Morgunblaðið - 14.11.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 23
Fram-
bjóðendur
draga sig
íhlé
ALLIR frambjóðendur stjórn-
arandstöðuflokkanna í
Tansaníu drógu sig í hlé í for-
setakosningunum, sem lýkur á
sunnudag, og ljóst er því að
frambjóðandi stjórnarflokks-
ins, Benjamin Mkapa, verður
kjörinn forseti. Kosningarnar
fóru fram 29. október en
ákveðið var að endurtaka þær
í höfuðborginni, Dar es Sal-
aam, þar sem þær einkenndust
af upplausn og óreiðu. Fram-
bjóðendur stjórnarandstöð-
unnar ákváðu að draga sig í
hlé eftir að dómstóll hafði
hafnað beiðni þeirra um að
lýsa þær ógildar.
Sprengjutil-
ræði í Alsír
MÚSLIMI gerði sjálfsmorðs-
árás á lögreglustöð í þorpinu
Tadmait í Alsír á sunnudag,
ók bíl með sprengjum inn í
stöðina. Um tólf konur og börn
særðust í árásinni og miklar
skemmdir urðu á bygging-
unni. Búist er við fleiri
sprengjutilræðum af hálfu
heittrúaðra múslima fyrir for-
setakosningarnar á fimmtu-
dag, sem helstu stjórnarand-
stöðuflokkarnir sniðganga.
Tilræði í
Karachi
HÓPUR óþekktra manna
varpaði sprengjum á lögreg'u-
stöð og íbúðir lögreglumanna
í Karachi í Pakistan í gær. Sjö
manns særðust i árásinni,
þeirra á meðai ijórar konur
og fimmtán ára piltur. Einn
tiiræðismannanna beið bana
og lögreglumaður særðist al-
varlega í skotbardaga eftir
árásina.
Minni verð-
bólguþrýst-
ingur
VERÐ á hráefnum og innflutt-
um vörum lækkaði í Bretlandi
í október, í fyrsta sinn í tæp
tvö ár, samkvæmt hagtölum
sem birtar voru í gær. Verðið
lækkaði um 0,3% en búist
hafði verið við 0,1% lækkun.
Sérfræðingar sögðu tíðindin
geta orðið til þess að sannfæra
fjármálamenn um að verðbólg-
unni yrði haldið niðri.
Pakistanar
nást við
strönd Italíu
ÍTALSKA strandgæslan náði
í gær um 120 ungum mönnum
frá Pakistan og Sri Lanka sem
sigldu á björgunarbátum að
strönd Ítalíu. Mennirnir sögð-
ust hafa fengið far með flutn-
ingaskipi frá Istanbul og
áhöfnin hefði sagt þeim að
þeir væru komnir að strönd
Þýskalands. Þeir sögðust hafa
haldið að heiman fyrir hálfu
ári og greitt jafnvirði 190.000
króna fyrir ferðina. Búist er
við að þeim verði gefinn
tveggja vikna frestur til að
fara frá Italíu.
EINSTÆÐUR ÍIIÐBURÐUR SEM ÞÚ SKALT EKKI MISSA AF !
Dr. Edward De Bono á íslandi ■ i
Mannauður
NÁMSTEFNA Á SCANDIC HÓTEL L0FTLEIÐUM,
ÞRIÐJUDAGINN 28. NÓVEMBER 1 995, KL. 9-16.
Dr. Edward de Bono er talinn helsti hugsuður heims á sviði skapandi hugsunar. Hann er
höfundur 45 bóka á því sviði sem margar hafa náð metsölu og verið gefnar út á fjölmörgum
tungumálum. Óhætt er að segja að það sé sannkallaður hvalreki á fjörur íslenskra stjórnenda að
eiga þess nú kost áð sækja námstefnu dr. de Bono sem líklega er þekktasti fyrirlesari sem til
íslands hefur komið. Hann er afar eftirsóttur og háttlaunaður fyrirlesari og ráðgjafi enda þykja
námstefnur hans með þeim allra bestu sem þekkjast.
Á námstefnunni mun dr. Edward de Bono fjalla um mannauð og virkjun hugvits - hvernig
stjórnendur geta leyst hugvitið úr læðingi. Skilaboð dr. Edward De Bono eru þau að þörfin fyrir
nýjar lausnir aukist í sama hlutfalli og samkeppnin í viðskiptalífinu. Það er ekki lengur
nóg fyrir stjórnendur að gera sömu hlutina betur. Það er ekki heldur nóg fyrir þá vera
skilvirkir og leysa vandamál. Kröfur til þeirra eru orðnar miklu meiri. Stjórnendur í
nútíma fyrirtækja- og stofnanarekstri þurfa að tileinka sér ný vinnubrögð til að geta
dafnað og mætt nýjum væntingum og breyttum þörfum viðskiptavinanna.
Nýjasta bók dr. De Bono „Serious Creativity" (uþb. 350 bls.)
fylgir með í kaupbæti FRÍTT ef þú skráir þig fyrir 24.nóvember.
Almennt verð: kr. 29.900*
SFÍverð: kr. 25.415 (15% afsl.)
Innifalið: Vönduð námstefnugögn, morgunkaffi,
hádegisverður, síðdegiskaffi og meðlæti.
Ef þrír eru skráðir frá
samafyrirtæki fær
fjórði þátttakandinn
FRÍTT.
Skránlng & upplýsingars 562 1066
* Til upplýsingar má geta þess að 2 daga námstefna með dr. Edward de
Bono í Brussel um sama efni, kostar hátt á þriðja hundrað þúsund krónur
fyrir utan ferða- og dvalarkostnað. Hér er því um einstakt tækifæri að ræða.
Stjórnunarfélag
íslands