Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 5
4 D FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Vona að reynsl-
an komi að
gagni í Eyjum
Hlynur Stefánsson, miðvallar-
spilari landsliðsins, sem hef-
ur leikið með Örebro í Svíþjóð í
fjögur ár, er á heimleið og hefur
ákveðið að ganga
Sigmunduró. til liðs við Eyja-
Steinarsson menn á ný.
skrifar frá „Það er spenn-
Ungverjalandi að koma heim
nú, þegar mikill uppgangur er í
knattspyrnunni í Eyjum. Mér hef-
ur liðið vel í Svíþjóð í þau fjögur
ár sem ég hef verið þar, en mér
finnst nú vera sú stund runnin
upp, að réttur tími sé kominn til
að snúa heim á ný og þá sérstak-
lega þegar við hjónin vorum byijuð
að finna fyrir heimþrá í sumar.
Það kom ekkert annað lið til greina
en ÍBV, enda væri það ekki að
koma heim, ef við værum að fara
annað en til Eyja,“ sagði Hlynur
Stefánsson í stuttu spjalli við
Morgunblaðið.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að Hlynur á eftir
að styrkja hið unga lið Eyjamanna
mikið og hans hlutverk verður að
stjórna miðvallarspili liðsins. „Ég
vona að ég eigi eftir að styrkja
liðið. Ég hef öðlast mikla reynslu
á undanförnum árum sem leik-
maður með Örebro og landsliðinu
og ég er orðinn 31 árs þannig að
ég tel að reynslan mín komi að
gagni. Það er hugur i Eyjamönn-
um og Atli Eðvaldsson virðist vera
að gera góða hluti með liðið okk-
ar. Við erum með þijá leikmenn í
ungmannaliðinu sem er hér í Ung-
veijalandi og aðra sem eru við
þröskuldinn, þannig að verkefnið
er spennandi. Ég ætla ekki að láta
mitt eftir liggja - ég er það mik-
ill Vestmanneyingur að það kom
aldrei a.nnað til greina en að leika
með ÍBV. Vestmannaeyjar eru
minn heimavöllur."
HLYNUR Stefánsson lelkur með Eyjamönnum næsta sumar.
vinna á ferðaþreytunni
Boð frá
Þýska-
landi
ÞEGAR Þjóðverjar fréttu að
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum
imdir 18 ára aldri - undir
stjórn Guðna Kjartanssonar,
væri búið að tryggja sér rétt
til að ieika gegn Irum í 16-
)iða úrslitum Evrópukeppn-
innar og væri að fara til Ital-
iu, til að leika þar leik, 28.
mars, buðu þeir íslenska lið-
inu til Þýskalands. Þeir vilja
ieika á móti íslendingum 27.
mars. Með þessu boði voru
skilaboð feitletruð - „TIL
HAMINGJU!“
Knattspyrnusamband fs-
lands þakkaði kveðjurnar frá
Þýskalandi og þáði boð Þjóð-
veija.
Tveir Eyja-
menn til
Frankfurt
TVEIR leikmenn ungmanna-
liðsins sem leika gegn Ung-
verjum á morgun, föstudag -
Eyjamennimir Tryggvi Guð-
mundsson sóknarleikmaður
og varnarmaðurinn Her-
mann Hreiðarsson, fara til
Frankfurt frá Búdapest til
að æfa með Frankfurt-liðinu
í tvær vikur. „Það er spenn-
andi að fá þetta tækif æri til
að æfa yfir veturinn, en við
vitum ekki hvort við fáum
að æfa með aðalliði Frank-
furt eða varaliðinu. Aðal-
ástæðan er að fá að vera
með,“ sagði Tryggvi, sem á
við smávægileg meiðsli að
stríða og gat ekki tekið þátt
í æfingu í gær.
Verðum að
ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari, og Hörður Helgason,
þjálfari ungmennaliðsins, voru
sammála um að æfingar liðsins
í gær í Búdapest hafi verið til
að vinna á ferðaþreytu leik-
manna, sem höfðu verið á ferð
og flugi í einn og hálfan sólar-
hring áður en komið var til
Búdapest kl. 13 í gær. Flestir
leikmenn liðanna lögðu upp í
Newcastle vann meistara Black-
burn 1:0 í gærkvöldi og er
með átta stiga forystu í ensku úr-
valsdeildinni, en Manchester Un-
ited, sem er i öðru sæti, á leik til
góða.
