Morgunblaðið - 28.11.1995, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VIGDÍS Finnbogadóttir ræðir við Bernadette Chirac og á milli þeirra sést Noor, drottning Jórdaníu.
*
Forseti Islands á ráðstefnu um réttindi barna
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, tók í gær þátt í alþjóðlegri ráðstefnu í París um réttindi
barna, en Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og Menningarmálastofnun SÞ, UNESCO,
voru meðal aðstandenda ráðstefnunnar. Skipuleggjandi ráðstefnunnar var Anne-Ayirione Giscard
d’Estaing, eiginkona Valery Giscard d’Estaing fyrrum Frakklandsforseta, en ráðstefnuna sóttu
konur í æðstu embættum og eiginkonur þjóðarleiðtoga frá 25 löndum. Talið frá hægri á myndinni
eru Suha Arafat, Marieke de Klerk, Naina Jeltsín, Anne-Aymone Giscard d’Estaing, Vigdís Finn-
bogadóttir og bakvið hana sést Noor, drottning Jórdaníu.
Nýtt útbob
ríkisvíxla
mibvikudaginn 29. nóvember
Ríkisvíxlar til
3, 6 og 12 mánaba,
23. fl. 1995
Útgáfudagur: 1. desember 1995
Lánstími: 3, 6 og 12 mánuðir
Gjalddagar: 1. mars 1996, 7. júní 1996, 6. desember 1996.
Einingar bréfa: 500.000, 1.000.000. 10.000.000,
50.000.000, 100.000.000 kr.
Skráning: Veröa skráöir á Veröbréfaþingi íslands
Viðskiptavaki: Seðlabanki íslands
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlarnir veröa seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt
að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri
en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalánasjóðum,
verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum, lífeyrissjóöum og tryggingafélögum
er heimilt í eigin nafni, að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða,
að lágmarki 1 milljón króna.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa aö hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, mibvikudaginn 29. nóvember. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 562 4070.
4
---------------------------------
Samtök fámennra skóla vilja fresta
flutningi grunnskólans
Ráðherra segir
frestun geta
valdið óvissu
STJÓRN Samtaka fámennra skóla
hefur samþykkt ályktun um að
fresta beri áformum um flutning
grunnskólans frá ríki til sveitarfé-
laga þar til fjárhagslegur grundvöll-
ur sveitarfélaga hafi verið tryggð-
ur. Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra segir hins vegar að ekkert
hafi komið fram sem bendi til að
sveitarfélögin hafi ekki bolmagn til
að taka við rekstri grunnskólanna.
í ályktun stjórnar Samtaka fá-
mennra skóla kemur fram að hún
hafi alvarlegar áhyggjur af að öll
fjárhagsleg ábyrgð á rekstri grunn-
skóla verði flutt til sveitarfélaga
meðan fjárhagsstaða margra þeirra
er svo bág sem raun ber vitni.
„Stjórnin telur grunnskólann
alltof dýrmæta og viðkvæma stofn-
un til að flytja inn í svo ótryggt
rekstrarumhverfi. Stjórnin óttast
að við þessar aðstæður kunni til-
flutningurinn að tefla skólahaldi í
fjölmörgum sveitarfélögum í tví-
sýnu með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum fyrir menntun og framtíð
barna í landinu," segir í ályktuninni.
Réttarstaða kennara
að skýrast
Björn Bjarnason sagði í samtali
við Morgunblaðið að ályktunin kæmi
sér á óvart, miðað við fyrri afstöðu
samtakanna, sem alla tíð hefðu ver-
ið hlynnt því að sveitarfélögin tækju
grunnskólann að sér. „Mér finnst
ekkert hafa komið fram í síðustu
viku á fjármálaráðstefnu sveitarfé-
laganna, sem bendi til að þau séu
ekki í stakk búin til að taka þetta
verkefni að sér. Þvert á móti held
ég að fullur hugur fylgi máli hjá
sveitarstjórnarmönnum, þegar þeir
segjast reiðubúnir að taka málið að
sér og taka þátt með fulltrúum ríkis-
ins og kennara í því mikla starfi,
sem nú hefur verið unnið um nokk-
urra mánaða skeið og miðar að því
að takist að flytja grunnskólann til
sveitarfélaga í byrjun ágúst næst-
komandi,“ sagði Björn.
