Morgunblaðið - 24.10.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1995 41
Emil Björnsson og
kvennafrí dagurinn
24. okfóber >975
BARATTUD AGUR SEM
VAKTIHEIMS ATHY GLI
| KvmnosSgMttfai
LER) tr.ín fcor-ir i
«4tö) íáwxte, fc$, ;<*:
«i:« 'tow &4Vrfr*riútttr, : *i<fhl'
sefti og fondííMradur taíoúru,
bfcfer wJn. % te:f h«bgí f b»»»
u* b«Sð ac) »3 ti. »9 líi i giga
M. 19Í5,: ifcfcriBfri-'
J^MKTS *KT» *»ÍU
kwi-.ivfttíty^í. A5l»r
v«a»r t
B/niDn: fBwlarRpr'Ki
f(j|:iiv*f)Xj9IIOͻI*r
r.r»CT fcjvrfncior
:t«ki3 tiri
m\ :■ kv*r.ia»»ri3 og
KxoíMW'ritbg’.cn, j. i
oi. íJniiJy>r* ár w
ItoiJanj i-Sðurrfc l*?-
M ííVwIx-Þ f i‘>t f.o
;efc? frítji gögcin og
tejjt í fíteSaJtt teteí.
^•fffeífcíð '
itoxBr l.\aj:ttó«»» «f ImJakj <.*;
«ÍOri htfcfðt {fcfcd c<-rtí 43u: *3 kon-
Jr ör 5;hjrn Hftliui: Sff
9>4í»fkAkan: wrrwft. IÁ
i: •
v*r þft ftxn >»J g«r3.',t. cmÞíÍ.
»3 ftU* kwttr jctemattsftí :
tej4rftBfc«*»teíistrJrbftw : frm
wi»íjö<fc»Ji tíiMjv: .Kv..föteri»3
te/tlrasi. Hatftmn óa#;-
ten 20. <« 21. j:W
IS7& : RoykK.vli.
ttóó'*.' á ftettttf að fcsJcs.
ftír frf frí «te*itr- i.
Si Ofjfi Sflttn.'íflttíu jisflO'
Mca 24. ofcttibw
r.flwtteflöifljxt.. • lí s.1
íýr.» frflio » raiki.'v»3f.
vj tttjtrflwittjtt Rtes.‘-
Mr»o flivxnit A >>:£
fcwrw-r eojírflyfttlfetsi
tttrt kwtjr.sírivflr fAífc
(wp:fc5 frflto. Vflt }>y5
irið r.rro Jwg*r ioftttf
gttftjfR ffttetr fraufti-
w»i»i(i (f«í ««rt 6)t-
maki &Uýý<r<)bU Bft
í GREIN Gerðar Steinþórsdóttur
um kvennafrídaginn 24. október
1975 í Morgunblaðinu er sagt að
Emil Björnsson, þáverandi dag-
skrárstjóri Sjónvarpsins, hafi látið
þurrka út myndir af kvennafrídeg-
inum. Þetta er alrangt og þeir sem
þá störfuðu á fréttastofu Sjónvarps-
ins geta borið um það, auk þess sem
það er skjalfest, að Emil gaf í votta
viðurvist sérstök fyrirmæli, bæði
munnleg og skrifleg um að geyma
og setja á filmusafn allar myndir
sem teknar voru af þessum atburði
og umræðum um hann. Þar var um
að ræða tuttugu mín. myndskeið
alls í fréttum um kvennafrídaginn,
bæði í Reykjavík og úti á lands-
byggðinni, og auk þess Kastljós-
þáttur um kvennabaráttuna, sem
var á dagskrá á undan frídeginum,
því að Emil og fréttastofan vildu
vera í fararbroddi í umræðunni um
jafnréttismál. Miðað við önnur stór-
mál þessa tíma er þetta óvenjulega
ítarlega geymt efni, því að rými
filmusafnsins var og er takmarkað.
