Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 1
FYRIRTÆKI Umrót í öryggis- þjónustu /3 _______FJÁRMÁL Nýtt hagvaxtarskeið annars eölis? /6 _______STfÓRWUW . Hræðsla starfsmanna skiljanleg /8 JMinrgtifiHbifrifr VIÐSKIPn AIVINNUIÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 * BLAÐ n Atómstödin Auglýsingastofan Atómstöðin mun sjá um allar auglýsingar fyrir sjónvarpsstöðina Sýn, en gengið var frá samningum þess efnis í vikunni. Fram til þessa hefur Islenska auglýsingastofan séð um auglýsingar fyrir Sýn, sem og Stöð 2 en nú hefur Sýn flutt sig um set. Lánasýslan Lítil eftirspurn var eftir spari- skírteinum í útboði Lánasýslunn- ar í gær. Alls bárust gild tilboð að fjárhæð 121 milljón króna og var tekið tilboðum að fjárhæð rösklega 100 milljónir. Flesttil- boðanna voru í 20 ára spariskír- teini. Avöxtunarkrafa bréfanna hækkaði um 1-2 punkta. Hlutabréf Einstaklingum er heimilt að draga 80% kaupverðs hlutabréfa frá tekjum á skattframtali sínu fyrir árið í ár. Til að fullnýta skattfríðindin þurfa einstakling- ar að kaupa hlutabréf i almenn- ingshlutafélagi fyrir 135 þúsund krónur og hjón fyrir tvöfaldaþá fjárhæð. Eins og áður er frá- drátturinn háður þvi að viðkom- andi eigi bréfin í þijú ár. SÖLUGENGIDOLLARS Kr. 67,00 66.50 66,00 65.50 65,00 64.50 64,00 63.50 63,00 62.50 62,00 25 Síðustu fjórar vikur » //VLA-A. 64,54 1111' . okt. I.nóv. 8. 15. 2\ Ávöxtun hlutabréfa í nokkrum hlutafélögum frá áramótum 123% S.Í.F 112% ÞORMÓÐUR RAMMI 88% HAMPIÐJAN 67% FLUGLEIÐIR 65% ÍSLENSKAR SJÁVARAFUROIR 62% EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS 59% MARÉL 57% LYFJAVERSLUN ÍSLANDS 57% HARALDUR BÖÐVARSSSON 49% SÆPLAST m 49% HLUTABRÉFASJÓÐURINN *47% SR-MJÖL* 45% SÍLDARVINNSLAN 40% SKAGSTRENDINGUR 38% SAMEINAÐIR VERKTAKAR 33% ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA 26% ALMENNIHLUTABRÉFASJÓÐURINN 23% AUÐLIND 22% HLUTABRÉFASJ. NORÐURLANDS 18% SJÓVÁ-ALMENNAR \ 16% ISLENSKI HLUTABR.SJ. 15% JARÐBORANIR 15% ÍSLANDSBANKI 14% GRANDI 11% OLÍUFÉLAGIÐ Hl 8% ÁRMANNSFELL | 5% TOLLVÖRUGEYMSLAN | 2% KEA fj 2% SKELJUNGUR -4% J OLÍS -6% J VINNSL US TÖÐIN * Fyrstu viðskipti 23. jan. 1995. Heimild: KAUPÞING HER er sýnd ávöxtun hlutabréfa einstakra félaga frá síðustu áramótum til og með 21. nóvember. Hækkun hlutabréfa endurspeglar batnandi afkomu fyrirtækja og væntingar fjárfesta um að hagur og rekstur þeirra sé viðunandi. Þau þrjú félög sem státa af hæstri ávöxtun frá áramótum eru Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda hf., Þormóður rammi hf„ og Hampiðjan hf. Miðað er við lokagengi ársins 1994 hjá öllum félögum nema SR-Mjöli vegna sérstöðu fyrirtækisins á markaðnum en það var einkavaett árið 1993. Á töflunni er miðað við gengi bréfa SR-Mjöls hinn 23. janúar 1995 þegar fyrstu viðskipti með þau áttu sér stað á Verðbréfaþingi íslands. Bakslag virðist hafa komið í vöxtinn í ferðaþjónustu á þriðja ársfjórðungi Samdráttur í tekjum af ferðamönnum UM 3,9 milljarða króna afgangur varð á viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt bráða- birgðatölum Seðlabankans. Á sama tíma í fyrra varð 4,4 milljarða af- gangur. í því sambandi vekur sér- staka athygli að tekjur í ferðaþjón- ustu drógust saman um 1% á há- annatímanum, í júlí, ágúst og sept- ember, miðað við sama tíma í fyrra. Þannig hefur þróunin algjörlega snú- ist við frá því á fyrri helmingi ársins þegar gjaldeyristekjur í greininni jukust um 25% en tekjuaukningin fyrstu níu mánuðina nemur 14%. Á fyrstu níu mánuðum ársins var viðskiptaafgangurinn 6,2 milljarðar króna samanborið við níu milljarða á sama tímabili í fyrra. Jakob Gunnarsson, deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabankans segir að minni viðskiptaafgangur nú miðað við sama tímabil í fyrra hafi komið fram á fyrstu mánuðum ársins en annar og þriðji ársfjórðungur séu hins vegar sambærilegir við það sem gerðist í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins juk- ust útflutningstekjur á föstu gengi um 3,4% og innflutningsverðmæti vöru og þjónustu um 6,2% frá sama tíma árið áður. Vöruskiptajöfnuður var lakari um 3,5 milljarða króna þar sem innflutningur jókst um 11,5% en verðmæti vöruútflutnings um 4,9%. Halli á þjónustujöfnuði með vaxtagreiðslum var 6,8 milljarð- ar samanborið við 7,6 milljarða árið áður. Útflutt þjónusta án vaxtajókst um 0,4% vegna meiri gjaldeyristekna af erlendum ferðamönnum en inn- flutt þjónusta minnkaði um 1,9%. Minni tekjur af varnarliðinu Tekjur af varnarliðinu drógust saman um 12% á fyrstu níu mánuð- um þessa árs miðað við sama tíma- bil í fyrra. Tekjur af ferðamanna- þjónustu námu samtals 15 milljörð- um króna á fyrstu níu mánuðunum, þar af nam eyðsla innanlands 8,6 milljörðum og fargjaldatekjur 6,4 milljörðum. Fyrstu níu mánuðina námu tekjur af varnarliðinu 6,4 milljörðum króna en 7,3 milljörðum á sama tíma í fyrra. Fjármagnsjöfnuður við útlönd var jákvæður um 1,9 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Er- lendar lántökur til langs tíma námu um 28,3 milljörðum króna en afborg- anir eldri lána 21,6 milljörðum. Hrein lántaka ríkissjóðs nam 16,7 milljörðum króna en aðrir lántakend- ur endurgreiddu erlend langtímalán um tíu milljarða. Hrein skulda- staða við útlönd, erlend langtíma- og skammtímalán að frádregnum erlendum eignum, er áætluð um 226 milljarðar í lok september, saman- borið við 229 milljarða um síðustu áramót. Þá nam staða langra er- lendra lána 261 milljarði króna í lok september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.