Robert Iæe gerði eina mark leiks-
ins á 13. mínútu og þar með hefur
Neweastle sigrað í 11 af fyrstu 13
leikjum liðsins í deildinni að þessu
sinni. Markið var dæmigert fyrir
Newcastle; boltinn gekk á milli fjög-
urra manna áður en Warren Barton
sá Peter Beardsley sem sendi þegar
á Lee utarlega í vitateignum. Lee
lék á Tim Sherwood og skaut síðan
með vinstri í stöng og inn. Fimmta
mark hans á tímabilinu.
Skömmu síðar fékk David Batty
tækifæri til að jafna en Darren
Peacock bjargaði á línu. Norðmað-
urinn Lars Bohinen fékk ámóta
marktækifæri en það fór á sömu
leið.
Bryan Robson, yfirþjálfari Middl-
esbrough, lék með liði sínu í fyrsta
sinn í sex mánuði og fagnaði 2:0
sigri gegn Crystal Palace í aukaleik
í 3. umferð deildarbikarkeppninnar.
Craig Hignett og Norðmaðurinn
Jan Aage Fjortoft skoruðu en Bras-
ilíumaðurinn Juninho lék ekki með
- er í Brasilíu vegna æfingalands-
leiks.
Middlesbrough tekur á móti
ferðina frá íslandi klukkan 6
aðfararnótt þriðjudags, gistu
eina nótt í Amsterdam og voru
ræstir kl. 6 í gærmorgun áður
en haldið var af stað til Búda-
pest. „Þetta er það sem gerir
ferðir með landsliðinu þreyt-
andi,“ sagði aldursforsetinn
Arnór Guðjohnsen.
Ásgeir sagði í gærkvöldi, að
það væri fyrst seinni hlutann í
Birmingham í fjórðu umferð en
Birmingham vann Tranmere 3:1
eftir framlengingu á útivelli.
Norski landsliðsmaðurinn Sigurd
Ruslifeldt skoraði í byijun seinni
hálfleiks en John Aldridge jafnaði
fyrir heimamenn á síðustu mínútu.
Ken Charlery gerði síðan tvö mörk
HANDKNATTLEIKS-, knatt-
spyrnu- og körfuknattleiksdeildir
UMF Selfoss hafa tekið höndum
saman og halda styrktarleika í
íþróttahúsinu á staðnum í kvöld kl.
20, þar sem boðið verður á fjöl-
breytta íþróttadagskrá. Allur að-
gangseyrir rennur í söfnunina Sam-
hugur í verki sem stofnað var til í
þeim tilgangi að styrkja þá sem
eiga um sárt að binda eftir snjóflóð-
ið á Flateyri.
Fyrst mætast handkanttleikslið
Selfoss og FH, þá verður troðslu-
dag sem leikmenn væru búnir
að ná sér eftir ferðalagið. „Leik-
urinn gegn Ungveijum á laugar-
dag verður erfiður. Það er langt
um liðið síðan strákarnir, sem
leika heima, luku keppnistíma-
bilinu þannig að leikæfing er
ekki fyrir hendi. Það þýðir ekk-
ert að vera að væla, það er okk-
ar hlutverk að klára þetta dæmi
hér í Búdapest."
í framlengingunni.
Graham Taylor, yfirþjálfari Wol-
ves, sá lið sitt vinna Charlton 2:1
eftir framlengingu á útivelli. Mark
Atkins gerði sigurmarkið þegar átta
mínútur voru eftir af framlenging-
unni og tryggði Wolves leik gegn
Coventry í næstu umferð.
keppni i körfuknattleik þar sem
mæta m.a. Bandaríkjamennirnir
sem leika með liði Selfoss og Þór
úr Þorlákshöfn og loks mætast í
knattspyrnuleik lið Selfyssinga og
lið fyrrverandi landsliðsmanna, en
í því eru m.a. Lárus Guðmundsson,
Pétur Pétursson, Sævar Jónsson,
Guðmundur Steinsson og Þorgrím-
ur Þráinsson. Dagskráin hefst kl.
20. Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir
fullorðan en 200 kr. fyrir 13 ára
og yngri.
IMewcastle er með
átta stiga forystu
HANDKNATTLEIKUR
Styrktarleikur á Sel-
fossi fyrir Flateyringa
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 D 5
KÖRFUKIMATTLEIKUR
ÚRSLIT
Fj. leikja U J T Mörk Stig
Staða mála í úrvalsdeildinni skoðuð þegar 66 leikjum af 192 er lokið
Mikill munur
á riðlunum
ffandknattleikur
1. deild kvenna:
Fylkir - Haukar............18:23
írina var markahæst hjá Fylki með 9 mörk.
Harpa Melsted gerði 6 fyrir Hauka og þær
Hulda Bjamadóttir 5, Judit Estergal 5,
Auður Hermannsdóttir 3, og Thelma Björ^..
Árnadóttir 3.
FH-ÍBV........................15:19
Valur - Fram..................24:23
Kristjana Jónsdóttir gerði 11 mörk fyrir
Val, Gerður Jóhannsdóttir kom næst með
6 mörk. Guðríður Guðjónsdóttir setti 9
mörk fyrir Fram og Þórunn Garðarsdóttir
5 mörk. Staðan í hálfleik var 11:11.
HAUKAR 8 6 0 2 206: 141 12
STJARNAN 6 6 0 0 158: 93 12
fBV 6 4 0 2 128: 114 8
FRAM 5 3 1 1 110: 90 7
KR 6 3 0 3 141: 135 6
FH 6 3 0 3 113: 130 6
VÍKINGUR 5 1 1 3 97: 103 3
VALUR 7 1 0 6 143: 172 2
FYLKIR 5 1 0 4 86: 116 2
fBA 4 0 0 4 49: 137 0
2. deild karla:
HK-Fylkis....................... 32:24
Fjölnir - Breiðablik..............28:32
Þór Ak. - Fram....................19:20
Fj. leikja U J r Mörk Stig
HK 6 6 0 0 197: 116 12
FRAM 6 5 0 1 164: 121 10
ÞÓR 6 4 0 2 162: 135 8
FYLKIR 6 4 0 2 167: 143 8
BREIÐABLIK 7 4 0 3 185: 180 8
ÍH 5 2 0 3 95: 112 4
Bl 5 1 0 4 130: 165 2
FJÖLNIR 5 0 0 5 98: 141 0
ÁRMANN 6 0 0 6 125: 210 0
Knattspyrna
England
Úrvalsdeild:
Newcastle - Blackburn..........1:0.
(Robert Iæe 13.). 36.470.
Deildarkeppnin, 3. umferð:
Charlton - Wolves...................1:2
■Leikur var framlengdur en staðan var 1:1
að loknum venjulegum leiktíma.
Leicester - Bolton..................2:3
Middlesbrough - Crystal Palace......2:0
Tranmere - Birmingham...............1:3
■Leikurinn var framlengdur.
Skotland
Úrvalsdeild:
Aberdeen — Falkirk..................3:1
Celtic — Raith.......................0:0
Kilmarnock — Rangers.................0:2
Staða efstu liða:
12 7 4 1 18:8 25
Hibemian 11 6 4 1 20:13 22
Aberdeen 12 6 1 5 21:16 19
Raith 12 4 2 6 15:21 14
Holland
Deildarkeppnin
Waalwjjk - Ajax....................0:3
(Kluivert 23., 55. Litmanen 89. - vsp.).
6.500.
Körfuknattleikur
NBA-úrslit
Leikir aðfaranótt þriðjudags:
Charlotte - Detroti...........108:96
Dell Curry 27, Larry Johnson 22, Glen Rice
17 - Otis Thorpe 24, Terry Mills 20.
Cleveland - Indiana..........101:104
- Reggie Miller 25.
New Jersey - Portland.........104:84
Armon Gilliam 16, Kenny Anderson 13 -
Clifford Robinson 24.
