Morgunblaðið - 25.11.1995, Side 1
3H0r0tsmMaM$i
• Með ungversku ívafi/2
• Að sjá tónlist /3
• Amy Tan komin íhöfn /4
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
D
BLAÐ
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir
Helga Erlendsdóttir, öðru nafni Ljósblá, eigandi Gallerís Helgu.
Sljakasýning
áHöfn
Hornafirði. Morgunblaðið.
Nú geta Hornfirðingar og nærsvei-
tungar barið augum verk fremstu
leirlistarkvenna landsins. En nú
stendur yfir í Gallerí Helgu í Horna-
firði samsýning þeirra. Kolbrúnar
Kjarval, Steinunnar Marteinsdótt-
ur, Rannveigar Tryggvadóttur,
Brita Kristina Berglund, Ingu Elín-
ar Kristinsdóttur, Þóru Sigurþórs-
dóttur, Helgu Jóhannesdóttur,
Koggu og Ljósblár sem er eigandi
gallerísins. Þema sýningarinnar eru
kertastjakar og hefur hún verið
mjög vel sótt það sem af er. Sýning-
in er mjög skemmtileg því fjöl-
breytnin er mikil í verkunum. Ljós-
blá er sú eina á sýningunni sem
ekki vinnur úr leir heldur einungis
úr tré.
Er sýning sem þessi mikill menn-
ingarauki fyrir sýsluna og verður
enginn ósnortinn yfir því mikla
hugmyndaflugi sem þessar konur
allar búa yfir og koma svo skemmti-
lega frá sér í nytja- og skrautmun-
um líkt og kertastjökum. Sýningin
stendur fram til 3. desember nk.
og er einnig sölusýning.
AÐDÁENDUR írska ljóðskálds-
ins og nóbelsverðlaunahafans
Seamus Heaney, geta nú nálgast
nýjasta verk hans, sem eru ljóða-
þýðingar úr pólsku. Heaney þýð-
ir verk 16. aldar skáldsins Jan
Kochanowski ásamt Stanislaw
Baranczak. Verk Kochanowskis,
sem ber heitið Laments (Harma-
ljóð), eru ort að bamungri dóttur
skáldsins látinni. Er samvinna
Heaneys og Baranczak, sem
einnig er ljóðskáld, tilfinninga-
þrungin og vel unnin, að mati
ritdómara The Observer.
JÚRÍ Grígorovitsj, sem lét af
störfum sem stjórnandi Bolshoj-
ballettsins fyrr á þessu ári, til-
kynnti um síðustu helgi að hann
hygðist koma á fót nýjum ballet-
hópi. Grígorovitsj stýrði Bolshoj
með jámaga um þriggja áratuga
skeið og sagðist hann í samtali
við Itar-Tass ætla að setja ball-
etta á svið með „nemendum mín-
um og öðm fólki sem ég deili
skoðunum með“. Ástæða þess að
hann lét af störfum hjá Bolshoi
á sínum tíma var ósætti hans við
áform stjórnvalda um að skipa
nefnd stjórnenda við húsið og
breytt fyrirkomulag ráðninga-
samninga.
RITHÖFUNDURINN Kazuo Is-
higuro hlaut fyrir skömmu
heimsveldisorðuna bresku
(OBE). Það var Karl prins sem
afhenti Ishiguro orðuna í viður-
kenningarskyni fyrir þjónustu í
þágu bókmenntanna.
Fiðraðir
karlar
FULLVÍST er talið að nýjasta
breska uppfærslan á Svanavatn-
inu við tónlist Tsjakovskíjs muni
slá i gegn hjá dansunnendum þar
í landi. Danshópar keppast við
að vera frumlegir og víst er að
Adventures in Motion-hópurinn
er þar engin undantekning, því
Svanavatn hans er eingöngu flutt
af karldönsumm. Svanirnir em
klæddir í hnésíðar fjaðrabrækur
en prinsinn dansar allsnakinn.