Þetta var sex árum áður en fyrstu
beranlegu myndbandsupptökutæk-
in komu til sögu, þannig að það
var-ekki hægt að „þurrka" neitt
út úr fréttunum; annaðhvort voru
filmurnar geymdar eða ekki. Full-
yrðing Gerðar Steinþórsdóttur er í
hrópandi ósamræmi við viðhorf
Emils Björssonar til jafnréttisbar-
áttunnar. Sem dæmi má nefna að
þegar hann réð Svölu Thorlacius,
fyrsta kvenna, í starf fréttamanns
árið 1970, lagði hann áherslu á að
hún sinnti öllum málaflokkum til
jafns við karla en ekki aðeins þeim
sem þá voru oft álitin verkefni
kvenna.
Fullyrðing Gerðar
Steinþórsdóttur er í
hrópandi ósamræmi
við viðhorf Emils
Björssonar til jafnréttis-
baráttunnar, segir
—
Omar Þ. Ragnarsson
í athugasemd.
24. október 1975 áttu samkvæmt
vaktatöflu tvær konur, Svala
Thorlacius og Sonja Diego, að vera
á fréttavakt, eða tveir af þremur
fréttamönnum, og í útsendingu
fréttanna voru þær Ólöf Klemenz-
dóttir og Þuríður Magnúsdóttir.
Allar þessar konur fóru að sjálf-
sögðu í frí þennan dag án afskipta
Emils og hann leysti í staðinn úr
því vandamáli að manna nær óstarf-
hæfa fréttastofuna í þeirra stað,
hreykinn af því að þetta sýndi hve
snaran þátt konur áttu í starfi henn-
ar. Emil Björnsson er látinn og
getur því ekki borið hönd fýrir höf-
uð sér í þessu máli, en þeim, sem
þá störfuðu á fréttastofu sjónvarps-
ins er lítt skiljanlegt hvemig hægt
er að halda fram öðru eins öfug-
mæli og firru og því að hann hafi
látið eyða gögnum um kvennafrí-
daginn. Hugsanleg skýring kann
að vera að næsti Kastljósþáttur á
eftir frídeginum var ekki geymdur.
Sennilega hafa verið í honum þessi
venjulegu „karlamál", pólitík o.þ.h.
sem ekki var unnt að geyma öll í
takmörkuðu geymslurými Sjón-
varpsins.
Höfunditr er fréttamaður og var
& vakt í fjarveru Svölu Thorlacius
24. október 1975.
KRISTIN JONA
GUÐMUNDSDÓTTIR -
ÓSKAR EIRÍKSSON
og áttu mörg sameiginieg áhuga-
mál, t.d. ferðalög og útiveru.
Að undanskildum fjórum árum,
sem fjölskyldan bjó í Danmörku
hefur Kristín átt heimili í Hafnar-
firði, lengst af við Holtsgötuna. Þar
eignaðist hún góða nágranna, sem
mátu hana mikils.
Þegar fregnin um hið sviplega
andlát þeirra barst kveiktu íbúar
Holtsgötunnar friðarljós utan dyra
til að sýna samúð og vinarhug.
Við sem eftir stöndum minnumst
þeirra með söknuði og sorg í hjarta.
Efst í hugum okkar er þakklæti
fyrir álla tryggðina, sem aldrei
brást. Hún var sannur vinur vina
sinna.
Lífið var henni ekki alltaf auð-
velt fremur en flestum öðrum, en
með sinni einstöku glaðværð og
skapstyrk tókst henni að komast í
gegnum ýmsa erfíðleika og miðla
öðrum af sinni miklu bjartsýni og
jákvæða hugarfari.
Heimilið var henni helgur staður
og fjölskyldan sat ávallt í fyrirrúmi.
Þitt bros og blíðlyndi lifir
og bjarma á sporin slær
það vermir kvöldgðngu veginn,
þú varst okkur stjama skær.
Þitt hús var sem helgur staður,
hvar hamingjan vonir ól.
Þín ástúð til okkar streymir
sem ylur frá bjartri sól.
(Síðustu sporin - F.H.)
Við sendum öllum ástvinum
Kristínar, börnum og fjölskyldum
þeirra, systur hennar Ónnu og fóst-
ursystur Svanborgu, sem misst
hafði móður sína og var alin upp
frá barnsaldri með þeim systrum,
okkar dýpstu samúðarkveðjur með
þeirri ósk að kærleikur lífsins veiti
þeim huggun og styrk.