Philadelphia - Sacramento....106:109
Jerry Stackhouse 34 - Walt Williams 22,
Mitch Richmond 23. ^
Minnesota - LA Lakers..........93:92
Isaiah Rider 16, Christian Laettner 16 -
Cedric Ceballos 27.
New York - Phoenix............94:102
Patrick Ewing 25 - Barkley 27, Wayman
Tisdale 18, Kevin Johnson 16.
Chicago - Toronto............117:108
Michael Jordan 38, Scottie Pippen 26 -
Willie Anderson 23, Damon Stoudamire 22.
Dallas - Vancouver.............99:89
Jamal Mashburn 16, Jason Kidd 15 - Beno-
it Benjamin 16, Darrick Martin 15.
Houston - Milwaukee...........106:89
Clyde Drexler 26, Hakeem Olajuwon 26.
Seattle - LA Clippers........127:108
Gary Payton 21, Shawn Kemp 18 - Lamond
Murray 21.
Golden State - Denver.........98:9Í1
Latrell Sprewell 30.
FELAGSLIF
Brids hjá Keili
Keilismenn halda fyrsta bridskvöld vetrar-
ins í golfskálanum kvöld, fimmtudag, og
hefst spilamennskan ki. 19.30. »
ELLEFU umferðum er nú lokið
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
og sú tólfta fer fram í kvöld.
Búið að leika eina umferð á
milli riðlanna þannig að nokkurt
mark ætti að verá takandi á
stöðu liða þótt svo 21 umferð
sé ólokið og allt geti í raun
gerst.
Það sem hefur einkennt upphaf
mótsins er að körfuknattleikur-
inn sem leikinn er í ár er ekki eins
góður og hann var í upphafi síðasta
■■■■■■ leiktímabils. Það er
SkúliUnnar auðvitað alltaf hug-
Sveinsson lægt mat hvers og
skn,ar eins hvað sé góður
körfuknattleikur en flestir geta þó
verið sammála um að leikirnir eru
ekki eins skemmtilegir og þeir voru
í fyrra, og á þetta raunar einnig við
um keppnina í 1. deild karla í hand-
knattleik, en það er allt annar hand-
leggur.
Ástæðurnar fyrir þessu geta verið
margar en svo virðist sem liðin komi
ekki eins vel undirbúin fyrir þetta
tímabil og þau gerðu í fyrra. Síðasta
keppnistímabil var bæði langt og
strembið og í kjölfar þess var mikil
landsleikjahrina þannig að okkar
bestu körfuboltamenn fengu ekki frí
frá íþróttinni fyrr en um miðjan maí
og höfðu þá verið að meira og minna
í tæpt ár. Það var kominn mikill leiði
í mannskapinn og ef til vill þess
vegna virðast liðin ekki hafa byijað
eins snemma í ár og undanfarið, eða
að minnsta kosti ekki af eins miklum
krafti. Þetta hefur orðið til þess að
leikirnir eru hvorki eins góðir og á
sama tíma í fyrra né eins skemmti-
legir, þótt svo batamerkja hafi orðið
vart í síðustu leikjum.
Annað atriði hefur einnig einkennt
fyrstu umferðirnar. Góð frammi-
staða Tindastóls og Þórs í fyrstu
umferðunum. Akureyringar hafa
síðan dalað en Sauðkrækingar halda
sínu, eða svo gott sem. Slök byijun
Njarðvíkinga vakti einnig athygli,
en hún er þó á vissan hátt skiljanleg
því lið þeirra byijaði seinna að æfa
en oftast áður og talsverðar breyt-
ingar urðu á liðinu auk þess sem
nýr þjálfari tók við.
Axel rekinn frá KR
Undanfarin ár var það nánast
daglegur viðburður að lið losuðu sig
við erlenda leikmenn, en ekkert slíkt
hefur gerst ennþá. Hins vegar ráku
KR-ingar Axel Nikulásson þjálfara
sinn á dögunum en þá var KR í efsta
sæti í B-riðli. Axel hefur ekkert vilj-
að láta hafa eftir sér varðandi þetta
mál, en fyrir utanaðkomandi virðist
þetta furðuleg ákvörðun Vesturbæ-
inga. Það er ekki á hveijum degi sem
þjálfari sem er með lið sitt í efsta
sæti er látinn fara. Við hveiju bjugg-
ust forráðamenn KR? Að liðið yrði
íslandsmeistari eftir 9 umferðir? Lið-
ið er mikið breytt frá því í fyrra,
Falur Harðarson og Brynjar Harðar-
son eru ekki með liðinu, ekki Birkir
Mikaelsson heldur og Ólafur Orms-
son er meiddur. Þetta tvennt á sjálf-
sagt stóran þátt í því að KR-ingar
spiluðu ekki vel að margra dómi, en
þrátt fyrir það var staða þeirra ágæt.
