Morgunblaðið - 20.10.1995, Page 4

Morgunblaðið - 20.10.1995, Page 4
t Ragnar og Olafur áfram með Keflavík VÍÐIR í Gardi hefur átt í við- ræðum við Óla Þór Magnús- son, knattspyrnumann úr Keflavík, um að hann taki að sér þjálfun hjá félaginu, en hann hefur ekki gefið ákveðið svar ennþá. Keflvíkingar hafa endurnýjað samninga við aiia leikmenn sína og þar með talda Ragnar Margeirsson og Ólaf Gottskálksson, en orð- rómur var uppi um að þeir væru á förum frá félaginu. Þriggja leikja bann fyrir gróft brot JULIAN Dicks, bakvörður West Ham, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að hafa að yfirlögðu ráði traðkað á höfði John Spencers, mið- heija Chelsea, í leik liðanna 11. september, sem Chelsea vann 3:1. Sauma varð átta spor f höfuð Spencers til að loka skurði sem hann fékk, en Spencer var búinn að skora tvö mörk þegar hann yfirgaf völl- inn. Dómarinn Robbie Hart bókaði Dicks, en rak hann ekki af velli þar sem hann sá ekki brotið nægilega vel. Dicks hef- ur þótt grófur leikmaður — hann hefur verið bókaður 54 sinnum á keppnisferli sinum' og niu sinnum hefur hann ver- ið rekinn af leikvelli. Kristinn dæmir í Evr- ópukeppni lands iða KRISTINN Albertsson körfu- knattleiksdómari úr Breiða- bliki mun dæma leik Englands og Þýskalands í Evrópukeppni landsliða, en leikurinn fer fer fram í Englandi 12. nóvember. Kristinn er nýkominn frá Frakklandi þar sem hann dæmdi tvo leiki i Evrópu- keppni félagsliða þannig að hann hefur nóg að gera í dóm- gæslunni á vegum FIBA. Þetta er í fyrsta sinn sem FIBA út- hlutar íslenskum dómara leik í Evrópukeppni landsliða og er mikill fengur fyrir Kristinn og íslenska dómarastétt. Real Madrid gegn Houston? EVRÓPUMEISTARAR Real Madrid unnu, 99:71, England’s Sheffield Sharks á fyrsta kvöldi McDonald’s körfuknatt- leiksmötsins, sem hófst f Lond- on í gærkvöldi. Real Mardrid er talið líklegt til að leika úr- slitaleikinn gegn Houston Roc- kets á sunnudaginn — liðið mætir Bologna frá Ítalíu í und- anúrslitum í kvöld, en ítalska liðið lagði Maccabi Tel Aviv frá ísrael í gærkvöldi 112:103. Houston Rockets mætir Perth Wildcats frá Ástralíu i hinum undanúrslitaleiknum. EVERTON varð að láta sér nægja jafntefli, 0:0, gegn Fey- enoord í Evrópukeppni bikar- hafa f gærkvöldi á Goodison Park. Eftir þessi úrslit er talið næsta vfst að Feyenoord komist áfram f 16-liða úrslitin. Leik- menn Everton lifa þó fvoninni að þeir eigi eftir að upplifa sælu- kvöld í Rotterdam, eins og leik- menn tiðsins gerðu 1985, þegar þeir tryggðu sér sigur f Evrópu- keppni bikarhafa með þvf að leggja Rapid Vín að velli f úrslita- leik. Evertonliðið lék í gærkvöldi einn sinn besta leik síðan Joe Royle gerði breytingar á byijunarliði sínu og leikaðferð, en þeir náðu ekki að nýta sér það — fundu ekki leiðina að netamöskvunum. Neville South- all, eini leikmaðurinn sem er eftir af Evrópumeistaraliðinu 1985, sýndi frábæra markvörslu — þegar hann varði skot frá Michael Obiku, Gio- vanni Van Bronckhorst, Rob Witsc- hge og Rob Maas. Leikmenn Everton fengu einnig fjölmörg góð marktækifæri — t.d. fékk Paul Rideout tækifæri til að koma Mersey-liðinu yfír eftir aðeins