Morgunblaðið - 03.11.1995, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1995 31
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STUÐNINGUR
FRÆNDÞJÓÐA
ISLENDINGUM hafa á undanförnum dögum borist sam-
úðarkveðjur víða að vegna snjóflóðsins á Flateyri í síðustu
viku. Þjóðhöfðingjar og ríkisstjórnir fjölmargra ríkja hafa
vottað hlýhug sinn og vináttu og samhryggst íslensku þjóð-
inni vegna þessa válega atburðar.
Náttúruhamfarir þessar hafa vakið sérstaka athygli hjá
nánustu frændþjóðum okkar, Færeyingum og Norðmönnum.
Færeyingar hafa löngum sýnt íslendingum hlýhug þegar
hörmungar dynja yfir. Þegar eldgosið varð í Vestmannaeyjum
árið 1973 var efnt til mikillar söfnunar til styrktar Vest-
mannaeyingum. Það sama gerðist eftir snjóflóðið er féll á
Súðavík í janúar. Þá var efnt til landssöfnunar til styrktar
Súðvíkingum.
Enn á ný hafa Færeyingar brugðist við af stórhug og frænd-
semi. Á miðvikudagskvöld hófst þar mikil fjársöfnun til stuðn-
ings Flateyringum. Tónleikar voru haldnir á vegum Norræna
hússins og varð að halda þá í stærsta íþróttahúsi Þórshafnar
vegna mikils áhuga. Færeyska útvarpið var með sérstaka
dagskrá vegna söfnunarinnar allt miðvikudagskvöldið og
bankar, sparisjóðir og pósthús höfðu opið frameftir. Einstakl-
ingar, íþróttafélög og félagasamtök hafa tekið höndum sam-
an og staðið fyrir svæðisbundnum söfnunum.
Poul Mohr, ræðismaður Islands í Færeyjum, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að mikill áhugi sé á söfnuninni og að
margir einstaklingar gefi sem nemi þúsund dönskum krónum.
Stuðningur Færeyinga er einstakur. Þrátt fyrir þær miklu
efnahagslegu þrengingar, atvinnuleysi og fjöldagjaldþrot,
sem þessi vinaþjóð hefur mátt þola á undanförnum árum,
sýna þeir vinarhug sinn í verki með þessum eftirminnilega
hætti. Fyrir það ber að þakka.
í Noregi var á sunnudag haldin minningarguðsþjónusta í
Ósló sem á þriðja hundrað íslendinga og Norðmanna sótti.
Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Osló segja að eftir fréttir
af snjóflóðinu hafi farið að berast fyrirspurnir frá Norðmönn-
um um, hvernig hægt væri að styrkja þá sem eiga um sárt
að binda vegna flóðsins. Stöðugur straumur fólks var í sendi-
ráðið til að skrá nöfn sín í bók til að votta íslendingum sam-
úð. Þrátt fyrir að fiskveiðideila hafi varpað skugga á sam-
skipti ríkjanna sýna þessi viðbrögð að vinarbönd þjóðanna
eru sterkari en svo að þau rofni vegna þess.
Islendingar eru vinaþjóðum sínum þakklátir fyrir þennan
stuðning.
ANDLEGAR
B J ÖRGUN ARS VEITIR
VIÐBRÖGÐ þjóðarinnar við slysinu hörmulega á FJateyri
sýna vel hversu sterk ítök kristin trú á í hjörtum íslend-
inga. Margir hafa leitað styrks í trúnni nú þegar öll þjóðin
er harmi slegin. Bænastundir og minningarathafnir hafa
verið haldnar í tugum kirkna um allt land. Hinn stórfenglegi
viðburður á Ingólfstorgi síðastliðinn mánudag, er á þriðja tug
þúsunda safnaðist saman með kerti og kyndla til að sýna
Flateyringum hluttekningu sína, er áreiðanlega einhver fjöl-
mennasta bænastund í íslandssögunni.
Á stund örvilnunar spyrja þeir, sem hafa misst sína nán-
ustu, stundum hvort Guð hafi verið víðs fjarri þegar fólk í
blóma lífsins var hrifið burt. Slíkar spurningar eru eðlilegar.
