Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
Æ ' X_/
Agúst Gylfason í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar
Næ vonandi að endur
taka leikinn frá 1991
ÁGÚST Gylfason, fyrrum leik-
maðurVals, spilará miðjunni
með Brann gegn norsku meist-
urunum Rosenborg f úrslitum
bikarkeppninnar á Ulevál-leik-
vanginum í Oslo á morgun. Mik-
ill áhugi er fyrir leiknum og var
uppselt fyrir tveimur mánuðum,
en völlurinn tekur 30 þúsund
áhorfendur. „Þetta verður
spennandi og það væri gaman
að endurtaka leikinn frá því i
bikarúrslitaleiknum með Val
gegn FH 1991 er ég gerði sigur-
markið," sagði Ágúst Gylfason.
Agúst hefur leikið sem bakvörður
hjá Brann í sumar, en verður
færður fram á miðjuna í bikarúrslita-
leiknum á morgun. „Ég var settur
í stöðu bakvarðar í sumar fyrir
landsliðsmanninn Geirmund Braen-
desæther, sem kjálkabrotnaði í ág-
úst. Hann kemur nú inn í liðið aftur
og fer ég því fram á miðjuna í mína
gömlu stöðu. Þjálfarinn hafði sam-
band við mig í dag [í gær] og til-
kynnti mér þessa ákvörðun og ég
er mjög ánægður með hana,“ sagði
Ágúst.
Hann sagði að liðinu hafi ekki
gengið sem skildi í deildarkeppn-
inni, hafnað í 9. til 10. sæti. Það
gekk illa til að byija með og var
þjálfarinn rekinn eftir nokkrar um-
ferðir, en liðinu gekk betur undir
sjóm Tennefjöd sem tók við. Ágúst
var meiddur í hné í upphafi tímabils
en hefur leikið alla leiki liðsins frá
því í ágúst. „Ég er sáttur við frammi-
stöðu mína og eins hefur þjálfarinn
hælt mér og virðist hafa mikla trú
á mér. Þó svo að bakvarðarstaðan
sé ekki í miklu uppáhaidi hjá mér
þá hef ég skilað henni ágætlega.
En ég kann alltaf betur við mig á
miðjunni.“
Enn í úrslit
ÁGÚST Gylfason, sem hér
er ásamt Blrni Jónssynl FH-
Ingl, veröur í svlösljósinu
meö Brann f úrslltalelk
norsku blkarkeppnlnnar
gegn Rosenborg á Ulevál-
leikvanglnum ð morgun.
Mikill áhugi er fyrir bikarúrslita-
leiknum og sagði Ágúst að Oslo-
borg yrði rauð og hvít — í litum
félaganna, á sunnudaginn. Leikur-
inn verður einnig sýndur í beinni
útsendingu norska sjónvarpsins.
„Þetta verður stór stund og það verð-
ur gaman að spila fyrir framan þijá-
tíu þúsund áhorfendur. Rosenborg
er talið líklegra til sigurs, en það
er líka allt í lagi því við höfum allt
að vinna og ætlum okkur að koma
á óvart,“ sagði Ágúst. Brann vann
Lilleström í ævintýralegum undan-
úrslitáleikjum þar sem Lilleström
vann fyrri leikinn á heimavelli 3:1
og hafði yfir 1:0 í hálfleik í síðari
leiknum, en Brann gerði fjögur mörk
á síðustu 20 mínútunum og komst
áfram.
Ágúst gerði tveggja ára samning
við Brann fyrir síðasta tímabil og
er því samningsbundinn fram á
næsta haust. Hann segist ánægður
í herbúðum Brann enda mikill knatt-
spyrnuáhugi í Bergen. „Annars lít
ég fyrst á fremst á veruna hér hjá
Brann sem stökkpall í annað og
stærra í Evrópu," sagði Ágúst í gær.
Einn íslendingur hefur áður leikið
til úrslita um norska bikarinn. Það
var Bjami Sigurðsson sem lék í
markinu hjá Brann gegn Rosenborg
1988. Brann tapaði 2:0 í aukaleik
eftir að fyrri leiknum hafði lokið
með jafntefli, 1:1. Það er því spurn-
ing hvort Ágúst Gylfason verður
fyrstur íslendinga til að fagna sigri
í norsku bikarkeppninni.
Bikarkeppni
HSÍ
2. deild-
ar lið ÍH
slóKRúl
ÍH úr Hafnarfirði, sem
leikur í 2. deild, sigraði
l.deiIdarUðKR, 28:22, í
32-iiða úrslitum í bikar-
keppni HSÍ í gærkvöldi.
Hafnfirðingar höfðu und-
irtökin allan leikinn og
voru með 7 marka forskot
í háifleik, 16:9. KR-ingar
reyndu að leysa leikinn
upp með því að leika mað-
ur á mann síðustu tíu mín-
úturnar en þá voru ÍH-
ingar átta mörkum yfir.
Yngsti leikmaður ÍH-
iiðsins, Sæþór Ólafsson
sem er 19 ára, skoraði 9
mörk gegn 1. deiidarlið-
inu. Næstir komu nafn-
amir Óiafur Magnússon
og Thordersen með 6
mörk hvor. Alex Revine,
markvörður ÍH, var í
miklu stuði í leiknum og
varði alls 23 skot. Hannes
Leifsson, þjálfari ÍH, lék
allan tímann í vörninni og
batt hana vel saman.
