Morgunblaðið - 25.10.1995, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 C 3
URSLIT
Handknattleikur
2. deild karla
Ármann - Fram..v.............11:42
Knattspyrna
England
3. umferð deildarbikarkeppninnar
Bamsley - Arsenal 0:3
■Hollendingurinn Dennis Bergkamp þagg-
aði niður í 18.000 stuðningsmönnum heima-
manna með frábærri aukaspyrnu í fyrri
hálfleik. Dave Watson hélt ekki boltanum
og Steve Bold átti ekki í erfiðleikum með
að skora af stuttu færi. Fjórum mínútum
síðar var Bergkamp aftur á ferðinni en að
þessu sinni skoraði hann með vinstri af
tæplega 20 metra færi. Martin Keown inn-
siglaði yfirburði aðkomumanna þegar hann
skoraði með skalla stundarflórðungi fyrir
leikslok. Heimamaðurinn Andy Liddell
skaut yfir úr vítaspymu mínútu síðar.
Birmingham - Tranmere 1:1
Bolton - Leicester 0:0
■Guðni Bergsson og samheijar sóttu stíft
en tókst ekki að skora á heimavelli þrátt
fyrir mörg tækifæri í skemmtilegum leik.
Iwan Roberts var næst því að skora fyrir
gestina en skallaði í stöng mínútu fyrir hlé.
Reading - Bury 0:2
■(leikurinn flautaður af eftir 28 mín. vegna
úrhellis).
Watford - Blackburn............1:2
■Kevin Phillips skoraði fyrir heimamenn i
fyrri hálfleik en Alan Shearer jafnaði á 58.
mínútu og Mike Newell gerði sigurmarkið
með skalla 10 mínútum fyrir leikslok.
Skotland
Undanúrslit deildarbikarkeppninnar
Aberdeen - Rangers.............2:1
Billy Dodds (51., 69.) - Oleg Salenko (85.).
■Aberdeen sem þurfti að leika aukaleiki
sl. vor til að halda sætinu í skosku úrvals-
deildinni kom á óvart gegn meisturunum
og tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn
sem verður 26. nóvember. Dundee og
Airdrie mætast í hinum undanúrslitaleikn-
um í kvöld.
Holland
Utrecht - PS V Eindhoven.......1:4
Raymond Graanoogst (15.) - Stan Valckx
(41.), Luc Nilis (56.), Wim Jonk (69.), Philip
Cocu (79.).
Ishokkí
NHL-deildin
Leikið á mánudaginn:
Montreal - Los Angeles..
Colorado - Anaheim.
IMFL-deildin
Sunnudagur:
Carolina - New Orleans....
Chicago - Houston......
Cleveland - Jacksonvilie...
Miami - NY Jets........
St. Louis - San Francisco..
Tampa Bay - Atlanta....
Washington - Detroit...
■Eftir framlengingu.
Denver - Kansas City...
Green Bay - Minnesota..
Oakland - Indianapolis.
Seattle - San Diego....
Staðan:
Ameríkudeildin
Austurriðill
Sigrar, töp, mörk
...6:3
....3:1
....20:3
..35:32
..15:23
..16:17
..10:44
..21:24
..36:30
....7:21
..38:21
..30:17
..25:35
5 2 150:122
IníJianapolis 4 3 145:157
Miami 4 3 191:127
NYJets 2 6 120:220
New England 2 5 96:174
Miðriðill
Cleveland 3 4 139:130
3 4 163:154
Pittsburgh 3 4 147:167
3 5 131:162
2 5 137:154
Vesturriðill
7 1 199:138
6 2 213:123
4 4 168:137
San Ciego 4 4 148:162
2 5 131:175
Landsdeildin
Austurriðill
6 1 203:118
Philadelphia 4 3 144:173
Washington 3 5 189:193
Arizona 2 5 114:180
NY Giants 2 5 115:156
Miðriðill
5 2 204:167
Green Bay 5 2 171:137
Tampa Bay 5 3 127:129
3 4 156:163
Detroit 2 5 163:173
Vesturriðill
5 2 148:149
Atlanta 5 2 146:147
San Francisco 5 2 198:96
2 5 125:154
New Orleans 1 6 134:178
KNATTSPYRNA
Pétur ræðir
við Eyjamenn
Pétur Marteinsson, fyrirliði
U-21 árs landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur rætt við Eyjamenn
um hugsanleg félagaskipti úr Fram
og sagði við Morgunbiaðið að vel
gæti komið til greina að hann skipti
þó ekkert hefði enn verið ákveðið
í því efni.