Kristin trú kennir okkur hins vegar að Guð taki ekki erfiðleik-
ana frá okkur, heldur hjálpi okkur að sigrast á þeim. Guð
er nálægur og trúin á hann inniheldur fullvissuna um að
látnir lifa og að ástvinir finnast á ný. Það er þessi trú, sem
veitir huggun á erfiðum stundum. Dýrmætari eign en trúna
á hinn lifandi Guð getur einstaklingur - eða samfélag -
ekki átt.
Undanfarna daga hafa kirkjunnar þjónar verið í hlutverki
nokkurs konar andlegra björgunarsveita á meðal þeirra, sem
eiga um sárt að binda vegna náttúruhamfaranna á Vestfjörð-
um, en kirkjan veitir þa_r skipulagða áfallahjálp ásamt heil-
brigðisstarfsmönnum. „Ég finn afar sterkt fyrir því að mín
er þörf og það heldur mér gangandi. Hér er miki! þrá eftir
huggun,“ segir séra Haraldur Kristjánsson í viðtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hvað sem líður kirkjusókn árið um kring og umræðum
um stöðu kirkjunnar, sýna hin sterku trúarviðbrögð almenn-
ings að kirkjan vinnur gott starf. Almenningur er ekki í
Vafa um hvert beri að leita, þegar sorgin knýr dyra. Sterkir
í trúnni geta Isjendingar verið vissir um að lífið sigrar dauð-
ann í þessu harðbýla landi og að ljósið verður myrkrinu yfir-
sterkara.
ORYGGISHAGSMUNIR og
nálægðin við Rússland
réðu mestu um þá ákvörð-
un Finna að ganga í Evr-
ópusambandið (ESB). Mótuð hefur
verið ný utanríkis- og öryggismála-
stefna en umræður um hana hafa
farið furðu hljótt í samræmi við vilja
stjórnvalda. Sérfræðingar, sem Morg-
unblaðið ræddi við í höfuðborg Finn-
lands, Helsinki, eru hins vegar ekki
á einu máli um inntak hennar og
hvort unnt reynist að halda yfirlýstu
hlutleysi til streitu. Forstöðumaður
finnsku utanríkisstofnunarinnar segir
að Finnland sé ekki lengur hlutlaust
ríki og þekktur finnskur þingmaður
kveður stefnuna nýju fela í sér að
tekið verði upp eins náið samstarf og
unnt er við Atlantshafsbandalagið
(NATO).
Allt fram til þess að Sovétríkin liðu
undir lok 1991 og Kalda stríðinu lauk
fór mjög takmörkuð umræða um ör-
yggis- og utanríkismál fram í Finn-
landi. Þar réð mestu vináttusáttmáli
sá sem Finnar og Sovétmenn höfðu
gert með sér í Moskvu í apríl 1948.
Þessi samningur batt mjög hendur
Finna á sviði utanríkismála og tryggði
í raun að þeir þurftu ávallt að taka
tillit til grannans volduga í austri.
Fylgt var hlutleysisstefnu en Sovét-
menn reyndu ekki að dylja að þeir
töldu Finnland vera á áhrifasvæði
sínu.
Þessi skipan mála var 'á stundum
nefnd „finnlandisering" en sú nafn-
gift var Finnum lítt að skapi. Þannig
þurfti þáverandi utanríkisráðherra
Islands eitt sinn að biðja finnska ráða-
menn afsökunar á að hafa notað þetta
hugtak í opinberri orðræðu. Sérstaða
Finna var hins vegar ljós öllum þeim
sem að þessum málaflokki komu og
setti m.a. mark sitt á norrænt sam-
starf.