KR-ingar viija örugg-
lega gleyma þessum leik
sem fyrst. Þeir léku nyög
illa og var einn ieikmaður
þeirra, Eiríkur Þorláks-
son, útiiokaður frá leikn-
um snemma í síðari hálf-
leik fyrir mótmæii. Ingvar
Valsson var markahæstur
KR-inga með 6 mörk. Guð-
mundur Aibertsson gerði
4 og þeir Gyifi Gylfason
og Eiríkur Þorláksson
þriú mörk hvor.
í 1. deild kvenna fór
fram einn leikur í gær-
kvöldi. ÍBV sigraði Víking
í Víkinni 21:20.
URSLIT
Handknattleikur
Bikarkeppni karla, 32-Iiða úrslit:
Fylkir-HK....................23:31
Keflavík - UMFA-b............25:29
ÍH-KR........................28:22
1. deild kvenna:
Víkingur-ÍBV.................20:21
Halla María Helgadóttir var markahæst i
liði Vtkings með 6 mörk, Hanna Mana Ein-
arsdóttir gerði 4. Andrea Atladóttir var
með 5 mörk fyrir ÍBV og Sara Guðjónsdótt-
ir og Malin gerðu 4 mörk hvor.
2. deild karla:
Þór - Ármann.................36:25
Knattspyrna
Þýskaland
Gladbach - Köln................2:0
(Pflipsen 39., Effenberg 68.). 51.000.
Karlsruhe - Freiburg...........1:1
(Dundee 40.) - (Zeyer 62.). 33.800.
Frakkland
Le Havre — Nantes..............0:1
Strasbourg — St Etienne........3:1
Lyon —Bastia...................1:1
Rennes —Nice...................1:0
Auxerre — LiUe.................1:2
Martigues — Bordeaux...........3:1
Cannes — Mónakó................1:1
Montpellier — Gueugnon.........2:2
Lens — Guingamp.............. 0:1
Staða efstu liða:
..15 9 5 1 17:8 32
25
Metz 15
PSG 15
Lens 15
Auxerre 15
15
Guingamp 15
Nantes 15
GOLF
Reuter
SVÍINN Anders Forsbrand
bítur hór í pútterlnn eftlr aö
hafa mlsst stutt pútt á 16.
flöt í gaer. Hann gat þó bros-
aö eftlr daglnn því hann er
meö besta skoriö eftlr
fyrstu tvo hringlna.
Langer er kominn
á kunnar slóðir
Bernhard Langer frá Þýskalandi
lék í gær á þremur höggum
undir pari, eða 68 höggum á öðrum
hring á síðasta mótinu í evrópsku
mótaröðinni sem fram fer á Vald-
errama-golfvellinum á Spáni. Hann
á því góða möguleika á að verða
efstur í mótaröðinni því helstu
keppninautar hans, Colin Montgo-
merie og Sam Torrance, léku ekki
eins vel í gær. Svíinn Anders Fors-
brand lék á 70 höggum í gær og
heldur forystunni með 138 högg
þegar keppnin er hálfnuð.
Langer þarf að ná fyrsta eða
öðru sætinu í mótinu til að sigra í
mótaröðinni og ná efsta sætinu á
Evrópulistanum. „Ég er ekki langt
frá þessu. Ef ég næ að fara völlinn
báða dagana á 68 höggum ætti það
að duga,“ sagði Langer sem er á
142 höggum. Sam Torrance lék á
71 höggi í gær og er í níunda sæti
með 144 högg. „Ég er enn með í
toppbaráttunni," sagði Torrance.
Colin Montgomerie lék á 72 högg-
um í gær og er næstur á undan
Torrance með 143 högg.
Enginn lék betur í gær en Alex-
ander Cejka, sem flúði frá fyrrum
Tékkóslóvakíu til Þýskalands með
föður sínum þegar hann var níu
ára. Hann lék á sex höggum undir
pari, eða á 66 höggum og er nú
með 140 högg í öðru sæti, tveimur
höggum á eftir Svíanum Fors-
brand.
Cejka náði fugli á fyrstu tveimur
holunum í gær, skolla á þriðju, síð-
an erni og loks fugli á fimmtu og
sjöttu og var því fimm höggum
undir pari eftir aðeins sex holur.
Frábær byijun hjá þessum 24 ára
gamla Munchenbúa.
STAÐAN
138 Anders Forsbrand (Svíþjóð)
68 70
140 Alexander Cejka (Þýskal.) 74 66
141 Ian Woosnam (Bretl.) 70 71,
Jose Coceres (Arg.) 69,72
142 David Gilford (Bretl.) 74 68,
Bemhard Langer (Þýskal.) 74
68, Paul Eales (Bretl.) 71 71
143 Jose Rivero (Spáni) 75 68, Peter
Hedblom (Svíþjóð) 73 70, How-
ard Clark (Bretl.) 73 70, Sven
Struever (Þýskal.) 73 70, Sandy
Lyle (Bretl.) 72 71, Colin Mont-
gomerie (Bretl.)71 72
144 Michael Jonzon (Svíþjóð) 75 69,
Costantino Rocca (Italíu) 74 70,
Jesper Pamevik (Svlþjðð) 74 70,
Sam Torrance (Bretl.) 73 71,
Jean-Louis Guepy (Frakkl.) 72
72, Miguel Angel Jimenez
(Spáni) 71 73, Barry Lane
(Bretl.) 70 74
' .