Morgunblaðið - 03.11.1995, Page 1
100 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
251. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Friðarviðræður Bosníu, Króatíu og Serbíu í Ohio
Izetbegovic setur
stríðsglæpi á oddinn
Dayton, Ohio. Reuter.
ALIJA Izetbegovic, forseti Bosníu,
setti stríðsglæpi Serba á oddinn í
fyrstu lotu friðarviðræðna Bosníu,
Króatíu og Serbíu í bænum Dayton
í Ohio-ríki í Bandaríkjunum í gær
og hvatti til þess að þeir, sem
þegar hefðu verið bornir sökum,
yrðu afhentir yfirvöldum. Milli-
göngumenn í viðræðunum lögðu í
gær fram uppkast að fjórum skjöl-
um, sem ætlað er að verði kjarni
allsherjar friðarsamkomulags.
Nicholas Burns, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins,
greindi frá þessum drögum á fundi
með blaðamönnum, en ræddi ekki
innihald þeirra. „Izetbegovic
kvaðst vilja að [Slobodan] Mi-
losevic [forseti Serbíu] skuldbindi
sig til að sjá til þess að þessir
stríðsglæpir yrðu stöðvaðir," var
haft eftir ónefndum heimildar-
manni, sem sat fyrsta fundinn.
Uppkast að
friðaráætlun
lagt fram
Ekki friður án skuldbindingar
„Staða Bosníu var sú að Serbar
[í Serbíu og Bosníu] yrðu að virða
alþjóðlegar skyldur sínar með því
að framselja stríðsglæpamenn til
[stríðsglæpadómstólsins] Haag.
Kjarninn var sá að án slíkrar
skuldbindingar yrði ekkert friðar-
ferli,“ sagði heimildarmaðurinn.
Radovan Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, og Ratko Mladic,
yfirmaður hers Bosníu-Serba, sem
hvorir tveggju hafa verið sakaðir
um stríðsglæpi, taka hvorugur
þátt í friðarviðræðúnum í Dayton.
Milosevic semur fyrir Bosníu-
Serba.
Kröfur Izetbegovic eru í sam-
ræmi við ummæli Warren Chri-
stopher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, á miðvikudagskvöld.
Christopher sagði í viðtali við sjón-
varpsstöðina ABC að Atlantshafs-
bandalagið (NATO) myndi seint
samþykkja að framfylgja friðar-
sáttmála í Bosníu ef núverandi
leiðtogar Bosníu-Serba héldu
stöðu sinni.
Christopher ítrekaði að Banda-
ríkjamenn þrýstu nú á um að
Karadzic og Mladic yrði komið frá.
„Við getum ekki ætlast til þess
að sveitir NATO verði þarna ef
þessir einstaklingar e_ru við völd,“
sagði Christopher. „Ég held að í
framtíðinni eigi þeir ekkert erindi
í þessar umleitanir."
Bosníustjórn vill tryggja að
Karadzic og Mladic geti ekki tekið
þátt í kosningum komist á friður
og að þeir verði dregnir fyrir rétt.
Sprengjutilræðin í Frakklandi
Fimm sprengju-
smiðir gripnir
París. Reuter.
Sjálfsmorðs-
árásir á Gaza
TVEIR palestínskir tilræðismenn
biðu bana og ellefu ísraelar
særðust í sprengjuárásum á tvær
rútur á Gaza-svæðinu í gær.
Grunur leikur á að palestínska
hreyfingin „Heilagt stríð“ hafi
staðið fyrir tilræðinu til að hefna
drápsins á leiðtoga sinum, Fathi
Shqaqi, á Möltu fyrir viku.
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, sagði að ísraelska
stjórnin og Frelsissamtök Palest-
ínumanna (PLO) myndu halda
áfram friðarviðræðunum og
vinna saman í baráttunni gegn
hermdarverkum palestínskra
heittrúarmanna.
A myndinni kannar lögreglu-
maður brak úr bil annars Palest-
inumannanna og fjær er önnur
rútan.
Herinn
höfðar til
mæðra
London. Rcutcr.
BRESKI herinn hefur átt í æ
meiri erfiðleikum með að fá
menn til þess að ganga í herinn
og beinir hann nú sjónum sín-
um að mæðrum í auglýsinga-
herferð sem verið er að hleypa
af stokkunum í Bretlandi.
I auglýsingunum verða
mæðurnar hvattar til þess að
fá syni sína til að skrá sig í
herinn. Þá fá hermenn, sem
tekst að telja vini sína á að
skrá sig, bónusgreiðslur.
Kostnaður við herferðina
nemur um 1,8 milljörðum kr.
FRANSKA lögreglan gómaði fimm
meinta vígamenn múslima í aðgerð-
um í París og tveimur öðrum borg-
um í gær. Hald var lagt á tæki og
búnað til sprengjugerðar, að sögn
Jean-Louis Debre, innanríkisráð-
herra Frakklands.
Því var haldið fram af hálfu yfir-
valda, að þrír mannanna, sem hand-
teknir voru í Lille í norðurhluta
landsins, hefðu verið staðnir að
verki við sprengjusmíði og undir-
búning tilræðis á útimarkaði í borg-
inni á sunnudag. Þar er jafnan
margt um manninn. Hald var lagt
á gaskút, nagla og bolta en flestar
sprengnanna sem sprungið hafa í
átta tilræðum í Frakklandi frá í
júlí voru smíðaðar úr samskonar
efnum. Yfirvöld telja, að handtök-
urnar kunni að marka þáttaskil í
rannsókninni á sprengjutilræðunum
átta, sem.kostað þafa sjö manns
Iífið og slasað 170. íslömskum öfga-
mönnum hefur verið kennt um til-
ræðin.
Auk mannanna sem gripnir voru
í Lille var einn meintur tilræðismað-
ur tekinn í París og annar í Lyon.
Grunur leikur á að maðurinn sem
handtekinn var í París sé liðsmaður
alsírsku hryðjuverkasveitanna GIA
og hafi hann átt að gefa fyrirmæli
um tilræðið í Lille á sunnudag.
Tugir unglinga gengu berserks-
gang í útborg Laval í vesturhluta
Frakklands í fyrrakvöld í mótmæla-
skyni við að lögreglan skaut tii
bana 26 ára mann frá Marokkó.
Hafði hann verið handtekinn en var
særður til ólífis er hann reyndi að
flýja úr lögreglustöðinni, vopnaður
byssu sem honum tókst að ná af
lögreglumanni.
Magnus Malan
handtekinn
MAGNUS Malan, fyrrum varn-
armálaráðherra Suður-Afríku,
var handtekinn í borginni
Durban í gær ásamt tíu öðrum
fyrrum yfirmönnum suður-
afríska hersins, sakaður um
morð. Malan var varnarmála-
ráðherra á árunum 1980-1991,
en var lækkaður í tign er F.W.
de Klerk tók við völdum sem
forseti. Hann er ásamt hinum
yfirmönnunum m.a. sakaður
um aðild að því er 13 blökku-
menn voru myrtir í Natal-hér-
aði árið 1987.
Á myndinni má sjá Malan,
sem var látin laus gegn trygg-
ingu eftir að honum liöfðu ver-
ið kynnt ákæruatriðin, ræða við
blaðamenn.
Ekki er búist við að formleg
ákæra verði lögð fram fyrr en
í desember og ekki verður rétt-
að í málinu fyrr en á næsta ári.
■ Baráttan gegn /22