Morgunblaðið - 19.10.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 C 7
SUNNUDAGUR 22/10
Vefrardagskrá Ríkisútvarpsins
EKfthvað fyrir alla
ÞAÐ hefur vart farið fram hjá nein-
um að hafnar eru beinar útsending-
ar á Rás 1 frá mörgum helstu tón-
leika- og óperuhúsum heims. Þessar
útsendingar eru eitt helsta nýmæli
í dagskrá rásarinnar í vetur. Annað
hvert mánudagskvöld er síðan út-
varpað tónleikum frá borgum Evr-
ópu, þar sem fram koma margir
helstu tónlistarmenn álfunnar, -
hljómsveitir, einleikarar og stjórn-
endur.
Af öðrum nýjungum Útvarps má
nefna morgunútvarpið en þar er nú
náin samvinna fréttastofu og
beggja rása. Morgunútvarpið
hefst kl. 6.00 á Rás 2, en þar situr
Magnús R. Einarsson við hljóðnem-
ann og flytur hlustendum ljúfa tón-
iist á samtengdum rásum til klukk-
an 7.00. Þá hefst morgunþáttur á
Rás eitt í umsjá Stefaníu Valgeirs-
dóttur með sígildri tónlist af öllu
tagi, en á sama tíma gengur Leifur
Hauksson til liðs við Magnús á Rás
tvö, þar til á níunda tímanum, þeg-
ar rásimar og fréttastofa sameinast
í rúman hálftíma með fréttir og
síðan er rætt um það sem efst er
á baugi í þjóðfélagsumræðunni
hverju sinni í þættinum Hér og nú.
Fjölbreytni í fyrrirrúmi
Fjölbreytni í framboði á dag-
skrárefni á Rás 1 er viðbrugðið.
Ólíkir tónlistarþættir, ný íslensk og
erlend hljóðrit, samtímatónlist og
beinar tónlistarútsendingar ásamt
menningarumfjöllun, þjóðmálaum-
ræðu, vísindum, heimspeki, spjall-
þáttum, barnaefni og þáttum um
náttúru- og umhverfismál og þetta
er aðeins brot af því sem boðið er
upp á.
í Samfélaginu í nærmynd er
fjallað um málefni fjölskyldunnar,
ýmis félagsmál og ný sýn tekin á
baksvið frétta rétt fyrir hádegið. í
Síðdegisþættinum er menningar-
lífið til umfjöllunar. Þar er sagt frá
nýjustu viðburðum í leiklist, mynd-
list, bókmenntum og öðrum list-
greinum. Líka er fylgst með inn-
lendum og erlendum málefnum svo
sem atvinnu- og neytendamálum
og sagt frá þingmálum á föstudög-
um.
Sérstakir heimildarþættir tengdir
þjóðmálum verða á sunnudögum í
vetur og heimspekiþátturinn Uglan
hennar Mínervu byrjar aftur í
nóvember. Hinir vinsælu þættir
Ævars Kjartanssonar á sunnu-
dögum kl. 13.00 hófu göngu sína
að nýju í október og að þeim loknum
Morgunþættir beggja rása Utvarps eru að hluta samtengdir
og unnir í samvinnu við fréttastofu. Magnús R. Einarsson á
Rás 2 byrjar daginn kl. 6.00 en kl. 7.00 gengur Leifur Hauks-
son til liðs við hann og á Rás 1 byrjar Stefanía Valgeirsdótt-
ir að leika sígilda tónlist áður en samtenging hefst kl. 8.00.
Karvel Pálmason og Helgi Seljan slá á létta strengi í hinum
geysivinsæla spurningaþætti eldri borgara Spurt og spjallað
en hann hefst að nýju föstudaginn 3. nóvember á Rás 1.
eru heimildarþættir af ýmsum toga, /
oft um bókmenntir eða sögu.
Af öðrum menningarviðburðum
má nefna röð tónleika og tónlist-
arerinda undir nafninu IsMús, að
þessu sinni með yfirskriftinni „Am-
ericana!“ sem verða flutt í vetur,
og kennir þar margra grasa. Gerð
verður grein fyrir tóniðkun í Amer-
íku, í tónum og tali, allt frá söngv-
um Inúíta í norðri til flautuleiks
Indíána í Suður-Ameríku.
Menningarþáttur fyrir börn
Á hveijum morgni upp úr hálf
tíu verða lesnar bamasögur sem
eru endurfluttar eftir sjö fréttir á
kvöldin en til gamans má geta þess
að á mánudaginn verður byijað að
lesa hina vinsælu sögu Stefáns
Jónssonar Skóladaga. Börnin fá
jafnframt splunkunýjan menning-
arþátt á föstudagskvöldum kl.
