekar á því að halda
að fá inn nýtt eigið fé og þannig
komi nýir eigendur að þeim, fremur
en ríkið fari að selja sinn hlut„“
sagði Finnur í samtali við Morgun-
blaðið eftir fundinn.
Hann sagði að breyta þyrfti ijár-
festingarlánasjóðunum í hlutafélög
sem fyrst, þ.e. Fiskveiðasjóði, Iðn-
lánasjóði, Ferðamálasjóði og Stofn-
iánadeild landbúnaðarins. Hins veg-
ar væri hann þeirrar skoðunar að
breyta ætti Iðnþróunarsjóði í Ný-
sköpunarsjóð atvinnuiífsins og sjóð-
urinn fengi síðan til ráðstöfunar
hluta af arði fjárfestingarlánasjóða.
Félagsmálaráðherra er um þessar
mundir að skipa nefnd til að und-
irbúa áform um að færa húsnæðis-
lánakerfið inn í bankakerfið. Við-
skiptaráðherra kvaðst telja að
markmiðið með slíkri vinnu ætti að
vera að tryggja almenningi aðgang
að löngum lánum með fasteigna-
veði, draga úr útgjöldum og ábyrgð
ríkisins í húsnæðislánakerfinu, auka
sveigjanleika þess og leita allra leiða
til að koma í veg fyrir vaxtahækkun
vegna þessa. Síðan þyrfti að skoða
þetta út frá Bis-reglum um eiginfjár-
hlutfall banka. „Fyrsta skrefið gæti
verið einhvers konar samstarfsvett-
vangur bankanna, lífeyrissjóðanna
og ríkissjóðs til þess að draga sem
mest úr hættunni á vaxtahækkun-
um. Það mætti hugsa sér samstarf
í einhverskonar húsbanka."
Viðskiptaráðherra ræddi stöðu
stjórnenda lífeyrissjóðanna. „I lög-
um um viðskiptabanka, sparisjóði,
verðbréfafyrirtæki o.fl. aðila eru
gerðar ríkar hæfniskröfur til stjórn-
enda þessara stofnana. Hins vegar
gildir engin almenn löggjöf um líf-
eyrissjóðakerfið." Einnig benti hann
á að of sterk staða lífeyrissjóða á
fjármagnsmarkaði gæti hindrað eðli-
lega verðmyndun á fjármagni. „Því
tel ég mjög mikilvægt að auka þar
samkeppnina og það gerist að mínu
viti með því að heimita fleiri aðilum
en lífeyrissjóðum að taka á móti líf-
eyrissparnaði landsmanna. Þá á ég
við virkar fjármálastofnanir sem
hafa bakgrunn, traust og fjármála-
lega getu til að bera ábyrgð á þess-
um sparnaði. Það geta verið bankar,
sparisjóðir, verðbréfasjóðir, fjárfest-
ingarlánasjóðir og tryggingarfélög."
tl/ ctð hug$a um að j§aUestct
Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraöilum afar hagstætt að
fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár.
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum
Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum.
Hafðu samband og fáðu að vita meira um
flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að
binda rekstrarfé í tækjakosti.
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir
Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað
um ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn
og spjallaðu við ráðgjafa okkar.
OTTÓ - GRAFÍSK HÖNNUN UÓSM: THE IMAGE BANK / BRETT FR00MER