Staða Finnlands gjörbreyttist þeg-
ar Berlínarmúrinn hrundi haustið
1989. Árið eftir var ákveðið að end-
urskoða vináttusáttmálann og fór
svo að lokum að sumum ákvæðum
hans og friðarsáttmálans milli Rússa
og Finna var sagt upp einhliða. Þeg-
ar kommúnistastjórnin í Moskvu féll
og Sovétríkin liðu undir lok um ára-
mótin 1991-1992 varð ljóst að hefð-
bundin skipting áhrifasvæða í Evr-
ópu heyrði endanlega sögunni til.
Þessi skipan mála veitti Finnum svig-
rúm sem þeir hikuðu ekki við að
færa sér í nyt. Ákveðið var árið 1993
að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu. Gerð aðildarsamningsins
var lokið vorið 1994, þjóðaratkvæði
fór fram um haustið og Finnar urðu
fullgildir aðilar að ESB um síðustu
áramót. í raun fól þetta í sér ótrúleg
umskipti; segja má að „geo-pólitísk“
staða Finnlands hafi tekið grundvall-
ar breytingum á aðeins þremur mán-
uðum á síðasta ári.
Stefna stöðugleika og ábyrgðar
Kannanir hafa sýnt að í Finnlandi
efast menn síst um ágæti aðildar að
Evrópusambandinu. Á meðan Svíar
virðast vera með böggum hildar
vegna þessarar ákvörðunar og Norð-
menn forherðast í þeim ásetningi sín-
um að standa utan sambandsins virð-
ast Finnar þokkalega sáttir við hlut-
skipti sitt þó svo að hrun Sovétríkj-
anna hafi kallað gífurlegan efnahags-
vanda yfir landsmenn. Þar ræður án
nokkurs vafa mestu þær tryggingar
sem aðildin að ESB hefur haft í för
með sér og aukið mikilvægi Finnlands
í þessum hluta Evrópu sem fer saman
við samrunaþróunina í álfunni.
Þótt mótuð hafi verið ný öryggis-
stefna, sem kveður m.a. á __________
um að Finnar standi áfram
utan hernaðarbandalaga
og treysti á eigin varnir,
fer ekki á milli mála að því
fer fjarri að umræðum um
þessi mál sé lokið í Finnlandi. Menn
greinir á um hvað nýja stefnan feli í
sér og hvernig halda megi til skila
hlutleysisstefnu þegar óvissa ríkir um
framvindu öryggismála í Evrópu. Þá
þykir ýmsum hæpið að fullyrða að
Finnar fylgi hlutleysisstefnu i Ijósi
þess að landsmenn séu aðilar að ESB
þar sem boðað sé sífellt nánara sam-
ráð á sviði utánríkis- og öryggismála.
Af opinberri hálfu er lögð áhersla
á að aðild Finna að ESB stuðli að
stöðugleika í þessum heimshluta og
þetta sé unnt á grundvelli hlutleysis-
stefnunnar. Aðrir vísa til þeirrar hefð-
ar í Finnlandi að fram fari sem
FINNSKIR skíðahermenn á ferð í Vetrarstríðinu við Sovétmenn sem hófst með árás Rússa 30. nóvem-
ber 1939. Finnar eru ákaflega stoltir af framgöngu hermanna sinna í stríðinu við hersveitir einræðis-
herrans Jósefs Stalíns. Þrátt fyrir gífurlega yfirburði í mannafla og vígtólum urðu sovésku árásarsveit-
irnar fyrir miklum skakkaföllum. Herstjórn Finna, kænska þeirra og aðlögunarhæfni gerði þeim kleift
að halda uppi vörnum við mjög erfiðar aðstæður.
Fær hlut-
leysið
staðist?
Við hrun Sovétríkjanna lauk „fínnlandiseríng-
unni“ svonefndu. Á ótrúlega skömmum tíma
hefur staða Finna í alþjóðastjómmálum tekið
grundvallarbreytingum. Lars Lundsten og
Asgeir Sverrisson ræddu við fínnska sér-
fræðinga um ný viðhorf í utanríkis- og örygg-
Morgunblaðið/ÁSv
Tapani Vaahtoranta.
ismálum, samskiptin við Rússland, stækkun
NATO og hugsanlega aðild Finna.
