Morgunblaðið - 08.11.1995, Síða 3
MORGUNBIAÐIÐ
VIÐTAL
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 B 3
ÍSLENSK skip hafa um
árabil verið send í slipp
til Póllands til breytinga
og viðgerða. íslendingar
hafa að mestu leyti
skipt við sömu skipa-
smíðastöðina þar.
Marta Einarsdóttir,
heimsótti stöðina, sem
heitir Nauta og stendur
við Eystrasalt í borginni
Gdynia, og kynnti sér
starfsemi hennar.
Viðskipti íslendinga skipta tölu-
verðu máli fyrir stöðina og aldrei
meira en árið 1995 þegar í]ögur
stór verkefni munu nema um þriðj-
ungi veltu hennar. Þetta eru breyt-
ingar á Beiti frá Síldarvinnslunni
hf., Engey frá Granda hf., Hugin
frá Hugin hf. og Venusi frá Venusi
hf. Það er meira en að segja það
að breyta skipi. T.d. að taka risa-
stóran, undinn stálskrokk, saga í
tvennt og bæta stóru stykki inn í,
þannig að sjóhelt sé. Þetta eru ófá
handtök og krefst sérhæfðra tækja
og verkkunnáttu. Slíkar breytingar
eru því eðlilega mjög kostnaðars-
amar og nú er svo komið að þær
eru að mestu unnar erlendis, þar
sem þær eru mun ódýrari en á ís-
landi.
Hafa endurbyggt
um 30 íslensk sklp
Nauta skipasmíðastöðin í Póllandi
var stofnuð árið 1926 og hefur átt
umboðsaðila á íslandi í 18 ár, Véla-
söluna. A þeim tíma hefur stöðin
endurbyggt nálægt 30 íslensk skip
auk smærri viðgerða. Svæðið er
afgirt og verðir við hliðið og enginn
leikur að komast innfyrir. Maður
verður að geta gert grein fyrir erind-
inu og vísað á tengiliði, helst á
pólsku. Þegar inn er komið er ekki
laust við að maður finni fyrir smæð
sinni við að ganga milli risastórra
krana og skipaskrokka. í Nauta eru
sjö bryggjur, þijár flotkvíar og
skipalyfta. Stærsta flotkvíin getur
tekið allt að 135
metra löng skip
og skipalyftan
lyftir skipum sem
eru allt að 60
metra há og vega
upp að 600 tonn-
um.
Metár
Andrzej Pietki-
ewicz er sölustjóri
Nauta og hefur
umsjón með við-
skiptum við ís-
lendinga. Hann
segir þessi við-
skipti mjög þýð-
ingarmikil fyrir
stöðina og að þau
fari vaxandi.
„Árið í ár er met-
ár og nú þegar
höfum við gert
tvo samninga iyr-
ir árið 1996 og
ég á von á að
minnsta kosti 5-6
verkefnum árið
eftir. Við vorum að setja nýtt kæli-
kerfi í Beiti NK sem gerir það kleift
að halda Jiski ferskum í stað þess
að frysta hann. Beitir er fyrsti ís-
lenski togarinn sem er breytt á
þennan hátt. Þar sem þetta eykur
söluverðmæti aflans umtalsvert á
ég von á að önnur útgerðarfyrirtæki
fylgi í kjölfarið. Hér verður einnig
unnin önnur nýjung þegar nýr fram-
' partur verður smíðaður á Örninn
KE og ég er þegar farinn að fá
fyrirspurnir um fleiri breytingar af
þessu tagi.“
SÉÐ yfir hluta Nauta- skipasmíðastöðvarinnar
„Þeir ganga aldrei
á bak orða sinna“
Andrzej segir að af þeim þremur
skipum, sem mest var breytt á þessu
ári; Beiti, Engeynni og Venusi, fari
engin viðgerðanna undir 95 milljón-
ir króna. „Það tekur því ekki að
senda skipin til okkar ef viðgerðin
er undir 19 milljónum.”
Fullbókað til ársins 1999
Mörg iðnaðarfyrirtæki í Póllandi
reyndust illsamkeppnishæf við
framleiðslu V-Evrópu þegar stjórn
stjórn kommúnista var felld fyrir
sex árum. Tækjakostur þeirra var
úreltur, starfsfólk of margt og
skipulagning ekki góð. Auk þess
sem þau voru lítt búin búnaði sem
stuðlaði að umhverfisvernd en eins
og aðrir hafa Pólveijar vaknað til
vitundar um nauðsyn þess að draga
úr mengun. Andrzej segir þó að
Nauta standi mjög vel. „Við erum
Marta Eiriarsdóttir
ANDRZEJ Pietkiewicz sölustjóri Nauta- skipasmiðastöðvarinnar
á skrifstofu siniii.
fullbókuð til ársins 1999 og önnum
ekki pöntunum sem við fáum í fram-
leiðslu á stáli. Við erum að leita að
sérhæfðu fólki í vinnu og gætum
ráðið 500 manns á stundinni.”
Launin miklu lægri
Andrzej er mikið í mun að það
komi fram að pólskar skipasmíða-
stöðvar eigi ekki 3Ök á versnandi
afkomu íslenskra skipasmíðastöðva.
„Ég veit að því hefur verið haidið
fram á Islandi að við höfum eyði-
lagt skipasmíðaiðnaðinn þar með
ójöfnum samkeppnisgrundvelli, þar
sem skipasmíðaiðn sé niðurgreidd
hér af stjórnvöldum. En þetta er
ekki rétt. Pólland er eina ríkið í
Evrópu, þar sem skipasmíðaiðnaður
er ekki niðurgreiddur um 10-20%.