„Ég hef hugsað mér til hreyfings
en ekkert ákveðið," sagði hann í
gærkvöldi. „Ég hef talað við Eyja-
ERIC Cantona
Reuter
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Höllin: KR-Víkingur ...20
Kaplakriki: FH - Valur ..20
KA-hús: KA - Stjaman ..20
Seljaskóli: lR- Selfoss ...20
Seltjarnarnes: Grótta - Haukar.. ...20
Eyjar: ÍBV - UMFA ...20
1. deild kvenna:
Kaplakriki: FH - Stjaman ...20
2. deild karla:
Smárinn: Breiðablik - ÍH ...20
Umræðan
um áhuga
Inter Milan
er að verða
svolítið
þreytandi
ÍTALSKA stórliðið Internazionale
frá Mílanó er enn einu sinni að
reyna að fá Eric Cantona frá Man-
chester United. Samkvæmt ítölsk-
um og enskum blöðum í gær er
félagið að undirbúa tilboð upp á sjö
millj. punda, jafnvel skipti á Paul
Ince, fyrrum leikmanni United, og
Frakkanum en markaðurinn á Ítalíu
verður opinn í viku frá 2. nóvember.
Viðbrögð United voru þau sömu
og fyrr. „Þessar umræður um
áhuga Inter Milan eru að verða
svolítið þreytandi," sagði Martin
Edwards, formaður enska félags-
ins. „Málið er einfalt. Eric er ekki
til sölu, sama hvað er í boði. Alex
Ferguson er að byggja upp lið í
kringum Cantona og það er alveg
á hreinu að hann samþykkir aldrei
sölu. Eftir allt sem við sem félag
og Eric sem persóna höfum þurft
að ganga í gegnum á árinu getur
engum dottið í hug að við viljum
selja hann nú.“
Inter bauð í Cantona í sumar án
árangurs en liðið er sjö stigum á
eftir AC Milan í ítölsku deildinni
og ætlar sér stærri hlut. „Við viljum
Cantona og það er undir formannin-
um komið að ná samningum við
Manchester United,“ sagði Roy
Hodgson, nýráðinn þjálfari Inter.
Alex Ferguson sagði að Inter
væri að eyða tíma sínum til einsk-
is. „Þetta er ekki einu sinni spurn-
ing um peninga. Við höfum ekki
efni á að láta einhvern af reyndari
leikmönnunum frá okkur og alls
ekki einhvern sem er eins hæfileika-
ríkur og áhrifamikill og Eric. Ég
hef ekki verið í sambandi við neinn
hjá Inter en menn hjá félaginu eru
að eyða tíma sínum til einskis því
hann fer hvergi.“
menn og þeir eru með skemmtilegt
lið sem er spennandi kostur,“ bætti
hann við.
Pétur lék fyrst með Fram í 1.
deild 1991 en var síðan með Leiftri
á Ólafsfirði í 2. deild í tvö ár.
Hann gekk aftur til liðs við Fram
1994 og hefur leikið með liðinu
síðan. Sem kunnugt er féll Fram
í 2. deild en ÍBV leikur í Evrópu-
keppni félagsliða að ári.
TveirJúgó-
slavar til
Sheffield
Wednesday
SHEFFIELD Wednesday hef-
ur samið við Rauðu stjörnuna
í Belgrad um að kaupa tvo
landsliðsmenn frá félaginu.
Umsamið verð er fjórar miHj-
ónir punda (um 405 mil(jónir
kr.) en samningurinn er háður
samþykki Knattspyrnusam-
bands Englands og Alþjóða
knattspyrnusambandsins og
því hvort þeir fái atvinnuleyfi
í Englandi en gert er ráð fyrir
að það skýrist ekki fyrr en
eftir tæpan mánuð.
Leikmennirnir eru 21 árs
gamlir, miðherjinn Darko
Kovacevic, sem hefur gert 62
mörk fyrir Rauðu sljörnuna,
og varnarmaðurinn Dejan
Stefanovic. „Það eina sem við
vitum, er að félögin eru ánægð
og einnig leikmennimir,"
sagði David Pleat, aðalþjálfari
Wednesday. „Allir vita að við
vitfum fá leikmenn í háum
gæðaflokki og þessir eru það.“
Juninho varla með Middlesbrough gegn Manchesterllnited
Robson einnig
á eftir Brasilíu-
stráknum Caio
Reuter
BRASILÍSKI lelkmaðurinn Juninho, sem beðið er með óþreyju í Middl-
esbrough. Elns og sjá má leikur Juninho í „helgri" treyju — númer 10 —
í landsliði Brasilíu; ber sama númer og Pele gerðl á sínum tíma.
