Morgunblaðið - 01.11.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 C 5
Morgunblaðið/Halldór
STJÓRN Maritech heimsótti aðalstöðvar Marel í lok síðustu viku, skoðaði frystihús og heilsaði upp
á sendiherra Noregs á íslandi, Nils O. Dietz. Hér er stjórnin í húsakynnum Marels; Odd Einar
Folland, Endre Sæter, Steinar Sogn, Steinar Myklöy og Stein Hendnes. Með þeim á myndinni eru
Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels, Lárus Asgeirsson markaðsstjóri og Kristján
Davíðsson svæðissölustjóri.
Samvinnan við Marel hf.
hefur skilað okkur miklu
NOREGUR er nú orð-
inn stærsti einstaki
markaður Marels hf.
en um þriðjungur af
heildarsölu fyrirtækis:
ins fer þangað í ár. í
Noregi er fyrirtækið
Maritech með einkaumboð fyrir Marel og selur ýmist búnaðinn frá Marel
beint eða sem hluta sameiginlegra heildarlausna fyrir sjávarútveginn.
Aðaleigandi og forstjóri Maritech, Odd Einar Folland, segir að samvinnan
við íslendinga hafi gengið mjög vel og norskir fiskverkendur láti Smugu-
deiluna ekki koma í veg fyrir að þeir kaupi vörur frá íslandi.
Framkvæmdastjóri
Maritech í Noregi er
ánægður með gang mála
Maritech hefur verið með einka-
umboð fyrir Marel í Noregi síðast-
liðinn áratug. Fyrirtækið er með
aðalstöðvar í Averöy rétt utan við
Kristiansund, en er með sölu- og
þjónustuskrifstofur viða um Noreg.
Starfsmenn þess eru um 40 talsins
og er tæplega helmingur veltu
vegna sölu vamings frá Marel.
Noregur verður stærsti markaður
Marels í ár með’um 320 milljónir
króna af áætlaðri sölu upp á einn
milljarð króna.
Mikll veltuauknlng
„Við höfum gengið í gegn um
bæði súrt og sætt þetta tímabil með
Marel, en tvö síðustu árin hafa
gengið mjög vel. Veltuaukning milli
ára hefur verið á milli 40 og 50%.
Maritech selur bæði einstök tæki
frá Marel eins og vogir og flokk-
ara, en fyrirtækin vinna einnig sam-
an að hönnun og sölu á heildar-
lausnum fyrir sjávarútveginn. Mari-
tech sérhæfir sig í hugbúnaði fyrir
vinnslu, sem felst í alls konar
gagnasöfnum og útreikningum, en
Marel leggur svo til vigtar, flokkara
og flæðilínur, svo dæmi séu nefnd,"
segir Folland.
Áherzlan á aukið vlnnsluvlrðl
Folland segir að mikill vöxtur
hafi verið í norskum sjávarútvegi
síðustu tvö árin og sömu sögu sé
að segja af laxeldinu. Sífellt meiri
áherzla sé lögð á aukið vinnsluvirði
í fiskvinnslunni og byijað sé á því
að auka vinnsluvirði laxins líka með
því að skera flök í bita og framleiða
sérstakar pakkningar. Oalgengt sé
að bæði fiskvinnslan og laxeldið séu
í vexti á sama tíma og því sé eftir-
spurnin eftir tæknibúnaði til að
auka verðmæti framleiðslunnar
vaxandi.
Góð samvinna vlð Marel
„Við Norðmenn getum margt
lært af íslendingum í fiskvinnsl-
unni. Þeir eru komnir langt í allri
tækni og auka vinnsluvirði afurð-
anna stöðugt. Samvinna okkar við
Marel hefur gengið mjög vel og
deilan um Smuguna hefur ekki
dregið úr möguleikum okkar á því
að selja búnaðinn frá Marel í Nor-
egi. Aðeins í einu tilfelli olli þessi
deila okkur erfiðleikum, enda gera
menn sér grein fyrir þvi, að það eru
óskyldir hlutir, deilan um Smuguna
og tæknivæðing og uppbygging í
fiskivinnslunni. Enda höfum við
aukið söluna á tveimur síðustu
árum verulega. Vonandi getur
Norðmönnum og íslendingum al-
mennt gengið vel að vinna saman
í framtíðinni, til dæmis hvað varðar
framboð á fiski úr Norðaustur-Atl-
antshafi, fiskveiðistjórnun og fleira.