Einnig biðjum við Guð að styrkja
alla ástvini ðskars.
Megi bjartar minningar ylja ykk-
ur um ókomin ár.
Margrét Björk
Andrésdóttir,
Sigurlaug
S veinbj örnsdóttir.
Kveðja frá saumaklúbbnum
Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gjgjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar um þig alla daga sína.
Enn erum við minnt á fallvalt-
leika lífsins_ í þessum hópi með
brotthvarfi Óskars og Stínu.
Það er margs að minnast frá
samverustundum okkar.sem mun
ylja um ókomna framtíð.
Okkur er ljúft að minnast göngu-
ferðanna síðastliðið sumar. - Þar
var Stína eins og svo oft áður frem-
ur veitandi en þiggjandi, bauð upp
á tjúkandi kaffi og heimabakað
brauð.
Síðasta samverustundin nú í
haust var tveimur dögum áður en
hún lést. Farið var á notalegan
veitingastað og borðað saman og
nutum við allar stundarinnar.
Á þessari kveðjustundu er okkur
efst í huga þakkir fyrir órofa tryggð
og vináttu.
Hafið þökk fyrir alit kæru vinir
og Guð veri með ykkur.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blomgast enn og blómgast ævinlega
þitt bjarta bros í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Nýr forseti
Bridssambandsins
KRISTJÁN Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri á Reyðarfirði var kjörin
forseti Bridssambands íslands á árs-
þingi sambandsins um helgina.
Kristján tók við af Helga Jóhanns-
syni sem verið hefur forseti Bridssam-
bandsins undanfarin sex ár en gaf
ekki kost á sér áfram. Kristján hefur
starfað í stjórn sambandsins um ára-
bil.
Rúmlega 50 félög víðs vegar um
landið eiga aðild að Bridssambandinu
með á íjórða þúsund félagsmenn.
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Miðvikudaginn 20. október var spil-
að annað kvöldið af þremur í hausttví-
menning félagsins og er þátttakan 14
pör, og urðu sem hér segir:
EyþórJónsson-GarðarGarðarsson 201
Karl G. Karlsson - Karl Einarson 184
Gunnar Guðbjömsson - Birkir Jónsson 182
Staðan eftir tvær umferðir er þá
þessi:
EyþórJónsson-GarðarGarðarsson 374
Karl G. Karlsson - Karl Einarsson 361
MagnúsMagnússon-SiguijónJónsson 360
Kristján Kristjánsson - Kjartan Sævarsson 356
GunnarGuðbjömsson - Birkir Jónsson 339
Stórmót Samvinnuferða-
Landsýnar og Munins
Stórmót Samvinnuferða-Landsýnar
og Munins verður haldið í íþróttahús-
inu í Sandgerði laugardaginn 11. nóv-
ember og hefst kl. 11. Spilaðar verða
tvær 30 spila lotur (Mitchel). Vegleg
verðlaun verða í boði. Heildarupphæð
er kr. 250.000. Keppnisstjóri verður
Sveinn Rúnar Eiríksson og honum til
aðstoðar verður keppnisstjóri okkar
Suðumesjamanna Isleifur Gíslason.
Skráning er komin á fulla ferð hjá
BSÍ, s. 5879360, Magnúsi, s. 4237759
og Garðari, s. 4213632.
Bridsfélag Reykjavíkur
Miðvikudaginn 18. október byijaði
fyrsta kvöldið af fjórum í hraðsveita-
keppni félagsins. 30 sveitir spiluðu 14
umferðir með 2 spilum á milli sveita,
í tveimur riðlum. Meðalskor var 504
og bestum árangri náðu:
A-riðill:
Hjólbarðahöllin 618
NEON 563
Bangsjmon 538
Anna ívarsdóttir 530
B-riðill:
Búlki hf. 584
Björn Eysteinsson 570
VÍB 560
Ó.Þ.K.Ó. 545
Næstu kvöld spila 15 efstu sveitirn-
ar í A-riðli og hinar í B-riðli.
auglýsingar
I.O.O.F. Rb. 1 = 14524108 - 9
III*
□ FJÖLNIR 5995102419 III 1
FRL.
