Morgunblaðið - 21.11.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
266. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
STARFSFÓLK á skrifstofu blaðafulltrúa Hvíta hússins sneri aftur til vinnu í gær eftir að samkomu-
lag hafði tekist um fjárlögin til bráðabirgða. Það var meðal þeirra, sem fengu þann dóm að vera
„ónauðsynlegir" og sátu því heima í tæpa viku.
Bandarískir ríkis-
starfsmenn til vinnu
Washington. Reuter.
MEIRA en 700.000 bandarískir
ríkisstarfsmenn sneru aftur til
vinnu í gær eftir að ríkisstjórnin
og meirihluti repúblikana á Banda-
ríkjaþingi höfðu náð bráðabirgða-
samkomulagi um fjárlögin. Gildir
það til 15. desember.
Samkvæmt samkomulaginu er
stefnt að því að ná niður fjárlaga-
hallanum á sjö árum eins og repú-
blikanar hafa krafist en á móti
heita þeir að hlífa heilbrigðisþjón-
ustu við aldraða og fleiri málaflokk-
um við miklum niðurskurði.
Leon Panetta, starfsmannastjóri
Hvíta hússins, sagði í gær, að það
væri ekki aðalatriðið hvort fjár-
lagahallanum yrði náð niður á sjö
árum eða lO eins og Bill Clinton
forseti hefur lagt áherslu á, mestu
skipti að standa vörð um þá félags-
legu þjónustu, sem Clinton berðist
fyrir.
Panetta sagði einnig, að loka-
samkomulag milli flokkanna um
fjárlögin yrði einnig að fela í sér
miklu minni skattalækkun en repú-
blikanar hafa stefnt að en þeir vilja,
að skattar verði lækkaðir um 245
milljarða dollara. Newt Gingrieh,
forseti fulltrúadeildarinnar og ann-
ar helsti talsmaður repúblikána,
sagði, að þeir væru tilbúnir til að
ræða það mál.
Noregur og Nígería
Mikil óvissa um niðurstöðu viðræðnanna um frið í Bosníu
Viðskipta-
þvingan-
ir felldar
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA Stórþingið felldi í gær
með 71 atkvæði gegn 39 tillögu um
að banna norskum fyrirtækjum
starfsemi tengda olíuiðnaðinum í
Nígeríu.
Tillagan var flutt vegna aftöku
rithöfundarins Ken Saro-Wiwa og
átta annarra stjórnarandstæðinga í
Nígeríu en tvö norsk fyrirtæki,
Statoil og Aker-samsteypan, eiga
hagsmuna að gæta í landinu.
Þeir, sem studdu tillöguna, voru
úr Sósíalíska vinstriflokknum,
Kristilega þjóðarflokknum, Mið-
flokknum, Vinstriflokknum og
Rauða kosningabandalaginu en Jens
Stoltenberg orkuráðherra sagði, að
aftökunum í Nígeríu hefði verið
mótmælt og sendiherrann kallaður
heim. Eftir því hefði verið tekið.
Serbar sögðu Kró-
ata standa í
Dayton. Reuter.
MIKIL óvissa ríkti í gærkvöld um
niðurstöðu viðræðnanna um frið í
Bosníu, sem fram fara í Dayton í
Ohio í Bandaríkjunum. Að sögn eins
embættismanns Bosníu-Serba var
aðeins deilt um eitt atriði, landræmu,
sem tengir svæði Serba í Bosníu.
Sakaði hann Franjo Tudjman, forseta
Króatíu, um að stefna viðræðunum
í voða með óraunhæfum kröfum um
bætur fyrir landið.
Bosníu-Serbar hafa krafist þess,
að landræma, svokallað Brcko-hlið,
sem tengir svæði þeirra í austur- og
vesturhluta landsins, verði breikkað
til að eiga síður á hættu árásir músl-
ima og Króata en það yrði þá á kostn-
að þeirra síðarnefndu.
„Viðræðurnar eru nú á mjög alvar-
legu stigi vegna þess, að Tudjman
hefur sett fram nýjar landakröfur á
hendur Serbum,“ sagði fyrrnefndur
embættismaður og skoraði á sátta-
semjarana að koma í veg fyrir, að
Króatar kæmu í veg fyrir friðar-
samninga.
Króatar þögulir
Enginn ágreiningur er um að
skipta Bosníu þannig, að 51% lands-
ins komi í hlut Serba og 49% í hlut
múslima og Króata, en deilt hefur
verið um framtíðarstöðu Sarajevo og
tvær landræmur, sem Serbar krefj-
ast. í gærkvöjdi virtist sem aðeins
væri deilt um Breko-hliðið en tals-
vegi
menn Króata létu ekkert hafa eftir
sér um það.
