Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
JH« rgsntiMðfó
■ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER
BLAÐ
íslendingar
í Davis Cup
ÍSLENSKU landsliðin í tennis verða bæði með í
heimsmeistarakeppninni á næsta ári, og verður það
í fyrsta skipti sem Islendingar taka þátt. Um er að
ræða svokallaða Davis bikarkeppninni, Davis Cup,
hjá körlunum og Federation Cup í kvennaflokki.
Þegar hefur verið dregið í riðla í karlakeppninni,
og mæta íslendingar andstæðingum sínum í Istanb-
ul í Tyrklandi 20. til 26. maí í vor. Þar etja þeir
kappi við landslið Azerbajans, Eþíópíu, Litháen, Sam
Marínó, Súdans og Senegals. Davis-keppninni lýkur
ætíð síðla árs. Úrslitaleikur hennar í ár nálgast ein-
mitt, en það eru Bandaríkjamann og Rússar sem
mætast að þessu sinni.
Ekki er enn ljóst hvaða þjóðir verða mótheijar
íslenska kvennalandsliðsins í Federation keppninni.
Guðni og
samherjar
áfram
GUÐNI Bergsson og samheij-
ar gerðu góða ferð til Leicest-
er I gærkvðldi og unnu 3:2 í
aukaleik 3. umferðar ensku
deildarbikarkeppninnar.
John McGinlay, Hollending-
urinn Richard Sneekes og
júgóslavneski landsliðsmað-
urinn Sasa Curcic gerðu
mðrk Bolton.
Guðni heldur til liðs við Is-
lenska landsliðshópinn i
Búdapest í dag vegna Evr-
ópuleiks Ungverja og Islend-
inga á laugardag.
Ólafur ráð-
inn þjálfari
Skal agríms
ÓLAFUR Jóhannsson, fyrrum
þjálfari FH-inga I knatt-
spyrnu, var í gær ráðinn þjálf-
ari 2. deildarliðs Skallagríms
úr Borgamesi. Ólafur er ekki
ókunnugurí herbúðum
Skallagríms þvi hann þjálfaði
liðið í þrjú ár, frá 1983 til
1985. Jakob Þór Skúlason,
formaður knattspyrnudeildar
Skallagríms, sagðist mjög
ánægður með að hafa fengið
Ólaf til starfa og væntir mik-
ils af störfum hans. Borgnes-
ingar enduðu i fimmta sæti
2. deildar síðasta keppnis-
tímabil.
Markvörður
greip heitt
straujám
CARLOS Busquets, mark-
vörður spænska knattspyrnu-
liðsins Barcelona, brást skjótt
við heima þjá sér í vikunni
þegar heitt straqjárn féll nið-
ur af borði og stefndi á fjög-
urra ára gamlan soninn.
Markvörðurinn fleygði sér
þegar og greip straujárnið á
lofti, bjargaði þannig syninum
frá slysi en hlaut annars stigs
brunasár á báðum höndum og
leikur sennilega ekki með liði
sínu gegn Tenerife í spænsku
deildinni um helgina.
Handknattleikssamband Rúss-
lands sendi Handknattleiks-
sambandi íslands harðorð mótmæli
í gær vegna ummæla sem Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfari, lét hafa
eftir sér í íjölmiðlum í kjölfar Evr-
ópuleiks Rússlands og íslands í
Moskvu sl. sunnudag. Ólafur B.
Schram, formaður HSÍ, svaraði
Rússum að bragði, skýrði mála-
vexti, afsakaði óviðeigandi ummæli
og sagði við Morgunblaðið, eftir að
hafa rætt málið í síma við varafor-
mann rússneska sambandsins, að
hann teldi að það væri leyst og
hefði engin frekari eftirköst.
ísland vann Rússland 20:18 í
Kaplakrika en eftir að hafa tapað
22:14 í Moskvu var ljóst að til að
komast í úrslitakeppnina yrði ísland
að fá þijú eða fjögur stig gegn
Póllandi og Rússland að sigra í
báðum leikjunum gegn Rúmenum.
Um möguleikana á að svo færi
sagði Þorbjöm eftirfarandi í sam-
tali við Ríkisútvarpið:
„Ja, það er náttúrlega spurning
hvað Rússamir gera á móti Rúmen-
íu. Ég held einmitt að fyrri leikur-
inn sé hérna í Moskvu og ef þeir
vinna þá tiltölulega auðveldíega,
segjum þó ekki væri nema þijú
mörk, þá gætu þeir hugsanlega
hjálpað sínum fyrrverandi komm-
únistafrændum niður í Rúmeníu og
leyft þeim að vinna sig með tveim-
ur og það dugar okkur ekki. Við
höngum inni ennþá en maður er
mest hræddur um þetta, að það sé
eitthvað makk í gangi.“
í bréfi rússneska sambandsins
kom fram mikil óánægja með þessi
og önnur ámóta ummæli þjálfarans.
