Morgunblaðið - 25.11.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.11.1995, Qupperneq 1
 1995 SUND ■ LAUGARDAGUR 25. NOVEMBER BLAÐ B Sergei Grinkov var alvariega hjartveikur SERGEI Grinkov, rússneski Ólyrapíumeistarinn í listhlaupi á skautum, var með alvarlegan hjarta- sjúkdóm sem dró hanu til dauða á mánudaginn. Læknir sem framkvæmdi krufningu eftir andlát Grinkovs uppiýsti í vikunni að skautahiauparinn, sem var aðeins 28 ára, hefði lengi verið með allt of háau blóðþrýsting og hefði þjáðst af alvarlegri æðakölkun (arteriosclerosis). Hanu fékk hjarla- áfall á æfingu í Lake Piacid í Bandarikjunum á mánudaginn og lést í sjúkrahúsi skðmmu síðar. Grinkov var tvöfaldur Ólympiumeistari í para- keppni ásamt eiginkonunni Ekaterinu Gordeevu, sem er 24 ára. Þau voru að æfa saman á mánudag er hann hné niður. Morgunblaðið/Kristinn 16 manna úrslit lsa Nielsen komst £ 16 manna úrslit í einliðaleik kvenna á Opna skoska meistaramótinu í tennis sem nú stendur yfír. Hún byijaði á þvi að vinna Kathryn Graham frá Skotlandi 12-11 og 11-4. Síðan mætti hún ensku stúlkunni Justine Willmott og vann 11-4 og 11-3.! 32 manna úrslitum vann Elsa Nadine Methot frá Frakklaudi 11-8 og 11-1 en tapaði 11-2 og 11-3 fyrir Marinu Ándrievskaya, fyrrum Rússa og nú Svía, í 16 manna úrslitum. Vigdís Ásgeirsdóttir tapaði 12-10 og 11-2 fyrir Pernille Harder frá Danmörku i fyrstu umferð. Frjáisíþrótta- menn stofna samtök FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN, sem aUir eiga það sam- eiginlegt að hafa unnið til verðlauna á Ólympíu- ieikum, stofnuðu í vikunni ný samtök og er skamm- stöfun samtakanna IFNOAA. Stofnfundurinn var haldinu £ Lausannc i Sviss og er markmið samtak- anna að fylgjast, með þróun samskipta milli frjál- iþróttamanna á Ólympiuleikum í þvi skyni að kynna og breiða út jgrundvallarhugmyndir ólymp- íuhugsjónarinnar. I tilkynningu frá Alþjóðaólymp- íunefndinni segir að formaður samtakaima sé Peter Montgomerv frá Ástraliu en aðrir í stjórn eru Élizabeth F'erris frá Bretlandi, irena Szew- inskíi frá Póllandi, Urs Frankhauser frá Sviss, Reiner Klimke frá Þýskalandi, Philippe Riboud frú Frakklandi og Bill Toomey frá Bandaríkjunum. Ægir er með forystu eftir fyrsta dag ÆGIR er með forystu í 1. deild bikarkeppninnar í sundi sem hófst í Sundhöll Reykjavíkur í gærkvöldi en þá var keppt í 800 m skriðsundi karla og kvenna i 1. og 2. deild. Ægir er með 2.732 stig, SH 2.501 og Keflavík 2.321 stig. í 2. deild er Ármann með 1.991 stig, UMSK 1.961 og Óðinn í 3. sæti með 1.775 stig. Eitt met féll. Örn Arnarson, SH, setti drengjamet í 800 m skriðsundi þegar hann synti á 8.46,87 mínútum en Tómas Stur- laugsson, Ægi, átti fyrra inetið sem var 9.03,48. Á myndinni er Sunna Dís Ingi- bjargardóttir, Keflavík, í 800 m skriðsundinu en hún synti á 9.41,75 mínútum og varð í þriðja sæti. Mótið heldur áfram í dag og því lýkur á morgun. KNATTSPYRNA Borás vill fá Kristián til sín Kristján Jónsson, landsliðsmað- ur í Fram, fékk í gær tilboð frá 1. deildarliðinu Borás í Svíþjóð um að koma og kynna sér aðstæð- ur með samning í huga. Kristján þekktist boðið um að fara til Sví- þjóðar en sagði við Morgunblaðið að þar sem málið væri á algjöru byijunarstigi væri ekki hægt að segja neitt meira um framhaldið. Borás, sem er rétt utan við Gautaborg, tapaði síðasta leiknum á liðnu keppnistímabili og missti þar með af vinningnum, varð í þriðja sæti en hefur sett stefnuna á að komast upp og vill fá reynslu- mikinn mann eins og Kristján í liðið með það í huga. Kristján, sem er 32 ára, lék 43. landsleik sinn þegar ísland sótti Ungverjaland heim 11. nóvember sl. og á fimm leiki að baki með ungmennaliðinu. Hann hefur leik- ið 188 leiki í 1. deild, hóf ferilinn hjá Þrótti og hefur leikið með Fram siðan 1987 en var með Bodö í Noregi í fyrra. „Mér leið mjög vel í Noregi og er tilbúinn að skoða alla möguleika,“ sagði Kristján aðspurður um hvort hann væri tilbúinn að slá til og ganga til liðs við sænska liðið. KRISTJÁN Jónsson hefur leikló með Þróttl, Fram 09 Bodö. Mi KORFUKNATTLEIKUR: GRINDAVIKIATTA LIÐA URSLIT / B4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.