Bandaríkjastjórn hefur varað
deiluaðila við, að fari Dayton-viðræð-
urnar út um þúfur muni hún hætta
beinum afskiptum af deilunni. Fari
svo kemur það í hlut Evrópuríkjanna
að halda þeim áfram en þeim hefur
hingað til ekkert orðið ágengt í því
efni og njóta ekki trausts múslima
og Bosníustjórnar.
Fréttaskýrendur segja þó, að
hvorki Bandaríkin né stríðandi fylk-
ingar í Bosníu geti látið sem ekkert
hafi gerst í Dayton. Þótt ekki náist
heildarsamkomulag, þá hljóti menn
að festa á blað það, sem áunnist
hefur.
Díana prinsessa af Wales í opinskáu sjónvarpsviðtali í BBC
Lætur ekki ýta
sér burt af opin-
berum vettvangi
DÍANA prinsessa af Wales segist
ekki ætla að Iáta þvinga sig til að
hætta þátttöku í opinberu lífi þótt
hún sé skilin að borði og sæng við
Karl prins. Prinsessan lagði í sjón-
varpsviðtali við BBC í gærkvöldi
áherslu á að hún hefði hlutverki
að gegna, hún ætlaði að ala syni
sína upp og vildi einnig liðsinna
óhamingjusömu fólki.
Díana sagði einnig að hún gæti
orðið eins konar sendiherra lands-
ins erlendis og notað þannig at-
hygli fjölmiðla til gagnlegra verka.
Prinsessan vill ekki fullan skiln-
að en segir að Karl verði að taka
ákvörðun í þeim efnum. Hún gaf
í skyn að unnið væri skipulega að
því að útiloka hana frá opinberu
lífi og lýsti sjálfri sér sem sterkri
konu sem einhveijir hjá hirðinni
óttuðust.
Fjölmiðlafárið erfitt
Hún sagðist hafa elskað eigin-
mann sinn mjög í upphafi og viíjað
gera allt til að „ævintýrið" endaði
vel en hann hefði ekki sýnt sér
skilning er hún var þjökuð af van-
máttartilfinningu og örvæntingu.
Fjölmiðlafárið vegna hjónabands
þeirra hafi reynst afar erfitt viður-
eignar þegar til lengdar lét.
Spurt var um Camillu Parker
Bowles, sem prinsinn hefur viður-
kennt að hafa haldið við eftir að
hjónabandið hans og Díönu var
farið að leysast upp. Prinsessan
segist hafa fundið strax á sér af
kvenlegu innsæi að framhjáhald
væri komið til sögunnar og það
hafi verið hræðileg lifsreynsla.
„Við vorum þijú í þessu hjónabandi
og það var svolítil þröng á þingi!“
Hún var spurð um samband sitt
við hirðmanninn James Hewitt er
ritaði bók þar sem hann lýsti ástar-
sambandi sínu við prinsessuna.
Díana sagði hann hafa skrökvað í
bókinni sem hafi verið sér reiðar-
slag, ekki síst vegna sona sinna,
hún hafi flýtt sér að ræða málið
við þá til að róa þá. Hún hafí treyst
Hewitt fullkomlega og viðurkennir
að hafa dáð hann. „Já ég var ást-
fangin af honum.“
Viðtalið verður sýnt á Stöð 3 á
föstudagskvöld.
Reuter
ALEKSANDER Kwasniewski
veifar til stuðningsmanna.
Kwasniewski
sigrar Walesa
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, maðurinn sem átti
stærstan þátt í að losa Pólveija við
alræði kommúnista, beið ósigur fyr-
ir Aleksander Kwasniewski, fyrr-
verandi kommúnista, í forsetakosn-
ingunum í Póllandi á sunnudag.
Pólska fréttastofan PAP sagði í
gær að Kwasniewski hefði fengið
51,7% atkvæða og Walesa 48,3%.
Úrslitin eru mikið áfall fyrir Walesa
og fyrrverandi bandamenn hans.
Flokkur Kwasniewskis, Lýðræðis-
lega vinstrabandalagið, ræður nú
þegar mestu á þingi og stjórn eftir
sigur í þingkosningunum 1993.
Búast við litlum breytingum
Adam Michnik, ritstjóri pólska
dagblaðsins Gazeta Wyborcza og
einn af mörgum fyrrverandi banda-
mönnum Walesa, sagði að sigur
Kwasniewskis ylli mikilli óvissu um
framtíð landsins. Olíklegt þykir þó
að kjör Kwasniewskis, sem lýsir sér
nú sem jafnaðarmanni, hafi mikil
áhrif á efnahagsmál Pólveija.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins (ESB) sögðust ekki telja
að miklar breytingar yrðu á utan-
ríkisstefnu Pólveija, enda hefur
Kwasniewski lagt megináherslu á
að landið eigi að ganga í ESB og
Atlantshafsbandalagið.
Walesa skoraði í gær á þá, sem
hann hefðu kosið, að sameinast og
endurheimta völdin í kosningunum
1997.
■ Lech Walesa fórnað/20