Brasilíumaðurinn Juninho fékk
óvænt atvinnuleyfi sem leik-
maður Middlesbrough í fyrradag
en hann er ekki væntanlegur til
Englands fyrr en á morgun og
því er talið ólíklegt að hann leiki
með liðinu gegn Manchester Un-
ited á Old Trafford á laugardag.
Bryan Robson, yfirþjálfari Boro,
setur það ekki fyrir sig en leggur
þess meiri áherslu á að fá Caio,
fyrrum samherja Juninhos í Sao
Paolo, til liðs við enska liðið.
Mikil eftirvænting ríkir á meðal
stuðningsmanna Boro vegna
komu Juninhos, sem var kjörinn
knattspyrnumaður ársins í Brasil-
íu.
Knattspyrnustjörnur hafa ekki
verið á hverju strái í Middlesbro-
ugh og Robson sagði að kaupin
sýndu ákveðni stjórnar félagsins
í að gera Boro að stórveldi í al-
þjóða knattspyrnu „Hann vill gera
allt sem hann getur til að vera
besti knattspyrnumaður heims og
slíka menn vil ég hafa í liði mínu,“
sagði Robson.
Um helgina var sagt að það
tæki sinn tíma að fá atvinnuleyfi
og Robson sagði að ef Juninho,
sem er 22 ára, yrði ekki kominn
til Englands árla í dag, miðviku-
dag, spilaði hann ekki gegn Un-
ited. „Hann þyrfti að hvílast vel
og ná úr sér flugþreytunni til að
geta æft með liðinu á fimmtudag
og föstudag,“ sagði Robson á
mánudag. „Eg verð að vera sann-
gjarn við hann og komi hann ekki
fyrr en á fimmtudag er ekki hægt
að ætlast til að hann leiki eins
mikilvægan leik og um er að
ræða.“
Juninho tók í sama streng í
gær. „Það væri ekki rétt fyrir
mig eða Middiesbrough að spila
án þess að hafa æft með félögum
mínum og vera ókunnugt um
hvernig þjálfarinn vill að sé spil-
að,“ sagði hann. Stuðningsmenn-
irnir géta samt varla beðið og
þegar hafa verið seldir meira en
6.000 miðar til áhangenda sem
vilja sjá leikinn gegn United á
breiðtjaldi á Riverside-leikvangin-
um, heimavelli Boro.
Middlesbrough greiddi 4,75
millj. punda (tæplega 482 millj.
króna) fyrir kappann og sagt er
að vikulaun hans verði 13.000
pund (liðlega 1,3 millj. króna). í
Brasilíu hefur hann leikið í treyju
númer 10 eins og Péle gerði og
ekki þykir hæfa að slíkur maður
fái annað númer í Englandi. John
Hendrie, sem er númer 10 hjá
Boro, hefur boðist tii að leysa
vandann og vill selja Juninho
peysu sína og númerið fyrir viku-
laun — ekki eigin heldur Brasilíu-
mannsins!
Robson fór til Brasilíu gagn-
gert til að semja við Juninho sem
fleiri félög voru á eftir og hann
er tilbúinn að fara aftur ef það
yrði til þess að hann næði Caio
til Boro en tvö önnur félög í Evr-
ópu hafa boðið í strákinn. Piltur-
inn er 19 ára og metinn á þijár
milljónir punda en hann var mað-
urinn á bak við sigur U-21s árs
liðs Brasilíu á Toulon-mótinu í
maí sem leið.
Teitur Þórðar-
son á faraldsfæti
Teitur á ferðinni
TEITUR Þórðarson, fyrrverandi
fyrirliði landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur verið á faraldsfæti
um Evrópu síðán hann fór frá
Akranesi 1977 til að gerast leik-
maður með sænska liðinu
Jönköping. Teitur, sem hefur
herjað í Svíþjóð, Frakklandi,
Sviss og Noregi, er nú að breyta
um dvalarstað — halda austur;
til Tallinn í Eistlandi, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu
í gær, þar sem hann mun taka
við Iandsliðsþjálfarastarfi þar í
landi ásamt því að þjálfa meistar-
alið Flora Tallinn, sem var stofn-
að 1990 og varð meistari 1994
og 1995.
Teitur, sem er í hópi bestu
knattspyrnumanna íslands, vann
sér nafn strax og hann kom til
Svíþjóðar og eftir aðeins eitt
keppnistímabil fór hann til Öster
og varð sænskur meistari með
liðinu 1978,1980 og 1981. Þá var
hann í hópi bestu knattspyrnu-
manna Svía og sagður besti er-
lendi leikmaðurinn sem hafði
leikið í sænskri knattspyrnu. Frá
Svíþjóð hélt hann til Frakklands
og Sviss;áður en hann sneri að
nýju til Óster 1985.