Möguleikinn á
NATO-aðild
enn til staðar
minnstar umræður um utanríkis- og
öryggismál á opinberum vettvangi en
á bakvið tjöldin ríki allt annar veru-
leiki.
„Ríkisstjórnin kærir sig ekki um
slíka umræðu,“ segir Tapani Vaahtor-
anta, forstöðumaður finnsku utanrík-
isstofnunarinnar í Helsinki. „í Finn-
landi vísar hugtakið „öryggi" ávallt
til nálægðarinnar við Rússland," en
________ sameiginleg landamæri
ríkjanna eru um 1.300 kíló-
metrar. „Finnland er ekki
lengur hlutlaust ríki,“ segir
Vaahtoranta og bætir við
að Finnar hafi valið með
aðild að ESB að gerast þátttakendur
í samrunaþróuninni í Evrópu en
grundvöllur þessara umskipta hafi
verið öryggismálin. Aðildin að ESB
feli í sér afstöðu þó svo að Finnar
standi utan hernaðarbandalaga í anda
hlutleysisstefnunnar. Risto E.J.
Penttilá, doktor í alþjóðastjórnmálum
og þingmaður ílokks Ung-Finna, sem
var í fararbroddi þeirrar hreyfingar
sem taldi að segja bæri upp vináttu-
sáttmálanum við Sovétríkin, er sömu
skoðunar. „Það sem gerst hefur er
að mótuð hefur verið stefna á grund-
velli ESB-aðildar í stað vináttusamn-
ingsins. Oryggishagsmunir réðu því
að Finnar gerðust aðilar að ESB. Sú
stefna sem nú er fylgt grundvallast
á vestrænu gildismati. Þetta eru gríð-
arlega merkileg umskipti því þrátt
fyrir að reynt hafi verið að knýja við-
líka breytingar í gegn t.a.m. á árunum
1860-1870 hefur ávallt eitthvað af-
drifaríkt gerst i Rússlandi, sem orðið
hefur til þess að gera þessi áform að
engu.“
Trúverðugar varnir og hlutleysi
Jyrki Iivonen, öryggismálasérfræð-
ingur í finnska varnarmálaráðuneyt-
inu, leggur hins vegar áherslu á þá
tvo meginþætti sem móti öryggis-
málastefnu Finna; trúverðugar varnir
og þá óbifanlegu ákvörðun Finna að
standa utan allra hernaðarbandalaga.
Þegar efast er um varnargetu Finna
fullyrðirlivonen að landsmenn myndu
reynast fullfærir um að veija sig.
Hann tekur fram að alls gætu Finnar
kallað út 500.000 manna herlið og
að vopn séu til fyrir þennan liðsafla.
Þá getur hann þess að á næstunni
sé von á fyrstu F-18 Hornet-þotunum
sem Finnar hafa keypt af Bandaríkja-
mönnum. Kaupin á þessum vélum,
sem verða alls um 60, vöktu mikla
athygli á sínum tíma en á dögum
kalda stríðsins þurftu Finnar að feta
Risto Penttila.
Hægt Og
hljótt
Umræða um utanríkis- og varnar-
mál hefur löngum farið hljótt í
Finnlandi. Hið sama átti við er
umræða um aðild Finna að Evrópu-
sambandinu komst upp á horn-
skákina í finnskri þjóðmála-
umræðu. Látið var að því liggja
að efnahagsleg rök væru þyngst á
metunum en sérfræðingar þeir
sem Morgunblaðið ræddi við í Hels-
inki voru allir sammála um að ör-
yggissjónarmiðin hefðu ráðið úr-
slitum. Nú þegar „finnlandsering-
in“ heyrir sögunni til og nýr grunn-
ur hefur verið Iagður að samskipt-
unum við Rússa má ætla að umræð-
ur um eðli og inntak hlutleysis-
stefnunnar fari vaxandi.