sjö mín. Það var Anders Limpar sem gerði mestan usla í vörn Feyenoord og þrátt fyrir mörg gullin tækifæri gekk ekkert hjá Everton í leiðinni að marki, en þegar tvær mín. voru til leiksloka var Rideout nær búinn að tryggja heimamönnum sigur — skalli frá honum fór rétt framhjá. „Það er ekki öll nótt úti, ég hef trú á því að við getum klárað dæmið — það eru góðir möguleikar. Fey- enord tefldi fram sínu sterkasta liði, en við lékum án Daniel Amokachi og Andy Hinchcliffe," sagði Joe Ro- yle, framkvæmdastjóri Everton. Arie Haan, þjálfari Feeyenoord, kom mönnum á óvart fyrir leikinn þegar hann setti út hollenska landsliðs- manninn Orlando Trustfull og Pól- veijann Tomasz Iwan fyrir tvo tán- inga George Boateng og Giovanni Van Bronckhorst. „Við náðum ekki að sýna það besta sem hollensk knattspyma getur boðið uppá, en við eigum eftir að gera það — og við förum áfram,“ sagði Haan. Ein sókn hjá Celtic Youri Djorkaeff náði að bijóta . vamarmúr Celtic niður þegar fímmt- án mín. vom til leiksloka á Parc des Princes í París og tryggja París St. Germain sigur, 1:0. Franska liðið var látlaust í sókn allan tímann, en náðu aðeins að skora eitt mark. Djorkaeff átti stangarskot níu mín. áður en hann skoraði. Aðeins einn leikmaður á vellinum gat tekið því rólega; mark- vörður Parísarliðsins Bemard Lama, sem stöðvaði léttilega einu hættulegu sókn Celtic í leiknum — á 36. mín. Martin Dahlin skoraði tvö mörk fyrir Mönchengladbach, sem lagði AEK Aþenu að velli, 4:1. Þýska liðið gerði út um leikinn með þremur mörkum á sextán mín. kafla í seinni hálfleik. Reuter ULRICH Van Gobbel, lelkmaður Feyenoord, er hér búlnn að leika á Paul Rldeout hjá Everton. Nayim rekinn af leikvelli Nayim, hetja Real Zaragoza frá úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í maí sl. — fyrram leikmaður Tott- enham, sem skoraði sigurmarkið, 2:1, fyrir Zaragoza af 50 m færi, var rekinn af Ieikvelli þegar liðið lagði FC Briigge á heimavelli. Hann var rekinn af leikvelli eftir að hafa fengið að sjá sitt annað gula spjald í leiknum. Santiago Aragon skoraði fyrir heimamenn úr vítaspymu á 28. mín. og aðeins sex mín. seinna var knötturinn aftur kominn í mark Belg- íumanna; Daniel Garcia Dani skoraði 2:0. Lorenzo Staelens svaraði fyrir gestina á 72. mín., eða stuttu eftir að Nayim var rekinn af leikvelli, þannig að hann getur ekki Ieikið með í seinni leik liðanna. Panna fékk skell Þau úrslit sem komu mest á óvart í gærkvöldi var sigur Halmstad, 3:0, yfir Parma, sem vann keppnina 1993 og tapaði úrslitaleik gegn Arsenal 1994, 0:1, í Kaupmannahöfn. Sænski landsliðsmaðurinn Niklas Gud- mundsson skoraði tvö mörk fyrir sænska liðið og Robert Andersson bætti því þriðja við. Aðeins 9.000 áhorfendur sáu leikinn, sem spilaður var í Gautaborg, 150 km fyrir norð- an Halmstad. Astæðan fyrir því var að ekki var leikið á leikvellinum í Halmstad er verkfall ríkisstarfs- manna. Sporting Lissabon, sem vann Evr- ópukeppni bikarhafa 1964, lagði Vín- arliðið Rapid, 2:0, með mörkum frá Sa Pinto og Paulo Alves. ■ Úrslit / C2 KNATTSPYRNA Evertonmenn lifa enn í voninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.