Teitur lagði knattspyrnuskóna
á hilluna og gerðist þjálfari hjá
sænska liðinu Skövde 1987, en
hélt til Noregs 1988 þegar hann
fékk tilboð að þjálfa Brann í
Bergen, siðan þjálfaði hann Lyn
og Lilleström. Teitur, sem aflaði
sér menntunar sem þjálfari, hef-
Mikiðum
jafntefli í
Þýskalandi
ÞAÐ eru margir sem eru
ekki ánægðir með nýju
þriggja stiga regluna í
Þýskalandi og segja að hún
hafi ekki dregið úr jafntefl-
um, heldur hafa jafntefli
aldrei verið fleiri. 40% af
leikjunum hafa endað með
jafntefli, eða 36 leikir af níu-
tiu sem búnir eru í 1. deildar-
keppninni. Erich Ribbeck,
þjálfari Bayer Leverkusen,
segir að þriggja stiga reglan
þjóni engum tilgangi og er á
móti henni, en aftur á móti
er Franz Beckenbauer,
sljórnarformaður Bayem
Munchen mjög ánægður með
breytingarnar. „I þeim leikj-
um sem hafa endað með jafn-
tefli hefur sést að liðin eru
að sækja til að skora og þó
að leikir séu markalausir eru
þeir skemmtilegri."
Morgunblaðið/Skapti
TEITUR Þórðarson veifar til
áhorfenda fyrir leik í
frönsku deildinni með Lens
gegn Mónakó haustið 1981.
ur verið einn af virtustu þjálfur-
um Noregs. Hann hefur komið
fram með ýmsar hugmyndir og
unnið með Ólympíuhreyfingunni
í sambandi við uppbyggingu og
þjálfun knattspyrnumanna í Nor-
egi. Það kom mörgum á óvart
að Teiti hefði ekki verið boðið
landsliðsþjálfarastarf íslands
þegar Asgeir Elíasson ákvað að
segja starfi sínu lausu á dögun-
um. Nú fær hann tækifæri með
landslið Eistlarids.
Ómar Jó þjálfar Hauka
ÓMAR Jóhannsson, fyrrum leikmaður ÍBV og Fram, hefur verið ráðinn þjálf-
ari Hauka úr Hafnarfirði næsta sumar en þess má geta að hann er nú búsettur
í Hafnarfirði. Lið Hauka féll niður í 4. deild í haust þannig að verkefni Óm-
ars verður að reyna að koma félaginu rakleiðis upp aftur. Ómar var við stjóm-
völinn hjá Kópavogsliðinu HK í sumar og áður hafði hann þjálfað lið Hattar
á Egilsstöðum.
Flogið í Bretlandi
STEINGRÍMUR Ingason og Joff Haig svífa yfir hæð á eyjunnl Mull við Bretlandseyjar. Steingrím-
ur keppti í tveimur röllum og vakti athygll á heimasmíðuðum bíl sínum.
Steingrímur velti und-
ir lok keppni eftir að
hafa náð þríðja sæti
Gunntaugur
Rögnvaldsson
skrifar
STEINGRIMUR Ingason rall-
ökumaður keppti nýverið tví-
vegis á Bretlandseyjum, í síð-
ara skiptið si'ðastliðinn
laugardag. Hann féll úr keppni
í bæði skiptin, en var í þriðja
sæti í seinni keppninni þegar
tvær sérleiðir voru eftir. Þá
velti hann að lokinni sérleið,
eftir að hafa reynt að bjarga
sér útúr óvæntri beygju á
blindhæð.
Þetta var vandræðaleg velta
strax eftir að sérleiðinni lauk.
Ég kom yfir blindhæð í endamarki
leiðarinnar, og á
henni var hægri
beygja. Ég ætlaði
að bjarga mér, með
því að keyra inn á
nærliggjandi tún. Gallinn var sá
að á túninu var skurður. Bíllinn
skall harkalega í bakkann, fram-
dekk brotnaði undan, bíllinn enda-
stakkst og valt,“ sagði Steingrím-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Plægði túnið
„Bíllinn rann svo á þakinu og
plægði túnið, þannig að við feng-
um risa grastorfu inn í bílinn,
40-50 kg þunga. Það var óþægileg
tilfínning — þó ég sé alinn upp í
sveit! Við vorum þar með fallin
úr leik og misstum af verðlauna-
sæti fyrir vikið, sem var svekkj-
andi,“ sagði Steingrímur.
