Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 1
1
.
1
BLAÐ ALLRA LANDS M ANNA
1995
■ LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER
BLAD
Steinar ætlar
að leika með
Akurnesingum
STEINAR Adolfsson knattspyrnumaður, sem
lék með KR í sumar og þar áður með Val, hef-
ur ákveðið að leika með Skagamönnum næsta
sumar. Steinar gaf KR-ingum svar í gær þess
efnis að hann ætli sér ekki að leika áfram með
félaginu og samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Morgunblaðsins ætlar hann að ganga til
liðs við Islandsmeistara Skagamanna. Ekki náð-
ist í Steinar i gær til að fá þetta staðfest. Stein-
ar hefur átt við meiðsU að stríða en hyggst ná
sér góðum fyrir næsta sumar. Hann lék á miðj-
unni þjá Val en í vörninni þjá KR. Ólafur bróð-
ir Steinars leikur sem miðvörður í liði Akurnes-
inga.
HANDKNATTLEIKUR
KA líklega
heima og
að heiman
EINS og staðan er þessa
dagana eru allar líkur á
að KA ieiki Evrópuleikina
gegn TJ VSZ Kosice frá
Slóvakíu heima og að heim-
an. „Við enun búnir að
hafa samband við þá og
forráðamenn Uðsins tóku
mjög illa í að leika báða
leikina á íslandi,“ sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari
KA, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Nú bíðum
við bara eftir að þeir kynni
sér flugfargjöldin til ís-
lands, þá fá þeir örugglega
sjokk og vonandi breytist
hþ'óðið í þeim þá,“ sagði
Alfreð.
Valsmenn, sem leika við
ABC Braga frá Portúgal,
eru komnir í samband við
félagið en ekki er hægt að
svo komnu máli að segja
hvar leikirnir fara fram.
Afturelding, sem á að
leika við Zaglebie Lubin
frá Póllandi, hefur ekki
enn komist i samband við
Pólveijana en Mosfellingar
hafa hug á að leika báða
leikina hér á landi eða jafn-
vel í Þýskalandi ef um
semst.
Fimm vara-
menn í
Englandi
ENSKU úrvalsdeildarliðin
hafa samþykkt að liðin geti
verið með fimm varamenn
næsta keppnistímabil, en
það eru ekki mörg ár síðan
aðeins máttí vera með einn
varamann á bekknum i
Englandi. Flest Uðin voru
sammála þessu, en aftur á
móti var AJan Ball, fram-
kvæmdasijóri Manchester
City, á móti — Uð hans er
nú á botninum í úrvalsdeild-
inni með aðeins eitt stig.
„Þessi breyting mun hjálpa
liðum eins og Newcastles,
Arsenals og Manchester
Uniteds, sem eru með
breiðfylkingu góðra leík-
manna, en mun ekki hjálpa
liðum eins og Coventry eða
Southampton."
Morgunblaðið/Kristján
JULIAN Duranona er markahæstur f 1. delld. Hér hefur hann tætt vörn Hauka í sundur
án þess aö Aron Krlstjánsson, Petr Baumruck og Gunnar Gunnarsson fái rönd vlö relst.
Julian Duranona
skorar mest
Kúbumaðurinn Julian Duran-
ona, leikmaður KA, er
markahæstur í 1. deild karla að
loknum fjórum umferðum með
fjörtíu mörk eða tíu mörk að með-
altali í leik. Ekki nóg með að
KA-liðið hafi á að skipa marka-
hæsta leikmanninum heldur hafa
þeir skorað flest mörk, eitt hundr-
að tuttugu og íjögur. Næstir þeim
koma leikmenn FH með eitthundr-
að og níu. Fæst mörk hafa ÍR-ing-
ar skorað, áttatíu. En ÍR og KA
mætast einmitt í Seljaskóla annað
kvöld.
