Morgunblaðið - 07.11.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LAMDSMANNA
*
B
1995
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER
BLAD
Le Havre
hefur áhuga
á Þorvaldi
FRANSKA1. deildarliðið Le Havre hefur sýnt
Þorvaldi Örlygssyni, landsliðsmanni í knatt-
spyrnu hjá Stoke City í Englandi, áhuga um
nokkurt skeið. Eins og Morgunblaðið greindi frá
á laugardag hefur enska 2. deildarliðið Black-
pool einnig haft áhuga á að kaupá hann en Þor-
valdur hefur sem kunnugt er ekki leikið með
aðalliði Stoke síðustu vikumar. Hann er afar
ósáttur við Lou Macari, framkvæmdastjóra liðs-
ins og hefur ekki viljað endumýja samning við
félagið. Le Havre er sem stendur í 14. sæti af
20 liðum í Frakklandi. Þorvaldur vildi lítið sem
ekkert segja í gær; sagðist ætla að bíða og sjá
til eftir landsleikinn í Búdapest á laugardaginn.
KNATTSPYRNA
Helgi aftur
í hópinn
Hörður Helgason, þjálfari ung-
mennalandsliðsins, hefur
kallað á þijá leikmenn, sem leika
með erlendum liðum, til liðs við sig
fyrir leik gegn Ungveijum á Fer-
encvaros-leikvellinum í Búdapest á
föstudaginn. Það eru þeir Helgi
Sigurðsson og Sigurvin Ólafsson,
sem leika með Stuttgart, og Eiður
Smári Guðjohnsen, Eindhoven.
Hann valdi einnig tvo aðra — Þórð
Guðjónsson, Bochum, og Lárus
Orra Sigurðsson, Stoke — en þeir
komast ekki. Eftirtaldir leikinenn
éru í hópnum:
Markverðir: Atli Knútsson, KR,
og Kjartan Sturluson, Fylki.
Varnarmenn: Hákon Sverrisson,
Breiðabliki, Brynjar Gunnarsson,
KR, Pétur Marteinsson, Fram,
Gunnlaugur Jónsson, ÍA.
Miðvallarleikmenn: Auðun Helga-
son, FH, Hermann Hreiðarsson,
ÍBV, Sigurvin Ólafsson, Stuttgart,
Sigurbjörn Hreiðarsson, Val, Eiður
Smári Guðjohnsen, Eindhoven,
Trygg'/i Guðmundsson, ÍBV.
Framheijar: Guðmundur Bene-
diktsson, KR, Helgi Sigurðsson,
Stuttgart, Steingrímur Jóhannes-
son, IBV og Sigþór Júlíusson, Val.
KNATTSPYRNA
Atli ráðinn þjálfari
ungmennalandsliðsins
ðr . _
§\ tli Eðvaldsson tekur við stjórn
9^ ungmennalandsliðsins (leik-
(, manna tuttugu og eins árs og yngri)
j eftir Evrópuleikinn gegn Ungverj-
\\, um ytra á föstudag. Samningur
(!: hans við KSÍ gildir til loka keppnis-
tímabilsins 1997.
Miklar breytingar hafa verið
7' gerðar á stjórn liðsins undanfarin
. ár. Hörður Helgason hefur séð um
( , þjálfun þess í ár og áður var Gúst-
af Adolf Björnsson með það, en
hann byrjaði sem aðstoðarmaður
Ásgeirs Elíassonar og tók við liðinu
af honum.
„Það er gott að fá þig í þennan
hóp,“ sagði Eggert Magnússon, for-
5, maður KSÍ, þegar hann greindi frá
landsliðsþjálfaramálum í gær. Atli
er þjálfari 1. deildar liðs-ÍBV og
heldur því áfram en Eggert sagði
að ástæða hefði þótt til að láta á
það reyna að ráða þjálfara sem
væri jafnframt í öðru starfi og hefði
þetta verið gert með samþykki ÍBV.
„Við höfum ekki gert þetta áður
en við viljum sjá liðið standa sig
betur og stjórnin er óánægð með
árangur þess undanfarin ár. Það
er svekkjandi að vera með stóran
og góðan hóp en geta ekki haldið
honum saman. Það þarf að breyta
hugarfarinu hjá þessum ungu
strákum í þá veru að þeir séu stolt-
ir af því að spila fyrir íslands hönd
og hafi metnað til þess. Atli hefur
spilað flesta landsleiki íslenskra
leikmanna og við vonum að hann
komi því inn í þessa ungu stráka
hvað það skiptir miklu máli fyrir
land og þjóð að spila fyrir ísland.“
Atli sagði að gaman yrði að tak-
ast á við nýtt verkefni. „Þetta er
spennandi og krefjandi," sagði hann
við Morgunblaðið. „18 ára liðið hef-
ur verið að ná góðum árangri en
það er eins.og við höfum staðið í
stað með piltana og greinilegt að
það þarf að taka þennan aldursflokk
fastari tökum.“ Björgvin Eyjólfsson
verður aðstoðarmaður Atla hjá ÍBV.
Guðni Kjartansson hefur verið
þjálfari U-18 ára landsliðs pilta
undanfarin fjögur ár og hefur verið
gengið frá því að hann verði með
liðið fram yfir úrslitakeppni Evrópu-
mótsins á íslandi 1997. Liðið hefur
náð góðum árangri undir stjórn
Guðna og komist þrisvar í 16 liða
úrslit á síðustu fjórum árum. Liðið
hafði betur_ gegn Hvíta-Rússlandi
og Norður-írlandi í riðlakeppninni
fyrir skömmu og mætir írum heima
og að heiman í vor i keppni um sæti
í átta liða úrslitakeppninni í Frakk-
landi næsta sumar.
Þar með hafa verið ráðnir þjálfar-
ar í öll landslið KSÍ nema U-16 ára
lið stúlkna. Logi Ólafsson tekur við
a-liði karla eftir leikinn gegn Ung-
veijum um helgina, Kristinn Björns-
son er ráðinn þjálfari a-liðs kvenna
út tímabilið á næsta ári og Gústaf
Adolf Björnsson verður þjálfari
U-16 ára liðs drengja til loka tíma-
bilsins 1997.
Morgunblaðið/RAX
Heims-
met ekki
staðfest
AUÐUNN Jónsson úr Kópavogi
lyfti 930 kílóum samanlagt á
bikarmóti KRAFT um helgina,
en hann keppir í 110 kg flokki.
Auðunn er 23 ára og enn í ung-
lingaflokki. Árangur hans um
helgina er 20 kg yfir heims-
meti unglinga í þyngdarflokkn-
um, en hann fær heimsmet þó
ekki staðfest þar sem engir al-
þjóðlegir dómarar voru á mót-
inu. Auðunn átti best 902,5 kg
í samanlögðu fyrir mótið. Á
myndinni á ofan er Auðunn í
hnébeygju, þar sem hann lyfti
mest 360,5 kg, hann lyfti 221
kg í bekkpressu og 350 kg í
réttstöðulyftu.
■ Auðunn / B2
■ Úrslit / B6
KÖRFUKIMATTLEIKUR: SJÖUIMDISIGUR KEFLVÍKINGA í RÖD í ÚRVALSDEILDINNI / B4