Morgunblaðið - 17.11.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.11.1995, Qupperneq 1
263. TBL. 83. ÁRG. Zeroual spáð stórsigri RÍKISSJÓNVARPIÐ í Alsír sagði í gærkvöldi að fyrstu tölur i for- setakosningunum, sem fram fóru í gær, bentu til þess að starfandi forseti, Liamine Zeroual, hefði sigrað þegar í fyrstu umferð og fengið tæp 60% atkvæða. Kjör- dagur var víða framlengdur, að sögn vegna mikillar kjörsóknar en sljórnvöld töldu hana rúmlega 70%. Helsti flokkur stjórnarand- stæðinga, Islamska frelsisfylk- ingin (FIS), hvatti fólk til að hundsa kosningarnar og fullyrt var að FIS hótaði að myrða þá sem færu á kjörstað. Talsmaður FIS í París, Rabah Kebir, vísaði þessu á bug og sagði flokk sinn vilja friðsamlega lausn á deilun- um við sljórnvöld. Logið um kjörsókn? Kebir sagðist í gærkvöldi hafa komist yfir gögn frá alsírskum stjórnvöldum er bentu til að kjör- sókn hefði aðeins verið rúmlega 30%. Kosningarnar voru hinar fyrstu i landinu síðan seinni umferð þingkosninga var aflýst 1992 er ljóst þótti að FIS, sem er flokkur heittrúarmanna, myndi sigra. Er talið að 50.000 manns hafi fallið í átökum liðs- manna stjórnvalda og stjórnar- andstöðu undanfarin þrjú ár. Á myndinni sést öryggisvörður leita á ungum manni við kjörstað í Algeirsborg í gær. ----» ♦ ♦ Fjárlagadeilan Enginn bilbugur á Clinton Washington. Reuter. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hugðist í gærkvöldi beita neitunarvaldi gegn tillögu repúblik- ana, sem samþykkt var á þingi í fyrrinótt og leysir að hluta úr greiðsluvanda ríkisins. Aflýsti hann einnig fyrirhugaðri ferð til Japans vegna ástandsins heima fyrir. Tillagan var samþykkt með at- kvæðum repúblikana og 48 demó- krata, 277 gegn 151, og vantaði lítið á, að fyrir henni væri aukinn meirihluti, sem þarf til að hnekkja neitunarvaldi forseta. Clinton er ákveðinn í að beita neitunarvaldi gegn tillögunni vegna þess, að í henni er kveðið á um, að fjárlagahallanum skuli náð niður á sjö árum. Á það vill hann ekki fallast vegna þess, að það myndi kalla á mikinn niðurskurð félags- legra útgjalda, meðal annars í heil- brigðismálum. Hét Clinton því að leggja sjálft forsetaembættið undir í baráttu sinni gegn repúblikönum. ■ Æran að veði/20 STOFNAÐ 1913 100 SÍÐUR B/C/D FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Óvænt uppákoma á þingi Jafnaðarmamiaflokksins þýska Scharping kastað út fyrir Lafontaine Mannheim. Reuter. Reuter OSKAR Lafontaine, forsætisráð- herra Saarlands, vann óvæntan sig- ur á Rudolf Scharping í leiðtoga- kjöri í Jafnaðarmannaflokknum þýska í gær. Hefur mikil óánægja verið innan flokksins með forystu Scharpings og það sást best á því, að Lafontaine sigraði með yfirburð- um þótt framboð hans hefði ekki verið undirbúið og ekki ráðist fyrr en á sjálfu flokksþinginu, sem hald- ið er í Mannheim. Lafontaine, sem tapaði fyrir Helmut Kohl kanslara í kosningun- um 1990, flutti mikla barátturæðu á þinginu í fyrradag og urðu þá margir til að skora á hann að gefa kost á sér gegn Scharping. Lét hann tilleiðast og í gær velti hann leiðtoga flokksins úr sessi með 321 atkvæði gegn 190. Virtist Scharp- ing hálfutan við sig eftir ósigurinn e'nda gerði hann ekki ráð fyrir neinu mótframboði. Lafontaine er leiðtogi vinstri armsins í Jafnaðarmannaflokknum, þeirra, sem leggja áherslu á barátt- una fyrir umhverfisvænu velferðar- þjóðfélagi, og í ræðu sinni í fyrra- dag gagnrýndi hann Scharping fyr- ir að krefjast aukins sveigjanleika á vinnumarkaði í því skyni að bæta samkeppnisstöðu þýsks iðnaðar. Kvað hann nær, að ríkið stæði betri vörð um hagsmuni vinnandi fólks. Orvænting Scharping hefur þótt ákaflega litlaus sem forystumaður og tilraun- ir hans til að færa þýska jafnaðar- menn inn á miðjuna hafa verið ómarkvissar og árangurslitlar. Samkvæmt skoðanakónnunum er fylgi Jafnaðarmannaflokksins að- eins 28%. Peter Hintze, framkvæmdastjóri Kristilega