□ HLÍN 5995102419 IV/V 1
□ EDDA 5995102419 ATKV.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533
Miðvikudagur 25. okt. kl.
20.30
Kvöldvaka
Áfangar eftir Jón Helgason
Fyrsta kvöldvaka Ferðafélagsins
í nýja samkomusalnum að Mörk-
inni 6 verður miðvikudagskvöld-
ið 25. október. Efni hennar er
kvæði Jóns Helgasonar, Áfang-
ar. Góð myndasýning og upp-
lestur m.a. frásagnir er tengjast
efni kvæöisins. Umsjón hafa
Grétar Eiríksson, Haukur Jó-
hannesson og Tómas Einars-
son. Góðar kaffiveitingar. Verð
500 kr. (kaffi og meðlæti innifal-
ið). Allir velkomnir meðan hús-
-rými leyfir. Gengið inn um mið-
byggingu að Mörkinni 6. Þetta
er kvöldvaka sem enginn ætti
að missa af.
Við minnum á glæsilega og fröð-
lega árbók Ferðafélagsins 1995,
Á Hekluslóðum, eftirÁma Hjart-
arson.
Ferðafélag Islands.
AD KFUK,
Holtavegi
AD KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30. „Frá
myrkri til ijóss.'1 Gréta Sigurðar-
dóttir veitir okkur innsýn í heim
nýaldarinnar og ber hann saman
við kristindóminn. Upphafsorð
hefur Kristbjörg Gísladóttir.
Allar konur velkomnar.
Dagsferð sunnud. 29. okt.
Kl. 10.30 Forn frægðarsetur,
3. áfangi.
Helgarferð 27.-29. okt.
Kl. 20 Bláfell - Hvítárnes.
Útivist.
skólar/námskeið
tölvur
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1
- Windows 3.11 ásamt Mail og Scedule
- Word 6.0 fyrir Windows og Macintosh
- WordPerfect 6.0 fyrir Windows
- Excel 5.0 fyrir Windows og Macintosh
- PageMaker 5.0 f. Windows/Macintosh
- Access 2.0 fyrir Windows
- PowerPoint 4.0 f. Windows/Macintosh
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Word og Excel uppfærsla og framhald
- Unglinganám, Windows eða forritun
- Windows forritun
- Internet grunnur, frh. eða HTML skjöl
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning í síma
561-6699.
Bt Tolvuskóli Reykiavíkur
Borgartuni 28. sinu 561 6699.
STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
OG NÝHERJA
K 569 7640 <Q>
569 7645 nýherji
■ Tölvuskóli i fararbroddi.
Öll hagnýt tölvunámskeið.
Eáðu senda námsskrána.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 551 7356.
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus í nóvember og desember.
Hannes Flosason,
sími 554-0123.
Fræðslumiðstöð Náttúrulækninga-
félagsins, sími 551 4742
■ Andlegt ofbeldi
Fyrirlestur um andlegt ofbeldi, hvað er
það og hvernig virkað það. Hverjir beita
andlegu ofbeldi, hvað er til ráða fyrir
fórnarlömb þess. Fyrirlesari er Ásta
Kristrún Ólafsdóttir BA, löggiltur ráð-
gjafi CCDP. Fyrirlesturinn verður hald-
inn í Norræna húsinu 24. október kl.
20.30. Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr.
500 seldur við innganginn.
■ Ættfræðinámskeið
Lærið sjálf að leita uppruna ykkar og
frændgarðs. Frábær rannsóknaraðstaða.
Ættfræðiþjónustan, s. 552 7100.
myndmennt
■ Málun - myndmótun
Nýtt námskeið er að byrja. Myndmótun
og málun. Morgun- og kvöldtímar.
Fámennir hópar.
Upplýsingar og innritun í síma
552-3218 og hs. 562-3218 eða í
Gallery Ríkey, Hverfisgötu 59, frá
kl. 13-18.