19.40 en það er þátturinn Bak við
Gullfoss.
Telja má víst að eldri borgarar
bíði spenntir eftir spurninga- og
skemmtiþættinum Spurt og spjall-
að en hann hefst að nýju föstudag-
inn 3. nóvember.
Ekkifréttir á Rás 2
Síðdegis á Rás 2 er helst að nefna
að hinn landskunni og ötuli ekki-
fréttasnápur Haukur Hauksson er
kominn til starfa á ný og fær marg-
ur pólitíkusinn gusuna frá honum.
Ekkifréttir eru á dagskrá alla
virka daga rétt eftir kl. 17.00 og
er úrval vikunnar flutt á laugar-
dagsmorgnum.
Þeir Jón Gnarr og Siguijón Kjart-
ansson sjá um Heimsendi, sem er
á dagskrá klukkan 13.00 á laugar-
dögum. Þeir fá til sín ýmsa gesti
og framhaldsleikritið „Hotel
Volkswagen" er flutt í þættinum.
Rokkland heitir nýr þáttur úr
smiðju BBC, sem Ólafur Páll Gunn-
arsson sér um. í þættinum eru við-
töl við þá tónlistarmenn sem hæst
ber hveiju sinni, upptökur úr safni
breska ríkisútvarpsins og fleira.
Rokkland er á dagskrá kl. 16.05 á
laugardögum.
Auk þessara þátta í vetrardag-
skránni verða allir vinsælu þættimir
á sínum stað, svo sem dægurmálaút-
varpið, Þjóðarsálin og Sunnudags-
morgunn með Svavari Gests.
Síðdegisþáttur Rásar 1 er nú á dagskrá kl. 17.30.
Halldóra Friðjónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson og
Jóhanna Harðardóttir fylgjast með innlendum og er-
lendum málefnum á sviði menningar og þjóðmála.
Nýr menningarþáttur fyrir börn Bakvið
Gullfoss er á dagskrá Rásar 1 á föstu-
dagskvöldum kl. 19.40 en barnasögurn-
ar verða áfram fluttar kl. 9.40 á morgn-
ana og endurfluttar eftir kvöldfréttir.
Á þriðjudagskvöldum
hefst svo nýr þáttur
undir stjórn dr. Ottars
Guðmundssonar læknis.
Þátturinn, sem er í
beinni útsendíngu, heitir
Kynjakenndir og fjallar
um ýmis mál af tilfinn-
ingalegum toga. Dr. Ótt-
ar svarar hlustendum
sem hringja.
UTVARP
RÁS I
FM 92,4/93,5
8.07 Morgunandakt: Séra Tómas
Guðmundsson flytur.
8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni.
Orgelsónata í c-moll ópus 65
númer 2 eftir Felix Mend-
elssohn. Hannfried Lucke leikur
á Klais orgelið í Hallgrims-
kirkju. Klarinettukonsert í A-
dúr K 622 eftir Wolfgang Amad-
eus Mozart. Einar Jóhannesson
leikur með Sinfóniuhljómsveit
íslands; Jean-Pierre Jacquillat
stjórnar.
9.03 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Einnig útvarpað að loknum frétt-
um á miðnætti.)
10.03 Veðurfrégnir.
10.20 Velkomin stjarna. Leiftur
frá lífshlaupi séra Matthiasar
Jochumssonar á 75. ártíð hans.
Séra Sigurður Jónsson í Odda
blaðar í Söguköflum og Bréfum
séra Matthíasar. (4:5)
11.00 Messa í Kópavogskirkju. Dr.
• Siguijón Ámi Eyjólfsson prédikar.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.45 Veðurfregnir, auglýsingar
og tónlist.
13.00 Rás eitt klukkan eitt. Um-
sjón: Ævar Kjartansson.
14.00 Jón Leifs: Á milli steins og
sleggju. Þriðji þáttur af fjórum.
Umsjón: Hjálmar H. Ragnars-
son.
15.00 Þú, dýra list. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. (Endurflutt-nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.00)
16.05 ímynd og veruleiki. Samein-
uðu þjóðirnar fimmtíu ára. 2.
þáttur. Umsjón: Jón Ormur Hall-
dórsson.
17.00 Sunnudagstónleikar í umsjá
Þorkels Sigurbjörnssonar. Frá
tónleikum Ingvarrs Jónassonar
og Önnu Guðnýjar Guðmunds-
dóttur í Listasafni Kópavogs 15.
mai sl.
18.00 Ungt fólk og vísindi Umsjón:
Dagur Eggertsson. (Endurflutt
kl. 22.20 annað kvöld)
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.30 Veðurfregnir.
