Morgunblaðið - 19.10.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER
BLAÐ
D
Fjórtán Evrópuleikir í röð án taps
Reuter
EVRÓPUMEISTARAR Ajax frá Amsterdam eru hrelnt óstöövandl. Þeir lögðu Grasshopper frá Sviss auöveld-
lega, 3:0, í gærkvöldi og hefur Ajax nú leikiö fjórtán leiki í Evrópukeppninni í röð án þess að tapa. Hér fagna
. leikmenn Patrik Kluivert, sem skoraði tvö mörk í gærkvöldi.
■ Meistaradeild Evrópu / D4
HANDKNATTLEIKUR
Bjami
áfram með
Breiðablik
Lazorik til ÍA eða KR?
BJARNI Jóhannsson verður áfram þjálfari 1. deild-
arliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Valgeir Ólafsson,
formaður knattspyrnudeildar félagsins, sagði að
það væri ákveðið að Bjarni yrði áfram, en það
ætti þó eftir að ganga frá útfærsluatriðum í samn-
ingnum. „Bjarni á auðvitað eftir að skrifa undir,
en þar sem hann er staddur erlendis hefur það
dregist. Við höfum rætt við hann og þetta liggur
nokkuð ljóst fyrir og það má mikið breytast ef
hann verður ekki áfram hjá okkur," sagði Valgeir.
Hann sagðist reikna með að sömu leikmenn
yrðu i herbúðum Breiðabliks og léku með liðinu
sl. sumar. „Það hafa reyndar nokkur lið verið á
eftir Rastislav Lazorik, meðal annars ÍA og KR.
Við gerum okkur vonir um að hann verði hjá
okkur, en það kæmi mér hins vegar ekki á óvart
að hann léki með öðru íslensku Uði næsta sum-
ar,“ sagði Valgeir.
Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks fer
fram í kvöld og verður þá skipt um formann.
Guðmundur Oddsson tekur við formennsku af
Valgeiri.
Ulfar þarf
að vinna
fimm högg
ÚLFAR Jónsson, kylfingur úr KeiU, þarf að vinna
fimm högg af nokkrum keppendum á úrtökumóti
fyrir evrópsku mótaröðina, sem fram fer á Spáni
þessa dagana. Úlfar lék völUnn á pari, 72 höggum,
á þriðjudaginn en I gær var hann á 75 höggum.
Hann var í 25. til 27. sæti eftir fyrri daginn en er
nú í kringum 40. sætið og vantar fimm högg tíi
að komast í hóp þeirra sem komast á næsta úrtöku-
mót, en það gera þeir sem eru í hópi þeirra sem
ná eUefta besta skorinu, eða eru ofar. Mótinu lýk-
ur í dag.
Arnar Már Ólafsson, golfkennari og KeUismað-
ur, er einnig meðal keppenda en honum hefur
ekki gengið vel. Hann lék fyrri daginn á 90 högg-
um en bætti sig um fimm högg í gær og kom inn
á 85 höggum.
ítölsku dómaramirtóku Stjörnustúlkur fyrir, að sögn forráðamanna
Aldrei séð aðra eins dómgæslu
Stjarnan féll úr Evrópukeppni bik-
arhafa um síðustu helgi, eins
og fram hefur komið, en þær eru
allt annað en sáttar við dómgæsluna
í seinni leiknum, sem fór fram í
Grikklandi, og segja forsvarsmenn
tiðsins að ekki hafi farið framhjá
neinum að hún hafi ráðið úrsiitum.
