Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 1
f
Ii
i
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
JHórgttttMs&fö
■ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER
BLAD
Ásmundur
skiptir aftur í
Aftureldingu
ÁSMUNDUR Einarsson, markvörður hand-
knattleiksliðs KR-inga, hefur ákveðið að
skipta aftur yfir í Aftureldingu en hann lék
með félaginu í fyrra. Gengið var frá samn-
ingi í gær og verður hann væntanlega lögleg-
ur með Aftureldingu á mánudag. Asmundur
er markvörður U-21 árs landsliðsins og var
kjörinn efnilegasti leikmaður 1. deildar á
síðasta keppnistimabili. „Eg er mjög ánægð-
ur með að fá Ásmund aftur í okkar raðir.
Hann óskaði sjálfur eftir því að skipta yfir
og við vorum alls ekki á móti því,“ sagði
Jóhann Guðjónsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Aftureldingar.
JÚDÓ
Halldór Hafsteinsson gefur júdóíþróttina upp á bátinn
Overmars
til United?
Kominn í
þrotpen-
ingalega
HALLDÓRHafsteinsson, júdó-
maður úr Ármanni, sem var við
æfingar í Barcelona á styrk
Ólympíusamhjálparinnar, segir
að hann hafi farið frá Barcelona
vegna peningaleysis. „Ég var
alveg kominn í þrot peningalega
og varð að velja á milli fjölskyld-
unnar og júdóíþróttarinnar. Ég
tók að sjálfsögðu fjölskylduna
fram yfir og það var því ekkert
annað að gera í stöðunni en að
koma sér heim og vinna fyrir
sínum skuldum," sagði Halldór
Hafsteinsson í viðtaii við
Morgunblaðið. Hann segist hafa
stofnað til mikilla skulda vegna
íþróttaiðkunar, skulda sem
hann Ijúki ekki við að greiða fyrr
en eftir mörg ár.
Halldór segir að hann hafi ekki
farið frá Barcelona án þess að
kveðja kóng né prest, eins og sagt
var í Morgunblaðinu í vikunni. Vert
er að geta þess að í bréfí frá Ólymp-
íusamhjálpinni til Ólympíunefndar
íslands — sem fréttin byggði m.a. á
— var sagt að hann hefði farið án
þess að láta vita („left withoiit any
previous advice“ á ensku). „Ég tal-
aði við konuna sem er millijiður æf-
ingabúðanna í Barcelona og
Ólympíusamhjálparinnar á föstudag-
inn var [fyrir rúmri viku] og sagði
henni eins og var, að ég yrði að fara
heim þvi ég gæti ekki framfleytt fjöl-
skyldunni lengur. Konan ætlaði að
koma því til höfuðstöðva Ólympíus-
amhjálparinnar í Lausanne, en þá
var búið að loka þar og því ekki
hægt að láta vita af brotthvarfi mínu
fyrr en á mánudag og þá var ég
farinn. Ég átti kost á því að vera
áfram en því miður leyfði fjárhags-
staða mín það ekki,“ sagði Halldór,
sem var með eiginkonu sína og tvö
börn í Barcelona.
Halldór fékk 2.000 dollara á mán-
uði í styrk frá Ólympíusamhjálpinni
— andvirði um 130 þúsunda króna.
Hann segir að allur styrkurinn hafi
farið í það að greiða fyrir þjálfara
og æfingaaðstöðuna í Barcelona.
„Þar sem ég var með fj'ölskylduna
með mér átti ég þess ekki kost að
búa í æfingabúðunum sjálfum því
þar er bannað að hafa börn. Ég varð
því að leigja húsnæði í borginni fyrir
fimmtíu þúsund krónur á mánuði.
Ég er mjög þakklátur Ólympíunefnd
íslands og Júlíusi Hafstein, formanni
hennar, fyrir þann stuðning sem ég
fékk þar, en er aftur á móti óánægð-
ur með að hafa ekki fengið náð fyr-
ir augum þeirra sem stjóma úthlutun
úr Afreksmannasjóði ÍSÍ. Ef ég hefði
fengið svipaðan styrk og frjáls-
íþróttamennirnir eru að fá hefði það
nægt mér til að brúa það bil sem
upp á vantaði. Þrátt fyrir mikinn
þrýsting á Afreksmannasjóð var því
alfarið hafnað. Auðvitað er sárt að
svona fór, en ég hafði ekki um neitt
annað að velja en hætta og koma
heim.“
Halldór segist hafa verið í 20.
sæti á afrekalista Evrópu í sínum
þyngdarflokki, -86 kg. Hann sagðist
hafa verið kominn mjög nálægt því
að tryggja sér sæti á næstu Ólympíu-
leika því 14 efstu á Evrópulistanum
kæmust til Atlanta. Hann sagði það
ljóst eftir þessa reynslu að það væri
liðin tíð að íþróttamenn kæmust á
Ólympíuleika án þess að fá til þess
góðan stuðning og að þeir gætu helg-
að sig íþróttinni án þess að hafa að
því fjárhagslegan skaða.
