Morgunblaðið - 25.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 25.10.1995, Side 1
 C 1995 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER BLAÐ Valsmenn taka á móti Braga ÍSLANDSMEISTARAR Vals í handknattleik hafa ákveðið að leika heimaleikinn heima í 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða, en þeir mættu CSKA Moskva í fyrsth umferð og fóru báðir leikirnir fram í Þýskalandi. Valsmenn hafa selt síðustu heimaleiki, en næst mæta þeir portúgalska liðinu Braga og eiga fyrri leikinn heima. Komist Valsmenn áfram bíða þeirra sex leikir í riðlakeppni þar sem úrslitaliðunum átta er skipt i tvo fjög- urra liða riðla. Líklegt er að KA hafa sama hátt á og Valsm'enn, en þeir mæta VSZ Kosice frá Sló- vakíu í Evrópukeppni bikarhafa og eiga fyrri leikinn heima. Afturelding mætir pólska lið- inu Zaglebie Luben í Borgarkeppninni og hefur ekki verið rætt um breytingu á fyrir- komulaginu, en Afturelding á fyrst heimaleik. Broddi og Ámi Þór í 124. sæti BRODDI Kristjánsson og Arni Þór Hallgrimsson eru í 124 sæti í tvíliðaleik á nýjum heimslista, sem Alþjóðabad- mintonsambandið sendi frá sér í byijun október. Elsa Nielsen og Vigdís Ásgeirsdóttir eru í 116. sæti í tvíliðaleik kvenna á sama lista. Bæði þessi pör stefna að þátttöku í ólympíuleikun- um í Atlanta þar sem 20 bestu pör heimsins keppa í hvorum fiokki. f eiiiliðaleik er Broddi í 182. sæti, Guðmundur Adolfsson 1256. sæti og Árni Þór Hallgrímsson í 350. sæti. í einliðaleik kvenna er Erna Nielsen í 119 sæti, Birna Petersen í 235 sæti, Vigdís Ásgeirsdóttir í 250. sæti og Guðrún Júlíusdóttir í 265. sæti. Badminton-fólkið hefur lítið keppt á alþjóðlegum mótum og á því allan mögu- leika á að laga stöðu sína á listunum á næstunni með góðri frammistöðu í vetur því mót vetrarins reiknast mun hagstæðar gagnvart heimslistanum en þau sem lokið er. Karl Ómar áminntur afGSÍ GOLFSAMBANDÍslands hefur veitt Karli Ómari Jó- hannssyni íþróttakennara áminningu vegna kennslu sem hann hefur verið með í golfi austur á fjörðum. Eins og við skýrðum frá í sumar var Karl Ómar kærður vegna þess að hann tók þátt í sveitakeppninni samhliða því að kenna golf eystra, en menn sem kenna verða að afsala sér áhugamannarétt- indum sínum. Karli Ómari var gert Ijóst að hann yrði að ákveða sig hvorum megin borðsins hann ætlaði að vera, halda áfram sem golf- kennari eða halda áhuga- mannaréttindum sínum. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Sex íslendingar framar- lega á heimsafrekaskránni Sýniraðvið erum á réttri leið, segirformaðurFrjálsíþróttasambandsins „VIÐ höfum ekki átt svo marga keppnismenn svo ofarlega á heimslistunum. Þetta sýnir mér að við höfum verið að vinna vel og erum á réttri leið. Það gefur okkur í forystunni vissulega byr undir báða vængi að eiga svo marga svo ofar- lega. Frjálsíþróttir eru ein allra útbreiddasta iþrótt heimsins og þvf við stóran hóp að keppa," sagði Helgi Haralds- son formaður Frjálsíþrótta- sambandsins (FRÍ) í viðtali við Morgunblaðið. Heimslistarnir í frjálsíþróttum liggja