Morgunblaðið - 21.10.1995, Side 2
2 D LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AFLRAUNIR
47 tonn í drætti
MAGNÚS Ver og keppinautar hans fyrir framan 47 tonna slökkviliðstrukk, sem þefr urðu að draga í beisll.
Það var fyrsta þraut aflraunakeppnlnnar, sem fór að þessu sinni fram á Paradísareyjunni
og Gary Taylor þriðji. Það var vissu-
lega ánægjulegt að vinna annað
árið í röð og í þriðja skipti á ferlin-
um
Magnús Ver Magnússon sigraði í keppninni Sterkasti maður h
Átökin voru
grfuiieg
.
■ ■>j
:
||| |
toppstandi, nýir glæsivagnar og
gulíi prýddir ferðamenn. Allt var
dýrt, lítið kókglas kostaði til dæmis
400 krónur. Eyjan er að mörgu leyti
tilbúningur, hönnuð af sama arki-
tekt og gerði Sun City í Suður-Afr-
íku, þar sem ég vann í sömu keppni
í fyrra og haldin var alheimsfegurð-
arsamkeppni. Sannarlega tveir
heimar. Þá var þama tjörn ein mik-
ii, þar sem hákarlar svömluðu í
mestu makindum og horfðu soltn-
um augum á ferðalanga," sagði
Magnús.
Magnús hafði þó meiri áhyggjur
af hversu kraftmiklir keppinautar
hans væru, en hákörlunum. Hann
var að mæta 10 sterkustu mönnum
heims. Þeir mættust í átta greinum,
þar sem reyndi á kraft og snerpu
aflmikilla keppenda. Magnús er
enginn smásmíði sjálfur, 130 kg og
upphandleggirnir mælast 53 cm að
ummáli. „Eg mætti til að vinna og
náði góðri einbeitingu strax í byij-
un. Fyrsta þrautin á fyrsta keppnis-
degi var að draga 47 tonna slökkvi-
liðsbíl. Ég var með beisli og dró
bílinn áfram og hafði reipi til að
toga í líka. Badenhorst náði bestum
árangri í þessari grein, en ég varð
annar. Næst þurftum við að velta
Toyota Carina-bíl heilhring, þannig
að hann lenti á hjólunum aftur, síð-
an áttum við að hlaupa 25 metra
leið. Tekinn var tími og var ég 14
sekúndur að klára verkið. Það þarf
sérstaka tækni við að velta bíl með
höndunum, en tekur ekki'langan
tíma. Ég hef þó ekki beitt því í
umferðarhnútum hingað til. Áftur
varð ég í öðru sæti.
MAGNÚS Ver Magnússon
hlaut titilinn Sterkasti maður
heims í þriðja skipti, þegar
hann lagði keppinauta sína að
velli í þessari árlegu keppni
fyrir skömmu. Hún fór að
þessu sinni fram á Paradísar-
eyjunni, sem er hiuti af Ba-
hamaeyjum og vann Magnús
titilinn nú annað árið í röð, en
hann vann í fyrsta skipti 1991,
þá að keppa í fyrsta skipti.
Þetta var erfitt en ánægjulegt
og umhverfíð skemmdi ekki
fyrir, það var geysilega fallegt á
eyjunni, sem keppn-
Gunnlaugur in fór fram á. En
Rögnvaldsson fegurðin vamaði því
skrifar ekki að átökin væm
gífurleg milli afl-
raunakappanna og eftir spennandi
keppni náði ég að knýja fram sigur
á lokasprettinum,“ sagði Magnús
Ver í samtali við Morgunblaðið.
Helsti keppinautur hans var Suður-
Afríkubúinn Geret Badenhorst, en
þyngsti keppinauturinn vó hvorki
meira né minna en 180 kg, en sá
hæsti var 2,08 metrar, Finninn
Markku Vahalati.
Eyjan sem keppnin fór fram á
er hönnuð sem paradís fyrir ríka
Bandaríkjamenn. Þeir koma þangað
til að flatmaga á drifhvítri strönd-
inni, kaupa skrautmuni úr gulli og
vinna eða tapa í spilávítum. „Það
var ótrúlegur munur á milli eyjanna
tveggja sem lágu þama saman, á
Nassau var frekar sóðaleg, vegimir
illa farnir og bílarnir margir ljótir.