„Vissulega hefði endamark leið-
arinnar ekki átt að vera í beygju,
en það þýðir ekki að fást um það
núna. Aðstoðarökumaður minn,
húsmóðirin Rowan Lee var leið
yfír að vara mig ekki við, en svona
er rallið. Ég lærði það sem ég
þurfti í þessari ferð. Bíllinn minn
hentar vel á malbiksleiðir og ég
ætla að keppa i 4-5 mótum í Bret-
landi á næsta ári. Fyrri keppnin
sem ég keppti í var á föstudeginum
13. október, óhappadegi. En bíll-
inn bilaði hinsvegar strax eftir
miðnætti þess þrettánda, þá brotn-
aði nýlegt tannhjól í gírkassanum
á meðan önnur sjö ára gömul héldu
velli. Fyrir keppni ætlaði ég að
leggja leiðirnar á minnið, en það
var vonlaust. Vegirnir voru svo
hlykkjóttir að sjaldnast sást fyrir
næsta horn og aðstoðarökumaður-
inn í þeirri keppni, heimamaðurinn
Joff Haigh veitti mér góða aðstoð
í keppninni. Ég komst bara þriðj-
ung af rúmlega 300 kílómetra
akstri á sérleiðum, áður en gír-
kassinn bilaði. Sigurvegari rallsins
varð McKinnon á Ford Escort
Cosworth fjórhjóladrifsbíl.“
Húsmóðirin alvön leiðunum
„í seinni keppninni var hús-
móðirin mér við hlið, en hún var
alvön leiðunum, sem voru skammt
frá Newcastle. Þær voru á svæði
þar sem skriðdrekar eru prófaðir
reglulega. Malbikið var illa farið
og mörg stökk á leiðinni. Ég lærði
leiðirnar vel fyrir keppni og gekk
vel; var strax framarlega í keppn-
inni, sem var liður í keppni áhuga-
manna í Bretlandi. Það rigndi og
það tók tíma að læra inn á hvenær
dekkin höfðu grip og hvenær ekki
á hálu malbikinu. Það lentu marg-
ir útaf, bílar voru þvers og kruss
út um allt. Ég tók þokkalega á
bílnum, en átti þó talsvert eftir.
Bremsuklossarnir spændust hins-
vegar upp. Undir lokin vorum við
komin í þriðja sæti, en þá kom
blindhæðin örlagaríka. Bíllinn er
talsvert skemmdur eftir veltuna,
en ég kem honum í rétt horf.
Hann vakti mikla athygli, enda
frumsmíði.
Þá mundi fólk eftir honum úr
vinsælum sjónvarpsþætti BBC,
þar sem íslensku ralli og jeppum
voru gerð skil. Fólk mundi sérstak-
lega eftir því hvernig jeppamenn
sprengja affelguð dekk á aftur
með startgasi og kveikjara. Bret-
arnir eru miklir rallmenn og hátt
í 100 röll eru haldin þar árlega,
þannig að það er góður vettvangur
fyrir íslenska rallökumenn að ná
sér í nýja reynslu," sagði Stein-
grímur.
DDP
DDv
gerir
golfþátt
hérá
landi
BRESKA ríkissjónvarpið,
BBC, hyggst gera sjón-
varpsþátt um golf hér á
landi næsta sumar. Þáttur-
inn verður hluti af þáttaröð
sem hinn kunni sjónvarps-
maður Peter AIlis er að gera
um golf í heiminum. Allis
þessi er talinn einn besti
golfþulur nútímans, en áður
en hann snéri sér að þeirri
iðju var hann atvinnumaður
í golfi og var þekktur fyrir
livað honum gekk aJltaf illa
á flötunum. Hann tapaði til
dæmis Ryderkeppninni einu
sinni með því að fjórpútta á
síðustu flötinni. Allis virðist
þó sjá spaugilegu liliðina á
óförum sfnum á flötunum
því bílnúmerið lians er 3
PUTT sem á íslensku er
þrípútt.
A næsta ári verður golf-
vailarins í Vestmannaeyjum
einnig getið í bók sem enskt
félag gefur út og í henni
verður að finna upplýsingar
um 200 golfvelli um víða
Evrópu. Ekki er ólíklegt að
Allis fari til Eyja að mynda
því völlurinn þar er mjög
myndrænn og sama má
segja um Grafarholtsvöll-
inn, Leiruna og völlinn á
Hvaleyríimi auk fleiri valla.