Morgunblaðið - 05.11.1995, Side 1

Morgunblaðið - 05.11.1995, Side 1
SÍDRIFINN FORD MONDEO MEÐ SPÓL VÖRN - CONCEPT1 í NÝJUM B ÚNINGI - ÍSLENSK SMÍÐIÁ VÖRUGÁMI - ÓDÝRARIFJÖLNOTABÍLAR í VÆNDUM Sölumenn bifreiöaumboðanna & annast útvegun lánsins á 15 mínútum Glitnir hf’ DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA 1995 SJOVADlluAlMENNAR Legacy lækk ar í verði INGVAR Helgason hf., um- boðsaðiii Subaru, hefur lækkað verðið á Subaru Legacy. Stallbakurinn bein- skipti lækkar úr 2.158.000 kr. í 2.038.000 kr. og langbakurinn beinskipti lækkar úr 2.254.000 kr. í 2.134.000. Þessi lækkun er tilkomin vegna hagstæðra samninga við Subaru. Sala hefur gengið vel á Legacy á þessu ári. Fyrstu níu mánuði ársins voru nýskráðir 148 Subaru Legacy bílar. Legacy er fjórhjóladrifinn og bein- skipti bíllinn með háu og lágu drifí sem ekki er að finna í öðrum fjórhjóladrifn- um langbökum. Hann er með rafdrifnar rúður, samlæsingu og 2,0 1 vél, 115 hestafla. ■ TRABANT bílar þóttu ekki merkilegir í eina tíð. Nú keppast efnameiri Þjóð- verjar um að eignast slíka gripi og hlaða þá alls kyns aukaútbúnaði eða lengja þá upp í límúsínustærð, eins og Þjóðverjinn Hans Erpel sem á bílinn hér að ofan. Trabantklúbbar skjóta upp kollinum TRABANT klúbbar hafa sprottið upp eins og gorkúlur í Þýskalandi eftir að Vestur- og Austur-Þýskaland sameinuð- ust 1989. í fyrstu voru klúbbarnir einskorðaðir við Vestur- Þýskaland þar sem efnameiri Þjóðveijar keyptu Tra- banta og skreyttu þá með alls kyns útbúnaði og græjum. Núna eru klúbbarnir einnig í fyrrum austantjaldslöndunum. Trabantinn hér að ofan er af límúsínugerð og er í eigu Hans Erpels frá Berlín sem varði öllum helgum heils árs til þess að smíða þessa bleiku 20 feta löngu límúsínu. Erpel skipti út 26 hestafla Trabant vélinni og setti í staðinn í bílinn VW vél. Límúsínan vegur 1.540 kg en venjulegur Trabbi var aðeins um 700 kg. 68 manns eru í Trabant klúbbnum í Berlín en llklega er límúsína Erpels sérstæð- asti bíllinn í klúbbnum. ■ Honda Passport til íslands Bíllinn er afar kraftmikill og hefur þétta og góða vinnslu. Hann er þó ekki búinn til fjallaferða því hann er á lágum dekkjum og óupp- hækkaður og dálítið upp á banda- ríska mátann. Mælaborðið ér frem- ur hefðbundið og ekki mikið í það lagt en rýmið að innan er afar gott. Passport er spennandi val- kostur því auðvelt á að vera hækka bílinn upp og setja undir hann nýja barða, ef mönnum sýnist svo. Bíllinn er til sölu og kostar um þijár milljónir króna. Geir Gunnars- son forstjóri segir að framhald geti orðið á innflutningi á notuðum bílum af Honda gerð. „Hvers vegna skyldum við ekki fleyta ijómann ofan af þessum markaði í stað þess að láta aðra um það? Við selj- um hvort eð er notaða bíla. Við getum þó boðið upp á þjónustu fyrir þessa bíla hérna,“ sagði Geir. SAGT var frá nýjum jeppa Honda á þessum síðum fyrir nokkru sem frumkynntur var í Japan fyrir skemmstu. Fyrsti jeppinn af Honda gerð, smíðaður af Isuzu í Banda- ríkjunum, er hins vegar kominn til landsins en hann er í eigu Honda á íslandi. Honda Passport heitir hann og er af árgerð 1994. Kraftmikill bíll Honda Passport er með háu og lágu drifl og 2,2 lítra, V6 vél sem skilar 174 hestöflum. Hann er rúm- góður að innan og með rafdrifnum rúðum, samlæsingum, skriðstilli, sóllúgu, loftkælingu, þjófavamar- kerfí, vökvastýri og flestu öðru sem prýðir vel búna bfla. IIHM OGVIS IÁNAR ÞÉR Með Bílaláni VÍS geturþú keypt nýjan eða notaðan bíl á staðgœiðsluverði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.