Það skiptir einnig máli að nú eru
að ganga yfir kynslóðaskipti i
norskum sjávarútvegi. Yngri kyn-
slóðirnar hafa betri menntun og eru
víðsýnni en þær gömlu. Það ætti
að hafa jákvæð áhrif á samskipti
þessara frændþjóða," segir Odd
Einar Folland.
Nóg til af skarkola í Hollandi
MIKIÐ framboð hefur verið í
haust á skarkola í Hollandi og
verðið því lækkað verulega. Var
afli mjög góður seinni hluta sept-
ember og kom það á óvart því að
hann var lítill á sama tíma í fyrra.
Kemur þetta illa við ýmis fyrir-
RÆKJUBA TAR
tæki, sem höfðu búist við litlu
framboði og því reynt að koma
sér upp birgðum, sem þau keyptu
dýrum dómum. Fyrir skömmu var
verðið á skarkolanum ekki nema
80 kr. kílóið á markaðinum í Urk
og ekki er talið, að það hækki
mikið fyrr en gengið hefur á
birgðirnar. Ljósi punkturinn er
sá, að skarkolinn er nú samkeppn-
ishæfari við aðrar ódýrari teg-
undir og getur það ýtt undir
neyslu á honum en úr henni hefur
dregið að undanförnu.
RÆKJUBA TAR
Nafn Bt»rA Afll Flakur Sjóf Löndunarst.
l OAGFAftt GK 70 299 10 1 1 Son8ger6i ]
UNA 1 GARÐl GK 100 138 20 0 1 Sandgerði
| GAUKURGKSSO 181 10 0 1 Keflavík ]
GEIRFUGL GK 66 148 11 2 1 Keflavík
GARÐAfí II SH 184 142 6 1 1 Ólatsvík ]
SÆFELL ÍS820 162 9 Ö 1 Ölafsvík
1 SÓLBYSH 124 144 3 ■ 2 1 GmndarfjörSur :|
KRÍSTÍNN FRIÐRIKSSON SH 3 104 5 0 1 Stykkishólmur
I HEIBRÚNlSt 294 19 0 1 Bolungarvtk
BERGÚR VE 44 266 12 0 1 isafjöröur
[ guðmUndur péturs Is 4S 231 19 o 1 laafjöriur
SÚLAN EA 300 391 15 0 1 Isafjöröur
[ ÓSKAR HALLDÓRSSON RB 1S7 260 14 o 1 Isafjöröur
FRIGGVE41 142 11 0 1 Hólmavík
JÖFURlS 172 254 22 0 1 Hvammstangí
HAFÖRNSK 17 149 13 0 1 Sauðárkrókur
\ JÖKULL SK 33 68 6 o 1 Sauðórkrókur
ÞÓRIR SK 16 12 4 0 1 Sauöárkrókur
[ HELGA RF 49 199 23 0 1 Sigíufjöröur
SIGLUVÍK Sl 2 450 19 0 1 Siglufjöröur
\ STÁLVÍKSI1 384 20 0 I Slglufiörður ]
GUÐMUNDUR ÓLAFUR 'ÖF 91 294 15 0 1 Ólafsfjöröur
[ HAFÖRN EA 955 142 23 0 1 Oalvlk 1
ODDEYRIN EA210 274 29 0 1 Dalvík
SIGURBORG HU IOO 220 33 0 1 Dalvik
STEFAN RÖGNVALDS. EÁ 345 68 4 0 1 Dalvík
SVANUR EA 14 0 1 J Dalvfk
SÆÞÓREA 101 150 9 ö 1 1 Dalvík
—
Nafn Staarð AfU Flakur Sjóf. Lðndunarat.
| SÓLRÚNEA3SI 147 6 Sii 1 Odvflt . |
VÍD ÍR fRÁ ÚS TÍ ÉA 517 62 5 0 1 Dalvík
462 6 0 ÍÍi Akureyri 1
SJÖFNÞH142 199 18 0 1 Grenivík
( ÁLDEYÞH IIO 101 15 mm 1 Húeevík
ARÖNÞH 105 76 5 0 “ 2 Húsavík
[ 8JÖRG JÓNSDÓTTIR II ÞH 370 273 -g-l 0 .. ^ Húsavfk
BJÖRG JÓNSDÚTTIR ÞH 321 316 14 ! 0 1 Húsavík
! FANNEYÞH t30 ^ 1 22 4 0 2 Húsavík
GUÐRÚN BJÖRG 'þ'h 60 70 ' 5 0 2 Húsavík
! KRISTBJÖRG ÞH 44 187 18 Émm r Húsavfk |
GESTUR SU 159 138 5 0 1 Eskifjöröur
[ JÓN KJARTANSSON SU 111 776 41 o i Eskifjöröur
ÞÓRIR SF 77 126 5 ö 1 Eskifjöröur
SKELFISKBATAR 1
Nafn Stflorð Afll Sjóf. Lðndunarst.