Það eru 192 leikir í úrvalsdeild-
inni áður en úrslitakeppnin hefst og
nú hafa verið leiknir 66 leikir og þar
af 36 leikir á milli riðla, en alls leik-
ur hvert lið heima og að heiman við
öll liðin í riðlinum sem það er ekki
í. Það var mál manna áður en keppn-
in hófst að A-riðill væri miklu sterk-
ari en B-riðillinn. í A-riðli leika
Haukar, Keflvíkingar, Njarðvíking-
ar, Tindastólsmenn, ÍR-ingar og
Breiðabliksmenn en í B-riðli eru
Grindavík, KR, Skallagrímur, Þór,
ÍA og Valur.
Haukar aftur meðal þeirra bestu
Haukar eru greinilega komnir aft- •
ur á toppinn eftir nokkur mögur ár.
Þar hefur verið byggt upp innanfrá
og er sú uppbygging og þolinmæði
að skila sér núna. Keflvíkingum var
spáð sigri í deildinni áður en keppn-
in hófst. Þeir byijuðu illa en hafa
sigrað í síðustu sjö leikjum og virð-
ast óneitanlega með eitt sterkasta
liðið. ÍR-ingar komu mest á óvart í
fyrra, ásamt Skallagrímsmönnum,
og menn bjuggust við liðinu í svip-
uðu formi í vetur, en eitthvað vantar
enn sem komið er. Hvort það er leik-
gleðin eða eitthvað annað skal ósagt
látið, en ÍR er ekki svipur hjá sjón
ennþá. Breiðablik er með óreynt lið
og ekki var búist við miklu af því,
en Kópavogsbúar hafa þó sigrað í
tveimur leikjum og Birgir Guðbjörns-
son virðist vera að gera góða hluti
með liðið.
í B-riðlinum eru Grindvíkingar í
efsta sæti þrátt fyrir að liðið hafi
ekki leikið eins sannfærandi og í
fyrra. Þeir virðast nokkuð öruggir í
úrslitakeppnina og með þeim fara
tvö af þremur liðum, Skallagrímur,
KR eða Þór. Borgnesingar hafa ver-
ið nokkuð brokkgengir í haust en
þeir ná sem fyrr mörgum stigum á
heimavelli sínum. Skagamenn eiga
vart möguleika á að komast í úrslita-
keppnina þó þeir hafi fengið fjögur
stig það sem af er og Valur er einn
og yfírgefipn á botninum með ekk-
ert stig.
Ef marka má úrslit þeirra 36 leikja
Morgunblaðið/Bjami
GUÐJÓN Skúlason og félagar í Keflavík eru á góðri siglingu þessa dagana en Lárus Árnason og
hans félagar í KR hafa ekki unnið leik síðan Axel Nlkulásson var rekinn.
sem leiknir hafa verið á milli riðla
þá hafa menn spáð rétt um hvor rið-
illinn er erfiðari því lið úr B-riðli
hafa aðeins sigrað í níu leikjum á
móti 27 sigrum liða úr A-riðli í þeim
leikjum sem lið úr sitthvorum riðli
hafa mæst.
Grindvíkingar hafa fengið sex stig
úr viðureignum sínum við lið úr A-
riðli og hefur því 50% árangur úr
leikjunum yfir í þann riðil, Skalla-
grímur, KR og Þór hafa sigrað í
tveimur leikjum gegn liðum úr A-
riðli en Skaginn og Valur hafa tapað
öllum sínum leikjum. Þau lið úr A-
riðli sem hafa tapað fyrir liðum í
B-riðli eru Breiðablik, sem tapaði
fjórum af sex'og vann bara ÍA og
Val, Tindastóll tapaði tvívegis, fyrir
Skallagrími og Grindavík, IR tapaði
einnig tvívegis, fyrir KR og Þór og
Njarðvíkingar töpuðu fyrir Grinda-
vík. Einu liðin sem unnu alla leiki
sína í umferðunum sex á milli riðla
voru Keflvíkingar og Haukar, sem
báðir eru í A-riðli.
