Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 1
rAdstefna
Nýsköpun í ríkis-
rekstri/3
LÍFEYRlSSfÓÐlR
Traust fjárhags-
staöa/6
FINNLANP
Finnska hátækni-
ævintýriö/7
V
VEDSKDTIAIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 9. NOVEMBER 1995
BLAÐ
B
Lánasýsla
Tilboðum að verðmæti 469 millj-
ónir króna var tekið í útboði á
verðtryggðum spariskírteinum
ríkissjóðs í gær. Meðalávöxtun
samþykktra tilboða í verðtryggð
spariskírteini til 20 ára var 5,49%,
til 10 ára 5,54% og í tíu ára ár-
greiðsluskírteini 5,57% Alls bárust
43 gild tilboð í spariskírteini að
fjárhæð 789 milljónir að söluverð-
mæti.
Uppfinning
Islenska fyrirtækið JHM-Altech
hefur selt „tindaréttingarvél“ til
Portland Aluminium Ltd. álvers-
ins í Astralíu. Vélin er uppfinning
Jóns Hjaltalíns Magnússonar,
verkfræðings, sem hefur unnið að
þróun hennar í samvinnu við ís-
Ienska álfélagið o.fl. Með vélinni
er hægt að rétta bogna skautgaf-
faltinda, sem notaðir eru við ál-
framleiðslu.
Gæðastjórnun
Alþjóðlegi gæðadagurinn er í dag
og af þvi tilefni verða Hvatningar-
verðlaun Gæðastjórnunarfélags »
Islands veitt í þriðja sinn. Verð-
launin verða veitt þeim fyrirtækj-
um í einkarekstri og opinberri
þjónustu, sem hafa verið öðrum
hvatning á sviði gæðamála.
SÖLUGENGIDOLLARS
GENGI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
frá 1. október 1994 (söiugengoý
DOLLARI -5,89% breyting
frá áramótum
/ O 68,75
W^^^^64C70
1M4 Ou 1995
'o'n'd JFMAMJJÁSON
Dönsk KRÓNA Kr
—---------------------13,0
1994
— 12,5
1L796 i2,0
11.5
11,0
10.5
+5,08% breyting
frá áramótum
1995
ONDJFMAMJJÁSON
10,0
“ 9,5
9,0
STERLINGSPUND -4,62% breyting /Q
frá áramótum
_ 10
^%#^100
yo
1994 1995
0 N D JFMAMJJÁSON
Þýskt MARK
1994
Kr.
50
48
46
45,71
44
+3,74% breyting
frá áramótum
42
40
38
1995
-i—i—i—1—i—r-ri—i-
-i- 36
ONDJ FMAMJ JASON
Japanskt YEN Kr
0,6792 íf
-7,02% breyting °Q6j'
1994 frá áramótum 1995
0 N D JFMAMJJÁSON’
Franskur FRANKI
+3,69% breyting
frá áramótum
Kr.
15
14
12.786
12
1994 1995 .......
ON ' djfV a'm'TVFS 0 N
11
Fulltrúum ráðuneyta kynnt
rekstrarform Kastrup-flugvallar
Þrýstá um
einkíi væðingu
Leifsstöðvar
ÍSLENSKUR markaður og Flug-
leiðir buðu, fulltrúum fjármála- og
samgönguráðuneytis til Kaup-
mannahafnar síðastliðinn þriðjudag
til að kynna þeim þann árangur sem
hlotist hefur af einkavæðingu Kas-
trup- flugvallar. Að sögn Loga Úlf-
arssonar, framkvæmdastjóra Is-
lensks markaðar, verður í framhald-
inu unnið að frekari útfærslu á
hugmyndum um einkavæðingu
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, þær
kynntar stjórnvöldum, og þrýst
frekar á um að mál þetta verði tek-
ið til alvarlegrar skoðunar. Logi
segir þó að fram til þessa hafi hug-
myndir um einkavæðingu ekki hlot-
ið hljómgrunn meðal stjórnvalda.
Að sögn Loga er hugmyndin að
Leifsstöð verði einkavædd í tveimur
þrepum. í fyrstu atrennu yrði flug-
stöðinni breytt í hlutafélag í eigu
ríkisins, en í framhaldinu mætti
athuga með sölu hennar til einkaað-
ila. Fyrst um sinn yrði flugvöllurinn
sjálfur þó alveg undanskilinn þess-
um breytingum. Logi útilokar ekki
að þessi vinna nú, geti leitt til ein-
hvers konar tilboðs í rekstur flug-
stöðvarinnar.
Vantar alla markaðssetningu
Utanríkisráðherra greindi nýlega
frá því að nauðsynlegt væri að auka
tekjur af flugstöðinni um 150 millj-
ónir á ári til þess að hægt væri að
greiða upp skuldir hennar innan 25
ára eins og ráðgert væri. Hann
sagði að hugsanlega mætti ná þess-
um tekjum inn með því að hækka
innritunargjöld og leigu.
Logi segir ýmsar aðrar leiðir
færar en hækkun gjalda, til dæmis
vanti alveg markvisst uppbygging-
arstarf á Keflavíkurflugvelli. Hins
vegar hafi stjórnvöld verið treg til
að taka upp nýjar aðferðir.
„Frá því að flugstöðin var opnuð
hefur aldrei verið unnið markvisst
að markaðssetningu Keflavíkur-
flugvallar," segir Logi „Sú aukning
sem verið hefur á umferð erlendra
flugfélaga hefur fyrst og fremsjt
verið fyrir atbeina Flugleiða. Á
öðrum flugvöllum í kringum okkur
er unnið markvisst að þessum'
málum og t.d. á Kastrup sjáum við
að flugumferð um völlinn hefur
aukist um 10% á hverju ári undanf-
arin ár.“
Helsta fyrirstaðan fyrir bættum
rekstri flugstöðvarinnar er, að mati
Loga, sá ósveigjanleiki sem rikis-
reksturinn hafi í för með sér. Lítið
svigrúm sé til samninga við erlend
flugfélög um millilendingar hér, þar
sem lendingargjöldin séu ekki
samningsatriði. Áuk þess sé erfitt
að koma einföldustu breytingum á
rekstrarumhverfinu í gegnum kerf-
ið. „Lausnin felst því í einkavæð-
ingu,“ sagði Logi.
I'S
[b
ISLENSKI
LÍFEYRISSJÓÐ URINN
fyrirhyggja til framtíðar
íslenski lifeyrissjóðurinn hf, séreignasjóður í untsjá Landsbréfa,
hefur sýnt bestu ávöxtun séreignasjóða sl. fjögur ár.
Allir sem vilja skapa sér og sínum meira öryggi
í framtíðinni eiga erindi í sjóðinn.
SUDURLANDSBRA U T 24, 108 REYKJAVÍK, S
Ráðgjafar Landsbréfa hf.
og umboðsmcnn í
Landsbanka Islands
um allt land
veita allar frckari upplýsingar
§
, LANDSBREF HF.
588 9200, BRÉFASÍMI 588 8598