demókrataflokksins (CDU), sagði í gær, að nú hefði flokkur jafnaðarmanna tekið ákveðna vinstribeygju. Það sýndi sig meðal annars í andstöðu La- fontaines við þátttöku Þjóðverja í friðargæslu í Bosníu og áhuga hans á samstarfi við Gregor Gysi, leiðtoga flokks fyrrverandi kommúnista í Austur-Þýskalandi sem var. Michael Glos, leiðtogi þingflokks Kristilega sósíalsambandsins (CSU), systurflokks CDU, sagði að kjör Lafontaines bæri ekki vott um neitt annað en algjöra örvæntingu jafnaðarmanna með stöðu sína í þýskum stjórnmálum. Eftir kjörið í gær hétu þeir Scharping og Lafontaine að vinna saman. Scharping sagði, að hann hefði beðið flokkinn að gera for- ystumálin upp við sig og það hefði hann nú gert. ■ Fær nýtt tækifæri/20 Reuter LAFONTAINE, ystur til hægri, tekur hér við heillaóskum Johannes Rau, varaformanns flokksins. Scharping er heldur niðurlútur; ekki hafði verið búist við mótframboði þrátt fyrir óánægju með hann. Líkur á samkomulagi í Bosníuviðræðunum Osaka, Washington, Dayton. Reuter. BANDARÍSKIR embættismenn voru í gær vongóðir um að sam- komulag næðist á næstu dögum um frið í Bosníu í viðræðunum í Dayton í Ohio. Warren Christop- her, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ákvað að stytta Asíu-ferð sína og halda tafarlaust til Dayton. Franjo Tudjman, forseti Króatíu, hélt í gær heim frá Ohio til að setja nýkjörið þing í Zagreb. „Frá sjónar- miði Króata hafa viðræðurnar verið mjög árangursríkar," sagði forset- inn. Hann hyggst ávarpa þjóð sína í dag og segja henni hvað hafi ver- ið samið um nú þegar. Christopher tók þátt í fundi Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja, APEC, í Japan. „Von mín er sú að vera mín í Day- ton verði til þess að flýta samkomu- lagi,“ sagði hann. Aformað hafði verið að utanríkisráðherrann yrði í Asíu þar til á þriðjudag og banda- rískir embættismenn höfðu sagt að heimförinni yrði ekki flýtt nema til að leiða friðarviðræðurnar til lykta. Búist er við að Christopher verði í nokkra daga í Dayton, þar til leið- togarnir setji stafina sína við sam- komulagið, og haldi síðan ásamt bandarísku samningamönnunum til fundar við Bill Clinton forseta eftir helgina. Karadzic og Mladic ákærðir Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag ákærði í gær þá Radovan Karadzic og Ratko Mladic, helstu leiðtoga Bosníu-Serba, fyrir að hafa skipulagt fjöldamorð á allt að 6.000 múslimum eftir fall borg- arinnar Srebrenica í sumar. Sak- sóknari dómstólsins, Richard Gold- stone, sagðist aðspurður vera „fremur bjartsýnn" á að mennirnir tveir myndu koma fyrir rétt vegna þessara glæpaverka. Samið um skuldir Frankfurt. Reuter. RUSSAR náðu í gær samningum við erlenda lánardrottna sína um lengdan greiðslufrest á lánum sem þeir erfðu eftir Sovétríkin gömlu. „Með þessum samningum fáum við ráðrúm til að koma á umbótum og möguleika á að komast inn á alþjóðlega lánamarkaði," sagði aðal- samningamaður Moskvustjórnarinn- ar, Oleg Davydov aðstoðarforsætis- ráðherra. Samningaviðræður hafa staðið í fjögur ár. Sagði Davydov að aldrei hefði verið rætt um að afskrifa skuldirnar. Skuldirnar eru um 25 milljarðar dollara auk sjö milljarða vaxta- greiðslna sem eru í vanskilum. Rúss- ar fá nú 25 ár til að greiða helstu afborganir. Vægið nemendum Peking. Reuter. YFIRVÖLD framhaldsskóla í kínverska héraðinu Jiangsu hafa bannað kennurum að nota 20 tilgreindar setningar til að aga og gagnrýna nemendur sína, að sögn Dagblaðs Kína. Meðal setninganna eru „Komdu þér út“, „Þú ert þroskaheftur11, „Það verður aldrei neitt úr þér“ og „Ég skammast mín fyrir að vera með nemanda eins og þig“. Ráðamenn menntamála .í Kína hafa að sögn blaðsins hrósað yfirvöldum í Jiangsu fyrir bannið, sem tók gildi í september. Hvatti einn af ráða- mönnunum kennara til að auka ekki vanmáttarkennd nemenda eða refsa þeim fyrir lélega frammistöðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.