Morgunblaðið - 21.11.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 21.11.1995, Síða 1
f Í»W! BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2»« lí» 1995 ÞRIÐJUDAGUR 21. NOVEMBER BLAD HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Bjami Eiríksson EKATERINA Gordeeva og Sergei Grinkov. Ólympíumeist- arinn Sergei Grinkov látinn ÓLYMPÍU- og heimsmeistarinn í listhlaupi á skautum, Sergei Grinkov frá Rússlandi, lést úr hjartaslagi á æfingu með konu sinni, Ekater- inu Gordeevu, í Lake Placid í gærkvöldi. Grinkov, sem var 28 ára, féll niður er hann hélt konu sinni á lofti á skautasvellinu. Hann var strax fluttur í sjúkrahús og var síðan úr- skurðaður látinn klukkustundu síðar. Grinkov og Gordeeva urðu Ólympíumeistarar í para- keppni 1988 og 1994. Þau urðu einnig fjórum sinnum heimsmeistarar og tvisvar Evrópu- meistarar. Þau gengu í hjónaband árið 1991 og áttu eina dóttur, Dariu. Kvöldleikur í beinni útsendingu hjá Sýn SJÓNVARPSSTÖÐIN Sýn hefur gert samning um að sýna leik úr ítölsku knattspyrnunni á sunnudagskvöldum í beinni útsendingu. Út- sendingar hefjast nk. sunnudagskvöld með leik Juventus og Parma. Stöð 2 sýnir beint leik úr ítölsku deildinni eftir hádegi á sunnudögum og geta knattspyrnuunnendur þvi séð tvo leiki beint í hverri umferð frá og með næstu helgi. Þórður og samherjar með góða forystu ÞÓRÐUR Guðjónsson og samheqar í Bochum gerðu góða ferð til Bielefeld í gærkvöldi, unnu 3:1 og eru með fimm stiga forskot í 2. deild þýsku deildarinnar á Duisburg sem reyndar á leik inni. Þórður lék fyrstu 65 mínúturnar í gærkvöldi en skipti þá við annan erlendan leik- mann. Þetta var fjórði útisigur Bochum í röð en liðið er með 39 stig að 16 umferðum lokn- um, átta stigum meira en liðið í fjórða sæti, en þijú efstu liðin fara upp í 1. deild í vor. Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftureldingar, eftir sigurinn á Zaglebie frá Lubin Lið frá Norðurlöndunum á óskalistanum í næstu umferð Gleðibylgja að Varmá ÞAÐ ríkti mikil gleði í íþróttahús- inu að Varmá í gærkvöldi eftir Afturelding hafði tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum í Borgarkeppni Evrópu. Leikmenn gátu vart hamið gleði sína og til þess að þakka stuðningsmönnum sínum fyrir krupu þeir á miðju vallarins og tóku bylgju fyrir þá og fengu að launum hressilegt fagnaðaróp. Það er Þorkell Guðbrandsson sem er hér lengst til hægri, síðan koma þeir Jóhann Samúelsson, Bjarki Sigurðsson, Róbert Sig- hvatsson, Bjarki Kristjánsson og Gunnar Andrésson. essi sigur er góður áfangi fyrir Aftureldingu og ég er mjög glaður að okkur skuli hafa tekist að komast svona langt. Þetta pólska lið var mun slakara en ég bjóst við og það má segja að á fyrstu tíu mínútunum í fyrri leiknum hafi þeir spilað vel, en síðan ekki söguna meir. Þegar litið er yfir báða leikina er ég ánægður með varnarleikinn og markvörsluná hjá mínum rftönn- um í fyrri leiknum og það lagði grunninn að því að við þurftum ekki að hafa mikið fyrir seinni leikn- um,“ sagði Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftureldingar, en Afureld- ing er eini fulltrúi Islands í átta liða úrslitum í Evrópukeppninni í hand- knattleik. Afturelding lagði pólska liðið Zaglebie frá Lubin í tveimur leikjum um helgina og samtals með 59 mörkum gegn 41. „Eftir tólf marka tap í fyrri leikn- um þá gerðu þeir ekkert til að „sprengja" upp síðari leikinn, en þeir ætíuðu sér að reyna að sigra til að bjarga andlitinu en tókst ekki. Við höfðum stjórn á leiknum og réðum því hvemig hann þróaðist framan af og þeir náðu aldrei að ógna okkur. Síðan leystist leikurinn upp og mikið var um mistök. I næstu umferð vildi ég gjarnan fá lið frá Skandinavíu, en það eru einnig eftir lið frá austurhluta Evr- ópu og það er aldrei að vita nema maður hafni þar í enn eitt skiptið," sagði Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftureldingar, með bros á vör. BADMINTON: BRODDI, ELSA OG ÁRNI ÞÓR SIGURSÆL Á STIGAMÓTIBTÍ/C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.