Ráðherra sagði að í byrjun næsta
mánaðar ætti réttarstaða kennara g
að fara að skýrast. „Það ætti að
minnsta kosti að koma fram um I
hvað er tekizt á í því máli, þegar
hinar margvíslegu athuganir á rétt-
arstöðunni hafa verið gerðar,“ sagði
hann. Björn sagðist ekki hafa orðið
var við annað en að í þessu efni
væri stefnt að samkomulagi.
Tekizt á um hvað séu
ný verkefni
Menntamálaráðherra sagði að
ekki væri deilt um það hvernig
ætti að sjá sveitarfélögunum fyrir
tekjustofnum. „Hins vegar er tekizt
á um hvað beri að skilgreina sem
ný og aukin verkefni frá því sem
verið hefur. Því hefur verið lýst af
hálfu ríkisins að það ætli ekki að
hagnast á þessari breytingu og góð
sátt virðist ríkja um þær jöfnunar-
aðgerðir, sem kynntar hafa verið á
fundum víða um land í haust. Mér
virðist að einnig í þessu efni hafi
menn unnið með því hugarfari að
ná samkomulagi.
Björn sagði að hugmyndir sveit-
arfélaga um sérfræðiþjónustu væru
víða vel mótaðar og að ekki væri
ástæða til að óttast að sú þjónusta
minnkaði við flutninginn.
„Mér fínnast rökin fýrir að slá
málinu á frest ekki í anda þess sam-
starfs, sem hefur skapazt um málin.
Þvert á móti getur það valdið óvissu
ef menn fara að telja sér trú um
að sveitarfélögin háfi ekki bolmagn
til að taka við grunnskólanum. Það
hefur rætzt úr fjárhag þeirra frekar
en hitt, að því er fram kom á ijár-
málaráðstefnunni,“ segir Björn
Bjamason.
[
i
I
Kaup Tómasar A. Tómassonar
á Pósthússtræti 9
VIS A samþykkti
hvorki ábyrgðir
né raðgreiðslur
FASTEIGNAVIÐSKIPTI hér á landi
hafa hingað til ekki verið stunduð
með greiðslukortum og fregnir um
að raðgreiðslur greiðslukortafyrir-
tækisins VISA-íslands hafí verið
notaðar til að festa kaup á húsinu
í Pósthússtræti 9 eiga ekki við rök
að styðjast, að því er fram kemur
hjá talsmanni VISA-Íslands. Rað-
greiðslur snúast um sýnu minni upp-
hæðir, en hér um ræðir.
Raðgreiðslur VISA fara þannig
fram að korthafar gefa út skulda-
bréf vegna viðskipta, sem þeir gera.
Innheimtan fer þannig fram að
korthafinn leyfir að afborganir,
vextir og aðrar færslur verði skuld-
færðar mánaðarlega, en VISA-
ísland sér um að koma fénu til eig-
anda skuldabréfsins, hvort sem það
er í höndum þess, sem viðskiptin
"oru gerð við, eða hefur verið selt
þriðja aðila.
„Ekkert raðgreiðslubréf hefur
verið gefið út vegna þessara við-
skipta," sagði Leifur Steinn Elísson,
aðstoðarframkvæmdastjóri VISA, í
samtali við Morgunblaðið um kaup
Tómasar á Pósthússtræti 9 frá
Reykjavíkurborg á 54 milljónir
króna. „Auk þess er hámarkið á
þessum raðgreiðslum langt, langt
undir þeirri upphæð sem hér er um
að_ræða.“
I frétt Morgunblaðsins á mið-
vikudag um þessi viðskipti Tómasar
og Reykjavíkurborgar, var sagt að
til tryggingar legði kaupandi fram
yfirlýsingu frá VISA-íslandi um að
fyrirtækið skuldbyndi sig til að
leggja inn greiðslur á reikning borg-
arsjóðs á gjalddögum. Upplýsingar
þessar voru úr gögnum frá Reykja-
víkurborg.
„Það hefur ekkert verið við okkur
talað um að veita slíka ábyrgð og
það munum við ekki gera,“ sagði
Leifur Steinn. „Við getum ekki tek-
ið ábyrgð á framtíð einstakra fyrir-
tækja. VISA ábyrgist ekkert.“
c
í