Morgunblaðið - 17.11.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.11.1995, Qupperneq 1
 KORFUKNATTLEIKUR GOLF: KEILISMENN Á FÖRUM Á EVRÓPUMÓT í PORTÚGAL / C4 Yngri landsliðin í knattspyrnu á faraldsfæti LANDSLIÐI17 ára og yngri í knattspyrnu hefur verið boðið á alþjóðlegt mót í ísrael um áramótin og hefur KSIákveðið að þiggja boðið. íslensk unglingalið hafa nokkrum sinnum tekið þátt í slíku móti þar í landi, og sðmu drengir og verða á vettvangi nú voru einmitt í ísrael um síðustu áramót — sem landslið 16 ára og yngri. Um er að ræða liðið sem verður fulltrúi íslands í úrslitakeppni Evrópumóts 18 ára og yngri 1997, sem fram fer hér á landi. Mótið að þessu sinni stendur yfir frá 26. desember til 6. janúar. Þá hefur landsliði 18 ára og yngri, sem komst áfram í Evrópukeppninni, verið boðið á mót á Ítalíu frá 28. mars til 5. apríl næsta vor, og er það þriðja árið í röð sem Islendingar verða á meðal keppenda þar. Ekki láta 18 ára drengirnir þar við sitja því á leiðinni til Ítalíu koma þeir við í Þýskalandi, þangað sem þeim hefur verið boðið til einnar viðureignar við heimamenn. Sá landsleikur fer fram í Merseburg í nágrenni Leipzig 27. mars. Þá er að geta landsliðs 16 ára og yngri. KSÍ hefur þegið boð um að það lið verði með á móti í Algarve í Portúgal frá 16. til 21. febrúar næstkomandi og verður það annað árið í röð sem ísland verður á meðal þátttakenda í því móti. „Stjórinn" borinn burt á börum í Ancona Þ AÐ logaði allt í slagsmálum þegar Ancona og Birmingham mættust í ensk-ítölsku keppn- inni á miðvikudaginn, en leikið var á Ítalíu. Enska knattspyrnusambandið ætlar að láta rannsaka málið gaumgæfilega en forseti Anc- ona segir þetta þann Ijótasta leik sem fram hafi farið á ítaliu. Leikmenn spörkuðu hveijir í aðra og stjóri Ancona, Massimo Cacciatori, var fluttur á brott á sjúkrabörum eftir að einn leikmanna Birmingham hafði skallað hann. Dómarinn, Bretinn John Lloyd, fingurbrotnaði þegar hann féll við að reyna að skilja leikmenn í sundur. Slagsmálin héldu áfram eftir að leik- menn voru komnir til búningsherbergja og rút- an sem flutti Englendingana út á flugvöll var grýtt. Breski konsúllinn í Flórens sá leikinn og sagði að leikmenn Birmingham hefðu greini- lega ekki verið ánægðir með að stjóri Ancona fór nokkrum sinnum inn á völlinn til að taka þátt í pústrunum sem leiddu síðan til slagsmál- anna. Þess má geta að Birmingham sigraði í leiknum, 2:1. Fréttabann hjá leikmönnum Rúmeníu LANDSLIÐSMENN Rúmeníu neituðu að tala við rúmenska blaða- og fréttamenn eftir 2:0 sigur á Slóvakíu á miðvikudagskvöldið. Gheorg- he Hagi, fyrirliði Rúmeníu, sagði að leikmenn hefðu komið sér saman um að segja aðeins eina setningu við fréttamenn: „Allt það sem við höf- um að segja, segjum við inni á vellinum.“ Rúm- ensku leikmennirnir eru óánægðir með hvemig sumir blaða- og fréttamenn hafa fjallað um leik liðsins og eftir 3:1 tapið gegn Frökkum vom leikmenn meðal annars ásakaðir um að hafa tapað viljandi. Anghel Iordanescu, þjálfari Rúmena, segist styðja leikmennina. „Ég virði ákvörðun þeirra en ég tek ekki þátt í þessu fréttabanni," sagði hann. Rúmenskir fjölmiðlar og rúmenska landsliðið áttu í svipuöum deilum fyrir HM 1994, en það mál leystist þegar liðið komist í átta liða úrslit. ■ Allt um leikina / C2 Birkir Kristinsson, lands- mikinn áhuga á að fá Birki til Sævar Jónsson leikið með lið- liðsmarkvörður í knatt- liðs við sig. Ef Birkir gengur inu og nú leikur Valsmaðurinn spymu hjá Fram, heldur til til liðs við félagið verður hann Ágúst Gylfason með Brann. Bergen í Noregi í dag, þar sem annar landsliðsmarkvörðurinn Birkir mun ræða við for- hann mun ræða við forráða- frá íslandi til að verja markið ráðamenn Brann um helgina menn 1. deildarliðs Brann. hjá Brann - Bjarni Sigurðsson og koma síðan heim aftur á Samkvæmt áreiðanlegum lék í nokkur ár með liðinu við sunnudaginn - væntanlega heimildum hefur Brann sýnt góðan orðstir. Einnig hefur með samning upp á vasann. ■p^ » m æt at jn§ Morgunblaöiö/Knstmn Darraðardans i Njarðvík ALBERT Óskarsson og Lenear Burns hjá Keflavík, stöðva Njarðvíkinglnn Gunnar Örlygsson í nágrannaslagnum í Njarðvík, þar sem íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu öruggan sigur 93:76. Blikarnir unnu óvæntan sigur á Tlndastólsmönnum, Grindavík nauman sigur á Akranesi og Valsmaðurinn Ronald Bayless skoraði öll stig liðs síns, 38, í fyrrl hálfleik í Borgarnesl. Vert er að geta að hann skoraði svo aðelns tvö stig í selnni hálfleik. BIRKIR Kristinsson PtomutifiKafrfö 1995 KNATTSPYRNA FOSTUDAGUR 17. NOVEMBER BLAO Birkir á för- um til Brann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.