Þjálfari Selfyssinga, Valdimar
Grímsson, er annar í röð marka-
hæstu manna og hefur skorað þijá-
tíu og sex mörk og Rússinn Juri
Sadovski, er leikur með Gróttu,
fylgir honum fast á eftir með þtjá-
tíu og fimm.
Það er athyglisvert að af fimm
markahæstu leikmönnum mótsins
er aðeins einn landsliðsmaður,
Valdimar Grímsson, og þrír erlend-
ir leikmenn. Næsti landsliðsmaður
á eftir Valdimari er Patrekur Jó-
hannesson, KA, hann er níundi
með tuttugu og fimm mörk. Af
átján leikmönnum, sem hafa skor-
að tuttugu mörk eða fleiri, er að-
eins þriðjungur þeirra í landsliðinu.
Landsliðsmarkverðirnir Guð-
mundur Hrafnkeisson, Val, og
Bergsveinn Bergsveinsson,
UMFA, hafa ekki náð sér á strik
það sem af er móts og eru í sjötta
og sjöunda sæti í röð yfir þá mark-
verði sem varið hafa flest skot.
Efstur á listanum er Bjarni Frosta-
son, Haukum, með sjötíu skot.
Stjarnan er aftur á móti með
prúðasta lið deildarinnar ef tekið
er mið af fjölda brottvísana sem
þeir hafa fengið. Leikmenn Stjörn-
unnar hafa verið utan vallar í tutt-
ugu mínútur eða að meðaltali fimm
mínútur í leik.
Leikmenn ÍR og ÍBV eru þeir
sem oftast hafa fengið hvíla sig
meðan á leik stendur. ÍBV í fjöru-
tíu og tvær mínútur og ÍR í fjöru-
tíu og sex mínútur sem þýðir tæp-
lega tólf mínútur í leik og eru Breið-
hyltingamir ekki langt frá því að
hafa verið utan vallar heilan leik.
Julian Duranona, KA.........40/14
ValdimarGrímsson, Selfossi....36/12
Juri Sadovski, Grótta.......35/17
Knútur Sigurðsson, Vikingi..32/14
Dmítrfj Filippov, Stjömunni.31/14
Arnar Pétursson, ÍBV........29/ 7
Siguijón Sigurðsson, FH.....29/ 9
HilmarÞórlindsson, KR.......27/ 6
Patrekur Jóhannesson, KA....25/ 3
GunnarB. Viktorsson, ÍBV....24/ 1
Halldór Ingólfsson, Haukum....24/ 9
EinarG. Sigurðsson, Selfossi...23/ 0
Magnús Sigurðsson, Stjöm......23/ 0
Bjarki Sigurðsson, UMFA.......22/ 2
Gunnar Beinteinsson, FH.......21/ 0
Sigurður Bjamason, Stjöm......21/ 1
Ólafur Stefánsson, Val........20/ 5
Sigfús Sigurðson, Val.....'...20/ 0
Flest varin skot
Bjarni Frostason, Haukum...70/6
SigmarÞ. Óskarsson, ÍBV...68/6
Sigtryggur Albertsson, Gróttu...60/3
Magnús Sigmundsson, ÍR.....56/5
Guðmundur A. Jónsson, KA.....53/0
Guðmundur Hrafnkelsson, Val ..50/4
Bergsveinn Bergs., UMFA......43/3
Hallgrímur Jónasson, ÍR....41/1
Jónas Stefánsson, FH.......38/4
Reynir Þ. Reynisson, Víkingi.38/5
Axel Stefánsson, Stjömunni.36/2
Ásmundur Einarsson, KR.....30/1
Brottvísanir
Stjarnan 20 mín., Grótta 22, Valur
24, Vikingur 24, Selfoss 26, Haukar
28, KA 32, KR 32, FH 34, UMFA
34, ÍBV 42, ÍR 46 mín.
MAGNÚS VER MAGNÚSSON STERKASTIMAÐUR HEIMS í ÞRIÐJA SINN / D2
■f