19.40 Harmónikkutónlist. Frönsk
harmónikkutónlist eftir Stép-
hane Delicq. Stéphane Delicq
leikur á harmóníku, Philippe
Henry á selló, Daniel Barda á
þverflautu, Laurence Pottier og
Bruno Ortega á blokkflautur,
Gilles Parat á rúmenska flautu,
MarieChristine Desplat á cornet,
Marie-Agne Martin á gítar og
Harry Swift á kontrabassa.
20.00 Hljómplöturabb. Þorsteins
Hannessonar.
20.40 Þjóðarþel. Gylfaginning.
Fyrsti hluti Snorra-Eddu. End-
urtekinn sögulestur vikunnar.
22.10 Veðurfregnir. Orð kvöldsins:
Valgerður Valgarðsdóttir flytur.
22.20 Tónlist á síðkvöldi. Sönglög
eftir George Gershwin. Kiri te
Kanawa syngur með hljómveit
Prinsessuleikhússins í New
York; John McGlinn stjórnar.
23.00 Fijálsar hendur. Umsjón: 111-
ugi Jökulsson.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Endurtekinn þáttur frá morgni)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Veðurspá.
Friltir ó RÁS 1 kl. 8, 9. 10, 12.20,
16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.07 Morguntónar fyrir yngstu
börnin. 9.03 Sunnudagsmorgunn
með Svavari Gests. 11.00 Urval
dægurmálaútvarps liðinnar viku.
13.00 Umslagið. Af risum og öðru
fólki. 4. þáttur um tónlist Billie
Holidey. Umsjón Jón Stefánsson.
14.00 Þriðji maðurinn. Umsjón Árni
Þórarinsson og Ingólfur Margeirs-
son. 15.00 Tónlistarkrossgátan.
Umsjón Jón Gröndal. 17.00 Tengja.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson.
19.32 Milli steins og sleggju. 20.30
Ljúfir kvöldtónar. 22.10 Frá Hróar-
skelduhátíðinni. Umsjón: Ásmund-
ur Jónsson og Guðni Rúnar Agnars-
son. 0.10 Rokkland. Umsjón: Ólaf-
ur Páll Gunnarsson. 1.00 Næturút-
varp á samtengdum rásum til
morguns. Veðurspá. Næturtónar.
FréHir RÁS 2 kl. 8, 9. 10, 12.20, 16,
19, 22 og 24.
NSTURÚTVARPID
2.00 Fréttir. 4.30 Veðurfregnir. 5,
6 Fréttir.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9/ 103,2
10.00 Þórður Vagnsson. 13.00 Tón-
list. 16.00 Inga Rún. 19.00 Tónlist-
ardeildin. 22.00 Tónlist fyrir svefn-
inn.
BYLGJAN
FM 98,9
10.00 Morgunkaffi. 12.15 Hádeg-
istónar 13.00 Sunnudagsfléttan.
Halldór Bachman og Erla Frið-
geirs. 17.00 Við heygarðshornið.
Bjarni Dagur Jónsson. 19.19 19:19
20.00 Sunnudagskvöld. Jóhann Jó-
hannsson. 1.00 Næturhrafninn
flýgur.
FriHir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BROSID
FM 96,7
13.00 Gylfi Guðmundsson. 16.00
Kristinn Benediktsson. 18.00
Ókynnt tónlist. 20.00 Pálína Sig-
urðardóttir. 22.00 Böðvar Jónsson.
23.00 Ókynnt tónlist.
KLASSÍK
FM 106,8
12.00 Biönduð tónlist. 16.00 Ópera
vikunnar. Umsjón: Randver Þor-
láksson. 18.30 Blönduð tónlist.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Tónlist. 9.00 Kirkjudagskrá.
11.00 Tónlist. 13.00 Kirkjudag-
skrá. 15.00 Tónlist. 17.00 Kirkju-
dagskrá. 19.00 Tónlist. 22.00 Ró-
legt og fræðandi.
SÍGILT-FM
FM 94,3
8.00MÍ11Í svefns og vöku. 10.00
Ljóðastund á sunnudegi. 12.00 Síg-
ilt i hádeginu. 13.00 Sunnudags-
konsert. 17.00 Islenskir tónar.
19.00 Sinfónian hljómar. 21.00
Tónleikar. 24.00 Næturtónar.
FM 957
FM 95,7
10.00 Samúel Bjarki Pétursson.
13.00 Ragnar Bjarnason. 16.00
Pétur Valgeirsson. 19.00 Pétur
Rúnar Guðnason. 22.00 Stefán
Hilmarsson. 1.00 Næturvaktin.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Siggi Sveins. 17.00 Hvíta
tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00 Súr-
mjólk. 1.00 Næturdagskrá.