En á Parídísareyjunni var allt í
Það er mikilvægara að hanga í
efstu sætunum, en vinna sigur í
hverri grein. Málið er að vera jafn-
bestur í mörgum greinum. Loka-
greinin fyrsta daginn var svokölluð
Flintstone-lyfta, þar sem stöng með
steinum á hvorum enda var lyft upp
fyrir haus. Við fengum fimm til-
raunir og ég endaði með að lyfta
200 kílóum. Gary TayFor frá Bret-
landi lyfti 10 kg meira og vann í
þessari grein. Eg varð þriðji, sem
nægði mér til að ná eins stig for-
ystu eftir fyrsta daginn. Ég hugs-
aði mér því gott til glóðarinnar fyr-
ir næsta keppnisdag.
Fingralangur Finni, risinn Mark
Valli, vann fyrstu grein annars
dags. Hann er með ótrúlega langar
hendur og fingur. Hendurnar em
eins og tennisspaðar. Hann náði því
góðu gripi á 115 kílóa gaskútum í
hvorri hendi, sem ganga átti með
80 metra leið. Tekinn var tími á
keppendum og Finninn vann, en ég
náði öðru sæti.
Staurakast sem kom næst var
erfitt. Það þurfti að rogast með 4,6
metra háan staur, sem var um 50
kg á þyngd og henda honum yfir
rá. Það bætti ekki úr skák að þetta
var gert á sandströnd, sem maður
sökk í og svo flæddi að í lokin. Ég
varð jafn Badenhorst í greininni og
hélt forystu eftir tvo daga, munaði
tveimur stigum á mér og Baden-
horst.
Ég var bjartsýnn á að vinna sig-
ur, þegar síðasti keppnisdagurinn
rann upp. Tveir keppendur voru
settir í beisli hlið við hlið í fyrstu
grein og átti að takast á í reiptogi
Þriðji sigurinn
MAGNÚS Ver Magnússon að lokinni keppni með forlðta
skel sem hann fékk auk annarra verðlauna fyrlr sigurinn.
Suður-Afríkubúinn Geret Badenhorst varð annar og Bretinn
Gary Taylor þriðji.
í kringum tvo póla. Ég gat lent í
vandræðum, þar sem ég er tiltölu-
lega léttur miðað við marga aðra
keppendur. Fyrsti andstæðingurinn
var 165 kg og ég vann hann. Síðan
mætti ég Badenhorst og það var
mikill slagur. Ég djöflaðist eins og
óður væri, gróf mig niður í sandinn
og var dæmdur sigur. Badenhorst
varð óður og kvartaði og kvartaði.
Úrslitum var þá breytt. Ég held að
það hafi verið gert til að auka
spennuna. Þetta er sjónvarpsíþrótt
og stundum finnst mér hafa verið
unnið á móti mér, af því ég hef
unnið oftar en einu sinni. Það lítur
betur út ef menn skiptast á að
vinna. Það er meðal annars búið
að taka út greinar sem ég hef allt-
af staðið mig vel í. Ég held að það
sé ekki tilviljun. Hvað um það; hné-
beygja var næst og við vorum und-
ir sérhönnuðum palli, sem nokkrir
krakkar stóðu á. Ég náði að lyfta
437,5 kg, en Taylor og Badenhorst
400. Mér fannst ég eiga talsvert
inni, en þetta dugði.
Þarna var ég kominn með 3,5
stig í forskot. Hleðslugrein var síð-
asta grein mótsins, nokkuð sem ég
finn mig vel í. Við þurftum að hlaða
fimm hlutum á pall. Fyrst var sekk
fleygt upp fyrir haus á pall. Hlutirn-
ir þurftu að haldast kyrrir á sínUm
stað og því var verkið vandasamt.
Næst var fjársjóðskista sett á sama
stað, þá tunna tekin, ankeri og loks
keðja. Hún var 300 kíló og var brölt
að koma henni á sinn stað. Þegar
ég var að eiga við ankerið sá ég
að tunnan var að detta og ég stökk
til og setti hana aftur upp. Mér
tókst samt að ná öðru sæti í grein-
inni og vann á mótinu með 8,5 stiga
mun. Geret Badenhorst varð annar