Færeyingar gáfu 27
milljónir til Súðavíkur
Söfnun til Flat-
eyringa geng-
ur mjög vel
Frændur okkar Færeyingar brugðust
1 fyrstir allra við þegar hörmungamar
dundu yfír á Flateyri og hófu fjársöfnun. Þeir
____hafa safnað hátt í 50 milljónir á_
árínu til styrktar íslendingum
vandrataðan meðalveg í vopnakaup-
um sínum. Jafnvægis var gætt í hví-
vetna. Nú er fullyrt að horfíð hafí
verið frá þessari stefnu og vísað til
þess að Hornet-þoturnar muni notast
við bandarískan fjarskiptabúnað sem
er að fínna í gervihnöttum. Því er
haldið fram að me| þessu móti muni
Finnar taka upp varnarsamstarf við
Bandaríkjamenn, með óbeinum hætti
hið minnsta. Iivonen kannast ekki við
að Rússar hafí á nokkurn hátt lýst
yfír áhyggjum af þessum vopnakaup-
um. „Þvert á móti, þeir óskuðu okkur
til hamingju og sögðu að við hefðum
keypt bestu þoturnar sem völ var á.“
Samskiptin við Rússland
Þótt finnsk utanríkis- og öryggis-
mál hafí nú verið sett í evrópskt sam-
hengi og stjórnvöld telji það eitt helsta
hlutverk sitt að stuðla að stöðugleika
í þessum heimshluta fer ekki á milli
mála að framvinda mála í Rússlandi
mun áfram skipta sköpum fyrir
Finna. Og þeir búa yfir sérþekkingu
þegar þróunin austan landamæranna
er til umræðu.
Júríj Detjabín, sendiherra Rúss-
lands í Finnlandi, leggur ríka áherslu
á að „fínnlandiseringunni" sé lokið
og að ný viðmið móti nú samskipti
Rússa og Finna. Um réttmæti þess-
arar fullyrðingar sendiherrans efast
menn almennt ekki en þeir eru marg-
ir sem hafa áhyggjur af þróuninni í
Rússlandi. Bæði er það að kommún-
istar og þjóðernissinnar verða að
teljast líkiegir sigurvegarar þing-
kosninganna sem fram fara í desem-
ber og eins hitt að aukins kulda
gætir í samskiptum Vesturlanda og
Rússlands.
Tapani Vaahtoranta, forstöðumað-
ur finnsku utanríkisstofnunarinnar,
fullyrðir einfaldlega að grundvallar-
breyting hafi orðið á þessu sviði.
Rússar hafi komist að þeirri niður-
stöðu að ávinningurinn af því að
fylgja stefnu sem sé Vesturlöndum
þóknanleg nægi einfaldlega ekki.
„Þessari brúðkaupsferð er lokið,“ seg-
ir Vaahtoranta. Jyrki Iivonen segir
að Borís Jeltsín Rússlandsforseti eigi
við mikinn vanda að etja. „Það eru
engar Iíkur á nýja þingið styðji hann.
Það ríkir gífurleg óvissa í Rússlandi,"
segir Iivonen en kveðst jafnframt telja
að ekki beri að taka sérlega alvarlega
herskáar yfirlýsingar Rússa að und-
anförnu. Þær beri að setja í eðlilegt
samhengi við stjórnmálaástandið í
Rússlandi. Hann telur þó viturlegt að
slá varnagla: „Þegar Rússland er
annars vegar er ég aldrei þokkalega
sannfærður um nokkurn skapaðan
hlut.“
Eystrasaltsríkin og
afturhvarf Svía
Almenn samstaða ríkir um að hin
nýja stefna Finna standi og falli með
því að Rússar virði viðteknar reglur
alþjóðasamskipta. Þetta leiðir hugann
að samskiptum Eystrasaltsríkjanna
þriggja og Rússlands, sem einkennst
hafa af' nokkurri spennu frá því að
ríki þessi hlutu sjáífstæði eftir hrun
sovét-veldisins. Spenna á þessum
slóðum myndi augljóslega hafa mikil
áhrif í Finnlandi og kynni að reyna
á sjálfan grundvöll þeirrar nýju evr-
ópsku utanríkisstefnu sem boðuð hef-
ur verið.