„Þessu ævintýri er því miður lokið
og nú er kominn tími til að snúa sér
að fjölskyldunni. Ég er búinn að æfa
júdó í ellefu ár og hef keppt á um
hundrað mótum. Eg hef stofnað mér
og mínum í miklar skuldir vegna
íþróttarinnar og var að reikna það
út að gamni mínu að ég verð að
borga síðustu afborganimir af lánum
árið 2014,“ sagði Halldór Hafsteins-
son.
Hættur!
HALLDÓR Hafstelnsson er komlnn helm frá Barcelona og
hefur ðkveAIA aA hætta keppni í júdó vegna fjárhagsörftug-
leika. Hann telur sig hafa átt gófta möguleika á ólympíusæti.
ENSKA knattspymustórveldið
Manchester United, sem í sum-
ar reyndi að kaupa hollenska
útheijann Marc Overmars frá
Ajax án árangurs, virðist enn
vera að reyna að ná í kappann
ef marka má fréttir hollenskra
fjölmiðla.
Ajax fór í sumar fram á 10
milljónir punda — andvirði um
eins milljarðs króna, en Eng-
lendingunum fannst það of
mikið. Fregnir herma að nú
gæti verðið lækkað niður í 6,5
millj. punda, um 650 miilj.
króna. Forráðamönnum United
leist reyndar ekki á launakröfur
leikmannsins í sumar, en hann
fór fram á 25.000 pund í viku-
laun. Það jafngildir tveimur og
hálfri milljón króna. Ekki fylgir
sögunni hvort líkur séu á að
hann myndi sætti sig við lægri
laun nú en í sumar.
Þrír íslend-
ingar hjá
Raufoss
ÞRÍR íslenskir knattspymu-
menn leika með norska 3. deild-
arliðinu Raufoss næsta keppn-
istímabil. Þetta eru þeir Einar
Páll Tómasson og Valgeir Bald-
ursson sem léku með liðinu á
sfðustu leiktíð og nú hefur
Tómas Ingi Tómasson, Eyja-
maður sem lék með Grindvík-
ingum í sumar og þar áður með
KR, bæst í hópinn.
HANDKNATTLEIKUR
BIKARMEISTARAR KA frá Akur-
eyri hefja titilvömina annað kvöld
er þeir mæta Gróttu á Seltjamar-
nesi í 32 liða úrslitum bikarkeppn-
inni HSI. Þar er um að ræða eina
af þremur innbyrðisviðureignum
liða úr 1. deild — sem allar eru á
sunnudagskvöldið, þannig að ljóst
er að þijú 1. deildarlið falla úr strax-
við fyrstu hindrun. Einnig liggur
fyrir að eitt B-lið kemst í 16 liða
úrslitin því Víkingur-B og FH-B
mætast. Helstu leikir í 32-liða úr-
slitunum eru viðureignir Stjöm-
unnar og Aftureldingar, Hafn-
arfjarðarliðanna Hauka og FH og
áðumefnd viðureign Gróttu og KA
KA hefur
titilvörnina
gegn
Gróttu
á Seltjarnarnesi. Þessir leikir hefj-
ast allir kl. 20 annað kvöld. Vert
er að geta þess að KA og Grótta
mættust í undanúrslitum keppninn-
ar á síðasta keppnistímabili og þá
sigruðu KA-menn ömgglega,
25:16. Gróttuliðið lék vel og sigr-
aði Hauka örugglega í síðustu
umferð 1. deildarinnar í vikunni
og því verður fróðlegt að sjá hvern-
ig Seltimingum gengur gegn bikar-
meistumnum á morgun.
Ekki verður leikurinn í Garðabæ
síður fróðlegur, en Afturelding
fékk einmitt fyrstu stig sín í deild-
inni í vetur með sigri þar fyrir
skömmu, en fram að því var Stjam-
an taplaus. Og ljóst er að Hafnar-
fjarðarslagurinn verður einnig
merkilegur eins og viðureignir
þessara liða em jafnan.
IMÝJARIÐKENDATÖLUR BREYTA EIUGU UM GREKÐSLU LOTTÓPENINGA / D2