Morgunblaðið - 29.10.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.10.1995, Qupperneq 1
116 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 247. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bosníudeila Rússa og Bandaríkjanna Samkomulag um sameigin- lega hersveit Sar^jevo. Reuter. PAVEL Gratsjov, varnarmálaráðherra Rússlands, og William Perry, varnarmálaráðhq.rra Bandaríkjanna, hafa náð samkomulagi um stofn- un sameiginlegrar hersveitar ríkjanna til að styðja friðargæslusveitir í Bosníu. Ráðherrarnir sögðu á föstudagskvöld að nokkur þúsund menn frá hvoru ríki yrðu í hersveitinni, sem myndi meðal annars sjá um flutninga og ýmsar framkvæmdir í þágu friðargæslusveitanna. Gratsjov og Perry sögðu á sameig- inlegum blaðamannafundi að sveitin yrði einnig skipuð hermönnum frá öðrum löndum og ekki undir yfir- stjóm Atlantshafsbandalagsins (NATO). Hún yrði send til Bosníu mánuði eftir að friðargæsla NATO hefst þar ef samið verður um frið á fundi forseta Bosníu, Króatíu og Serbíu, sem hefst í Bandaríkjunum á miðvikudag. Ekki náðist samkomulag í deilunni um hvort rússneskir hermenn tækju þátt í friðargæslunni sjálfri en ráð- herrarnir hyggjast ræða það mál frekar um miðjan nóvember. Ósamið um Slavoníu Stefnt hefur verið að því að Serbar og Króatar undirriti samning um framtíð Austur-Slavoníu í dag eða á morgun en ólíklegt er að af því verði. Serbar vilja nú ekki fallast á að láta héraðið af hendi fyrr en eftir þijú ár. Franjo Tudjman, forseti Króatíu, hét því að beita öllum ráðum til að endur- heimta héraðið í ræðu sem hann flutti á fundi á föstudagskvöld vegna króat- ísku þingkosninganna í dag. Bretar taka ekki und- Jeltsín máekki fá gesti Moskvu. Reuter. LÍÐAN Borís Jeltsíns Rúss- landsforseta, sem er á sjúkra- húsi í Moskvu vegna hjarta- áfalls, er óbreytt, að sögn tals- manns hans í gær, laugardag. Læknar réðu forsetanum frá því að taka á móti gestum. Heilsubrestur forsetans hef- ur þegar orðið til þess að fundi forseta Bosníu, Serbíu og Kró- atíu í Moskvu hefur verið af- lýst. Fyrirhugaðri ferð hans til Kína um miðjan næsta mánuð hefur einnig verið aflýst og ólíklegt er að hann fari til Noregs síðar í nóvember. ir gagnrýni á Frakka Sydney, Tókýó. Reuter. FRAKKAR sættu enn harðri gagn- rýni í gær eftir að hafa sprengt þriðju kjarnorkusprengjuna í til- raunaskyni á eyju í Suður-Kyrra- hafi á föstudagskvöld. Bretar færðust þó enn undan því að taka undir gagnrýnina og eiga því á hættu að einangrast á leiðtoga- fundi samveldisríkjanna í næsta mánuði. Ráðamenn í Ástralíu, Nýja Sjá- landi og Japan afhentu sendiherr- um Frakklands formleg mótmæli en talsmaður Johns Majors, for- sætisráðherra Bretlands, sagði af- stöðu bresku stjórnarinnar óbreytta. Tilraunirnar væru „mál frönsku stjórnarinnar.“ Sprengjan var sprengd á versta tíma fyrir Major, sem ræðir við Jacques Chirac, forseta Frakk- lands, í London í dag. Leiðtogar samveldisríkja hafa hótað að ein- angra Breta á fundinum í næsta mánuði vegna afstöðu þeirra i málinu. Morgunblaðið/RAX MIKILL uggur er í fólki á Vest- fjörðum og óvissa um framtíðina. „Við erum samt á því að þrauka áfram, a.m.k. mín fjölskylda og ég held að allir núverandi íbúar Súðavíkur séu sömu skoðunar, þrátt fyrir óttann,“ segir Ásthild- Uggur og óvissa ur Jónasdóttir. Blaðamenn og ljósmyndarar Morgunblaðsins hittu íbúa í Súðavík, Hnifsdal, Bolungarvík, á Flateyri, Suður- eyri og á ísafirði. ► 9/10/11/12/13/14. 16 KLOFNAR KANADA? EHGIH MTLIMTÚK Stjórnendur o g starfsfólk 22 vœsnmiiiviNNUiiF ÁSUNNUDEOI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.