Risto Penttilá telur að spenna í
samskiptum Rússa og Eystrasalts-
þjóðanna gæti bæði komið Finnum
og ESB í mikinn vanda. Hann
rökstyður þetta álit sitt með því að
vísa til þess að þróunin í sænskum
utanríkis- og öryggismálum hafí ver-
ið í þá átt að fjarlægjast
ESB eftir að jafnaðarmenn
komust þar á ný til valda.
Sú staða geti skapast að
afturhvarfið til hlutleysis-
stefnunnar fari ekki saman
við ESB-skuldbindingar Svía. Það
geti aftur komið Finnum illa. „Stefna
Olofs Palme [fyrrum forsætisráð-
herra] hefur verið endurvakin í Sví-
þjóð. Ef alvarlegt ástand skapaðist
í Eystrasaltsríkjunum eða Úkraínu
og Svíar ítrekuðu þá hlutleysisstefn-
una myndi staða Finnlands veikjast
mjög. Slíkt gæti reynst bein ógnun
við öryggi Finnlands. Finnar gætu
þannig einangrast og átt erfíðara
með að standast þrýsting frá Rúss-
um. Yrði þetta afstaða Svía gæti hún
svo aftur orðið til þess að veikja sjálft
Evrópusambandið.“
Jyrki Iivonen segir að ákveðið „her-
fræðilegt tómarúm" sé ríkjandi í evr-
ópskum öryggismálum þar sem
Eystrasaltsríkin séu annars vegar.
Hann kveðst skilja áhyggjur ráða-
manna í ríkjum þessum, sem öll óska
eftir aðild að Atlansthafsbandalaginu
(NATO), en búa ekki við öryggis-
tryggingu af neinum toga. Hann
kveður ríki þessi búa yfir „CNN-vörn-
um“ og er þá átt við að iandsmenn
gætu veitt mótspyrnu í nokkurn veg-
inn jafn langan tíma og það tæki að
koma tökuliði frá CNN-sjónvarps-
stöðinni á átakasvæðið.
Finnskir sérfræðingar eru almennt
þeirrar hyggju að hyggilegt sé fyrir
Eystrasaltsríkin að fara að fordæmi
Finna þegar samskiptin við Rússland
eru annars vegar. Ríkin þrjú eigi að
forðast landamæradeilur við Rússa
og freista þess að auka samskipti sín
við Evrópusambandið. Raunar má það
teljast sérlega athyglisvert hversu
almenn sú skoðun er að Evrópusam-
bandið sé einna best fallið til þess
að tryggja stöðugleika í álfunni aust-
anverðri.
Stækkun NATO
Umræður um stækkun NATO til
austurs valda sýnilega nokkrum
áhyggjum í Finnlandi og greinilegt
er að þar vonast menn almennt til
að Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra endurskoði afstöðu sína í þessu
efni. Bandaríkjamenn hafa raunar
dregið nokkuð í land að undanförnu
eftir að hafa heitið Póllandi, Tékkn-
eska lýðveldinu og Ungverjalandi því
að þessi ríki muni fá aðild að varnar-
samtökum vestrænna lýðræðisríkja
(óvíst er um stöðu Slóvakíu, sem
ávallt var þó talin með á upphafsstig-
um þessarar umræðu). Skiptar skoð-
anir eru um ágæti þessarar hugmynd-
ar í aðildarríkjunum og Rússar hafa
þráfaldlega lýst yfír því að þeir muni
aldrei sætta sig við stækkun NATO
til austurs. Ýmsir eru þeirra hyggju
að stækkun myndi reynast alvarleg
ógnun við sjálfstæði Eystrasaltsríkj-
anna og jafnvel einnig Úkraínu.