„Þetta er dónaskapur sem við áttum
aldrei von á frá íslensku vinum
okkar, sérstaklega í ljósi þeirrar
vináttu sem hefur skapast okkar á
milli undanfarna mánuði." Rússar
segjast vera í uppnámi vegna þess
að starfsmenn HSI trúi að Rússland
tapaði Evrópuleik viljandi. Slíkt
væri svindl sem væri það versta sem
gæti gerst í íþróttum. „HSÍ hefur
misboðið okkur. Rússland hefur
aldrei tapað leik á þennan hátt og
kemur aldrei til með að gera það.
Og til áréttingar: Margir af starfs-
Rússlands væntir þess að þjálfarinn
biðji persónulega afsökunar þegar
við hittumst í úrslitakeppninni á
Spáni 1996.“
Óheppileg ummmæli
Ólafur B. Schram, formaður
HSÍ, sagðist hafa svarað bréfinu
og síðan hringt í Wolfgang Giitsch-
ow, varaformann Handknattleiks-
sambands Rússlands.
„Þegar ég gerði honum grein
fyrir því á hvaða tíma þetta var
sagt, það er að segja strax að leik
loknum, þá hafði hann allt annan
skilning á þessu,“ sagði Ólafur við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég
skrifaði bréf til rússneska sam-
bandsins fyrir hönd HSÍ og gerði
grein fyrir undir hvaða kringum-
stæðum þetta hefði verið sagt. Ég
sagði jafnframt frá því að þau
ummæli sem Maximov hefði látið
hafa eftir sér eftir leikinn í Kapla-
krika hefðu ekki verið dæmd á ann-
an veg en að þau hefðu verið sögð
í hita leiksins. Þetta væru allt sam-
an íþróttamenn, það færi enginn út
í leik og enginn héldi að annar
færi út í leik nema til að sigra og
við hefðum þá trú að Rússamir
myndu gera það á móti Rúmenum.
Þeir gáfu til kynna að samvinnan
á milli sambandanna væri komin í
gott horf og ég óskaði eftir því að
þetta myndi ekki varpa skugga á
þá góðu samvinnu sem hefði verið
á milli íslands og Rússlands. Ég
bað jafnframt fyrir kveðju til starfs-
manna, þjálfara og leikmanna rúss-
neska liðsins frá íslenska samband-
inu og vonaði að þeir afsökuðu þessi
óviðeigandi ummæli - við virtum
rússneskt íþróttafólk eftir sem áð-
ur. Síðan talaði ég við varaformann-
inn, það var fullur skilningur á
þessu og þetta hefur engin eftir-
köst.“
Ekkert meira aö segja
Þorbjörn Jensson vildi ekki tjá
sig um málið þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann vegna bréfs
Rússa. Hann sagði að bréfið hefði
verið sent formanni HSÍ, sem hefði
svarað því, og við það væri engu
að bæta.
Stuðandi ummæli
ÞORBJÖRN Jensson kom Handknattlelkssambandl Rússlands
úr jafnvægl með því að láta hafa eftlr sér að hann óttaðist
að samlð yrðl um úrsllt í lelkjum Rússlands og Rúmeníu.
mönnum okkar og leikmönnum
hafa aldrei verið kommúnistar."
Ennfremur segir í bréfinu að
Þorbjörn verði að hugsa hvað hánn
segir. Hann hafi sært heiður rúss-
neska sambandsins, starfsmanna
þess og leikmanna sem lifa og vinna
fyrir handboltann í fyllstu ein-
.lægni. Vissulega sé rússneska sam-
bandið eitt af þeim fátækari í Evr-
ópu og eigi ekki mikla peninga.
Hins vegar sé heiðarleiki til staðar
og það ætlast til sama heiðarleika
þjá öllum liðum í riðlinum með
Rússum.
I bréfínu er HSI fullvissað um
það að Rússar fari að settum regl-
um í leikjunum tveimur gegn Rúm-
enum og ástæðulaust sé að kvarta
til Handknattleikssambands Evr-
ópu. Bestu óskir fylgja íslendingum
í komandi leikjum gegn Pólveijum
og þess er getið að þeir séu mun
mikilvægari fyrir íslenska þjálfar-
ann en að tala um fáránlegar sögu-
sagnir. „Handknattleikssamband
HANDKNATTLEIKUR
Rússar sendu HSI
harðorð mótmæli
KNATTSPYRNA: NEWCASTLE MED ÁTTA STIGA FORYSTU í ENGLANDI / D4