nú fyrir og eru sex íslenskir frjálsíþrótta- menn meðal 50 bestu í sinni grein. Jón Arnar Magnússon UMSS er fremstur íslensku fijálsíþrótta- mannanna, er í 14. sæti í heiminum í tugþrautinni með 8.248 stig, sem hann náði í Talence í Frakklandi 16. september. Var það annað tveggja íslandsmeta hans í grein- inni og þriðja þrautin hjá honum á árinu yfir 8.000 stig. Dan O’Brien Bandaríkjunum er í sérflokki með 8.696 stig, eða 120 stigum á undan Eistanum Erki Nool sem er með 8.276. Þriðji er Mike Smith Kanada með 8.498 stig — að vísu fæst sú þraut aldrei viðurkennd sakir með- vinds, en Smith náði 8.419 stigum er hann vann silfrið á HM í Gauta- borg — og Eduard Hámáláinen Hvíta-Rússlandi fjórði með 8.489 stig. Alls eiga fimm Bandaríkja- menn betri árangur en Jón Arnar. Pétur Guðmundsson Ármanni er í 17. sæti á heimslistanum í kúlu- varpi með 20,13 metra kast á móti í Tuscaloosa í Alabama 29. septem- ber. Á undan honum eru sex Banda- ríkjamenn en að hámarki þrír frá hverri þjóð geta keppt í Atlanta. Athygli vekur hvaða framförum fínnskir kúluvarparar hafa tekið því Finnar eiga 2. og 15. mann á listan- um. Efstur er John Godina Banda- ríkjunum með 22,00 metra, þá kem- ur Finninn Mika Halvari með 21,50 og þriðji er Bandaríkjamaðurinn Brent Noon með 21,47. Landar hans eru einnig í næstu tveimur sætum. Vésteinn Hafsteinsson HSK er í Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson JÓN Arnar Magnússon, til vlnstrl, ásamt Gísla Sigurðssyni, þjálfara sínum, á heimsmelstara- mótlnu í Gautaborg í sumar. Samvlnna þelrra hefur skllað góðum árangrí — Jón Arnar fór þrívegis yfir 8.000 stig í tugþrautinnl í sumar og er 14. á helmsafrekaskrá ársins. 29. sæti í heiminum í ár í kringlu- kasti með 63,14 metra kast frá í Helsingjaborg í Svíþjóð 18. júní. Lengst kastaði Þjóðveijinn Lars Riedel, 69,08 metra, næstur Dmítríj Shevtsjenko Rússlandi með 68,04 og þriðji varð landi hans Sergej Ljakhov með 66,78 metra. Sigurður Einarsson Ármanni er 39. á heimslistanum í spjótkasti með 80,06 metra en fleiri köstuðu ekki yfir 80 á árinu. Tveir köstuðu yfir 90 metra á árinu, Raymond Hecht Þýskalandi [92,60] og Tékk- inn Jan Zelezny [92,28]. Fremri Sigurði eru m.a. 10 Finnar, fimm Rússar og fjórir Þjóðverjar. Vala Guðrún Vala í 18. sæti í stangarstökki Yala Flosadóttir, 17 ára stúlka úr ÍR, er í 17.-19. sæti á heimslist- anum í stangarstökki, sem nær bæði til innanhúss sem utanhússaf- reka. Stökk hún 3,81 metra sem er Norðurlandamet. Tólf konur stukku yfir fjóra metra á árinu, hæst Daniela Bartova Tékklandi sem stökk 4,22 metra. Allar stúlk- urar sem stukku hærra en Vala eru eldri en hún. Af þeim eru sex þýsk- ar, þijár rússneskar og þijár kín- verskar. Loks náði Guðrún Arnardóttir Ármanni í 42. sæti í 400 metra grindahlaupi með besta árangri sín- um, 56,76 sekúndum frá í Knox- ville í Tennessee 2. júní. Guðrún er með besta árangur kvenna í 400 grind á Norðurlöndunum. KIUATTSPYRNA: TEITUR ÞÓRÐARSON HEFUR FARIÐ VÍDA Á FERLINUM / C2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.