í Finnlandi telja margir að hlutleys-
isstefnan myndi einfaldlega hrynja til
grunna ef nágrannaríki eins og Pói-
land fengi aðild að NATO. Risto
Penttilá er þessu ekki sammála og
kveðst ekki fá séð að þessi rökfærsla
standist. „Ef aukið öryggi ríkjanna í
Mið-Evrópu er Finnum óhagstætt þá
erum við svo sannarlega í slæmri
stöðu,“ segir Penttilá. Hann telur að
hér sé á ferðinni úrelt röksemd úr
Kalda stríðinu. Hann viðurkennir hins
vegar að ekki sé unnt að tryggja ör-
yggi þessara ríkja án þess að styggja
Rússa. Hann kveðst sammála þeirri
skoðun að aðild Eystrasaltsríkjanna
þriggja að NATO sé óhugsandi. Þess-
um ríkjum beri að einbeita sér að
ESB.
Tapani Vaahtoranta segir Finna
telja að stækkun NATO verði frestað.
Hann segir greiniiegt að Rússar hafí
þungar áhyggjur af því að bandalag-
ið komi til með að ná tii landamæra
þeirra og telur að sú skipan mála
þjónaði ekki hagsmunum Finna.
Aðild að NATO?
„Verði Atlansthafsbandalagið
stækkað til austurs tel ég trúlegt að
Finnar taki skref í þá sömu átt,“ seg-
ir Vaahtoranta og bætir við að hann
telji að þar yrði ekki um jafn stórt og
þýðingarmikið skref að ræða og aðild
Finnlands að ESB. „Möguleikinn á að
Finnar gerist aðilar að NATO er sum
sé enn til staðar.“
Risto Penttilá segir að stækkun
NATO til austurs sé vissulega vanda-
söm en það eigi ekki nauð-
synlega við þegar til lengri
tíma sé litið. Hann dregur
ekki dul á að hann telur
fulla aðild Finna að NATO
og Vestur-Evrópusamband-
inu, varnarbandalagi aðildarríkja Evr-
ópusambandsins, fýsilegan kost í
framtíðinni. Oi’yggismálaumræðan
hafí enn ekki náð fullum þroska og
geti því enn verið furðuleg í Pinn-
landi. Hann rekur dæmi þess úr þing-
umræðum, getur þess að menn hafi
gerst sekir um nánast ótrúlegt þekk-
ingarleysi á þessu sviði og vitnað til
gamalla goða úr finnskri stjórnmála-
sögu. Sumir kjósi einfaldlega að leiða
hjá sér staðreyndir málsins: „Sú stefna
sem nú hefur verið mótuð felur í sér
að Finnar taka upp eins náið samstarf
við NATO og unnt er án þess að ganga
í bandalagið," segir Risto Penttilá.
RÚMAR 17 milljónir ís-
lenskra króna höfðu síð-
degis á miðvikudag safn-
ast í söfnun þeirri sem
efnt var til í Færeyjum vegna nátt-
úruhamfaranna á Flateyri. Færey-
ingar gáfu tæpar 27 milljónir ís-
lenskra króna til leikskólabyggingar
í Súðavík liðinn vetur. Hafnar eru
framkvæmdir við leikskólann í tengi-
byggingu fyrir leikskóla- og skóla-
starf við grunnskóla Súðavíkur og
er ætlunin að ljúka verkinu fyrir
næsta haust.
Tæpar 13 milljónir íslenskar voru
lagðar inn á söfnunarreikninga í
færeyskum bönkum og sparisjóðum
en fólki gafst kostur á að hringja í
stofnanir þessar og leggja fram fé.
Tæpar 5 milljónir íslenskra króna til
viðbótar komu í formi annarra fram-
laga.
Á tónleikum sem haldnir voru í
Þórshöfn söfnuðust 1,3 milljónir ís-
lenskra króna og á bingói einu sem
efnt var til á Suðurey komu rúmlega
400.000 krónur í kassann. Frá fyrir-
tækinu „Línuskip" og áhöfnum
þeirra 19 skipa
sem það rekur
bárust tæplega
1,2 milljónir
króna.
í Súðavíkur-
söfnuninni í
Færeyjum í jan-
úar söfnuðust
alls um 27
milljónir ís-
lenskra króna en
ljóst virðist að
söfnunin til
styrktar Flateyr-
ingum mun gefa
af sér meira fé.