Dansahöfundurinn og stjórn-
andinn Matthew Bourne hefur
hlotið mikið lof fyrir fyrri upp-
færslur sínar á Hnotubijótnum
og La Sylphide. Sýningin fær
góða umsögn í Sunday Times þar
sem segir að hún sé frumleg og
áferðarfalleg og að nútímaleg
uppsetning Bournes og hin sí-
gilda tónlist Tsjaikovskíjs eigi
ágætlega saman, þrátt fyrir að
sýningin sé á stundum blanda af
Ijaldbúðaskemmtun og ígmnd-
uðum hugmyndum.
ADAM Cooper, í miðju, í hlutverki Svansins á fjaðrabrók.
Málfrelsi eða lygar
Hart er nú deilt í dómsal um ævisögu Bertholds Brechts,
þar sem ýmsum þykir hallað á skáldið
HÖRÐ rimma er nú háð í
frönskum dómsal um
nýja ævisögu þýska
skáldsins Berthold
Brecht, sem lést árið 1956. Það
er dóttir hans, Barbara Brecht-
Schall, sem höfðar málið á hendur
höfundi bókarinnar, Bandaríkja-
manninum John Fuegi, vegna
ýmissa ummæla hans um Brecht,
sem hann segir m.a. hafa verið
gyðingahatara, ritþjóf og hallan
undir McCartyismann, að því er
segir í The European
Fuegi segir Brecht hafa verið
svo vondan mann að hann hafi átt
heima í hópi helstu illmenna sög-
unnar, þar sem fyrir eru menn á
borð við Hitler og Stalín. Hann
hafi beitt ótrúlegum brögðum til
að fanga samstarfsmenn og konur
í snöru sína. Þá segir Fuegi að
Barbara sé ekki dóttir eiginkonu
Brechts, leikkonunnar Helene
Weigel, heldur sé hún barn ráðs-
konu þeirra en að Weigel hafi
neyðst til að láta sem hún ætti
barnið.
Barbara Brecht-Schall ber fyrir
sig frönsk lög sem banna „sögu-
fölsun“ og að fara með fleipur um
lifandi menn og látna. Fuegi og
útgefandi hans hafa varist þessum
ásökunum með því að bera fyrir
sig málfrelsi og rétt sagnfræðinga
og gagnrýnenda til þess að kanna
og fjalla um líf þekktra persóna
og verk þeirra. Segir lögfræðingur
Fuegis að í raun sé það aðeins
hégómagirnd einstaklinga sem
liggi að baki málssókninni. „Það
að banna öfgar er að banna hæfi-
leika.“ sagði lögfræðingur Fuegis
m.a. við réttarhöldin en lögmenn
Brecht-Scall hafa hins vegar dreg-
ið fram hvert vitnið á fætur öðru,
sem segja Fuegi hafa haft rangt
eftir sér í bókinni.
Við réttarhöldin hefur dóttir
Brechts sannað móðerni sitt með
inu“, verið giftur gyðingi og flúið
nasismann til Norðurlanda og
Bandaríkjanna en hann bjó síðustu
æviárin í Austur-Berlín.
Dóttir Brechts stendur ekki ein
í baráttu sinni, því Brecht-félagið
bandaríska styður hana með ráð-
um og dáð. Hefur það grandskoð-
að bók Fuegis og hafa tekið sam-
an lista yfir hundruð meintra rang-
færslna í henni.
John Fuegi. Brecht-Scall.
fæðingarvottorði. Hún neitar því
hins vegar ekki að hinar ýmsu
hjákonur Brechts voru honum til
aðstoðar við samningu leikrita
hans, enda þakkar hann þeim jafn-
an á titilsíðunum. Hann gekk
meira að segja svo langt að halda
við fjórar konur í einu, auk þess
sem hann gerði hjákonurnar að
kokkum, riturum ofl. Hins vegar
þvertekur dóttirin fyrir það að
marxistinn Brecht hafi verið gyð-
ingahatari. Hann hafi samið verk-
ið „Ótti og óhamingja í Þriðja rík-
DREGIN er upp sú mynd
nf Rrnclil q A