Það vekur óneitanlega eftirtekt
þegar staðan er skoðuðu í riðlunum
að ÍR, sem er í næst neðsta sæti í
A-riðli væri í öðru sæti í B-riðli ef
liðið væri í þeim riðli og af þessu
og því sem á undan er rakið má slá
því föstu að A-riðill er mun strembn-
ari.
Rétt er að minna á að þegar
umferðunum 32 er lokið komast þijú
efstu lið úr hvorum riðli í úrslita-
keppnina og einnig þau tvö lið þar
fyrir utan sem náð hafa bestum
árangri og ef svo heldur fram sem
horfir má gera ráð fyrir að þau lið
komi úr A-riðli þannig að þaðan
komist fimm lið í úrslitin en þijú úr
B-riðlinum.
STAÐAN
A-RIÐILL
Tindastólsmenn með lægstan
meðalaldur í úrvalsdeildinni
HAUKAR 11 9 2 947: 789 18
KEFLAVÍK 11 9 2 1035: 885 18
UMFN 11 8 3 987: 864 16
TINDASTÓLL 11 8 3 856: 824 16
IR 11 6 5 916: 875 12
BREIÐABUK 11 2 9 858: 1042 4
B-RIÐIL L
Fj. leikja u T Stig Stig
UMFG 11 7 4 1027: 873 14
KR 11 6 5 935: 933 12
SKALLAGR. 11 5 6 846: 874 10
ÞÓR 11 4 7 919: 912 8
ÍA 11 2 9 873: 989 4
VALUR 11 0 11 725: 1064 0
TALSVERT hefur verið rætt um
hversu ungir leikmenn ieika í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í vet-
ur og hafa stuðningsmenn nokk-
urra liða haldið því fram að þeirra
lið sé með yngsta Iiðið. Til að fá
úr því skorið reiknaði Morgunblað-
ið út meðalaldur þeirra tíu leik-
manna sem mest hafa komið við
sögu hjá hveiju liði í upphafi
keppnistímabilsins.
Við þetta kemur í ljós að leik-
menn Tindastóls frá Sauðárkróki
eru yngstir, en meðalaldur leik-
manna er 19,9 ár. Næstyngsta liðið
í deildinni er Grindavík, en meðal-
aldur leikmanna þar er 20;3 ár,
21,2 ár hjá Breiðabliki og IA er í
fjórða sæti, en á Skaganum er
meðaldurinn 21,3 ár. Valsmenn
eru næstir en meðalaldur leik-
manna Hlíðarendaliðsins er 22,3
ár ef hinn síungi ívar Webster er
talinn með, en hann stendur nú á
fertugu. Ef hann er hins vegar
ekki talinn með er meðalaldur leik-
manna Vals 18,3 ár þannig að það
er ljóst að hann hækkar bæði með-
alhæðina og meðalaldurinn veru-
lega hjá Val.
Breiðhyltingarnir í ÍR eru 22,5
ára að meðaltali en hjá Þór á Akur-
eyri er meðalaldurinn 23,7 ár og
23,9 ár lijá Islandsmeisturunum í
Njarðvík. Meðalaldur tíu leik-
manna Hauka úr Hafnarfirði er
24,1 ár og Skallagríms úr Borgar-
nesi 25,2 ár en Keflvíkingar eru
með elsta liðið því þar er meðaldur
leikmanna 25,5 ár.
Ikvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild kl. 20:
Akranes: lA - Valur
Borgarnes: Skallagrímur - Þór Ak.
Grindavík: Grindavík - KR
Njarðvík: Njarðvík - Breiðablik
Seljaskóli: IR - Tindastóll
Strandgata: Haukar - Keflavík
1. deild karla:
i: IH-Leí
Strandgata:
-Leiknir...kl. 21.30