íþróttafélög og
fjölmörg samtök
og fyrirtæki hafa
boðað að safnað
verði fé með
ýmsum hætti
næstu daga.
Ákveðið hefur
verið að GÍ frá
Götu, sem eru
Færeyjameistar-
ar í knattspyrnu
karla, mæti liðinu sem varð í öðru
sæti í sumar, HB frá Þórshöfn, og
mun allur ágóði af leiknum renna
til Flateyringa. Þannig mun endan-
leg upphæð trúlega ekki liggja fyrir
fyrr en í næstu viku.
Færeyska landsstjórnin gaf tæp-
lega 6 milljónir til styrktar fórn-
arlömbum náttúruhamfaranna á
Súðavík og liún hyggst einnig láta
fé af hendi rakna til Flateyringa.
Upphæðin liggur hins vegar ekki
fyrir.
Á tónleikunum í Þórshöfn í fyrra-
kvöld söng karlakór þijú íslensk lög
þ. á m. „Island ögrum skorið" sem
kórinn söng með Karlakór Reykja-
víkur á tónleikum í Þórshöfn fýrr á
þessu ári.
Þegar flutningi laganna var lokið
ríkti mínútulöng þögn í íþróttasaln-
um er viðstaddir minntust þeirra sem
fórust á Flateyri. Þar sem tónleikarn-
ir voru sendir út í beinni útsendingu
í útvarpi má því segja að þögnin
hafi ríkt um allar Færeyjar frá því
kl. 00.20-00.21 aðfaranótt miðviku-
dagsins.
Útvarpið í Færeyjum var með við- 1
amikla dagskrá þar sem m.a. var
sent út frá tónleikunum og birt við-
töl við fólk sem býr á Flateyri og í
Reykjavík. Einkum var lögð áhersla
á viðtöl við Færeyinga sem hafa
sérstök tengsl við Island og þá sér-
staklega Flateyri. Gamli togarajaxl-
inn Napoleon Johannesen greindi
m.a. frá því að hann hefði oftlega
leitað vars í Önundarfirði í vondum
veðrum.
Mikill samhugur einkenndi söfn-
unina í Færeyjum og var greinilegt
að öllum þótti vænt um að geta kom-
ið þurfandi bræðrum sínum í vestri
til aðstoðar.
Nýr leikskóli tilbúinn
næsta haust
Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóri
í Súðavík, sagði að Færeyingar
hefðu gefíð tæp-
lega 27 milljónir
til byggingar
nýs leikskóla í
Súðavík liðinn
vetur. Fyrri leik-
skóli fór undir
snjófióðið í
Súðavík í janúar
sl. Nýi leikskól-
inn er hluti af
tengibyggingu
við grunnskól-
ann. Tengibygg-
ingin telur alls
514 fm og er
gert ráð fyrir að
leikskóli verði
starfræktur á
112 fm. Leik-
skólahlutinn
verður fjár-
magnaður með
söfnunarfénu
frá Færeyjum og
fer afgangurinn
og 6,6 milljóna
króna gjöf frá
Lions-hreyfíng-
unni til annars hluta verkefnisins.
Heildarkostnaður vegna tengibygg-
ingarinnar er 54 milljónir króna. í
henni og skólabyggingunni er ætl-
unin að hefja svokallað heiltækt
skólastarf næsta haust. Hugmyndin
um heiltækt skólastarf nær til náins
samstarfs við kennslu á öllum skóla-
stigum, frá leikskóla upp í unglinga-
stig, undir sama þaki.
x-Agúst sagði að Súðvíkingar væru
mjög þakklátir fyrir gjöfina frá
Færeyingum og ekki hefði verið
hægt að reisa tengibygginguna án
hennar. Hann sagði að tengibygg-
ingin yrði fokheld um jól og skóla-
og leikskólastarf myndi hefjast í
henni næsta haust. Nú eru 40 börn
í grunnskóla Súðavíkur og 8 til 12
börn í leikskólanum. Leikskólinn er
starfræktur í einni skólastofu í
grunnskólanum í vetur.
Ríki þessi búa
yfir „CIMI\I-
vörnum"