Ástæðan fyrir því að • við getum
boðið lægri verð er einfaldlega sú
að laun eru enn miklu lægri í Pól-
landi en í V-Evrópu og þau munu
verða það áfram í einhvern tíma.”
Laun hafa tífaldast
Fyrst pólskar skipasmíðastöðvar
hafa getað boðið lágt verð sökum
lítils launakostnaðar vaknar sú
spuning hvaða áhrif launahækkanir
í Pólandi muni hafa á samkeppnis-
stöðu þeirra við önnur erlend ríki.
Laun hafa hækkað mikið á síðustu
árum, þar sem mikil þensla hefur
verið í þjóðfélaginu. í Nauta hafa
þau hækkað úr
um tvö þúsund
krónum á mán-
uði í tuttugu til
þijátíu og tvö
þúsund. Þrátt
fyrir að laun hafi
meira en tífald-
ast og að kostn-
aður á stáli og
öðru efni til við-
gerða hafi hækk-
að og kosti nú
svipað og í Vest-
ur-Evrópu segir
Andrzej að tekist
hafi að halda
verðum óbreytt-
um með hagræð-
ingu í rekstri.
Starfsmönnum
hafi verið fækk-
að úr 3000 í
1500 en þrátt
fyrir það hafi af-
köstin aukist.
Markmiðið sé að
starfsmönnum
verði fækkað enn
frekar. og starfsemi stöðvarinnar í
meira mæli færð til sérhæfðra und-
irverktaka.
íslendlngar heidarleglr
Andrzej lætur vel af Islending-
um: „Hingað til hafa allir samning-
ar staðist frá beggja hendi og öll
viðskipti farið vel. Islendingar eru
mjög heiðarlegir og sanngjarnir í
viðskiptum. Þeir ganga aldrei á bak
orða sinna, jafnvel þótt þeir gætu
hagnast af því. Þetta er mjög mikil-
vægt.” Andrzej hefur 12 sinnum
komið til íslands til að stunda
samningaviðræður og undrrita
samninga fyrir hönd Nauta. „Ég
held að ég hafi komið til næstum
allra bæja og þorpa á íslandi og í
fyrra var farið með okkur í ferð
yfir hálendið. ísland er mjög fallegt
land.“ Þegar hann er spurður hvað
honum finnist um þjóðina segir
hann að við séum mjög viðkunnan-
legt fólk. Finnst honum við mjög
ólík Pólveijum? „Nei, þið eruð ekk-
ert ósvipuð okkur en ólík hinum
Norðurlandaþjóðunum. Mér finnst
t.d. Norðmenn miklu kaldari í við-
móti.
Skrifaðu nú eitthvað fallegt um
okkur og ekki segja að við drekkum
mikinn vodka,“ segir Andrzej að
lokum.
og sölutregða
á hörpudiski
• „ÞAÐ hefur gengið jafnvel
og undanfarín ár að ná í
hörpudiskinn,“ segir Eliert
Kristinsson, framkvæmda-
sljóri Sigurðar Agústssonar
hf. „Við erum búnir að taka
á móti 800 tonnum það sem
af er kvótaárínu og höfum
selt eitthvað af þvi, en mark-
aðurinn er dræmur."
Eliert segir að það hafi
orðið verðlækkun á mörkuð-
um frá því sem hafi verið í
fyrra sem nemi 12 prósent-
um. „Auk þess er sölu-
tregða," segir hann. „Fram-
boð hefur aukist annars stað-
ar frá, aðallega af kínversk-
um eldishörpudiski."
Allt virðist benda til að ís-
lendingum verði gert að
skipta um nafn á hörpudisk-
inum á franska markaðinum
og kaila Iiann annað en áður
frá næstu áramótum, að sögn
Ellerts. „Frakkar telja að
þessi hörpudiskur sé ekki af
sama stofni og þeir hafi veitt
sjálfir. Okkur er því gert að
hætta að kalla hann Coquilles
Saint-Jacques og eigum að
nefna hann Pétongles. Óvíst
er um áhrifín, en líkur benda
til að það geti haft verðlækk-
un I för með sér á næsta ári.“
Útflutningur
Poly-Ice hlera
eykst stöðugt
• ÚTFLUTNINGUR J. Hin-
rikssonar á Poly-lce toghler-
um eykst stöðugt og bætast
sífellt ný löns í hóp viðskipta-
landa fyrirtækisins. 1 frétta- *
bréfi fyrirtækisins kemur
fram, að jöfn og góð sala sé
á toghlerum til Noregs, eink-
um stærri skipa, sem stunda
veiðar í Barentshafi, við
Gærnland og á Flæmska hatt-
inum. Þá nota öll úthafsveiði-
skip Færeyinga, sem stunda
veiðar í Barentshafi, hlera
frá fyrirtækinu. Loks var
nýlega sendur fullur gámur
af hlerum til Nýja Sjálands
og Ástralíu og annar til
Namibiu og Suður-Afríku.
SÍINGATÍÍBOÐ
áh ©uS)[LQWéllLD[]T%
Fjárfesting sem borgar sig!
íðum takmarkað
)gn af Kempomat
MIG/MAG
Juvélum 320 amp
íð sérstökum
ilætti.
lin er mjög
afkastamikil
og einföld í notkun.
Verð með afslætti
kr 149.950.-
stg. m/vsk. *
Kemppi rafsuðuvélar
mæta kröfum
meistaranna!
NethyI 2 Ártúnsholti S: 587 9100
Grænt númer: 803-6891
‘Grunngengi FIM nr.246
Nauta-skipasmíðastöðin í Gdynia í Póllandi vinnur margt verkið fyrir íslendinga
Verðlækkun
Au»GLVSHGASTPF«l