Morgunblaðið - 20.10.1995, Side 1
jnmrgtmWfafrift
1995
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER
BLAÐ
KNATTSPYRNA
KR og ÍA
hafa ekki
rætt við
Lazorik
FORRÁÐAMENN ÍA og KR
segja það ekki rétt, sem kom
fram í viðtali við Valgeir Ól-
afsson hjá Breiðabliki í blað-
inu í gær, að Iiðin hafi haft
samband við Rastislav Lazo-
rik. „Það er ekkert til i
þessu,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari Skagamanna og
í sama streng tók Jónas Krist-
insson hjá KR — og þeir sögð-
ust ekki átta sig á fullyrðingu
Valgeirs.
GOLF
Úlfar Jónsson hefurfundið gömlu góðu sveifluna
Kallið kom á Spáni
Ufar Jónsson atkvinnukylfingur
var fjórum höggum frá því
að komast áfram á úrtökumóti
fyrir evrópsku meistararöðina, sem
lauk á Spáni í gær. Úlfar lék 54
holur á tveimur yfir pari, 218, en
sigui"vegarinn lék á níu undir pari,
eða 207 höggum. Hann hafnaði í
tuttugasta sæti, en ellefu komust
áfram.
Ég get ekki annað en verið
ánægður með árangur minn, þó
að hann hafi ekki verið nægilega
góður til að komast áfram. Eg hef
átt í erfiðleikum í heilt ár, en það
má segja að kallið hafi komið hér
á Spáni — ég fann gömlu góðu
sveifiuna. Það er mikilvægast fyrir
mig, eftir að hafa verið fastur í
erfiðri gjpðu. Fyrir mánuði var ég
ákveðinn að hætta að leika golf,
en síðan kom Spánarferðin snögg-
lega upp á. Ég hef verið hér í
mánuð ásamt þjálfara mínum og
félaga, Amari Má Ólafssyni, sem
hefur veitt mér ómetanlegan
stuðning. Þegar ég ákvað að ger-
ast atvinnumaður í golfi fyrir
tveimur árum, var ég ákveðinn að
setjast niður og gera upp þessi tvö
ár, áður en ég tæki ákvörðun um
framhaldið. Eins og ég sagði, þá
var ég ákveðinn að hætta, en eftir
að ég fann sveifluna á ný, finn ég
að ég er á réttri leið og mun ég
skoða framhaldið nánar ásamt
Arnari Má,“ sagði Úlfar.
Það má segja að árangur Úlfars
á Spáni sé persónulegur sigur fyr-
ir hann, eftir erfitt ár. Úlfar lék
fyrsta hringinn á pari, 72 höggum,
síðan á 75 höggum og í gær á
einu höggi undir pari, 71 höggi.
„Ég náði mjög góðum höggum og
púttaði ágætlega á fyrsta og síð-
asta hringunum, en á öðrum
hringnum púttaði ég mjög illa og
því fór sem fór,“ sagði Úlfar.
KARFA: TVÍFRAMLENGT í SIGURLEIK BLIKANNAAÐ HLÍÐARENDA / C2
Sigurði býðst
starf hjá Luz-
ern í Sviss
SIGURÐI Grétarssyni, fyrrum landsliðsfyrir-
liða í knattspyrnu, hefur verið boðið nýtt
starf þjá Luzern í Sviss, en hann lék um
árabil með félaginu. „Þetta starf er ekki
fullmótað ennþá og því ekki þ'óst hvort ég
tek það að mér,“ sagði Sigurður í samtali
við Morgunblaðið i gær. „Það er talað um
að ég verði nokkurs konar framkvæmda-
stjóri en hafi samt ekkert með peningamálin
að gera. Ég myndi til dæmis sjá um að fá
nýja leikmenn, fylgjast með ungum og efni-
legum leikmönnum sem við höfum áhuga á
og annað I þeim dúr. Ég er að skoða þetta
núna og eins og er virðist þetta mjög spenn-
andi starf,“ sagði Sigurður.
Aðspurður hvort hann væri á leið til ís-
lands til að taka við þjálfun hjá Val sagði
Sigurður: „Það hefur komið tíl öðru hverju
að Uð heima hafa haft samband, en af minni
hálfu hefur það ekki komið til greina fyrr
en kannski núna. Annars er ég að skoða
þetta nýja starf þjá Luzern og það er það
sem kitlar mest í augnablikinu.“
Ólafur Þórðar-
son ekki til
Grindavíkur
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði íslandsmeist-
ara Skagamanna, hefur hafnað tilboði Grínd-
víkinga að gerast þjálfari og leikmaður með
þeim næsta keppnistímabil. Grindvíkingar
höfðu mikinn hug á að fá Ólaf til að taka
við starfi Lúkas Luga Kostic, sem gekk til
liðs við KR. Ólafur hefur ákveðið að vera
áfram í herbúðum Skagamanna.
Guðmundur
áfram hjá KR
GUÐMUNDUR Benediktsson hefur ákveðið
að leika áfram með liði KR og í gærkvöldi
skrifaði hann undir samning til tveggja ára
við félagið. Guðmundur var orðaður við ís-
landsmeistara ÍA. Þá gengu KR-ingar einnig
frá samningi við vamarleikmanninn Þorstein
Guðjónsson, sem snýr nú heim frá Grindavík,
eftir að hafa leikið með Grindavíkurliðinu frá
1992, og fyrirliðinn, Þormóður Egilsson, sem
hóf að leika með KR-liðinu 1987.
4% w w ■ mmw ■ xveuLer
Sviar i sviðsljosinu
SÆNSKIR knattspyrnumenn voru í sviðsljósinu í Evrópukeppni bikarhafa í gærkvöldi. Halmstad kom heldur
betur á óvart með stórsigrl, 3:0, á Parma, Martin Dahlin skoraði tvö mörk fyrir Mönchengladbach gegn AEK
Aþenu, 4:1, og Anders Llmpar og Henrik Larsson mættust á Goodison Park, 0:0. Hér á myndinni fyrir ofan
er Barry Holm, Everton, búinn að fella Larsson.
■ Evrópukeppni bikarhafa / C2,C4
B L A Ð A LLRA LANDSMANNA