Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA FRJÁLSÍÞRÓTTIR: NÝR UNDRAHLAUPARIKOMINN FRAM í KÍNA / C2 4- -------------------------------------------------------- 1995 FOSTUDAGUR 27. OKTÓBER BLAÐ Sigurður þjálfar Breiðablik SIGURÐUR Halldórsson, fyrrum leikmaður Akraness og landsliðsins, sem hefur þjálfað Skallagrím í Borgar- nesi með góðum árangri und- anfarin ár, verður næsti þjálf- ari 1. deildariiðs Breiðabliks í Kópavogi. Hann tekur við liðinu af Bjarna Jóhannssyni, sem hafnaði þriggja ára þjálfarasamningi við félagið á dðgunum. Sigurður handsalaði eins árs samning við stjórn Breiða- bliks í fyrra kvðld, daginn áður en hann hélt til útlanda með knattspyrnuliði lögreglu- manna. „Nú getum við snúið okkur að leikmannamálunum. Arnar Grétarsson, Anthony Karl Gregory og Kjartan Ant- onsson eru allir samnings- bundnir. Við hðfum að vísu misst Ásgeir Halldórsson í Fram og líklega Kristófer Sigurgeirsson yfir í KR. Við erum með efnilega unga stráka — annan flokk sem varð íslandsmeistari í ár. Það er þvf nægur efniviður til þjá félaginu,“ sagði Hákon Gunn- arsson, ritari knattspyrnu- deildar Breiðabliks. Liverpool mætir Newcastle LIVEIIPOOL dróst gegn Newcastle í fjórðu umferð ensku deildarbikarkeppninn- ar í knattspyrnu og fer viður- eign liðanna fram á Anfield. Guðni Bergsson og samherjar í Bolton verða að mæta Leic- ester f aukaleik og sigurveg- arinn sækir Norwich eða Bradford heim. Aston Villa tekur á móti QPR, Arsenal mætir Sheffíeld Wednesday á Highbury, Wolves fær Charl- ton eða Coventry í heimsókn, Southampton heimsækir Reading eða Bury, Leeds og Blackburn spila á Elland Road og sigurvegarinn úr aukaleik Crystal Palace og Middlesbrough á heimaleik gegn Birmingham eða Tran- mere. Leikirnir fara fram í síð- ustu viku nóvember. Júlíus Hafstein formaður Ólympíunefndar íslands Gæti orðið erfitt að koma júdómanni á styrk Júlíus Hafstein, formaður Ólymp- íunefndar íslands, segir það slæmt mál fyrir júdóíþróttina á ís- landi ef það reynist rétt að Halldór Hafsteinsson hafí horfíð úr æfinga- búðunum í Barcelona' án þess að kveðja kóng eða prest eins og Morgunblaðið greindi frá í gær. Halldór hafði verið í Barcelona á styrk frá Ólympíusamhjálpinni frá því í júlí í sumar. „Ég trúi því ekki að hann hafi farið án þess að kveðja. Ég mun ræða við Halldór þegar hann kem- ur heim en ef satt reynist, sem ég á erfitt með að trúa að óreyndu, þá er það mesta skömmin fyrir hann sjálfan en ekki aðra. Það gæti orðið erfiðara að koma ís- lenskum júdómönnum inn á þessa styrki í framtíðinni og ég held að forysta Júdósambandsins geri sér grein fyrir því,“ sagði Júlíus. Júlíus sagði að þetta brotthvarf Halldórs kæmi ekki til með að eyði- leggja möguleika annarra íslenskra íþróttamanna á að komast á styrk. „Það að Halldór skuli vera tekinn af styrk er auðvitað sárt og við því er ekkert að gera. Ólympíusam- hjálpin metur stöðuna þannig að hann sé ekki nægilega sterkur til að vera styrkhæfur. Það hefur komið fyrir fleiri íþróttamenn og ekki bara íslenska að detta út af styrk. Þetta kemur ekki til með að skaða samstarf Ólympíunefndar íslands við Ólympíusamhjálpina. Það er ljóst að íslenskir íþrótta- menn verða að standa sig og vinna vel, annars fá þeir ekki svona styrki." Þrír íslenskir íþróttamenn hafa misst styrkinn frá Ólympíusam- hjálpinni á þessu ári. Fyrst Vern- harð Þorleifsson júdómaður sem hætti af sjálfdáðum í febrúar og fór heim frá Barcelona. Síðan Magnús Már Ólafsson sundmaður sem stóð ekki undir þeim vænting- um sem til hans voru gerðar og hann sendur heim frá æfingabúð- um í Barcelona í lok júní og nú Halldór Hafsteinsson júdómaður. Styrkir Ólympíusamhjálparinnar eru mjög eftirsóknaverðir. íþrótta- mennirnir fá um 2.000 dollara (130 þúsund krónur) á mánuði í beinan peningastyrk, sem á að mæta kostnaði þeirra við æfíngadvölina, s.s. fæði, uppihald og þjálfunar- kostnað. Auk þess fá þeir greiddar ferðir á mót. Nú eru fjórir fijálsíþróttamenn á styfk Ólympíusamhjálparinnar; Vésteinn Hafsteinsson, Sigurður Einarsson, Martha Ernstsdóttir og Pétur Guðmundsson. Reuter Tapie bíður og vonar MÁLFLUTNINGI lauk í gær í frönskum áfrýjunardómstóli í máli Bernards Tapie, fyrrum aðaleiganda og forseta knattspyrnuliðsins Olympique Marseille. Hann var einnig áður ráðherra í ríkisstjórn Francois Mitterands forseta og full- trúi á Evrópuþinginu. Tilkynnt var að niðurstaða í máli hans yrði birt 28. nóvember. Þá kem- ur í ljós hvort hann lendir í fangelsi en Tapie var ákærður fyrir að hag- ræða úrslitum leikja Marseille liðsins með mútugreiðslum vorið 1993 — skömmu • fyrir úrslitaleik Evrópu- keppninnar, er liðið varð Evrópu- meistari með sigri á AC Milan. Ríkissaksóknari hefur farið fram á að Tapie, sem er 52 ára, hljóti íjögurra mánaða fangelsisdóm og aðra 14 mánuði skilorðsbundna. Auk þess fer saksóknari fram á að honum verði meinuð störf á vegum hins opinbera í þijú ár. Á myndinni er Tapie fyrir utan dómhúsið í gær ásamt tveimur lögreglumönnum. — Öllum leikjum frestað í gær vegna hörm- unganna á Flateyri FRAMKVÆMDASTJÓRN f SÍ beindi þeim ein- dregnu tilmælum til allra sambandsaðila sinna, þ.e. héraðssambanda, sérsambanda og íþrótta- og ungmennafélaga, að aflýsa öllu fyrirhuguðu keppnishaldi í gær og í dag vegna hinna hörmulegu atburða á Flateyri. KKÍ frestaði fyrirhuguðum leikjum í úrvalsdeild karla i gærkvðldi til nk. þriðjudags og HSÍ frestaði leikjum í 1. deild karla og kvenna um óákveð- inn tíma. Hins vegar treysti HSÍ sér ekki til að fresta leikjum í kvöld vegna þess hve ís- landsmótið í handknattleik er þétt spilað. Þess í stað fer HSÍ þess á leit við aðildarfélög að handknattleiksmenn votti Flateyringum sam- úð sína með því að leika með sorgarbönd dag- ana 27. til 29. október og hefji hvern leik á einnar mínútu þögn. BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JÚDÓ / ÓLYMPÍUSAMHJÁLPIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.