FARSÆLL SH 30 . 101 12 2 Grundarfjöröur
HAUKABERG SH 20 104 11 2 Grundarfjörður
[ ARNAR SH 157 20 10 2 . Slykkiehólmur
GRETTIR SH 104 148 30 3“ Stykkishólmur
HRÖNN BA 336 41 18 z*. StykkiEhólmur
SVANUR SH 111 138 31 3 Stykkishólmur
ÁRSÆLL SH 68 103 29 StykkiBhóímur ]
ÞÓRSNES SH 108 163 28 3 Stykkishólmur
Athygliverð saga
veiða o g vinnslu
BOKMENNTIR
Sagnfræði
STEINN UNDIR
FRAMTÍÐAR HÖLL
Saga Utgerðarfélags Akureyringa
hf. 1945-1995 eftir Jón Hjaltason.
Útgefandi ÚA 1995. Ásprent prent-
aði. 226 síður, myndir, línurit, skrár.
Jón Hjaltason
AFLABRESTUR á síldinni leiðir
til vaxandi atvinnuleysis á Akur-
eyri. Ráðuneyti Ólafs Thórs vill
nota stríðsgróða þjóðarinnar til nyt-
samlegra hluta og ákveður að end-
urnýja togaraflota landsmanna. Á
Akureyri verður eldleg vakning og
bæjarbúar leggjast á
eitt um að stofna út-
gerðarfélag. Deilt er
um form þess; Sósíal-
istar og Kratar vilja
bæjarútgerð en Sjálf-
stæðismenn halda
fram hlutafélagsform-
inu. Framsóknarflokk-
urinn með Jakob Frí-
mansson í farabroddi
er tvístígandi, meiri-
hluti flokksmanna vill
þó ekki að bæjarsjóður
leggi fyrir sig útgerð.
Loks tekur Sjálfstæð-
ismaðurinn Helgi Páls-
son af skarið; markmið
hans er að beitá öllum
tiltækum ráðum til að
öflugt útgerðarfélag megi líta dags-
ins ljós á Akureyri. Ef öll sund lok-
ast er hann jafnvel reiðubúinn að
fallast á bæjarútgerð. En fyrst skal
reynt við hlutafélagsformið. Hinn
26. maí 1945 er félagið stofnað
með þátttöku Akureyrarbæjar og
fær nafnið Útgerðarfélag Akur-
eyringa hf.“
Kveðja frá Krlstjánl á Djúpalæk
Með þessum orðum hefst saga
Útgerðarfélags Akureyringa, sem
komin er út fyrir nokkru. Höfundur
sögu þessa merka útgerðarfélags
er Jón Hjaltason, sagnfræðingur á
Akureyri, og hefúr hann gefið sög-
unni nafnið Steinn undir framtíðar
höll. Nafnið er bein tilvitnun í ljóð
Kristjáns frá Djúpalæk, sem hann
orti við komu Kaldbaks, fyrsta tog-
ara ÚA til heimahafnar 17. maí
1947. Þar orti Kristján svo:
M ert stolt okkar allra og styrkur.
M er steinn undir framtíðar holl,
er skal rísa á fortíðar rústum
með reisn, sem hin íslenzku pll.
Ljóst er að orð Kristjáns frá
Djúpalæk hafa rætzt. Svo sannar-
lega hefur Kaldbakur á sínum tíma
verið einn af steinunum undir þeirri
framtíðarhöll sem Útgerðarfélag
Akuryringa er í dag, þó reist hafi
verið á rústum.
Fæðlngin erflð
Jón Hjaltason rekur í sögunni
aðdraganda stofnunar Útgerðarfé-
lags Akureyringa, sem var hrun í
síldveiðum og vaxandi atvinnuleysi
á Akureyri. Fæðing félagsins var
erfið, enda pólitískur ágreiningur
um félagsformið verulegur, fé var
af skornum skammti og ríkisstjóm-
in réð úthlutun togara, sem var
ýmsum skilyrðum háð. Bemska fé-
lagsins var einnig erfið, en miklar
sviptingar áttu sér stað í útgerð á
þessum árum. Byggt var á sigling-
um með aflann fyrst í stað, en síð-
an kom löndunarbann í Bretlandi
vegna landhelgisdeilna illa við út-
gerðina. En eins og venjulega leiða
erfiðleikar á einu sviði til lausnar á
öðram og löndunarbannið varð til
þess að ÚA hóf fiskvinnslu í landi,
sem síðan hefur verið hornsteinn
starfseminnar.