„Ég hef séð heimaleikjadómgæslu
og maður reiknar með henni en ég
hef aldrei kynnst öðru eins og stelp-
urnar ekki heldur á fímm árum í
Evrópukeppni," sagði Ólafur Lárus-
son, þjálfari Stjömunnar, við Morg-
unblaðið. Bergþóra Sigmundsdóttir,
fararstjóri og fyrrverandi formaður
handknattleiksdeildar Stjörnunnar,
tók í sama streng og sagði ekki rétt
eftir sér haft í blaðinu á þriðjudag
um að Stjaman hefði leikið illa í síð-
ari hálfleik. „Ég hef ekki upplifað
aðra eins dómgæslu og hefði ekki
trúað því að óreyndu að þetta væri
hægt hjá siðmenntuðum þjóðum. Við
gátum ekkert gert — voram alveg
mát.“
Stjarnan vann Anagenisi Artas
24:16 í fyrri leiknum og jafnræði var
með liðunum þar til skammt var til
hálfleiks ytra. Þegar 23 mínútur vora
liðnar af leiknum var staðan 11:10
en þá var Herdísi Sigurbergsdóttur
vísað af velli í þriðja sinn og þar með
útilokuð frá frekari þátttöku. Þegar
12 mínútur voru eftir fékk Guðný
Gunnsteinsdóttir sama dóm en þá var
staðan 22:14. Að sögn Ólafs og Berg-
þóru voru Stjömustúlkur út af í sam-
tals 26 mínútur en gríska liðið í 12
mínútur og þar af átta mínútur á
lokakaflanum þegar úrslitin voru ráð-
in. Gríska liðið fékk 15 eða 16 víta-
köst að þeirra sögn en Stjarnan fjög-
ur víti og tvö að auki á lokamínútun-
dómararnir ætluðu að taka Herdísi
og Guðnýju sérstaklega fyrir,“ sagði
Ólafur. „Nánast var dæmt á hveija
hreyfingu hjá okkur í vörn sem sókn.
Hvað eftir annað var dæmd lína þótt
ekki væri um slíkt að ræða og jafn-
vel þegar við létum þær vera og spil-
uðum 6-0 vöm var dæmt á okkur.
Eins var áberandi að þegar þær voru
einni færri var strax flautað og
klukkan aldrei stöðvuð — það var
passað upp á það að þær gætu hald-
ið boltanum. Það má segja að spilað
sé illa þegar leikur tapast með 11
marka mun en spurningin er hvaða
ástæður liggja að baki. Stjömustúlk-
urnar fengu ekki tækifæri til að gera
það sem þær áttu að gera og áttu í
raun aldrei möguleika hvort sem þær
spiluðu vel eða ekki því þær fengu
ekki að spila. Hafi einhver von verið
til staðar var búið að ganga frá henni
fyrir leikinn og ég efast ekki um að
dómararnir hafa fengið ríflega dag-
peninga frá heimamönnum. Þetta var
fyrirfram afgreitt."
Ólafur sagði að dómaramir í hei-
maleik Stjörnunnar hefðu dæmt lið-
inu eitthvað í vil í vafaatriðum en
ekkert í líkingu við það sem gerðist
í Grikklandi.
„Leikurinn var sýndur beint í
gríska sjónvarpinu og íþróttafrétta-
maður sagði að þetta væri ekki boð-
legt. Það var nánast hlegið að okkur
fyrir að láta bjóða okkur annað eins
en hvað er hægt að gera? Við rædd-
um sérstaklega við tvær stúlkur í
gríska liðinu og þeim fannst vafasamt
að fara áfram á svona dómgæslu
enda erfitt að réttlæta 19 marka
sveiflu í Evrópukeppni í handbolta."
Bergþóra sagði að vel hefði verið
tekið á móti liðinu að frátöldum tím-
anum sem leikurinn stóð yfir.
„Áhorfendur voru ókurteisir og
hentu í okkur alls konar drasli, sér-
staklega eftir að Dísa var rekin út
af. Inni á vellinum voru það dómar-
arnir og ég hef aldrei séð annað eins
enda sagði ég í sjónvarpsviðtali eftir
leikinn að Stjarnan hefði ekki getað
spilað sinn bolta vegna dómgæslunn-
ar. Stjarnan var lengi í gang eins og
liðið hefur verið í gegnum tíðina en
þegar munurinn var lítill bættust
þeir svartklæddu í lið með mótheijun-
um svo um munaði. Gólfíð var harður
og stamur dúkur og því ekki gerlegt
að fara út í hörkubolta eins og tölurn-
ar benda til en engu að síður era
margar stelpumar með brunasár.
Stöðugt var dæmt á okkur og jafnvel
tekin af okkur mörk en þá fengum
við aukakast í sárabætur. „Það liggur
við að ég sé ekki ánægð að fara
áfram“ sagði ein gríska stúlkan við
mig og það segir sitt.“
um.
„Það leyndi sér ekki að ítölsku
HANDKIMATTLEIKUR: KA TAPLAUST OG AFTURELDING FÉKK LOKS STIG