Hlutur bæjarlns stór
Enda þótt ÚA hafi alla tíð verið
hlutafélag, hefur hlutur Akureyrar-
bæjar í félaginu verið mikill eða
meira en helmingur og á mestu
efiðleikaárunum fór meira en allt
framkvæmdafé Akureyrarbæjar til
að styrkja rekstur ÚA. Þegar betur
gekk, fékk bærinn fé sitt til baka,
en lítið mun hafa verið um bein
afskipti bajaryfirvalda af rekstrin-
um. Kosturinn við það virðist ótví-
ræður, því óvíða getur sterkari út-
gerðarfélög á landinu og er Útgerð-
arfélagið stærsti atvinnuveitandinn
á Akureyri. Gæfu og gang félagsins
má því kannski bæði þakka afskipt-
um bæjaryfírvalda og afskiptaleysi,
eftir því, sem við átti hveiju sinni.
Llpurlega unnið
í bókinni er farið á lipurlegan
hátt yfír sögu Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Sögunni er skipt í megin-
kafla, sem brotnir eru
niður í smærri hluta,
en hveijum heildar-
kafla fylgir yfirlit yfir
helztu viðfangsefni
hans. Leitað er fanga
í fundargerðir og
blaðaskrif samtímans
og varpa þær heimildir
athyglisverðu ljósi á
gang mála og hugsun-
arhátt þann sem ríkti
fyrir nokkrum áratug-
um, en virðist þó anzi
fjarlægur. Auk þess
leitar höfundur í munn-
legar heimildir með við-
tölum við þá, sem tóku
þátt í að leggja steina
undir framtiðarhöllina.
Þá era í bókinni viðaukar um ÚA
og bæjarstjórn, SH eða ÍS, Starfs-
mannafélag ÚA, kynning á félaginu
í tölum, kafli um stjórnir ÚA, stjóm-
arformenn og framkvæmdastjóra
og yfirlit yfir togara félagsins frá
upphafi. Þá er skotið inn í frásögn-
ina ýmsum greinum um málefni ÚA
og atburðum er félagið varða.
Farið er nokkuð nákvæmlega í
gang mála, bæði í upphafi og er
fram á þetta ár dregur, en á síðari
áram ber hæst kapphlaup ÍS og SH
um sölu afurða ÚA, fjárfestingu í
Þýzkalandi, breytingar í útgerð með
tilkomu frystitogara og aukið
vinnsluvirði og hagræðingu í vinnslu
i landi.
Athyglisverð saga
Saga Útgerðarfélags Akur-
eyringa er athyglisverð fyrir margra
hluta sakir, því jafnframt er hún
gott dæmi um togaraútgerð frá ís-
landi síðustu 50 árin og þá þróun
og aðstæður, sem útgerðin hefur
búið við. Bókin er sett upp á að-
gengilegan hátt og í henni er að
fínna mikið af upplýsingum um
starfsemi ÚA um rekstraramhverfi
félagsins. Höfundur gætir hlutleysis
í frásögnum af pólitískum deilum
og lætur heimildir samtímans þar
ráða ferðinni hveiju sinni.
Sagan er skrifuð á mjög skömm-
um tíma, aðeins níu mánuðum, en
það virðist ekki koma niður á henni.
Lengri og nákvæmari frásögn hefði
líklega orðið tyrfin án þess að skila
lesandanum gleggri mynd, en styttri
hefði sagan hins vegar líklega orðið
snubbótt. Væntanlega hefur höf-
undur þurft að velja og hafna eins
og venja er, en það hlutverk virðist
honum hafa tekizt vel.
Miklll velviljl
í formála að sögunni segir Jón
Hjaltason svo: „Mér hefur þótt það
mjög skemmtileg reynzla að upplifa
þann mikla velvilja er Akureyringar
bera til ÚA. Allir þeir fjölmörgu sem
ég hef þurft að leita til vegna ritun-
arinnar hafa tekið mér af hlýhug.
Það er greinilegt að ÚA á marga
hauka í homi enda era þeir ófáir
sem hafa eytt heilli og hálfri starfs-
ævinni í þjónustu félagsins."
Að lestri sögunnar loknum er það
öllum ljóst að saga Útgerðarfélags
Akureyringa er afar samtvinnuð
sögu Akureyrarbæjar síðustu 50
árin og verður heldur ekkj annað
séð, að bæði bærinn og ÚA hafi
notið góðs af því.
Hjörtur Gíslason